Markmið vinnuskólans
- að læra stundvísi
- að hafa ánægju af því að skila góðu verki
- að læra að umgangast bæinn okkar af virðingu
- að auka færni í samskiptum
- að læra vinnubrögð og meðferð verkfæra
- að fegra og snyrta umhverfi okkar
Vinnutími:
Nemendur vinna frá 8. júní til 28. júlí 2010.
kl. 9:30 - 12:00 og 13:00 - 15:30 alla virka daga.
Lögð er áhersla á að nemendur klæði sig eftir veðri í viðeigandi fatnað.
Laun:
Viðmiðunartaxti fyrir sumarið 2010. Laun greiðast um mánaðamót.
Nemendur fæddir 1994 þurfa að skila inn skattkorti með umsókn sinni.
Nemendur fæddir 1996 fá kr 374 m/orl. á klst.
Nemendur fæddir 1995 fá kr. 422 m/orl. á klst.
Nemendur fæddir 1994 fá kr. 567 m/orl. á klst.
Starfsreglur:
- Vinnuskólinn er tóbakslaus vinnustaður
- Mæta ber stundvíslega til vinnu
- Beiðni um leyfi eða frívikur afgreiðir verkstjóri
- Ef veikindi eiga sér stað, ber að tilkynna verkstjóra og/eða flokksstjóra það símleyðis að morgni dags.
- Fara skal vel með verkfæri, stunda vinnuna af samviskusemi og fara eftir leiðbeiningum og fyrirmælum flokksstjóra.
- Vinnuskólinn leggur ekki til vinnufatnað.
- Engin ábyrgð er tekin á fötum, reiðhjólum eða öðrum hlutum sem starfsmenn er með á vinnustað.
- Notkun farsíma/ipod við vinnu er ekki heimil.
Brot á starfsreglum:
Brjóti nemandi vísvitandi reglur vinnuskólans getur flokksstjóri vísað starfsmanni úr vinnu tímabundið en brottvikning er í höndum verkstjóra í samráði við flokksstjóra og menningar- og frístundafulltrúa.
1. brot tiltal, áminning
2. brot rekinn í einn dag, samtal við foreldra/forráðamenn
3. brot rekinn alveg.
Nánari upplýsingar gefur Jóhanna M. Hjartardóttir menningar- og frístundafulltrúi s. 483 4000
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði verður haldin í
Hveragerði 22.-24. sept. nk.
Skráningar eru ennþá í fullum gangi. Vona að þið hafið aðeins látið
vita af ungmennaráðstefnunni í kringum ykkur!!!
Ungmennaráðstefnan er frábært tækifæri fyrir ungt fólk til að
fræðast, taka þátt, hafa áhrif, mynda tengslanet og svo að hafa
gaman saman.
• Logi Bergmann, fjölmiðlamaður, með kynningu á möguleikum ungs fólks í fjölmiðlaumræðum, framkomu og þátttöku.
• Pia Viktoria, finnskur sjálfboðaliði, verður með kynningu á möguleikum ungs fólks í sjálfboðastarfi.
• Bára Sigurjónsdóttir, Umboðamaður barna, verður með umræður um réttindi ungs fólks.
• Stefán Bogi mun svo leiða hópinn í því að
finna sameiginlega niðurstöðu og mynda ályktun ráðstefnunnar.
• Ungmennaráð UMFÍ sér um verkefni úr Kompás,
kynnisferð og kvöldvöku og
• hópefli verður í höndum Jörgens.
Hveragerðisbær auglýsir eftir áhugasömu
ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur áhuga á að fara á
ráðstefnuna fyrir hönd Hveragerðisbæjar. Vinsamlega hafið samband
við Jóhönnu Hjartardóttur í síma 483-4000 eða á netfangið jmh@hveragerdi.is
Laugardaginn 17. september á Grýluvelli
- Kl. 12:00 knattþrautir
- Kl. 12:45 sumarið gert upp, ný æfingatafla og
vetrarstarfið kynnt
- Kl. 13:15 grillveisla og ís
- Kl. 14:00 Hamar – ÍH 2. deild
Mætum öll og tökum mömmu og pabba með!
Fimmtudaginn 15.september Kl.19:15
í íþróttahöllinni í Hveragerði
Mætum öll og styðjum Hamarsliðið til sigurs!“
Aðgangseyrir 1.000 Ath. stuðningsmannakortin gilda ekki á bikarleiki
ÁFRAM HAMAR!!!
Á morgun, laugardaginn 3. september kl. 15.00 verður ný sýning opnuð í Listasafni Árnesinga sem fengið hefur heitið ALMYNSTUR, en þar eru verk Arnars Herbertssonar, JBK Ransu og Davíðs Arnar Halldórssonar skoðuð í samhengi.
Sjá nánar á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is
Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta-
og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum
íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka
á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton,
sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið,
Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja
nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna
vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti
nýjum iðkendum á öllum aldri.
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins
Ræðum framhaldið í vetur, skoðum nýja sýningu og eigum notalega kvöldstund með handavinnuna okkar. Gaman væri að sjá eitthvað af afrakstri sumarsins.
ATH. Nýr inngangur í bókasafnið beint á móti aðaldyrum í Sunnumörk!
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins







