Almennur heimilisúrgangur
Gámastöðin tekur við almennum þurrum úrgangi, sem fellur til við
daglegan heimilisrekstur.
Gámafjöldi: Einn 18 m3 lokaður pressugámur
Brotajárn
Gámastöðin tekur við brotajárni og ýmsum málmtegundum. Í þennan
flokk fer allur samsettur úrgangur þar sem málmur er í meirihluta.
Brotajárn er flutt til Furu hf. í Hafnafirði.
Gámafjöldi: Einn 20 feta (33 m3) opinn gámur
Timbur og annar grófur úrgangur
Gámastöðin tekur við timbri og öðrum blönduðum úrgangi, oftast
húsgögn, innréttingar, byggingahlutar úr timbri og stórar
umbúðir.
Gámafjöldi: Einn 20 feta (17 m3) opinn gámur
Garðaúrgangur
Gámastöðin tekur við garðaúrgangi s.s. grasi, laufi, blóma- og
jurtaleyfum og trjáafklippum. Efni eins og steinull, bönd, gifs,
gler og steypa eru einnig flokkuð með garðaúrgangi.
Gámafjöldi: Einn 20 feta (17 m3) opinn gámur
Bylgjupappír
Gámastöðin tekur við pappakössum og umbúðum úr bylgjupappa.
Gámafjöldi: Einn 18 m3 lokaður pressugámur
Spilliefni
Gámastöðin tekur við ýmsum spilliefnum s.s. olíumálningu,
terpentínu, rafhlöðum, illgresis- og skordýraeitri,
kvikasilfurshitamælum, sýrum, bösum framköllunarvökvum o.s.fv.
Efnunum skal skila á Gámastöðina, helst í upprunalegum eða traustum
umbúðum með upplýsingum um innihald. Spilliefnin eru meðhöndluð að
mestu hjá Efnamóttökunni hf. í Gufunesi.
Gámafjöldi: Einn 20 feta (35 m3) lokaður og læstur gámur (4-5 ker
eru staðsett í gáminum).
Olíur
Gámastöðin tekur við olíum og bensíni sem fer í lítinn olíutank.
Uppdæling ehf. sér um tæmingu og förgun olíunnar.
Gámafjöldi: Einn 3.0 m3 lokaður tankur.
Dagblöð og tímarit
Gámastöðin tekur við dagblöðum, tímaritum, tölvu-, ljósritunar-,
prentara- og skrifpappír. Íslenska gámafélagið ehf. sér um
söfnunina á þessum úrgangi og kemur honum til Sorpu sem sendir hann
til endurvinnslu í Svíþjóð.
Gámafjöldi: þrír 1 m3 lokaðir gámar.
Fernur
Gámastöðin tekur við fernum með sama hætti og tekið er við
dagblöðum og tímaritum. Á fernur er lagt úrvinnslugjald vegna
söfnunar- og kostnaðar við endurvinnslu.
Gámafjöldi: Einn 1 m3 lokaður gámur.
Dósir og flöskur
a) Skilagjaldsskildum dóum og flöskum má koma í verð hjá
umboðsaðila Endurvinnslunnar. Umboðsaðilinn er staðsettur á
Gámasstöðinni fyrsta mánudag hvers mánaðar á milli kl. 18:00 og
19:00.
Gámafjöldi: Einn 20 feta (35 m3) lokaður gámur.
b) Gámastöðin tekur einnig við dósum og flöskum til styrktar
Skátafélaginu Stróki, Hveragerði.
Gámafjöldi: Eitt 1,5 m3 lokað ker.
Fatnaður
Gámastöðin tekur við notuðum fötum fyrir Hveragerðisdeild Rauða
kross Íslands.
Gámafjöldi: Tveir 3 m3 lokaðir skápar.
Nytjagámur
Gámastöðin tekur við húsgögnum til endurnotkunar. Almenningur getur
sótt húsgögn í gáminn án endurgjalds.
Gámafjöldi: Einn 20 feta (35 m3) lokaður gámur.
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði verður haldin í
Hveragerði 22.-24. sept. nk.
Skráningar eru ennþá í fullum gangi. Vona að þið hafið aðeins látið
vita af ungmennaráðstefnunni í kringum ykkur!!!
Ungmennaráðstefnan er frábært tækifæri fyrir ungt fólk til að
fræðast, taka þátt, hafa áhrif, mynda tengslanet og svo að hafa
gaman saman.
• Logi Bergmann, fjölmiðlamaður, með kynningu á möguleikum ungs fólks í fjölmiðlaumræðum, framkomu og þátttöku.
• Pia Viktoria, finnskur sjálfboðaliði, verður með kynningu á möguleikum ungs fólks í sjálfboðastarfi.
• Bára Sigurjónsdóttir, Umboðamaður barna, verður með umræður um réttindi ungs fólks.
• Stefán Bogi mun svo leiða hópinn í því að
finna sameiginlega niðurstöðu og mynda ályktun ráðstefnunnar.
• Ungmennaráð UMFÍ sér um verkefni úr Kompás,
kynnisferð og kvöldvöku og
• hópefli verður í höndum Jörgens.
Hveragerðisbær auglýsir eftir áhugasömu
ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur áhuga á að fara á
ráðstefnuna fyrir hönd Hveragerðisbæjar. Vinsamlega hafið samband
við Jóhönnu Hjartardóttur í síma 483-4000 eða á netfangið jmh@hveragerdi.is
Laugardaginn 17. september á Grýluvelli
- Kl. 12:00 knattþrautir
- Kl. 12:45 sumarið gert upp, ný æfingatafla og
vetrarstarfið kynnt
- Kl. 13:15 grillveisla og ís
- Kl. 14:00 Hamar – ÍH 2. deild
Mætum öll og tökum mömmu og pabba með!
Fimmtudaginn 15.september Kl.19:15
í íþróttahöllinni í Hveragerði
Mætum öll og styðjum Hamarsliðið til sigurs!“
Aðgangseyrir 1.000 Ath. stuðningsmannakortin gilda ekki á bikarleiki
ÁFRAM HAMAR!!!
Á morgun, laugardaginn 3. september kl. 15.00 verður ný sýning opnuð í Listasafni Árnesinga sem fengið hefur heitið ALMYNSTUR, en þar eru verk Arnars Herbertssonar, JBK Ransu og Davíðs Arnar Halldórssonar skoðuð í samhengi.
Sjá nánar á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is
Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta-
og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum
íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka
á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton,
sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið,
Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja
nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna
vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti
nýjum iðkendum á öllum aldri.
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins
Ræðum framhaldið í vetur, skoðum nýja sýningu og eigum notalega kvöldstund með handavinnuna okkar. Gaman væri að sjá eitthvað af afrakstri sumarsins.
ATH. Nýr inngangur í bókasafnið beint á móti aðaldyrum í Sunnumörk!
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins







