2.3.2007 15:55:52
Bæjarskrifstofur Hveragerðisbæjar

Sunnumörk 2
810 Hveragerði
Sími: 483 4000
Bréfasími: 483 4801
Netfang:
hve@hveragerdi.is

Afgreiðslutími frá september til maí:
Afgreiðsla er opin: mánud. - föstud. kl. 10:00 - 15:00
Sími er opinn: mánud. - föstud. kl. 9:00 - 16:00

Afgreiðslutími frá júní til ágúst:
Afgreiðsla er opin: mánud. - miðvikud. kl. 10:00 - 15:00
fimmtud. kl. 10:00 - 16:00
föstud. kl. 10:00 - 14:00
Sími er opinn: mánud. - fimmtud. kl. 9:00 - 16:00
föstud. kl. 9:00 - 14:00

Á bæjarskrifstofum er sameiginlegt skrifstofuhald fyrir alla stjórnsýslu bæjarins. Í afgreiðslu er leitast við að veita sem víðtækastar upplýsingar um þjónustu og starfsemi bæjarins og má þar nefna
upplýsingar:

  • Um afgreiðslu bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda bæjarins. fengið aðgang að gögnum eftir því sem eðlilegt er og mælt er fyrir um í upplýsingalögum.
  • Um tiltekin mál sem eru til umfjöllunar.
  • Um ýmis mál er varða réttindi íbúa.
  • Aðstoð við að koma á framfæri erindum við bæjarstjórn, bæjarráð eða nefndir bæjarins.

Hægt er að lesa fundargerðir hér.

Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarins og yfirmaður starfsliðs bæjarins. Bæjarstjóri er Aldís Hafsteinsdóttir. Hún hefur ekki sérstaka viðtalstíma en Hvergerðingum sem og öðrum er velkomið að líta við á bæjarskrifstofunni á opnunartíma. Einnig má bóka viðtalstíma í síma 483-4000. Netfang bæjarstjóra er:
aldis@hveragerdi.is

Aðrir starfsmenn bæjarskrifstofu eru:

Nafn




Staða

Netfang
Helga Kristjánsdóttir



skrifstofustjóri
hk@hveragerdi.is
Guðmundur F. Baldursson



skipulags- og byggingarfulltrúi
gfb@hveragerdi.is
Halla Dröfn Jónsdóttir




Ráðgjafi á velferðarsviði

hallad@hveragerdi.is
María Kristjánsdóttir



félagsmálastjóri
maria@hveragerdi.is
Jóhanna M. Hjartardóttir




menningar- og frístundafulltrúi
jmh@hveragerdi.is
Þórdís Magnúsdóttir



aðalbókari
thordis@hveragerdi.is
Vigdís Heiða Guðnadóttir



gjaldkeri
hg@hveragerdi.is
Björg Hilmisdóttir



launafulltrúi
bh@hveragerdi.is
Hulda Sigurðardóttir



þjónustufulltrúi
hulda@hveragerdi.is








Tilkynningar
19.09.2011
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði

Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði verður haldin í Hveragerði 22.-24. sept. nk.

Skráningar eru ennþá í fullum gangi. Vona að þið hafið aðeins látið vita af ungmennaráðstefnunni í kringum ykkur!!!

Ungmennaráðstefnan er frábært tækifæri fyrir ungt fólk til að fræðast, taka þátt, hafa áhrif, mynda tengslanet og svo að hafa gaman saman.


Meðal þess sem efst er á dagskrá:
• Logi Bergmann, fjölmiðlamaður, með kynningu á möguleikum ungs fólks í fjölmiðlaumræðum, framkomu og þátttöku.
• Pia Viktoria, finnskur sjálfboðaliði, verður með kynningu á möguleikum ungs fólks í sjálfboðastarfi.
• Bára Sigurjónsdóttir, Umboðamaður barna, verður með umræður um réttindi ungs fólks.

Allir þessir aðilar bjóða upp á vinnustofur þar sem umræður fara fram.

• Stefán Bogi mun svo leiða hópinn í því að finna sameiginlega niðurstöðu og mynda ályktun ráðstefnunnar.
• Ungmennaráð UMFÍ sér um verkefni úr Kompás, kynnisferð og kvöldvöku og
• hópefli verður í höndum Jörgens.

Hveragerðisbær auglýsir eftir áhugasömu ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur áhuga á að fara á ráðstefnuna fyrir hönd Hveragerðisbæjar. Vinsamlega hafið samband við Jóhönnu Hjartardóttur í síma 483-4000 eða á netfangið jmh@hveragerdi.is

14.09.2011
Haustfagnaður knattspyrnudeildar Hamars

Laugardaginn 17. september á Grýluvelli

  • Kl. 12:00 knattþrautir
  • Kl. 12:45 sumarið gert upp, ný æfingatafla og vetrarstarfið kynnt
  • Kl. 13:15 grillveisla og ís
  • Kl. 14:00 Hamar – ÍH 2. deild

Mætum öll og tökum mömmu og pabba með!

13.09.2011
Meistaraflokkur kvenna Lengjubikarinn
Hamar - Stjarnan
Fimmtudaginn 15.september Kl.19:15
í íþróttahöllinni í Hveragerði
Nú er leiktíðin að byrja og komið að fyrsta bikarleik vetrarins hjá stelpunum okkar!!!
Mætum öll og styðjum Hamarsliðið til sigurs!“
Aðgangseyrir 1.000 Ath. stuðningsmannakortin gilda ekki á bikarleiki
ÁFRAM HAMAR!!!
02.09.2011
ALMYNSTUR
Verið velkomin á opnun í Listasafni Árnesinga – litrík og fjörug sýning.

Á morgun, laugardaginn 3. september kl. 15.00 verður ný sýning opnuð í Listasafni Árnesinga sem fengið hefur heitið ALMYNSTUR, en þar eru verk Arnars Herbertssonar, JBK Ransu og Davíðs Arnar Halldórssonar skoðuð í samhengi.
Sjá nánar á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is
31.08.2011
Félagakynning í Grunnskólanum

Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta- og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton, sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið, Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti nýjum iðkendum á öllum aldri.

Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.

Stjórn foreldrafélagsins



31.08.2011
Fyrsta prjónakaffi haustsins í Bókasafninu í Hveragerði
Mánudagskvöldið 5. september kl. 20-22.
Ræðum framhaldið í vetur, skoðum nýja sýningu og eigum notalega kvöldstund með handavinnuna okkar. Gaman væri að sjá eitthvað af afrakstri sumarsins.

ATH. Nýr inngangur í bókasafnið beint á móti aðaldyrum í Sunnumörk!

31.08.2011
Myndlistarsýning Helgu Haraldsdóttur í Bókasafninu opnar 2. september
Föstudaginn 2. september kl. 18 opnar Helga Haraldsdóttir myndlistarsýningu „við sprunguna” í Bókasafninu í Hveragerði. Boðið verður upp á hressingu og gott spjall og eru allir velkomnir. Þetta er fimmta einkasýning Helgu. Hún hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga á vegum Myndlistarfélags Árnessýslu en hún hefur starfað með félaginu frá því hún flutti til Hveragerðis árið 1991. Sýningin, sem er sölusýning, stendur til 30. september og er opin um leið og safnið, virka daga kl. 13-19 og laugardaga kl. 11-14.
31.08.2011
íþrótta- og tómstundakynning - afþreying í vetur
Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta- og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton, sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, Listasafnið, Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti nýjum iðkendum á öllum aldri.
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins

Viðburðir
Fundargerðir
Skjöl
Br110915.pdfBæjarráð Ósamþykkt15.9.2011
Fundargerð_116_110906.pdfSkipulags- og byggingarnefnd9.9.2011
bs20110908.pdfBæjarstjórn9.9.2011
míf110901.pdfMenningar- íþrótta- og frístundanefnd9.9.2011
míf110614.pdfMenningar- íþrótta- og frístundanefnd9.9.2011