Sundlaugin í Laugaskarði
Laugaskarði
810 Hveragerði
Sími: 483-4113
Forstöðumaður:
Arnfríður Þráinsdóttir
GSM: 660-3917
Opnunartími:
Mánud.-fimmtud. 7:00-20:30
Föstud. 7:00-17:30
Laugard.-sunnud. 10:00-17:30
Gjaldskrá frá og með 1. jan. 2010
Fullorðnir kr.380
Börn kr. 150
10 miða afsláttarkort fullorðnir kr.2.410
10 miða afsláttarkort börn kr. 720
30 miða afsláttarkort fullorðnir kr. 5.860
Árskortkr. 26.640
Baðföt, leiga kr. 310
Börn og ungmenni 18 ára og yngri með lögheimili í Hveragerði eða stunda nám í Hveragerði fá frítt í sund.
Sundlaugin í Laugaskarði er 50 metra löng og 12 metra breið og var
um langa hríð langstærsta sundlaug landsins. Hún er svokölluð
gegnumrennslislaug, hituð upp með jarðgufu, sem tryggir eðlilegt
sýrustig og hreinleika vatnsins. Laugin er í skjólsælli hvilft sem
veit gegn suðri, norðan Varmár.
Gæslumaður er ávallt á vakt við laugina og auk þess er myndavélakerfi til að auka öryggi sundlaugargesta. Þar er heit, grunn setlaug, heitur pottur með rafmagnsnuddi og náttúrulegt gufubað.
Laugin var byggð í tveimur áföngum, sá fyrri var 25x12 metrar og var tekinn í notkun árið 1938, en síðari hlutinn árið 1945. Í henni æfði íslenska landsliðið í sundi allt til 1966 þegar Laugardalslaugin í Reykjavík kom til sögunnar.
Það var Ungmennafélag Ölfushrepps sem beitti sér mest fyrir því að laugin var gerð og lögðu félagsmenn fram ómælda sjálfboðavinnu. Þeim bættist góður liðsauki þegar Lárus Rist sundkappi fluttist til Hveragerðis árið 1936 og má segja að hann hafi tekið forystu við uppbyggingu laugarinnar og réði meðal annars staðarvali.
Í dag er rekin líkamsræktaraðstaða í sundlauginni af íþróttafélaginu Hamri. Þar er vel búinn lyftingasalur ásamt sal sem nýtist fyrir s.s. spinning, yoga, karlaþrek osfv.
Hveragerðisbær annast allan rekstur og viðhald laugarinnar.
Stöðugildi sundlaugarinnar eru fimm.
Upplýsingar varðandi æfingar og mót í sundlauginni má finna á heimasíðu Hamars www.hamarsport.is.
Íþróttahús Hveragerðis
við Skólamörk
810 Hveragerði
Sími: 483-4348
Forstöðumaður:
Sigurlína Hreinsdóttir
GSM: 660 3902
Stærð íþróttasalarins er 18x33 metrar, áhorfendastæði eru fyrir 240
manns og þar eru búnings- og baðklefar.
Húsið var byggt í tveimur áföngum og var fyrri áfangi tekinn í notkun 1976 en síðari áfangi 1984. Undir hálfu húsinu er kjallari með fjögurra metra lofthæð og þar er nú félagsmiðstöð með æfingaaðstöðu fyrir hljómsveitir. Lægri kjallari undir hinum helmingnum er nýttur sem geymsla.
Grunnskólinn í Hveragerði hefur afnot af húsinu á skólatíma til íþróttakennslu. Að skóla loknum hefur Íþróttafélagið Hamar afnot af húsinu og þar fer fram fjölbreytt íþróttastarf á vegum Hamars.
Hveragerðisbær annast allan rekstur og viðhald íþróttahússins.
Stöðugildi við íþróttahúsið eru þrjú og hálft.
Upplýsingar varðandi æfingar og mót í íþróttahúsinu má finna á heimasíður Hamars www.hamarsport.is.
Íþróttavellir Hveragerðis
Grýluvöllur
norðan Hamars
810 Hveragerði
Grýluvöllur er aðalleikvangur meistaraflokks Hamars í knattspyrnu. Hann er 105m x 65m að stærð, grasstúka er fyrir áhorfendur
Æfingavöllur
sunnan Hamars
810 Hveragerði
Vallarhús Grýluvallar
norðan Hamars
810 Hveragerði
sími 482 7883
Umsjónamaður:
Steinar Logi Hilmarsson
GSM 897 6220
Æfingavöllurinn er 110m x 65m að stærð, þar fara fram flestar æfingar og mót fyrir yngri knattspyrnu iðkendur Hamars.
Golfklúbbur Hveragerðis annast slátt, sáningu, söndun og áburðargjafir.
Hveragerðisbær annast allan rekstur og viðhald íþróttavalla.
Upplýsingar varðandi æfingar og mót á völlunum má finna á heimasíðu Hamars www.hamarsport.is.
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 17 í Listasafni Árnesinga
Í verkum sínum fjallar Svala meðal annars um tengslin á milli minninganna, sagnanna, og svo hins uppfundna, eða tilbúna. Hún hefur einkum fengist við ljósmyndaverk og oftar enn ekki er myndum raðað saman, tveimur eða fleirum til þess að skapa orðræðu eða ef til vill torræðu á milli einstakra ramma. Ljósmyndaverk Svölu eru ljóðræn og huglæg.
Svala mun sýna og segja frá verkum sínum í erindi í Listasafninu síðdegis í dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Sunnudaginn 25. júlí kl. 15 verður
sýningin
ÁR: málverkið á tímum straumvatna
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson ▪ Þorvaldur
Skúlason
Nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins: www. listasafnarnesinga.is
Verið velkomin











