2.3.2007 15:55:54
Brunavarnir Hveragerðisbæjar


Austurmörk 5
810 Hveragerði
Sími: 483 4740
Brunaútkall: 112
Slökkviliðsstjóri: Snorri Baldursson, sími: 483 4358, 660 3915
Varaslökkviliðsstjóri: Sæmundur Ingibjartsson, sími: 483 4479, 862 4579

Upphaf brunavarna í Hveragerði
Fyrsti fundur brunamálanefndar var haldinn 12. febrúar 1951. Rætt var um brunavarnir og drög að brunavarnareglugerð. Síðan leið meira en ár þar til nefndin kom saman á ný. Árið 1954 komu fyrstu tæki til slökkvistarfa til Hveragerðis og munu það hafa verið vatns-handslökkvitæki.

23. mars 1954 kom nefndin saman og rætt var um að fá „brunabíl“ í hreppinn. Oddvita var falið að athuga hvort heppilegt væri að hafa samvinnu við Ölfushrepp um brunavarnir. Eftir bókunum fundargerða að dæma virðist hafa gætt einhverrar spennu milli hreppanna og eru það trúlega eftirstöðvar frá skiptingu hreppanna á sínum tíma. En þrátt fyrir það tókst strax samvinna um brunavarnir í Hveragerði og Ölfusi og helst sú samvinna að hluta til enn. Stefáni Guðmundssyni (fyrrverandi hreppstjóra Hveragerðis) var falið að gera teikningar af slökkvistöð, sem var síðan byggð við Hveramörk. Húsið var steinsteypt og var síðan brotið niður og fjarðlægt sumarið 2001.

Slökkvilið Hveragerðis og Ölfuss var stofnað 1954. Þann níunda apríl 1954 voru menn fyrst skipaðir í slökkvilið, alls voru skipaðir 26 menn. Fyrsti slökkvibílinn var rússneskur jeppi, sem byggt var yfir í Hafnarfirði og kom hann 1955. Þegar rússajeppanum var ekið í fyrsta sinn inn í þorpið, var ekið með rauð blikkandi ljós og sírenu og þótti mörgum mikið til koma. 1970 var skipt um bíl og keyptur Bedford árgerð 1956, ónotaður, en hafði staðið á flugvelli í Bretlandi í nokkur ár. Þegar Bedfordinn kom var slökkvistöðin of lítil og fluttist þá starfsemin í leiguhúsnæði. Oft var slökkviliðið á hrakhólum með húsnæði þar til núverandi slökkvistöð var byggð 1984 að Austurmörk 5. Slökkvistöðin er steinhús, 166,8 fermetrar og er nú orðin og lítil fyrir starfsemi slökkviliðsins, sem er alltaf að aukast.


Bílakostur slökkviliðsins er:
Mercedes Benz tankbifreið árgerð 1956
Mercedes Benz 813 dælubifreið árgerð 1973
Chevrolet Suburban tækjabifreið árgerð 1979
Man / Rosenbauer 19.414 dælubifreið árgerð 2000

Slökkviliðið er rekið 70% af Hveragerðisbæ og 30% af Sveitarfélaginu Ölfusi og er samningur um gagnkvæma aðstoð milli slökkviliðs beggja sveitarfélaga. Starfssvæði slökkviliðs Hveragerðis er: Hveragerði, dreifbýli Ölfuss frá Sogi í austri að mörkum sveitarfélagsins í vestri (rétt við Litlu Kaffistofuna) og við bæinn Þurá (í átt til Þorlákshafnar).

Skráðir slökkviliðsmenn eru í dag 22 (þar af ein kona) allir hlutastarfandi, engin föst vakt. Allir slökkviliðsmenn bera GSM síma sem slökkviliðið leigir af Landsímanum og er slökkviliðið kallað út með sms skilaboðum af Neyðarlínunni. Útkallssími er 112.


Starfsemi
Slökkviliðsstjóri sér um eldvarnaeftirlit á svæðinu eins og lög og reglugerðir kveða á um, eldvarnafræðslu í skólum og vinnustöðum, leiðbeiningar um eldvarnabúnað og slökkvitækjaþjónustu.

Æfingar hjá slökkviliðinu eru einu sinni í mánuði og oftar ef tilefni gefast. Auk þess sækja menn námskeið, bæði heima og út fyrir bæjarfélagið. Námskeiðin eru haldin af Brunamálaskólanum, eftir reglugerð um menntun slökkviliðsmanna.

Nokkuð er um að slökkviliðsmenn standi svokallaðar öryggisvaktir. Samkvæmt reglugerð er heimilt í vissum tilfellum að heimila samkomuhald í húsnæði sem ekki uppfyllir kröfur, með því skilyrði að staðin sé vakt. Vaktin er þá greidd af þeim sem samkomuna heldur og greiðist fyrir fram.

Á sumrin yfir mesta sumarleyfistímann eru bakvaktir hjá slökkviliðinu; eru þá þrír menn á vakt í einu.


