Sveitarfélög í Árnessýslu reka í sameiningu Tónlistarskóla Árnessýslu sem hefur höfuðstöðvar á Selfossi. Í Hveragerði er rekin deild sem starfrækt er í sérinnréttuðu húsnæði í Grunnskólanum í Hveragerði.
Skólinn var stofnaður árið 1955 og hét þá Tónlistarskóli Árnessýslu. Þá voru í skólanum 50 nemendur frá 9 sveitarfélögum í Árnessýslu. Skólinn hefur síðan vaxið og dafnað og fer kennsla nú fram á vegum tónlistarskólans í flestum grunnskólum og þéttbýlisstöðum í sýslunni.
Kennarar skólans eru um 30 talsins í misstórum stöðugildum. Nemendur skólans eru um 500 talsins auk barna í forskóla 2. bekkjar.
Allar nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Tónlistarskóla Árnessýslu.
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 17 í Listasafni Árnesinga
Í verkum sínum fjallar Svala meðal annars um tengslin á milli minninganna, sagnanna, og svo hins uppfundna, eða tilbúna. Hún hefur einkum fengist við ljósmyndaverk og oftar enn ekki er myndum raðað saman, tveimur eða fleirum til þess að skapa orðræðu eða ef til vill torræðu á milli einstakra ramma. Ljósmyndaverk Svölu eru ljóðræn og huglæg.
Svala mun sýna og segja frá verkum sínum í erindi í Listasafninu síðdegis í dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Sunnudaginn 25. júlí kl. 15 verður
sýningin
ÁR: málverkið á tímum straumvatna
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson ▪ Þorvaldur
Skúlason
Nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins: www. listasafnarnesinga.is
Verið velkomin











