er rekin í húsnæði Grunnskólans í Hveragerði.
810 Hveragerði
Sími: 483 4350
Bréfasími: 483 5060
http://www.skjalftaskjol.net/
Forstöðumaður:
Páll Sveinsson
GSM: 822-9987
palli@hveragerdi.is
Starfsmenn:
Guðríður Aadnegard
GSM: 897-4282
Netfang: gudridur@hveragerdi.is
Heiða Margrét Guðmundsdóttir
heidamargret@hveragerdi.is
5.-10. bekkur
Félagsmiðstöðin er staðsett í húsnæði GíH (Grunnskólanum í
Hveragerði) og er hún rekin í samstarfi við GíH. Börn og unglingar
sækjafélagsmiðstöðina á virkum dögum og er ýmislegt gert sér til
afþreyingar. Á opnum húsum gefst nemendum tækifæri á því að koma
saman og spila, tefla, spila borðtennis, leika í pool, playstation
ofl. Nemendur á miðstigi fara í leiki og baka öðru hverju auk þess
sem þeir geta fengið þjálfun í leiklist og hljóðfæraleik. Á
unglingastigieru listasmiðjur, bíókvöld, íþróttakeppnir, beinar
útsendingar íþróttaviðburða, menningarkvöld og margt, margt fleira.
Þá eru nokkrar leikjatölvur sem þau hafa afnot af. Einnig er farið
á dansleiki og skemmtanir á vegum SAMFÉS t.d. söngvakeppni,
„Freestyle“-keppni, Stíll og SAMFÉS-ballið.
Að síðustu má geta þess að farnar hafa verið óvissuferðir og bíóferðir sem verið hafa vinsælar og tekist vel í alla staði.
Opnunartími 2009 -´10
Félagsmiðstöðin er opin fyrir:
5. - 7. bekk
Mánud. kl. 15:30 - 18:00
Miðv.d. kl. 16:30 - 19:00
8. - 10. bekk
Mánud. kl. 19:00 - 21:30
Miðv.d. kl. 19:00 - 21:30
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði verður haldin í
Hveragerði 22.-24. sept. nk.
Skráningar eru ennþá í fullum gangi. Vona að þið hafið aðeins látið
vita af ungmennaráðstefnunni í kringum ykkur!!!
Ungmennaráðstefnan er frábært tækifæri fyrir ungt fólk til að
fræðast, taka þátt, hafa áhrif, mynda tengslanet og svo að hafa
gaman saman.
• Logi Bergmann, fjölmiðlamaður, með kynningu á möguleikum ungs fólks í fjölmiðlaumræðum, framkomu og þátttöku.
• Pia Viktoria, finnskur sjálfboðaliði, verður með kynningu á möguleikum ungs fólks í sjálfboðastarfi.
• Bára Sigurjónsdóttir, Umboðamaður barna, verður með umræður um réttindi ungs fólks.
• Stefán Bogi mun svo leiða hópinn í því að
finna sameiginlega niðurstöðu og mynda ályktun ráðstefnunnar.
• Ungmennaráð UMFÍ sér um verkefni úr Kompás,
kynnisferð og kvöldvöku og
• hópefli verður í höndum Jörgens.
Hveragerðisbær auglýsir eftir áhugasömu
ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur áhuga á að fara á
ráðstefnuna fyrir hönd Hveragerðisbæjar. Vinsamlega hafið samband
við Jóhönnu Hjartardóttur í síma 483-4000 eða á netfangið jmh@hveragerdi.is
Laugardaginn 17. september á Grýluvelli
- Kl. 12:00 knattþrautir
- Kl. 12:45 sumarið gert upp, ný æfingatafla og
vetrarstarfið kynnt
- Kl. 13:15 grillveisla og ís
- Kl. 14:00 Hamar – ÍH 2. deild
Mætum öll og tökum mömmu og pabba með!
Fimmtudaginn 15.september Kl.19:15
í íþróttahöllinni í Hveragerði
Mætum öll og styðjum Hamarsliðið til sigurs!“
Aðgangseyrir 1.000 Ath. stuðningsmannakortin gilda ekki á bikarleiki
ÁFRAM HAMAR!!!
Á morgun, laugardaginn 3. september kl. 15.00 verður ný sýning opnuð í Listasafni Árnesinga sem fengið hefur heitið ALMYNSTUR, en þar eru verk Arnars Herbertssonar, JBK Ransu og Davíðs Arnar Halldórssonar skoðuð í samhengi.
Sjá nánar á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is
Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta-
og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum
íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka
á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton,
sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið,
Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja
nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna
vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti
nýjum iðkendum á öllum aldri.
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins
Ræðum framhaldið í vetur, skoðum nýja sýningu og eigum notalega kvöldstund með handavinnuna okkar. Gaman væri að sjá eitthvað af afrakstri sumarsins.
ATH. Nýr inngangur í bókasafnið beint á móti aðaldyrum í Sunnumörk!
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins







