2.3.2007 15:55:53
Leikskólinn Undraland

Breiðumörk 27
810 Hveragerði
Sími: 483 4234
Leikskólastjóri: Sesselja Ólafsdóttir
Aðstoðarleikskólastjóri: Jónína Þórarinsdóttir.
netfang undraland@hveragerdi.is

Leikskólinn Undraland var tekinn í notkun í september 1982 með tveimur aldursskiptum deildum. Í desember 1997 var þriðja deildin opnuð. Leikskólinn er rekinn af Hveragerðisbæ en Sveitarfélagið Ölfus hefur aðgang að leikskólaplássum skv. samningi.
Stefnur leikskólans.
Námskrá leikskólans Undralands mótast af þeim áherslum sem lagðar eru í Aðalnámskrá leikskóla. Leikskólinn leggur áherslu á náttúruna og umhverfið. Umhverfismennt tengist í alla námsþætti leikskólans.
Sú hugmyndafræði sem liggur að baki markmiðum Undralands eru kenningar Bandaríska heimspekingsins John Dewey. Hann taldi reynslu vera undanfara menntunar og uppsprettu þeirra spurninga sem nám byggir á. Athafnaþörf barnsins þarf því að virkja og það lærir af eigin reynslu og virkni. Skapa þarf örvandi uppeldisumhverfi og hafa aðgengilegan efnivið. Kennarinn hvetur barnið, spyr opinna spurninga og leiðir það áfram til eigin niðurstöðu.

Markmið leikskólans
Í leikskólanum er lögð áhersla á að efla félagsfærni og styrkja sjálfsmynd barnanna. Ennfremur að finna leiðir til að skapa umhverfi og aðstæður sem virkja sköpunargleði, stuðla að góðu félagslegu andrúmslofti í vel skipulögðu umhverfi svo börn og starfsfólk fái notið sín.

Stefnur í starfi Undralands.
Námsskrá leikskólans mótast af þeim áherslum sem lagðar eru í Aðalnámsskrá leikskóla. Við leitumst við að hafa uppeldisstefnu John Dewey að leiðarljósi ásamt kenningum Loris Malaguzzi, sem kenndar eru við heimaborg hans Reggio Emilia á Ítalíu.
Bandaríski heimspekingurinn John Dewey er best þekktur fyrir kenningar sínar um menntun og skólastarf. Í kennigum hans er unnið út frá því að reynsla sé undanfari menntunar og uppspretta þeirra spurninga sem nám byggir á, þ.e. að barnið læri af eigin reynslu og virkni. Nám barnsins á að vera ein heild, en reynsla, tilraunir, hæfileikinn til að meta og samvinna styrkja og efla barnið í þekkingarleit sinni. Skapa þarf barninu örvandi uppeldisumhverfi með sýnilegum og aðgengilegum efniviði. Kennarinn hvetur barnið, spyr opinna spurninga og leiðir það áfram til eigin niðurstöðu.
Út frá hugmyndum Dewey setti Loriz Malaguzzi saman kenningar sínar og í þeim er þemavinna stór þáttur í námi barnanna og er Malaquzzi að vissu leyti frumkvöðull í þróun á sviði leikskólamála. Í þemavinnu er lögð áhersla á skapandi og fræðandi starf þar sem fræðsla um umhverfið er tengd við aðra listsköpun. Reynt er að virkja ímyndunarafl barnanna með hversdagslegum hlutum, en það er mikilvægur þáttur í að gera börnin meðvitaðri um umhverfi sitt. Rauði þráðurinn í hugmyndafræði Malaquzzi er sjónrænt uppeldi, sem er andstæða þess að börnin séu mötuð og óvirkir þiggjendur. Lögð er áhersla á að hvetja barnið til virkrar og skapandi hugsunar. Með alhliða þjálfun skynjunar og tilfinninga eykst sjálfsvitund og trú á eigin getu.
Leikurinn er aðalnámsleið leikskólabarnsins. Í gegnum leikinn fær barnið tækifæri til að tjá reynsluheim sinn og kynnast reynslu annara. Námsvið samkvæmt Aðalnámskrá fléttast saman við frjálsan leik og mynda samfellu í leikskóladegi barnsins.
Lagður er metnaður í gott samstarf leik og grunnskóla. Gott samstarf leiðir af sér öruggari nemendur þegar þau flytjast á milli skólastiga. Félagsfærni elstu nemendanna er efld með lífsleikniæfingum og grunnurinn að komandi lestrar og stærðfræðinámi er lagður.

Nánar má lesa um leikskólann í Skólanámskrá skólans.

Gjaldskrá leikskóla

Reglur um innritun og innheimtu leikskólagjalda

Tilkynningar
27.7.2010 08:38:59
Svala Ólafsdóttir með erindi í Listasafni Árnesinga í dag
Svala Ólafsdóttir með erindi í máli og myndum
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 17 í Listasafni Árnesinga

Svala (1954) er gestalistamaður Varmahlíðarhússins um þessar mundir. Hún ólst upp á Selfossi en býr nú í Bandaríkjunum. Hún sótti menntun sína til Bandaríkjanna með áherslu á ljósmyndun og hefur frá námslokum sinnt listsköpun og kennslu ytra. Nánari upplýsingar um Svölu er að finna á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is og á heimasíðu hennar sjálfrar www.svalaolafsdottir.com

Í verkum sínum fjallar Svala meðal annars um tengslin á milli minninganna, sagnanna, og svo hins uppfundna, eða tilbúna. Hún hefur einkum fengist við ljósmyndaverk og oftar enn ekki er myndum raðað saman, tveimur eða fleirum til þess að skapa orðræðu eða ef til vill torræðu á milli einstakra ramma. Ljósmyndaverk Svölu eru ljóðræn og huglæg.

Svala mun sýna og segja frá verkum sínum í erindi í Listasafninu síðdegis í dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
23.7.2010 11:26:14
Sýningin ÁR: málverkið á tímum straumvatna

Sunnudaginn 25. júlí kl. 15 verður sýningin
ÁR: málverkið á tímum straumvatna
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson ▪ Þorvaldur Skúlason




opnuð í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns Árnesinga og Listasafns Háskóla Íslands, en í þess eigu er langstærsta safn landsins af verkum eftir Þorvald Skúlason, rúmlega 200 málverk og yfir þúsund teikningar og skissur frá öllum tímabilum ferils hans. Safnstjóri Listasafns Háskóla Íslands er Auður A. Ólafsdóttir listfræðingur og er hún jafnframt sýningarstjóri sýningarinnar. Hún hefur valið að láta verk hans eiga stefnumót við samtímalistina, við verk Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar og kallar það í sýningarskrá „hinn óvænta fund rökhyggju og rómantíkur í miðju straumvatni.”

Nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins: www. listasafnarnesinga.is

Tríó Páls Sveinssonar laðar fram ljúfa jass-tóna við opnunina

Verið velkomin
22.7.2010 09:16:22
Gæsluvöllur lokaður 29. júlí - 2. ágúst
21.7.2010 10:22:48
Markaður á blómstrandi dögum

Fundargerðir
Skjöl
Br100715.pdfBæjarráð Ósamþykkt16.7.2010
skn100701.pdfSkipulags- og byggingarnefnd Ósamþykkt2.7.2010
Br100701.pdfBæjarráð2.7.2010
bs20100628.pdfBæjarstjórn29.6.2010
Br100616.pdfBæjarráð29.6.2010