Eldvarnabúnaður
Á hverju heimili ætti að vera:

Reykskynjari, minnst einn, helst einn í hverju herbergi.
6 kg. slökkvitæki, eitt í íbúð og eitt í bílskúr.
Eldvarnateppi í eldhúsi.
Í húsum sem eru meira en ein hæð þarf að vera búnaður til að komast af efri hæðum um björgunarop og til jarðar.
Slökkviliðsstjóri veitir fúslega upplýsingar um val á búnaði, hvar búnaður fæst og svo framvegis. Slökkviliðið sér um að yfirfara slökkvitæki.
ATH! slökkvitæki þarf að yfirfara einu sinni á ári.

Þar sem engin vakt er í slökkvistöðinni er best að fá upplýsingar um þjónustu á vegum slökkviliðsins hjá slökkviliðsstjóra í síma: 483 4358 eða 660 3915.


Tilkynningar
1.9.2010 10:43:41
Skjálftaskjól opnar í dag!
Félagsmiðstöðin SKJÁLFTASKJÓL hefur vetrarstarfsemi sína í dag, 1. september. Opið hús á miðstigi hefst kl. 16:30 og opið hús á elsta stigi hefst kl. 19:00.

Nánar má sjá dagskrá Skjálftaskjóls á www.skjalftaskjol.net

Sjáumst hress og í góðu skapi,
Palli, Guja og Heiða Margrét
24.8.2010 09:01:31
Gangbrautarvarsla og hafragrautur !

Ágætu foreldrar og forráðamenn

Hér eru tvær tilkynningar sem viljum koma á framfæri:

Í vetur verður gangbrautarvarsla frá kl. 7:45-8:05 á Breiðumörkinni á móts við Blómaborg.

Í vetur verður framreiddur hafragrautur nemendum að kostnaðarlausu frá kl. 7:50-8:05.

Ef einhverjar spurningar vakna hafið þá samband við okkur.

Bestu kveðjur stjórnendur Grunnskólans.

20.8.2010 09:32:36
Laus störf hjá Hveragerðisbæ

Starf: Grunnskóli
Nánari lýsing: Vantar starfsfólk í 50% ræstingarstarf við Grunnskólann í Hveragerði.Vinna eftir klukkan 15:30, tímabundið starf frá 20.08-30.09.10.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Sigurðsson skólastjóri í síma 483-4350 eða á netfangið gudjon@hveragerdi.is
Starfshlutfall: 50 %
Fjöldi stöðugilda: 2

_____________________________________________________________________

Íþróttamannvirki:
Laust er til umsóknar 100% starf við íþróttamannvirki Hveragerðisbæjar.

Starfið felst aðallega í baðgæslu og umsjón í íþróttahúsi ásamt ræstingu. Viðkomandi þarf að hafa mikla ábyrgðartilfinningu, vera góður í mannlegum samskiptum og hafa ánægju af því að starfa með börnum.

Umsóknafrestur er til 27. ágúst 2010.

Allar nánari upplýsingar gefur menningar- og frístundafulltrúi í síma 483 4000

_____________________________________________________________________


Leikskólinn Óskaland:
óskar eftir að ráða starfskrafta í eftirtalin störf:

Deildarstjóra á deild fyrir 18 mán. – 3ja ára til 1.júní 2011
Leikskólakennara og leiðbeinendur á deildir.

Í Óskalandi er starfað samkvæmt aðalnámskrá og uppeldisstefnu Loris Malaguzzi frá borginni Reggio Emilia á Ítalíu.
Góður starfsandi ríkir í Óskalandi og mikil áhersla lögð á jákvæð, hlýleg og gefandi samskipti.

Til greina kemur að ráða starfskrafta með aðra menntun en leikskólakennaramenntun og/eða reynslu af störfum með börnum.

Umsóknarfrestur er til 27.ágúst 2010.

Upplýsingar veitir Gunnvör Kolbeinsdóttir leikskólastjóri í síma 4834139.



Bæjarstjórinn í Hveragerði


10.8.2010 14:41:59
Grunnskólinn Hveragerði - Upphaf skólaársins 2010-2011
Tilkynning um upphaf skólastarfs

Fyrsti starfsmannafundur skólaársins verður haldinn 16. ágúst n.k. kl 9:00.

Móttaka nýrra nemenda verður fimmtudaginn 19. ágúst kl.13:00 í sal skólans, foreldrar mæti með börnum sínum.

Nemendur skólans mæti á skólasetningu mánudaginn 23. ágúst sem hér segir:

Kl. 9:00 yngsta stig 1.-4. bekkur
Kl. 10:00 miðstig 5.-7. bekkur
Kl. 11:00 elsta stig 8.-10. bekkur

Skólasel verður opið frá og með kl.9:30 þann 23. ágúst.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 24. ágúst.

Fundargerðir
Skjöl
Br100902.pdfBæjarráð Ósamþykkt2.9.2010
Br100819.pdfBæjarráð19.8.2010
Br100805.pdfBæjarráð6.8.2010
Br100715.pdfBæjarráð16.7.2010
skn100701.pdfSkipulags- og byggingarnefnd2.7.2010