2.3.2007 15:55:51
Grunnskólinn í Hveragerði

Skólamörk 6
810 Hveragerði
Sími: 483 4350
Símbréf: 483 5060
Netfang: grunnskoli@hveragerdi.is
Veffang: http://grunnskoli.hveragerdi.is/

Skólastjóri: Guðjón Sigurðsson.
Staðgengill skólastjóra skólaárið 2010-2011 er Erna Ingvarsdóttir.

Deildarstjóri yngsta stigs: Erna Ingvarsdóttir
Deildarstjóri miðstigs: Viktoría Sif Kristinsdóttir
Deildarstjóri elsta stigs: Sævar Helgason
Deildarstjóri sérkennslu: Gunnar Baldursson

Viðtalstímar skólastjóra eru eftir samkomulagi.

Í Grunnskólanum í Hveragerði eru nú um 365 nemendur í 1.-10. bekk. Kennarar við skólann eru 43 og aðrir starfsmenn 18.

Skólahald hófst í Hveragerði árið 1930 þegar þinghús var byggt þar og var kennslan í fyrstu farkennsla. Árið 1937 var stofnaður heimavistarskóli í Hveragerði, en árið 1943 var keyptur skólabíll og síðan hefur skólinn verið fastur heimangöngu- og heimanakstursskóli. Haustið 1947 var núverandi barnaskólahús við Skólamörk tekið í notkun.

Skólanum óx smám saman fiskur um hrygg og hófst kennsla á unglingastigi árið 1946 og miðskólastigi 1947. Árið 1965 var svo stofnaður gagnfræðaskóli og fyrstu gagnfræðingarnir voru útskrifaðir vorið 1966. Gagnfræðaskólinn átti við húsnæðisvanda að glíma og var hann um tíma rekinn á efri hæð byggingar við Sundlaugina í Laugaskarði og síðar í leiguhúsnæði Trésmiðju Hveragerðis við Breiðumörk. Haustið 1988 lauk 1. áfanga viðbyggingar við gamla skólann og sameinuðust barnaskólinn og gagnfræðaskólinn þá í Grunnskólann í Hveragerði.

Síðan hafa verið byggðar við skólabygginguna fjórar kennslustofur, raungreinastofa og tölvuver auk umtalsverðra endurbóta á elstu byggingunni sem helstar fólust í nýju anddyri, heimilisfræðistofu og kennsluhúsnæði fyrir Tónlistarskóla Árnessýslu.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans http://grunnskoli.hveragerdi.is/


Tilkynningar
19.09.2011
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði

Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði verður haldin í Hveragerði 22.-24. sept. nk.

Skráningar eru ennþá í fullum gangi. Vona að þið hafið aðeins látið vita af ungmennaráðstefnunni í kringum ykkur!!!

Ungmennaráðstefnan er frábært tækifæri fyrir ungt fólk til að fræðast, taka þátt, hafa áhrif, mynda tengslanet og svo að hafa gaman saman.


Meðal þess sem efst er á dagskrá:
• Logi Bergmann, fjölmiðlamaður, með kynningu á möguleikum ungs fólks í fjölmiðlaumræðum, framkomu og þátttöku.
• Pia Viktoria, finnskur sjálfboðaliði, verður með kynningu á möguleikum ungs fólks í sjálfboðastarfi.
• Bára Sigurjónsdóttir, Umboðamaður barna, verður með umræður um réttindi ungs fólks.

Allir þessir aðilar bjóða upp á vinnustofur þar sem umræður fara fram.

• Stefán Bogi mun svo leiða hópinn í því að finna sameiginlega niðurstöðu og mynda ályktun ráðstefnunnar.
• Ungmennaráð UMFÍ sér um verkefni úr Kompás, kynnisferð og kvöldvöku og
• hópefli verður í höndum Jörgens.

Hveragerðisbær auglýsir eftir áhugasömu ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur áhuga á að fara á ráðstefnuna fyrir hönd Hveragerðisbæjar. Vinsamlega hafið samband við Jóhönnu Hjartardóttur í síma 483-4000 eða á netfangið jmh@hveragerdi.is

14.09.2011
Haustfagnaður knattspyrnudeildar Hamars

Laugardaginn 17. september á Grýluvelli

  • Kl. 12:00 knattþrautir
  • Kl. 12:45 sumarið gert upp, ný æfingatafla og vetrarstarfið kynnt
  • Kl. 13:15 grillveisla og ís
  • Kl. 14:00 Hamar – ÍH 2. deild

Mætum öll og tökum mömmu og pabba með!

13.09.2011
Meistaraflokkur kvenna Lengjubikarinn
Hamar - Stjarnan
Fimmtudaginn 15.september Kl.19:15
í íþróttahöllinni í Hveragerði
Nú er leiktíðin að byrja og komið að fyrsta bikarleik vetrarins hjá stelpunum okkar!!!
Mætum öll og styðjum Hamarsliðið til sigurs!“
Aðgangseyrir 1.000 Ath. stuðningsmannakortin gilda ekki á bikarleiki
ÁFRAM HAMAR!!!
02.09.2011
ALMYNSTUR
Verið velkomin á opnun í Listasafni Árnesinga – litrík og fjörug sýning.

Á morgun, laugardaginn 3. september kl. 15.00 verður ný sýning opnuð í Listasafni Árnesinga sem fengið hefur heitið ALMYNSTUR, en þar eru verk Arnars Herbertssonar, JBK Ransu og Davíðs Arnar Halldórssonar skoðuð í samhengi.
Sjá nánar á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is
31.08.2011
Félagakynning í Grunnskólanum

Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta- og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton, sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið, Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti nýjum iðkendum á öllum aldri.

Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.

Stjórn foreldrafélagsins



31.08.2011
Fyrsta prjónakaffi haustsins í Bókasafninu í Hveragerði
Mánudagskvöldið 5. september kl. 20-22.
Ræðum framhaldið í vetur, skoðum nýja sýningu og eigum notalega kvöldstund með handavinnuna okkar. Gaman væri að sjá eitthvað af afrakstri sumarsins.

ATH. Nýr inngangur í bókasafnið beint á móti aðaldyrum í Sunnumörk!

31.08.2011
Myndlistarsýning Helgu Haraldsdóttur í Bókasafninu opnar 2. september
Föstudaginn 2. september kl. 18 opnar Helga Haraldsdóttir myndlistarsýningu „við sprunguna” í Bókasafninu í Hveragerði. Boðið verður upp á hressingu og gott spjall og eru allir velkomnir. Þetta er fimmta einkasýning Helgu. Hún hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga á vegum Myndlistarfélags Árnessýslu en hún hefur starfað með félaginu frá því hún flutti til Hveragerðis árið 1991. Sýningin, sem er sölusýning, stendur til 30. september og er opin um leið og safnið, virka daga kl. 13-19 og laugardaga kl. 11-14.
31.08.2011
íþrótta- og tómstundakynning - afþreying í vetur
Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta- og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton, sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, Listasafnið, Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti nýjum iðkendum á öllum aldri.
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins

Viðburðir
Fundargerðir
Skjöl
Br110915.pdfBæjarráð Ósamþykkt15.9.2011
Fundargerð_116_110906.pdfSkipulags- og byggingarnefnd9.9.2011
bs20110908.pdfBæjarstjórn9.9.2011
míf110901.pdfMenningar- íþrótta- og frístundanefnd9.9.2011
míf110614.pdfMenningar- íþrótta- og frístundanefnd9.9.2011