Starfsmenn:
Félagsmálastjóri:María Kristjánsdóttir
Sími:483-4000
Netfang:maria@hveragerdi.is
Staðsetning:Bæjarskrifstofan, Sunnumörk 2,
Hlutverk: Þjónusta velferðarsviðs er veitt í samræmi við eftirfarandi lög: Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr.40/1997, barnaverndarlög nr. 80/2002, lög um málefni aldraðra nr. 125/1999, lög um málefni fatlaðra nr. 40/1991, lög um húsnæðismál nr. 44/1998, lög um húsaleigubætur nr. 138/1997, lög um jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000.
Velferðarnefnd fer með málefni velferðarþjónustu í umboði
bæjarstjórnar.
Starfsmenn velferðarsviðs sjá um framkvæmd þjónustunnar.
Félagsmálanefnd samþykkti reglur um akstursþjónustu fyrirr eldri borgara sem tóku gildi í febrúar 2008. Aksturþjónustan er fyrir eldri borgara sem eru með lögheimili í Hveragerði og búa utan stofnana. Þjónustan er ætluð þeim sem ekki hafa aðgang að eigin farartæki.
Jafnréttismál heyra undir félagsmálanefnd Hveragerðis. Þann 11. október 2007 samþykkti bæjarstjórn jafnréttisáætlun Hveragerðisbæjar frá 2007-2010. Jafnréttisáætlun er endurskoðuð á fjögra ára fresti.
Jafnréttisáætlun Hveragerðisbæjar 2007-2010
Niðurstöður Jafnréttisvogar
Hveragerðisbær er í 20. sæti yfir þau sveitarfélög hérlendis sem standa sig best í jafnréttismálum samkvæmt niðurstöðum Jafnréttisvogarinnar. Jafnréttisvog mælir stöðu jafnréttismála hjá sveitarfélögum og er tilgangur hennar að gera stöðu jafnréttismála sýnilega og aðgengilega almenningi. Það sem Jafnréttisvogin mælir er meðal annars jafnt hlutfall kynjanna í bæjarstjórn og jafnt hlutfall kynjanna í nefndum og ráðum á vegum sveitarfélaga. Á landinu öllu er 79 sveitarfélög og var Hveragerði í 20. sæti. Á Suðurlandi komst sveitarfélagið Árborg næst Hveragerðisbæ í jafnréttismálum og hafnaði í 26. sæti. Því næst kemur Rangárþing eystra í 31. sæti, Rangárþing ytra í 32. sæti, Skaftárhreppur í 37. sæti, Sveitarfélagið Ölfus í 48. sæti, Skeiða og Gnúpverjahreppur í 53. sæti, Bláskógabyggð í 56. sæti og Grímsnes- og Grafningshreppur í 57. sæti og Flóahreppur í 64. sæti.Lista sveitarfélaganna eftir mælikvarða Jafnréttisvogarinnar er að finna á vef Jafnréttisstofu, jafnretti.is
Fjárhagsaðstoð frá Hveragerðisbæ fer eftir 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og reglum um fjárhagsaðstoð sem samþykktar voru 15. nóvember 2007.
Upphæð fjárhagsaðstoðar tekur mið af tekjum umsækjanda eða hjóna/sambúðarfólks og ákveðinni grunnfjárhæð sem er frá 1. jan. 2009 fyrir einstakling kr. 117.180 og fyrir hjón kr. 187.488 Aðstoðin er í formi styrks eða láns.
Hverjir eiga rétt?
Í 19. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga segir m.a.
að hverjum manni er skylt “að framfæra sjálfan sig, maka sinn og
börn yngri en 18 ára”. Verði einstaklingur að leita eftir aðstoð
sveitarfélagsins um þetta þarf hann að vera fjárráða og eiga
lögheimili í bænum. Sjálfstætt starfandi einstaklingar þurfa að
hafa lagt inn vsk-númer sitt. Fjárhagsaðstoð er veitt í tengslum
við önnur úrræði, t.d. ráðgjöf og leiðbeiningar.
Hvernig er sótt um?
Sótt er um fjárhagsaðstoð hjá félagsmálastjóra. Eftirtalin
gögn þurfa að fylgja umsókninni:
1. Tekjuseðlar (laun/bætur) fyrir síðustu 2 mánuði.
2. Nýjasta skattframtal og álagningarseðill.
3. Skráning í Svæðisvinnumiðlun Suðurlands eða læknisvottorð um
óvinnufærni.
4. Önnur gögn eða gjöld sem við geta átt, s.s. yfirlit yfir
greiðsluþjónustu.
5. Dvalarleyfisskírteini frá Útlendingastofnun hafi umsækjandi
erlent ríkisfang.
Umsókn þarf að vera undirrituð af umsækjanda.
Er fjárhagsaðstoð framtalsskyld og skattskyld?
Allir fjárhagsstyrkir eru skattskyldir og af þeim er
dregin staðgreiðsla skatta.
• Áríðandi er að skila inn skattkorti a.m.k. degi áður en til
greiðslu kemur
Á skattframtali ber að telja fram til tekna þá aðstoð sem veitt
hefur verið í formi styrks en launaseðlar eru sendir út í janúar ár
hvert. Fjárhagsaðstoð sem veitt er á grundvelli rangra eða villandi
upplýsinga er ætíð endurkræf.
Barnavernd
Markmið barnaverndar er að tryggja börnum viðunandi
uppeldisskilyrði. Það er gert með því að styrkja
uppeldishlutverk fjölskyldunnar og beita úrræðum til verndar
einstökum börnum þegar það á við. Með börnum er átt við
einstakling innan 18 ára aldurs.
Barnaverndartilkynning
Barnaverndarlög nr. 80/2002 leggja þær skyldur á almenning að gera
barnaverndarnefnd viðvart ef þess verður vart að barni sé misboðið,
uppeldi þess vanrækt eða aðbúnaði þess svo áfátt að því geti stafað
hætta af. Sérstakar skyldur eru lagðar á lögreglu, og þá sem
hafa afskipti af börnum, s.s. kennara, dagforeldra, presta, lækna,
ljósmæður, hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og félagsráðgjafa um að
tilkynna slík mál til barnaverndarnefndar.
Hvernig er tilkynnt?
Haft er samband við Maríu Kristjánsdóttur félagsmálastjóra
í síma 483-4000 á opnunartíma bæjarskrifstofu sem er frá 9-16 alla
virka daga. Ef tilkynna þarf utan skrifstofutíma er haft samband
við neyðarlínuna í síma 112. Tilkynnandi getur óskað nafnleyndar
gagnvart þeim sem tilkynnt er um nema sérstakar ástæður mæli gegn
því. Tilkynningar sem berast frá starfsmönnum stofnana skulu berast
í nafni stofnunar og vera skriflegar.
Hverjar eru skyldur barnaverndarnefndar?
Ef tilkynningin byggist á rökstuddum grun ber
barnaverndarnefnd að afla sem gleggstra upplýsinga um hagi barnsins
sem í hlut á, tengsl þess við foreldra eða aðra, aðbúnað þess á
heimili, skólagöngu, hegðun á heimili og utan þess, svo og um
andlegt og líkamlegt ásigkomulag. Rétt er að taka fram að þessara
upplýsinga er aflað með vitneskju foreldra nema sérstakar ástæður
þyki til. Ef upplýsingar staðfesta ekki grun er máli lokið. Að
öðrum kosti skal barnaverndarnefnd, í samráði við foreldra, gera
skriflega áætlun um meðferð málsins, þar sem tilgreint er hvernig
hagsmunir barnsins verði best tryggðir.
Hvað er hægt að gera í barnaverndarmálum?
Félagsmálanefnd Hveragerðisbæjar býr yfir ýmsum almennum
og sértækum úrræðum er lúta þörfum barna og fjölskyldna. Má þar
nefna:
• Leiðbeina foreldrum um uppeldi og aðbúnað barns.
• Stuðla að því í samvinnu við hlutaðeigandi stofnanir að
beitt verði úrræðum skv. öðrum lögum.
• Útvega barni viðeigandi stuðning og meðferð
• Tilsjónarmaður – aðstoða foreldra við að sinna uppeldiskyldu
sinni.
• Persónulegur ráðgjafi – ráðgjöf, tómstundir, rjúfa
félagslega einangrun
• Stuðningsfjölskylda – taka á móti barni til vistunar.
• Aðstoða foreldra eða þungaða konu við að leita sér
meðferðar.
• Vista barn um skamman tíma utan heimilis á
meðferðarstofnun,vistheimili eða fósturheimili.
• Ráðstafa barni í fóstur
Framkvæmdaáætlun Hveragerðisbæjar á sviði
barnaverndar 2008-2010
Félagsleg heimaþjónusta hefur það markmið að aðstoða
einstaklinga og fjölskyldur sem geta ekki án utanaðkomandi aðstoðar
séð um heimilishald. Þjónustan getur verið veitt tímabundið eða til
lengri tíma, allt eftir aðstæðum.
Sjá reglur um félagslega heimaþjónustu.
Samkvæmt lögum um málefni aldraðra og lögum um félagslega
þjónustu sveitarfélaga eiga þeir rétt á félagslegri heimaþjónustu
sem búa í heimahúsum og geta ekki vegna skertrar getu,
fjölskylduaðstæðna, álags, veikinda, barnsburðar eða fötlunar sinnt
heimilishaldi eða öðru hjálparlaust.
Sækja þarf skriflega um félagslega heimaþjónustu. Hægt er að
nálgast umsóknareyðublað á bæjarskrifstofunni eða hér neðar á
síðunni. Eftir að umsókn hefur borist hefur forstöðumaður
heimaþjónustu samband og ákveður heimsókn til að meta þörfina fyrir
þjónustu, í samráði við umsækjanda. Þegar mat liggur fyrir er
gengið frá þjónustusamningi þar sem nánar er tilekið hvaða verkefni
starfsmaður skuli inna af hendi.
Forstöðumaður heimaþjónustu fer yfir umsóknir um félagslega
heimaþjónustu, metur og endurmetur þjónustuþörf, gerir
þjónustusamninga. Að auki veitir hann frekari upplýsingar er varða
þjónustuna og breytingu á þjónustu til þjónustuþega.
Forstöðumaður heimaþjónustu er Erna Sigurveig
Guðmundsdóttir.
Símatími: mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 9-10.
Flokkstjóri skipuleggur vinnuáætlun starfsmanna í samvinnu við
forstöðumann og tekur afleysingar. Flokkstjóri er Ebba Lóa
Ásgeirsdóttir, hægt er að ná í hana í síma 660-3916
Gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu
Umsóknareyðublað fyrir félagslega heimaþjónustu
Þeir sem af heilsufarsástæðum geta ekki annast matseld sjálfir
né komist ferða sinna hjálparlaust geta fengið heimsendan mat í
hádeginu alla daga vikunnar frá Ási. Maturinn er afgreiddur í
bökkum og er keyrður heim til viðkomandi um hádegisbil. Hægt er að
velja um að fá mat alla daga vikunnar eða tiltekna daga og láta
þjónustunotendur sjálfir vita í eldhúsið ef þeir óska ekki eftir að
fá mat, síminn í eldhúsinu er 480-2071
Sótt er um að fá heimsendan mat hjá forstöðumanni heimaþjónustu,
Söndru Guðmundsdóttir í síma 483-4000.
Matur er einnig sendur út á rauðum dögum.
Verðskrá á heimsendum mat, frá 1. jan. 2009
Máltíð ……………………...kr. 700
Ekki þarf að greiða sérstaklega fyrir akstur.
Greiðsluseðill er sendur út mánaðarlega og er hægt að greiða hann í
öllum bönkum og pósthúsum.
Hveragerðisbær hefur rekið dagdvöl aldraðra frá því í júní 2006. Félagsmálaráðuneytið veitti leyfi fyrir 5 dagvistarrýmum í janúar 2007. Dagdvölin var rekin að Lækjarbrún 9 við góðan orðstír.
Hveragerðisbær gerði samning við Ás, dvalar- og hjúkrunarheimili um að taka við rekstri dagdvalar aldraðra frá og með 10. ágúst 2009.
Nánari upplýsingar um dagdvölina er að finna á
heimasíðu Ás,
dvalar- og hjúkrunarheimili
Dagforeldrar eru sjálfstæðir verktakar, en félagsmálastjóri hefur umsjón og eftirlit með starfsemi þeirra og ráðgjöf við dagforeldra og foreldra. Allir sem fá starfsleyfi til daggæslu í heimahúsum þurfa að uppfylla skilyrði sbr. reglugerð nr. 907/2005 um daggæslu í heimahúsum frá maí 2002.
Umsókn um daggæslu barna í heimahúsi.
Að velja dagforeldra
Þegar foreldrar velja dagforeldri fyrir barn sitt er
ráðlagt að þeir kynni sér vel þá þjónustu sem er í boði og kanni
allar aðstæður á heimilinu sem nýttar eru til starfsins, t.d
leikaðstöðu bæði úti og inni, hvíldaraðstöðu og leikfangakost. Mælt
er með að foreldrar kynni sér starfsemi og aðstæður hjá fleiri en
einu dagforeldri og velji síðan þann aðila sem þeim líst best á.
Ráðlagt er að gera skriflegan samning milli foreldra og dagforeldra
um dvalartíma barns og gjald fyrir dvölina. Bent er á að ákvörðun
um vistun barns er ætíð á ábyrgð foreldra.
Bæjarstjórn Hveragerðis hefur samþykkt að öll daggæsla í
heimahúsum er niðurgreidd af Hveragerðisbæ samkvæmt ákveðnum
reglum:
Hjón/sambúðarfólk niðurgreiðslur frá 9 mánaða aldri og þar
til barn fer á leikskóla (18 mánaða).
Einstætt foreldri fær niðurgreiðslur frá 6 mánaða og þar til barn
fer á leikskóla.
Hjón og sambúðarfólk.
Greitt niður kr. 2.880 pr mánaðarklukkustund
4 klst 11.520
5 klst 14.400
6 klst 17.280
7 klst 20.160
8 klst 23.000
Einstæðir, báðir foreldrar í námi.
Greitt niður kr. 3.900 pr. mánaðarklukkustund
4 klst 15.600
5 klst 19.500
6 klst 23.400
7 klst 27.300
8 klst 31.200
Annað foreldri í námi.
Greitt niður kr. 3.390 pr. mánaðarklukkustund
4 klst 13.560
5 klst 16.950
6 klst 20.340
7 klst 23.730
8 klst 27.120
Systkinaafsláttur 30%
Ef annað barn hjá dagmömmu og hitt á leikskóla er systkinafsláttur
tekin af leikskólagjaldinu.
Dagforeldrar:
Dakri Irene Husted
Kambahrauni 29
S: 586 1309
GSM: 695 1309
Þóra Möller
Borgarheiði 20
S: 555 2095
GSM: 696 2095
Þuríður Andrésdóttir
Arnarheiði 1
S: 564 3915
GSM: 690 7991
Heimasíða félags dagforeldra á Suðurlandi: http://sds.123.is/
Félagslegar leiguíbúðir eru ætlaðar einstaklingum og fjölskyldum
sem ekki hafa tök á öðrum úrræðum vegna lágra tekna, þungrar
framfærslubyrðar eða annarra félagslegra aðstæðna.
Umsóknarréttur um félagslega íbúð er bundinn eftirfarandi skilyrðum
og endurnýja þarf umsókn árlega:
Umsækjandi þarf að hafa átt lögheimili í Hveragerði í tvö ár áður
en umsókn berst.
Umsækjandi má ekki eiga fasteign
Umsækjandi þarf að sýna fram á að hann standist ekki greiðslumat
til kaupa á íbúð.
Umsækjandi þarf að vera innan tekju- og eignarmarka sem eru
samkvæmt félagsmálaráðuneytinu:
Tekjumörk einstaklings................................kr.
2.842.000
Tekjumörk hjóna og sambúðarfólks.............kr. 3.980.000
Fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr
á heimilinu bætast við..................................kr.
476.000
Eignarmörkin eru..........................................kr.
3.069.000
Hveragerðisbær á 2 félagslegar leiguíbúðir sem eru leigðar út til
eins árs í senn.
Hveragerðisbær greiðir húsaleigubætur skv. lögum nr. 138/1997 er
tóku gildi 1. jan. 1998.
Sótt er um húsaleigubætur á þar til gerðu umsóknareyðublaði sem
nálgast má á bæjarskrifstofu eða hér neðar á síðunni.
Nánari upplýsingar um húsaleigubætur veitir María Kristjánsdóttir,
félagsmálastjóri, í síma 483-4000. Símatími mánudaga, miðvikudaga
og föstudaga kl. 9-10.
Húsaleigubætur eru eftirágreiddar og skila þarf umsókn fyrir 16.
dag fyrsta greiðslumánaðar til þess að eiga rétt á húsaleigubótum
fyrir þann mánuð.
Hverjir eiga rétt?
Þeir leigjendur eiga rétt á húsaleigubótum sem leigja
íbúðarhúsnæði til búsetu og eiga þar lögheimili. Uppfylla þarf
eftirtalin skilyrði varðandi húsnæðið:
I. Íbúðarhúsnæðið skal vera skilgreint sem íbúðarhúsnæði hjá
byggingafulltrúa.
II. Íbúðarhúsnæðið verður að vera a.m.k. eitt svefnherbergi ásamt
séreldhúsi eða eldunaraðstöðu og sérsnyrtingu og baðaðstöðu. Ekki
eru greiddar húsaleigubætur vegna leigu á einstaklingsherbergjum
eða ef eldhús eða snyrting er sameiginleg fleirum.
Undanþegnir ofangreindu eru fatlaðir einstaklingar á sambýlum og
námsmenn á framhalds- og háskólastigi sem leigja herbergi á
heimavist eða á stúdentagörðum.
Hverjir eiga ekki rétt?
Þrátt fyrir að almenn skilyrði bótaréttar séu uppfyllt þá
er réttur til húsaleigubóta ekki fyrir hendi í eftirfarandi
tilfellum:
• Ef húsnæðið sem um ræðir hefur verið skilgreint hjá
byggingafulltrúa sem iðnaðar-, verslunar- eða skrifstofuhúsnæði eða
bílskúr.
• Ef íbúð er í bílskúr og hefur ekki verið samþykkt af
byggingarfulltrúa.
• Ef leigusali og umsækjandi, eða einhver sem býr með umsækjanda,
búa í sama húsi og eru skyldmenni í beinan legg.
• Ef umsækjandi eða einhver, sem í húsnæðinu býr með honum, nýtur
réttar til vaxtabóta.
• Ef leigusamningur er til skemmri tíma en 6 mánaða.
Eftirtalin gögn þurfa að fylgja umsókn
• Afrit af síðasta skattframtali staðfest af skattstjóra.
• Launaseðlar þriggja síðustu mánaða allra heimilismanna.
• Frumrit þinglýsts leigusamnings á staðfestu samningseyðublaði
félagsmálaráðuneytis eða Íbúðarlánasjóðs. Þetta ákvæði á ekki við
um félagslegar leiguíbúðir.
• Staðfesting skóla um nám barna umsækjanda sem eru eldri en 20 ára
og stunda skólanám í sex mánuði eða lengur á árinu.
• Staðfesting á lögheimili í íbúð frá Hagstofu Íslands eða
útprentað úr þjóðskrá.
Ath. umsókn er ekki afgreidd fyrr en öll fylgigögn hafa
borist.
Hvernig eru húsaleigubætur greiddar út?
Húsaleigubætur eru eftirágreiddar og koma til greiðslu frá og með
þeim mánuði sem réttur til bóta hefur verið staðreyndur. Bætur eru
greiddar út mánaðarlega eigi síðar en 5. dag hvers mánaðar.
Umsókn um húsaleigubætur
Nánari upplýsingar og reikniforrit er að finna á heimasíðu
félagsmálaráðuneytis.
