25.2.2009 15:51:04
Útboð á byggingarrétti lóða í Hveragerði.
Tilkynningar
27.7.2010 08:38:59
Svala Ólafsdóttir með erindi í máli og
myndum
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 17 í Listasafni Árnesinga
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 17 í Listasafni Árnesinga
Svala (1954) er gestalistamaður
Varmahlíðarhússins um þessar mundir. Hún ólst upp á Selfossi en býr
nú í Bandaríkjunum. Hún sótti menntun sína til Bandaríkjanna með
áherslu á ljósmyndun og hefur frá námslokum sinnt listsköpun og
kennslu ytra. Nánari upplýsingar um Svölu er að finna á heimasíðu
safnsins www.listasafnarnesinga.is og á heimasíðu hennar
sjálfrar www.svalaolafsdottir.com
Í verkum sínum fjallar Svala meðal annars um tengslin á milli minninganna, sagnanna, og svo hins uppfundna, eða tilbúna. Hún hefur einkum fengist við ljósmyndaverk og oftar enn ekki er myndum raðað saman, tveimur eða fleirum til þess að skapa orðræðu eða ef til vill torræðu á milli einstakra ramma. Ljósmyndaverk Svölu eru ljóðræn og huglæg.
Svala mun sýna og segja frá verkum sínum í erindi í Listasafninu síðdegis í dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

23.7.2010 11:26:14

Sunnudaginn 25. júlí kl. 15 verður
sýningin
ÁR: málverkið á tímum straumvatna
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson ▪ Þorvaldur
Skúlason
opnuð í Listasafni Árnesinga í
Hveragerði. Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns Árnesinga og
Listasafns Háskóla Íslands, en í þess eigu er langstærsta safn
landsins af verkum eftir Þorvald Skúlason, rúmlega 200 málverk og
yfir þúsund teikningar og skissur frá öllum tímabilum ferils hans.
Safnstjóri Listasafns Háskóla Íslands er Auður A. Ólafsdóttir
listfræðingur og er hún jafnframt sýningarstjóri sýningarinnar. Hún
hefur valið að láta verk hans eiga stefnumót við samtímalistina,
við verk Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar og kallar það í
sýningarskrá „hinn óvænta fund rökhyggju og rómantíkur í miðju
straumvatni.”
Nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins: www. listasafnarnesinga.is
Nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins: www. listasafnarnesinga.is
Tríó Páls Sveinssonar laðar fram ljúfa
jass-tóna við opnunina
Verið velkomin
Verið velkomin
Viðburðir
Markaðstorg í Sunnumörkinni
8.5.2010
Fundargerðir
Skjöl