Finnmörk 1
810 Hveragerði
Sími: 483 4139
Leikskólastjóri: Gunnvör Kolbeinsdóttir
Aðstoðarleikskólastjóri: Guðlaug Jónsdóttir
netfang oskaland@hveragerdi.is
Fyrri hlutileikskólans Óskalands var tekinn í notkun 1. júlí 2004. Síðari hluti húsnæðisins var vígður á haustmánuðum 2007 og telst skólinn nú fullbyggður með fjórum deildum.
Fjöldi barna er 94. Vistunartímar sem boðið er uppá eru 4, 5, 6, 7,
8 og 9 tímar.
Stöðugildi eru 25,4 þar af eru leikskólakennarar í 5,2
stöðugildum.
Boðið er uppá morgunverð, hádegisverð og síðdegishressingu.
Skólinn er opinn frá 7:45 til 17:00.
Hugmyndafræði leikskólans er sótt í smiðju Bandaríkjamannsins
John´s Dewey. Hann lagði á það áherslu að börnin væru m.a. virk í
leikjum sínum og að nám barnanna byggðist á uppgötvunum og reynsla
á umhverfi barnanna sé auðugt af þroskandi efniviði. Út frá þeim
hugmyndum byggði ítalinn Loris Malaguzzi frá borginni Reggio
Emilila fræði sín á og eftir þeim starfar leikskólinn með börnunum
að 5 ára aldri. Þemastarf er aðalsmerki Malaguzzi þar sem börnin fá
að rannsaka og skapa út frá eigin uppgötvunum, börnin eru spurð
opinna spurninga og leiða svörin til niðurstaðna sem þau læra af.
Malaguzzi hélt því fram að börnin búi yfir 100 málum og að það sé
hlutverk kennaranna að virkja þau.
Vinna með elstu börnunum þ.e. 5 - 6 ára fer aðallega fram í lífsleikni, þar sem unnið er að því að efla félagslega færni með það að markmiði að börnin verði fær um að skilja eigin líðan og annarra og að bregðast við því á viðeigandi hátt. Verkefnin auka félagslega færni, sjálfstæði og allan almennan þroska. Undirbúningur undir væntanlega skólagöngu barnanna fléttast inn í lífsleiknitímana, en góð samvinna er milli leikskólans og grunnskólans.
Markmið leikskólans eru miðuð við aðalnámsskrá leikskóla og eru m.a. :
*Að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á næringu, hreyfingu, listsköpun.
*Að efla heildarþroska barnsins gegnum leik.
*Að auka gleði og samvinnu milli barna, foreldra og starfsfólks og að öllum líði vel.
* Að börnin þrói með mér skapandi og gagnrýna hugsun.
*Að börnin læri að umgangast náttúruna og umhverfið með virðingu.
*Að börnin læri að þekkja eigin tilfinningar og læri að virða tilfinningar annarra og þori að eiga frumkvæði að samskiptum við aðra.
Umhverfisvænn
leikskóli
Unnið er að því að leikskólinn verði umhverfisvænn leikskóli.
Börnunum er kennt að spara vatn og rafmagn þar sem þetta eru ekki
óþrjótandi auðlindir. Lífrænum úrgangi er safnað í safnkassa úti á
lóðinni. Endurvinnanlegu efni s.s. pappír, umbúðum og mjólkurfernum
er safnað í kassa. Það sem hægt er að nota í listsköpun er notað en
öðru er skilað á endurvinnslustöð. Afgangsmatvælum sem annars væri
hent er safnað í fötu og fá hamingjusamar hænur í Ölfusinu að njóta
þeirra.
Nánar má lesa um leikskólann í Skólanámsskrá leikskólans.
Reglur um innritun og innheimtu
leikskólagjalda
Í apríl 2008 fóru starfsmenn leikskólans Óskalands
til Svíþjóðar í námsferð. Ferðasöguna má lesa hér.
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði verður haldin í
Hveragerði 22.-24. sept. nk.
Skráningar eru ennþá í fullum gangi. Vona að þið hafið aðeins látið
vita af ungmennaráðstefnunni í kringum ykkur!!!
Ungmennaráðstefnan er frábært tækifæri fyrir ungt fólk til að
fræðast, taka þátt, hafa áhrif, mynda tengslanet og svo að hafa
gaman saman.
• Logi Bergmann, fjölmiðlamaður, með kynningu á möguleikum ungs fólks í fjölmiðlaumræðum, framkomu og þátttöku.
• Pia Viktoria, finnskur sjálfboðaliði, verður með kynningu á möguleikum ungs fólks í sjálfboðastarfi.
• Bára Sigurjónsdóttir, Umboðamaður barna, verður með umræður um réttindi ungs fólks.
• Stefán Bogi mun svo leiða hópinn í því að
finna sameiginlega niðurstöðu og mynda ályktun ráðstefnunnar.
• Ungmennaráð UMFÍ sér um verkefni úr Kompás,
kynnisferð og kvöldvöku og
• hópefli verður í höndum Jörgens.
Hveragerðisbær auglýsir eftir áhugasömu
ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur áhuga á að fara á
ráðstefnuna fyrir hönd Hveragerðisbæjar. Vinsamlega hafið samband
við Jóhönnu Hjartardóttur í síma 483-4000 eða á netfangið jmh@hveragerdi.is
Laugardaginn 17. september á Grýluvelli
- Kl. 12:00 knattþrautir
- Kl. 12:45 sumarið gert upp, ný æfingatafla og
vetrarstarfið kynnt
- Kl. 13:15 grillveisla og ís
- Kl. 14:00 Hamar – ÍH 2. deild
Mætum öll og tökum mömmu og pabba með!
Fimmtudaginn 15.september Kl.19:15
í íþróttahöllinni í Hveragerði
Mætum öll og styðjum Hamarsliðið til sigurs!“
Aðgangseyrir 1.000 Ath. stuðningsmannakortin gilda ekki á bikarleiki
ÁFRAM HAMAR!!!
Á morgun, laugardaginn 3. september kl. 15.00 verður ný sýning opnuð í Listasafni Árnesinga sem fengið hefur heitið ALMYNSTUR, en þar eru verk Arnars Herbertssonar, JBK Ransu og Davíðs Arnar Halldórssonar skoðuð í samhengi.
Sjá nánar á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is
Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta-
og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum
íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka
á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton,
sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið,
Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja
nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna
vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti
nýjum iðkendum á öllum aldri.
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins
Ræðum framhaldið í vetur, skoðum nýja sýningu og eigum notalega kvöldstund með handavinnuna okkar. Gaman væri að sjá eitthvað af afrakstri sumarsins.
ATH. Nýr inngangur í bókasafnið beint á móti aðaldyrum í Sunnumörk!
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins







