Sunnumörk 2
810 Hveragerði
Sími: 483 4531
Bréfsími: 483 4571
Netfang: bokasafn@hveragerdi.is
bok@hveragerdi.is
(afgreiðsla)
Heimasíða
bókasafns
Starfsfólk: Hlíf S.
Arndal, forstöðumaður
Anna Kristín Guðmundsdóttir,
bókavörður
Maria Anna Maríudóttir,
bókavörður
Andrés H. Hallmundsson, starfsmaður
OPIÐ
mánudaga 13-19
þriðjudaga 13-21
miðvikudaga 13-19
fimmtudaga 13-19
föstudaga 13-19
laugardaga 11-14
Á bókasafninu er t.d. hægt að...
… fá lánaðar bækur, hljóðbækur, tímarit, myndefni, margmiðlunarefni og tónlist.
... fá bækur sendar heim einu sinni í viku - á fimmtudögum. Eldri borgarar og aðrir sem ekki eiga heimangengt vegna fötlunar eða veikinda geta hringt í safnið (483-4531) og pantað bækur.
… lesa dagblöð, héraðsfréttablöð, tímarit og fréttabréf frá ýmsum samtökum, fundargerðir bæjarstjórnar og bæjarráðs og ýmislegt annað efni frá Hveragerðisbæ.
… sinna heimanáminu eða áhugagrúskinu. Talsvert er til af orðabókum og öðrum handbókum til heimildaleitar, einnig nokkuð af ættfræðiritum.
… skrifa ritgerðir, gera skýrslur, leita heimilda eða kynna sér ýmislegt forvitnilegt á internetinu. Tvær tölvur eru á safninu til afnota fyrir almenning, með möguleika á ritvinnslu, notkun margmiðlunarefnis og internetaðgangi. Hægt er að panta tíma. Einnig er aðgangur að þráðlausu neti.
... skoða sýningar á málverkum, handverki og fleiru.
... fylgjast með og/eða taka þátt í ýmsum þeim
viðburðum sem eru á vegum safnsins og eru auglýstir í safninu og á
heimasíðu þess. Þar má nefna fjölskyldudaga á þriðjudögum og
prjónakaffi fyrsta mánudag í mánuði frá september til maí.
Hér má skoða GJALDSKRÁ safnsins.
REGLUR safnsins (gilda frá 1. janúar 2009).
Afnotagjald greiðist einu sinni á ári. Það er
einstaklingsgjald. Gegn því getur notandi haft að
láni allt að 10 safngögnum í einu. Börn, eldri borgarar og öryrkjar
greiða ekki afnotagjald. Börn þurfa samþykki forráðamanns til að
verða gildir lánþegar. Þau geta haft að láni allt að 5 safngögnum í
einu.
Útlánstími. Bækur, hljóðbækur,
tímarit og málaskólar á snældum lánast út í 30 daga, nýjar bækur í
10 daga, nýlegar vinsælar bækur, margmiðlunarefni og tónlist í 14
daga, fræðslumyndir í 7 daga og kvikmyndir (skemmtiefni) í 3
daga.
Skemmtiefni á mynddiskum og tónlistardiskar lánast gegn gjaldi,
margmiðlunarefni og myndbönd án endurgjalds.
Hægt er að framlengja útlán séu safngögn ekki pöntuð.
Tölvunotkun á safni miðast við 30 mínútur í senn og er eingöngu leyfð 16 ára og eldri. Séu reglur um tölvunotkun ekki virtar er bókaverði heimilt að vísa viðkomandi frá og jafnvel banna honum aðgang að tölvunum til frambúðar. Greitt skal fyrir aðgang að interneti og útprentun gagna en ekki fyrir aðra notkun. Aðgangur að þráðlausu neti er gjaldfrír.
Verði vanskil á safngögnum reiknast
dráttareyrir.
Týnist eða skemmist safngögn ber lántakanda að bæta þau miðað við
gjaldskrá eða eftir mati bókavarðar.
Safngögn skal flytja í umbúðum að og frá safni.
Farið vel með safngögn. Notið bókamerki. Verjið safngögn
fyrir óvitum. Bækur sem lent hafa í hundskjafti er ekki hægt að
lána út aftur og ber því að bæta. Verjið safngögn fyrir raka (ekki
geyma bækur í bílnum yfir nótt), kaffi og öðrum vökva, súkkulaði!,
og einnig snörpum hita. Myndbönd þarf auk þess að verja fyrir
seguláhrifum (s.s. frá hátölurum og rafeindatækjum).
Skemmist bók eða annað safngagn þarf að láta vita af því
þegar skilað er.
UM SAFNIÐ
Bókasafnið í Hveragerði var stofnað árið 1937 eða 8 eftir að tvö lestrarfélög úr Ölfusinu höfðu verið sameinuð, þ. e. lestrarfélagið Mímir í austursveitinni og lestrarfélag Hjallasóknar í vestursveitinni. Bókunum, sem voru eitthvað á annað hundrað, var komið fyrir í stæðilegum skáp í forstofu skólastjóra barnaskólans, Helga Geirssonar. Plássið var um 3 fermetrar. Bókakostur óx hægt fyrstu árin og tekjurnar í samræmi við það. Árið 1940 voru 302 bækur í Bókasafninu í Hveragerði, árið 1986 voru þær um 6.600 talsins en nú, í byrjun árs 2007, eru þær um 18.000.
