
Ágæti lesandi!
Velkominn á heimasíðu Hveragerðis-bæjar. Með heimasíðunni viljum við veita sem greiðastan aðgang að stjórnkerfi bæjarins. Hér má finna upplýsingar um nefndir og ráð, stofnanir og starfsemi, ásamt þjónustu sem bærinn veitir. Þá eru einnig á heimasíðunni upplýsingar um fyrirtæki og félagasamtök í bænum.
Við viljum hvetja bæjarbúa til að fylgjast með málefnum síns sveitarfélags en í þeim tilgangi eru fundargerðir allra nefnda og bæjarstjórnar aðgengilegar á heimasíðunni. Íbúar í nútíma samfélagi eiga kröfu um gott aðgengi að upplýsingum og að á sjónarmið þeirra sé hlustað. Með heimasíðunni er komið til móts við þær kröfur en hér eru upplýsingar um netföng starfsmanna sveitarfélagsins til að auðvelda aðgengi íbúa að þeim. Einnig er hér að finna rafræn eyðublöð til að sækja um ýmis leyfi og þjónustu á vegum bæjarfélagsins.
Heimasíðunni er ætlað að kynna Hveragerði út á við. Kynna
fyrirtæki, þjónustu og menningu staðarins. Við viljum kynna
Hveragerði sem ferðamannabæ um leið og við viljum gera sem flestum
grein fyrir því hversu gott það er að búa í Hveragerði.
Notkun netsins við öflun upplýsinga eykst stöðugt. Starfsmenn
Hveragerðisbæjar gera sér sífellt betur grein fyrir mikilvægi
heimsíðunnar. Við viljum að heimasíðan verði lifandi samskiptatæki
íbúa og stjórnsýslu. Með öflugu samstarfi okkar allra gerum við
góðan bæ betri. Hafir þú ábendingar eða athugasemdir um það sem
betur má fara hvetjum við þig til að koma þeim áleiðis á netfang
bæjarfélagsins: hve@hveragerði.is
Bestu kveðjur
Aldís Hafsteinsdóttir
Heimasíða bæjarstjóra www.aldis.is
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði verður haldin í
Hveragerði 22.-24. sept. nk.
Skráningar eru ennþá í fullum gangi. Vona að þið hafið aðeins látið
vita af ungmennaráðstefnunni í kringum ykkur!!!
Ungmennaráðstefnan er frábært tækifæri fyrir ungt fólk til að
fræðast, taka þátt, hafa áhrif, mynda tengslanet og svo að hafa
gaman saman.
• Logi Bergmann, fjölmiðlamaður, með kynningu á möguleikum ungs fólks í fjölmiðlaumræðum, framkomu og þátttöku.
• Pia Viktoria, finnskur sjálfboðaliði, verður með kynningu á möguleikum ungs fólks í sjálfboðastarfi.
• Bára Sigurjónsdóttir, Umboðamaður barna, verður með umræður um réttindi ungs fólks.
• Stefán Bogi mun svo leiða hópinn í því að
finna sameiginlega niðurstöðu og mynda ályktun ráðstefnunnar.
• Ungmennaráð UMFÍ sér um verkefni úr Kompás,
kynnisferð og kvöldvöku og
• hópefli verður í höndum Jörgens.
Hveragerðisbær auglýsir eftir áhugasömu
ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur áhuga á að fara á
ráðstefnuna fyrir hönd Hveragerðisbæjar. Vinsamlega hafið samband
við Jóhönnu Hjartardóttur í síma 483-4000 eða á netfangið jmh@hveragerdi.is
Laugardaginn 17. september á Grýluvelli
- Kl. 12:00 knattþrautir
- Kl. 12:45 sumarið gert upp, ný æfingatafla og
vetrarstarfið kynnt
- Kl. 13:15 grillveisla og ís
- Kl. 14:00 Hamar – ÍH 2. deild
Mætum öll og tökum mömmu og pabba með!
Fimmtudaginn 15.september Kl.19:15
í íþróttahöllinni í Hveragerði
Mætum öll og styðjum Hamarsliðið til sigurs!“
Aðgangseyrir 1.000 Ath. stuðningsmannakortin gilda ekki á bikarleiki
ÁFRAM HAMAR!!!
Á morgun, laugardaginn 3. september kl. 15.00 verður ný sýning opnuð í Listasafni Árnesinga sem fengið hefur heitið ALMYNSTUR, en þar eru verk Arnars Herbertssonar, JBK Ransu og Davíðs Arnar Halldórssonar skoðuð í samhengi.
Sjá nánar á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is
Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta-
og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum
íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka
á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton,
sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið,
Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja
nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna
vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti
nýjum iðkendum á öllum aldri.
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins
Ræðum framhaldið í vetur, skoðum nýja sýningu og eigum notalega kvöldstund með handavinnuna okkar. Gaman væri að sjá eitthvað af afrakstri sumarsins.
ATH. Nýr inngangur í bókasafnið beint á móti aðaldyrum í Sunnumörk!
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins







