9.1.2009 12:33:45
Reglugerð fyrir afreks- og styrktarsjóð

1. gr.
Sjóðurinn heitir afreks – og styrktarsjóður Hveragerðisbæjar.

2. gr.
Sjóðurinn veitir styrki og viðurkenningar eftir nánari ákvörðun Íþrótta – og tómstundanefndar.

3. gr.
Stjórn sjóðsins
Íþrótta– og tómstundanefnd Hveragerðisbæjar fer með stjórn sjóðsins, ákvarðar styrkveitingar og viðurkenningar fyrir unnin afrek og  hefur eftirlit með nýtingu styrkveitinga.  Starfstími sjóðsstjórnar er kjörtímabilið. Menningar- og frístundafulltrúi er starfsmaður sjóðsins.

4. gr.
Markmið sjóðsins eru:
• að veita afreksíþróttafólki með lögheimili í Hveragerðisbæ fjárhagslegan styrk vegna æfinga og/eða keppni, og þannig búa þeim sem besta aðstöðu til að stunda íþrótt sína.
• að veita íþróttahópum í íþróttafélögum í Hveragerðisbæ sem náð hafa afburðaárangri, fjárhagslegan styrk og gera þeim kleift að búa sig enn betur undir áframhaldandi keppni.
• að veita árlega styrki og viðurkenningar fyrir unnin afrek í íþróttum.

5. gr.
Viðmið styrkveitinga
Við styrkveitingar skal taka mið af eftirfarandi:
• Árangri á innlendum og erlendum vettvangi.
• Markmiðum og áætlunum um æfingar og/eða þátttöku í keppnum innanlands og erlendis.
• Unnum titlum í íþróttum á árinu.

6. gr.
Umsóknir um styrki
Stjórn sjóðsins úthlutar styrkveitingum úr sjóðnum tvisvar á ári, í apríl og október og þurfa umsóknir um styrki að berast fyrir 1. apríl og 1. október ár hvert.  Stjórninni er heimilt að auglýsa eftir umsóknum um styrki eftir nánari ákvörðun sinni.  Einnig getur hún veitt styrki og viðurkenningar án umsókna.  Umsóknareyðublað um styrk úr afreks- og styrktarsjóði er á heimasíðu Hveragerðisbæjar www.hveragerdi.is .
Umsóknir um styrki:
• vegna einstaklinga skulu vera í nafni viðkomandi íþróttamanns.
• vegna íþróttahópa skulu vera í nafni viðkomandi íþróttaflokks/-hóps.
• skulu vera staðfestar af formanni deildarinnar/félagsins.
Með umsóknum skulu fylgja:
• áætlanir um æfingar og fyrirhugaða þátttöku í keppnum og markmiðum íþróttamannsins
• fjárhagsáætlun vegna fyrirhugaðra æfinga og/eða keppna.
• önnur gögn er stjórn sjóðsins kann að telja nauðsynleg.
Stjórn sjóðsins skal svara skriflega öllum umsóknum sem berast.

7. gr.
Greiðsla styrkja
Greiðslur úr afreks – og styrktarsjóði greiðast strax þegar ákvörðun sjóðsstjórnar liggur fyrir.  Styrkupphæðir miðast við fjármagnsgetu sjóðsins hverju sinni.

8. gr.
Skyldur styrkþega
Allir íþróttamenn sem þiggja styrk úr afreks – og styrktarsjóði skulu hlíta þeim reglum sem Íþrótta – og Ólympíusamband Íslands setur um lyfjanotkun og lyfjaeftirlit, svo og þeim almennu siða og agareglum sem gilda um framkomu íþróttamanna innan vallar sem utan.  Styrkþegi þarf að skila greinargerð til sjóðsstjórnar um hvernig styrknum var varið.

9. gr.
Varsla afreks– og styrktarsjóðs
Vörslu og reiknishald sjóðsins annast stjórn sjóðsins.
Stjórn sjóðsins skal birta uppgjör hans árlega með fundargerðum íþrótta – og tómstundanefndar.

10 gr.
Tekjur sjóðsins
• Árlegt framlag úr bæjarsjóði Hveragerðisbæjar samkvæmt fjárhagsáætlun hverju sinni.
• Frjáls framlög.

11. gr.
Gildistími
Reglugerðin gildir frá 1. janúar 2009.

 Umsóknareyðublað er að finna undir Efnisveitum, eyðublöð.

Tilkynningar
19.09.2011
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði

Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði verður haldin í Hveragerði 22.-24. sept. nk.

Skráningar eru ennþá í fullum gangi. Vona að þið hafið aðeins látið vita af ungmennaráðstefnunni í kringum ykkur!!!

Ungmennaráðstefnan er frábært tækifæri fyrir ungt fólk til að fræðast, taka þátt, hafa áhrif, mynda tengslanet og svo að hafa gaman saman.


Meðal þess sem efst er á dagskrá:
• Logi Bergmann, fjölmiðlamaður, með kynningu á möguleikum ungs fólks í fjölmiðlaumræðum, framkomu og þátttöku.
• Pia Viktoria, finnskur sjálfboðaliði, verður með kynningu á möguleikum ungs fólks í sjálfboðastarfi.
• Bára Sigurjónsdóttir, Umboðamaður barna, verður með umræður um réttindi ungs fólks.

Allir þessir aðilar bjóða upp á vinnustofur þar sem umræður fara fram.

• Stefán Bogi mun svo leiða hópinn í því að finna sameiginlega niðurstöðu og mynda ályktun ráðstefnunnar.
• Ungmennaráð UMFÍ sér um verkefni úr Kompás, kynnisferð og kvöldvöku og
• hópefli verður í höndum Jörgens.

Hveragerðisbær auglýsir eftir áhugasömu ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur áhuga á að fara á ráðstefnuna fyrir hönd Hveragerðisbæjar. Vinsamlega hafið samband við Jóhönnu Hjartardóttur í síma 483-4000 eða á netfangið jmh@hveragerdi.is

14.09.2011
Haustfagnaður knattspyrnudeildar Hamars

Laugardaginn 17. september á Grýluvelli

  • Kl. 12:00 knattþrautir
  • Kl. 12:45 sumarið gert upp, ný æfingatafla og vetrarstarfið kynnt
  • Kl. 13:15 grillveisla og ís
  • Kl. 14:00 Hamar – ÍH 2. deild

Mætum öll og tökum mömmu og pabba með!

13.09.2011
Meistaraflokkur kvenna Lengjubikarinn
Hamar - Stjarnan
Fimmtudaginn 15.september Kl.19:15
í íþróttahöllinni í Hveragerði
Nú er leiktíðin að byrja og komið að fyrsta bikarleik vetrarins hjá stelpunum okkar!!!
Mætum öll og styðjum Hamarsliðið til sigurs!“
Aðgangseyrir 1.000 Ath. stuðningsmannakortin gilda ekki á bikarleiki
ÁFRAM HAMAR!!!
02.09.2011
ALMYNSTUR
Verið velkomin á opnun í Listasafni Árnesinga – litrík og fjörug sýning.

Á morgun, laugardaginn 3. september kl. 15.00 verður ný sýning opnuð í Listasafni Árnesinga sem fengið hefur heitið ALMYNSTUR, en þar eru verk Arnars Herbertssonar, JBK Ransu og Davíðs Arnar Halldórssonar skoðuð í samhengi.
Sjá nánar á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is
31.08.2011
Félagakynning í Grunnskólanum

Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta- og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton, sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið, Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti nýjum iðkendum á öllum aldri.

Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.

Stjórn foreldrafélagsins



31.08.2011
Fyrsta prjónakaffi haustsins í Bókasafninu í Hveragerði
Mánudagskvöldið 5. september kl. 20-22.
Ræðum framhaldið í vetur, skoðum nýja sýningu og eigum notalega kvöldstund með handavinnuna okkar. Gaman væri að sjá eitthvað af afrakstri sumarsins.

ATH. Nýr inngangur í bókasafnið beint á móti aðaldyrum í Sunnumörk!

31.08.2011
Myndlistarsýning Helgu Haraldsdóttur í Bókasafninu opnar 2. september
Föstudaginn 2. september kl. 18 opnar Helga Haraldsdóttir myndlistarsýningu „við sprunguna” í Bókasafninu í Hveragerði. Boðið verður upp á hressingu og gott spjall og eru allir velkomnir. Þetta er fimmta einkasýning Helgu. Hún hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga á vegum Myndlistarfélags Árnessýslu en hún hefur starfað með félaginu frá því hún flutti til Hveragerðis árið 1991. Sýningin, sem er sölusýning, stendur til 30. september og er opin um leið og safnið, virka daga kl. 13-19 og laugardaga kl. 11-14.
31.08.2011
íþrótta- og tómstundakynning - afþreying í vetur
Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta- og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton, sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, Listasafnið, Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti nýjum iðkendum á öllum aldri.
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins

Viðburðir
Fundargerðir
Skjöl
Br110915.pdfBæjarráð Ósamþykkt15.9.2011
Fundargerð_116_110906.pdfSkipulags- og byggingarnefnd9.9.2011
bs20110908.pdfBæjarstjórn9.9.2011
míf110901.pdfMenningar- íþrótta- og frístundanefnd9.9.2011
míf110614.pdfMenningar- íþrótta- og frístundanefnd9.9.2011