Haustið 1947 flutti safnið í 11 fermetra herbergi í barnaskólanum. Árið 1978 var það svo loks flutt í 50 fermetra húsnæði að Hverahlíð 24. Þar þótti aðstaðan ágæt og smá vinnuaðstaða var fyrir bókavörðinn. Síðustu árin voru bækurnar þar bókstaflega út um allt, ofan frá rjáfri og niður á gólf! Það var því mjög ánægjulegt þegar bókasafnið fékk inni að Austurmörk 2, vorið 1999, í um 150 fermetrum. Þar var bjart og rúmgott til að byrja með, en þegar tekið var upp úr kössum og farið að kaupa inn bækur voru hillurnar fljótar að fyllast. Haustið 2004 flutti safnið ennþá í nýtt húsnæði í Verslunarmiðstöðinni í Sunnumörk. Húsnæðið er glæsilegt og staðsetningin frábær. Starfsemi safnsins hefur breyst nokkuð eftir flutningana því að nú er það ,,í leiðinni” þegar fólk gerir matarinnkaupin. Fyrirkomulag í safninu finnst safngestum notalegt.
Þegar vinna hófst við grunn Verslunarmiðstöðvarinnar kom í ljós jarðsprunga mikil. Hlé var gert á framkvæmdum og breytingar gerðar á hönnun hússins. Sprungan liggur gegnum bókasafnið og pósthúsið/upplýsingamiðstöðina og var því ákveðið að setja gler yfir hana og lýsa hana upp svo fólk gæti barið hana augum. Sprungan hefur vakið mikla athygli, jafnt bókasafnsgesta sem ferðamanna, innlendra og erlendra.
Árið 2005, fyrsta heila árið í Sunnumörkinni, fjölgaði heimsóknum í safnið um 109% frá árinu áður. Heildargestafjöldi komst í 18.618. Heildarútlán árið 2005 voru 19.706 safngögn, eða tæplega 10 bækur á hvern íbúa í Hveragerði það árið. Til gamans má geta þess, að árið 1998, síðasta ár bókasafnsins í Hverahlíðinni, voru heildarútlán 9.187 safngögn. Árið 2006 fækkaði gestum í safninu um 3% og útlánum um 2%, en fjöldi lánþega jókst um 21% frá árinu á undan. Margir sumarbústaðagestir líta hér inn og fá sér skammtímakort. Börnum sem tóku þátt í sumarlestri fjölgaði einnig en sumarlestur er lestrarhvetjandi verkefni fyrir 6-10 ára börn í samvinnu við grunnskólann. Það hefur vakið athygli og skilað góðum árangri.
Kynnið vinum ykkar bókasafnið.
Hvetjum börnin til bóklesturs.
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði verður haldin í
Hveragerði 22.-24. sept. nk.
Skráningar eru ennþá í fullum gangi. Vona að þið hafið aðeins látið
vita af ungmennaráðstefnunni í kringum ykkur!!!
Ungmennaráðstefnan er frábært tækifæri fyrir ungt fólk til að
fræðast, taka þátt, hafa áhrif, mynda tengslanet og svo að hafa
gaman saman.
• Logi Bergmann, fjölmiðlamaður, með kynningu á möguleikum ungs fólks í fjölmiðlaumræðum, framkomu og þátttöku.
• Pia Viktoria, finnskur sjálfboðaliði, verður með kynningu á möguleikum ungs fólks í sjálfboðastarfi.
• Bára Sigurjónsdóttir, Umboðamaður barna, verður með umræður um réttindi ungs fólks.
• Stefán Bogi mun svo leiða hópinn í því að
finna sameiginlega niðurstöðu og mynda ályktun ráðstefnunnar.
• Ungmennaráð UMFÍ sér um verkefni úr Kompás,
kynnisferð og kvöldvöku og
• hópefli verður í höndum Jörgens.
Hveragerðisbær auglýsir eftir áhugasömu
ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur áhuga á að fara á
ráðstefnuna fyrir hönd Hveragerðisbæjar. Vinsamlega hafið samband
við Jóhönnu Hjartardóttur í síma 483-4000 eða á netfangið jmh@hveragerdi.is
Laugardaginn 17. september á Grýluvelli
- Kl. 12:00 knattþrautir
- Kl. 12:45 sumarið gert upp, ný æfingatafla og
vetrarstarfið kynnt
- Kl. 13:15 grillveisla og ís
- Kl. 14:00 Hamar – ÍH 2. deild
Mætum öll og tökum mömmu og pabba með!
Fimmtudaginn 15.september Kl.19:15
í íþróttahöllinni í Hveragerði
Mætum öll og styðjum Hamarsliðið til sigurs!“
Aðgangseyrir 1.000 Ath. stuðningsmannakortin gilda ekki á bikarleiki
ÁFRAM HAMAR!!!
Á morgun, laugardaginn 3. september kl. 15.00 verður ný sýning opnuð í Listasafni Árnesinga sem fengið hefur heitið ALMYNSTUR, en þar eru verk Arnars Herbertssonar, JBK Ransu og Davíðs Arnar Halldórssonar skoðuð í samhengi.
Sjá nánar á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is
Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta-
og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum
íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka
á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton,
sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið,
Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja
nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna
vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti
nýjum iðkendum á öllum aldri.
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins
Ræðum framhaldið í vetur, skoðum nýja sýningu og eigum notalega kvöldstund með handavinnuna okkar. Gaman væri að sjá eitthvað af afrakstri sumarsins.
ATH. Nýr inngangur í bókasafnið beint á móti aðaldyrum í Sunnumörk!
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins







