2.3.2007 15:55:49
Fræðslu og menningarmál

Hveragerðisbær styður við foreldra og forráðamenn í uppeldishlutverkinu með því að bjóða barnafjölskyldum bestu mögulegu þjónusta í bæjarfélagi þar sem ungt kraftmikið fólk sækist eftir að búa, í umhverfi sem hentar nútíma fjölskyldum. Lögð er áhersla á samfellu í skóla- og tómstundastarfi.

Í Hveragerði eru starfræktir tveir leikskólar, Undraland og Óskaland og einn grunnskóli, Grunnskólinn í Hveragerði. Skólastarf hefur verið blómlegt og sífellt er leitað nýrra leiða til að koma til móts við auknar kröfur samfélagsins. Áhersla hefur verið lögð á að efla samskipti milli skólanna þriggja, þannig að skólahald myndi eina samfellda heild, allt frá barni til unglings. Þessi tilhögun er liður í því að veita barninu þann stuðning sem líklegur er til að efla sjálfsöryggi og námsárangur.

Frístundaskóli eftir að skóladegi lýkur og gæsluvöllur fyrir yngstu börnin á sumrin er einnig hluti af þjónustu Hveragerðisbæjar við íbúa bæjarins.

Hveragerðisbær tekur þátt í rekstri Tónlistarskóla Árnessýslu með öðrum sveitarfélögum í sýslunni.

Smellið hér til að opna skólastefnu Hveragerðisbæjar.

Smellið hér til að opna viðmiðunarreglur vegna grunnskólanáms utan lögheimilissveitarfélags.

Tilkynningar
27.7.2010 08:38:59
Svala Ólafsdóttir með erindi í Listasafni Árnesinga í dag
Svala Ólafsdóttir með erindi í máli og myndum
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 17 í Listasafni Árnesinga

Svala (1954) er gestalistamaður Varmahlíðarhússins um þessar mundir. Hún ólst upp á Selfossi en býr nú í Bandaríkjunum. Hún sótti menntun sína til Bandaríkjanna með áherslu á ljósmyndun og hefur frá námslokum sinnt listsköpun og kennslu ytra. Nánari upplýsingar um Svölu er að finna á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is og á heimasíðu hennar sjálfrar www.svalaolafsdottir.com

Í verkum sínum fjallar Svala meðal annars um tengslin á milli minninganna, sagnanna, og svo hins uppfundna, eða tilbúna. Hún hefur einkum fengist við ljósmyndaverk og oftar enn ekki er myndum raðað saman, tveimur eða fleirum til þess að skapa orðræðu eða ef til vill torræðu á milli einstakra ramma. Ljósmyndaverk Svölu eru ljóðræn og huglæg.

Svala mun sýna og segja frá verkum sínum í erindi í Listasafninu síðdegis í dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
23.7.2010 11:26:14
Sýningin ÁR: málverkið á tímum straumvatna

Sunnudaginn 25. júlí kl. 15 verður sýningin
ÁR: málverkið á tímum straumvatna
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson ▪ Þorvaldur Skúlason




opnuð í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns Árnesinga og Listasafns Háskóla Íslands, en í þess eigu er langstærsta safn landsins af verkum eftir Þorvald Skúlason, rúmlega 200 málverk og yfir þúsund teikningar og skissur frá öllum tímabilum ferils hans. Safnstjóri Listasafns Háskóla Íslands er Auður A. Ólafsdóttir listfræðingur og er hún jafnframt sýningarstjóri sýningarinnar. Hún hefur valið að láta verk hans eiga stefnumót við samtímalistina, við verk Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar og kallar það í sýningarskrá „hinn óvænta fund rökhyggju og rómantíkur í miðju straumvatni.”

Nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins: www. listasafnarnesinga.is

Tríó Páls Sveinssonar laðar fram ljúfa jass-tóna við opnunina

Verið velkomin
22.7.2010 09:16:22
Gæsluvöllur lokaður 29. júlí - 2. ágúst
21.7.2010 10:22:48
Markaður á blómstrandi dögum

Fundargerðir
Skjöl
Br100715.pdfBæjarráð Ósamþykkt16.7.2010
skn100701.pdfSkipulags- og byggingarnefnd Ósamþykkt2.7.2010
Br100701.pdfBæjarráð2.7.2010
bs20100628.pdfBæjarstjórn29.6.2010
Br100616.pdfBæjarráð29.6.2010