Í Hveragerði er margt markvert að sjá og auðveldlega má eyða drjúgum tíma í að skoða það sem bærinn hefur uppá að bjóða. Byrja mætti daginn á hverasvæðinu þar sem fræðast má um mismunandi tegundir hvera en þeir eru einkar fjölbreyttir á svæðinu. Hveragerðiskirkja gnæfir yfir gestum en rétt handan hverasvæðisins eru skáldagöturnar Frumskógar og Bláskógar þar sem mörg af stórskáldum þjóðarinnar bjuggu á árdögum byggðar í Hveragerði. Rétt hjá kirkjunni er Sandhólshverinn og ekki er langt í skógræktina undir Hamrinum en þar hafa verið lagðar fallegar gönguleiðir um skógi vaxnar hlíðar. Í lystigarðinum í miðbænum er notalegt að borða nestið sitt um leið og tærnar eru bleyttar í ylvolgri ánni og dáðst að Reykjafossi. Sé gengið yfir göngubrúna í lystigarðinum og upp brekkuna handan árinnar er komið að sundlauginni Laugaskarði þar sem einkar ánægjulegt er að ljúka deginum í sjóðheitum pottunum eða heilsusamlegu gufubaðinu áður en einhver hinna fjölmörgu veitingastaða bæjarins eru heimsóttir.
Undir flipunum hér til hliðar má finna upplýsingar um áhugaverða staði í Hveragerði ásamt greinargóðum upplýsingum um hverasvæðið í miðbænum og götukorti af bæjarfélaginu.
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 17 í Listasafni Árnesinga
Í verkum sínum fjallar Svala meðal annars um tengslin á milli minninganna, sagnanna, og svo hins uppfundna, eða tilbúna. Hún hefur einkum fengist við ljósmyndaverk og oftar enn ekki er myndum raðað saman, tveimur eða fleirum til þess að skapa orðræðu eða ef til vill torræðu á milli einstakra ramma. Ljósmyndaverk Svölu eru ljóðræn og huglæg.
Svala mun sýna og segja frá verkum sínum í erindi í Listasafninu síðdegis í dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Sunnudaginn 25. júlí kl. 15 verður
sýningin
ÁR: málverkið á tímum straumvatna
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson ▪ Þorvaldur
Skúlason
Nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins: www. listasafnarnesinga.is
Verið velkomin