Sérstakar húsaleigubætur
Sérstakar húsaleigubætur voru samþykktar af félagsmálanefnd í janúar 2008 og eru veittar til einstaklinga og fjölskyldna sem hafa lágar tekjur, þunga framfærslubyrði eða aðra félagslega erfiðleika.Reglur um sérstakar
húsaleigubætur
Umsókn um sérstakar húsaleigubætur
Ferðaþjónusta fatlaðra, sbr. lög um málefni fatlaðra nr.
59/1992, er fyrir þá íbúa sem geta ekki notað almenningsfarartæki
vegna fötlunar sinnar og hafa ekki aðgang að eigin farartæki.
Markmið með ferðaþjónustunni er að gera fötluðum kleift að stunda
atvinnu, nám og njóta tómstunda. Einnig er henni ætlað að sjá
fötluðum fyrir akstri á sérhæfðar þjónustustofnanir s.s. hæfingar-
og endurhæfingarstöðvar, dagvistastofnanir, verndaða vinnustaði og
skammtímavistun.
Reglur um ferðaþjónustu fatlaðra
samþykktar í apríl 2008
Sótt er um ferðaþjónustu á sérstöku umsóknareyðublaði sem nálgast
má á bæjarskrifstofunni eða hér fyrir neðan (væntanlegt). Frekari
upplýsingar um ferðaþjónustuna veitir starfsfólk
félagsþjónustunnar.
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði verður haldin í
Hveragerði 22.-24. sept. nk.
Skráningar eru ennþá í fullum gangi. Vona að þið hafið aðeins látið
vita af ungmennaráðstefnunni í kringum ykkur!!!
Ungmennaráðstefnan er frábært tækifæri fyrir ungt fólk til að
fræðast, taka þátt, hafa áhrif, mynda tengslanet og svo að hafa
gaman saman.
• Logi Bergmann, fjölmiðlamaður, með kynningu á möguleikum ungs fólks í fjölmiðlaumræðum, framkomu og þátttöku.
• Pia Viktoria, finnskur sjálfboðaliði, verður með kynningu á möguleikum ungs fólks í sjálfboðastarfi.
• Bára Sigurjónsdóttir, Umboðamaður barna, verður með umræður um réttindi ungs fólks.
• Stefán Bogi mun svo leiða hópinn í því að
finna sameiginlega niðurstöðu og mynda ályktun ráðstefnunnar.
• Ungmennaráð UMFÍ sér um verkefni úr Kompás,
kynnisferð og kvöldvöku og
• hópefli verður í höndum Jörgens.
Hveragerðisbær auglýsir eftir áhugasömu
ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur áhuga á að fara á
ráðstefnuna fyrir hönd Hveragerðisbæjar. Vinsamlega hafið samband
við Jóhönnu Hjartardóttur í síma 483-4000 eða á netfangið jmh@hveragerdi.is
Laugardaginn 17. september á Grýluvelli
- Kl. 12:00 knattþrautir
- Kl. 12:45 sumarið gert upp, ný æfingatafla og
vetrarstarfið kynnt
- Kl. 13:15 grillveisla og ís
- Kl. 14:00 Hamar – ÍH 2. deild
Mætum öll og tökum mömmu og pabba með!
Fimmtudaginn 15.september Kl.19:15
í íþróttahöllinni í Hveragerði
Mætum öll og styðjum Hamarsliðið til sigurs!“
Aðgangseyrir 1.000 Ath. stuðningsmannakortin gilda ekki á bikarleiki
ÁFRAM HAMAR!!!
Á morgun, laugardaginn 3. september kl. 15.00 verður ný sýning opnuð í Listasafni Árnesinga sem fengið hefur heitið ALMYNSTUR, en þar eru verk Arnars Herbertssonar, JBK Ransu og Davíðs Arnar Halldórssonar skoðuð í samhengi.
Sjá nánar á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is
Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta-
og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum
íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka
á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton,
sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið,
Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja
nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna
vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti
nýjum iðkendum á öllum aldri.
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins
Ræðum framhaldið í vetur, skoðum nýja sýningu og eigum notalega kvöldstund með handavinnuna okkar. Gaman væri að sjá eitthvað af afrakstri sumarsins.
ATH. Nýr inngangur í bókasafnið beint á móti aðaldyrum í Sunnumörk!
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins







