Hamarshöllin verður fjölnota íþróttahöll sem hýsir gervigrasvöll og fjölnota íþróttagólf í fullri stærð. Stærð íþróttahallinnar er um 5000 m². Íþróttahöllin er upphituð úr tvöföldum dúk sem er borinn uppi af innri loftþrýstingi og loftþrýstingi á milli ytra og innra lags í útveggjum og þaki. Nú í ár verða reistir sökkulveggir og árið 2012 rís höllin og verður lagður gervigrasvöllur. Fyrirhugað er að Hamarshöllin verði fullinnréttuð árið 2013. Ákveðið hefur verið að skipta við framleiðendur frá DUOL sem bjóða mjög vönduð hús með háum gæðastuðli sem eru með Evróskri vottun samkvæmt EN stöðlum og hafa verið samþykkt af Brunamálastofnun Íslands. Áætlaður kostnaður er um 230 milljónir eða um kr 46.000 kr/m².
Hamarshöllin mun gjörbreyta aðstöðu bæjarbúa til íþróttaiðkunar og bjóða upp á fjölbreytta möguleika fyrir íþróttafólk og ferðamenn sem vilja sækja bæinn heim. Í samvinnu við íþróttahreyfingu bæjarins verður skoðað hvernig er best að nota núverandi íþróttahús og fyrirhugaða Hamarshöll en möguleikarnir eru óþrjótandi og spennandi.
Frummælendurnir kynntu loftborið íþróttahús eða mjúkhýsi sem hugmynd að íþróttamannvirki í Hveragerði . Fulltrúar frá Akranesi kynntu þá leið sem þeir fóru í uppbyggingu íþróttahallar.
Fyrirlestrar:
Ari Guðmundsson
Inga Hersteinsdóttir
Lúðvík Georgsson
Sturlaugur Sturlaugsson
Guðmundur Páll Jónsson
Smellið á tengilinn til að skoða heimasíðu DUOL
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði verður haldin í
Hveragerði 22.-24. sept. nk.
Skráningar eru ennþá í fullum gangi. Vona að þið hafið aðeins látið
vita af ungmennaráðstefnunni í kringum ykkur!!!
Ungmennaráðstefnan er frábært tækifæri fyrir ungt fólk til að
fræðast, taka þátt, hafa áhrif, mynda tengslanet og svo að hafa
gaman saman.
• Logi Bergmann, fjölmiðlamaður, með kynningu á möguleikum ungs fólks í fjölmiðlaumræðum, framkomu og þátttöku.
• Pia Viktoria, finnskur sjálfboðaliði, verður með kynningu á möguleikum ungs fólks í sjálfboðastarfi.
• Bára Sigurjónsdóttir, Umboðamaður barna, verður með umræður um réttindi ungs fólks.
• Stefán Bogi mun svo leiða hópinn í því að
finna sameiginlega niðurstöðu og mynda ályktun ráðstefnunnar.
• Ungmennaráð UMFÍ sér um verkefni úr Kompás,
kynnisferð og kvöldvöku og
• hópefli verður í höndum Jörgens.
Hveragerðisbær auglýsir eftir áhugasömu
ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur áhuga á að fara á
ráðstefnuna fyrir hönd Hveragerðisbæjar. Vinsamlega hafið samband
við Jóhönnu Hjartardóttur í síma 483-4000 eða á netfangið jmh@hveragerdi.is
Laugardaginn 17. september á Grýluvelli
- Kl. 12:00 knattþrautir
- Kl. 12:45 sumarið gert upp, ný æfingatafla og
vetrarstarfið kynnt
- Kl. 13:15 grillveisla og ís
- Kl. 14:00 Hamar – ÍH 2. deild
Mætum öll og tökum mömmu og pabba með!
Fimmtudaginn 15.september Kl.19:15
í íþróttahöllinni í Hveragerði
Mætum öll og styðjum Hamarsliðið til sigurs!“
Aðgangseyrir 1.000 Ath. stuðningsmannakortin gilda ekki á bikarleiki
ÁFRAM HAMAR!!!
Á morgun, laugardaginn 3. september kl. 15.00 verður ný sýning opnuð í Listasafni Árnesinga sem fengið hefur heitið ALMYNSTUR, en þar eru verk Arnars Herbertssonar, JBK Ransu og Davíðs Arnar Halldórssonar skoðuð í samhengi.
Sjá nánar á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is
Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta-
og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum
íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka
á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton,
sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið,
Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja
nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna
vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti
nýjum iðkendum á öllum aldri.
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins
Ræðum framhaldið í vetur, skoðum nýja sýningu og eigum notalega kvöldstund með handavinnuna okkar. Gaman væri að sjá eitthvað af afrakstri sumarsins.
ATH. Nýr inngangur í bókasafnið beint á móti aðaldyrum í Sunnumörk!
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins







