Kalda vatnið kemur úr þremur borholum á Selhæðum norðan
Hamars.
Varavatnsból er við Varmá norðan Friðarstaða.
Hámarksafköst veitunnar eru 75 l/sek.
Einn 750 rúmmetra (tonna) miðlunartankur er á kerfinu, staðsettur
við Hamarsendann við Hlíðarhaga.
Stofnframkvæmdir.
Unnið er að lagningu stofnlagna í 1. áfanga Kambalands.
Verkið er unnið samhliða annarri gatnagerð á svæðinu. Framkvæmdin
er á vegum og á kostnað landeiganda, sem afhendir Hveragerðisbæ
lagnirnar til eignar að verki loknu.
Engar aðrar stofnframkvæmdir eru nú í gangi en nýlokið er við
endurnýjun lagna í Þórsmörk.
Starfsleyfi Vatnsveitu Hveragerðis
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 17 í Listasafni Árnesinga
Í verkum sínum fjallar Svala meðal annars um tengslin á milli minninganna, sagnanna, og svo hins uppfundna, eða tilbúna. Hún hefur einkum fengist við ljósmyndaverk og oftar enn ekki er myndum raðað saman, tveimur eða fleirum til þess að skapa orðræðu eða ef til vill torræðu á milli einstakra ramma. Ljósmyndaverk Svölu eru ljóðræn og huglæg.
Svala mun sýna og segja frá verkum sínum í erindi í Listasafninu síðdegis í dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Sunnudaginn 25. júlí kl. 15 verður
sýningin
ÁR: málverkið á tímum straumvatna
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson ▪ Þorvaldur
Skúlason
Nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins: www. listasafnarnesinga.is
Verið velkomin











