Bókasafnið í Hveragerði
Sunnumörk 2
810 Hveragerði
Sími: 483 4531
Bréfsími: 483 4571
Netfang: bokasafn@hveragerdi.is
bok@hveragerdi.is
(afgreiðsla)
Starfsfólk:
Hlíf S.
Arndal, forstöðumaður
Anna Kristín Guðmundsdóttir, bókavörður
Maria Anna Maríudóttir, bókavörður
Andrés H. Hallmundsson, starfsmaður
Opnunartími:
mánudaga 13-19
þriðjudaga 13-21
miðvikudaga 13-19
fimmtudaga 13-19
föstudaga 13-19
laugardaga 11-14
Bókasafnið í Hveragerði var stofnað árið 1937 eða 8 eftir að tvö lestrarfélög úr Ölfusinu höfðu verið sameinuð, þ. e. lestrarfélagið Mímir í austursveitinni og lestrarfélag Hjallasóknar í vestursveitinni. Bókunum, sem voru eitthvað á annað hundrað, var komið fyrir í stæðilegum skáp í forstofu skólastjóra barnaskólans, Helga Geirssonar. Plássið var um 3 fermetrar. Bókakostur óx hægt fyrstu árin og tekjurnar í samræmi við það. Árið 1940 voru 302 bækur í Bókasafninu í Hveragerði, árið 1986 voru þær um 6.600 talsins en nú, í byrjun árs 2007, eru þær um 18.000.
Haustið 1947 flutti safnið í 11 fermetra herbergi í barnaskólanum. Árið 1978 var það svo loks flutt í 50 fermetra húsnæði að Hverahlíð 24. Þar þótti aðstaðan ágæt og smá vinnuaðstaða var fyrir bókavörðinn. Síðustu árin voru bækurnar þar bókstaflega út um allt, ofan frá rjáfri og niður á gólf! Það var því mjög ánægjulegt þegar bókasafnið fékk inni að Austurmörk 2, vorið 1999, í um 150 fermetrum. Þar var bjart og rúmgott til að byrja með, en þegar tekið var upp úr kössum og farið að kaupa inn bækur voru hillurnar fljótar að fyllast. Haustið 2004 flutti safnið ennþá í nýtt húsnæði í Verslunarmiðstöðinni í Sunnumörk. Húsnæðið er glæsilegt og staðsetningin frábær. Starfsemi safnsins hefur breyst nokkuð eftir flutningana því að nú er það ,,í leiðinni" þegar fólk gerir matarinnkaupin. Fyrirkomulag í safninu finnst safngestum notalegt.
Listasafn Árnesinga -
La Art Museum
Austurmörk 21
810 Hveragerði
Sími 483 1727
Netfang: listasafn@listasafnarnesinga.is
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði verður haldin í
Hveragerði 22.-24. sept. nk.
Skráningar eru ennþá í fullum gangi. Vona að þið hafið aðeins látið
vita af ungmennaráðstefnunni í kringum ykkur!!!
Ungmennaráðstefnan er frábært tækifæri fyrir ungt fólk til að
fræðast, taka þátt, hafa áhrif, mynda tengslanet og svo að hafa
gaman saman.
• Logi Bergmann, fjölmiðlamaður, með kynningu á möguleikum ungs fólks í fjölmiðlaumræðum, framkomu og þátttöku.
• Pia Viktoria, finnskur sjálfboðaliði, verður með kynningu á möguleikum ungs fólks í sjálfboðastarfi.
• Bára Sigurjónsdóttir, Umboðamaður barna, verður með umræður um réttindi ungs fólks.
• Stefán Bogi mun svo leiða hópinn í því að
finna sameiginlega niðurstöðu og mynda ályktun ráðstefnunnar.
• Ungmennaráð UMFÍ sér um verkefni úr Kompás,
kynnisferð og kvöldvöku og
• hópefli verður í höndum Jörgens.
Hveragerðisbær auglýsir eftir áhugasömu
ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur áhuga á að fara á
ráðstefnuna fyrir hönd Hveragerðisbæjar. Vinsamlega hafið samband
við Jóhönnu Hjartardóttur í síma 483-4000 eða á netfangið jmh@hveragerdi.is
Laugardaginn 17. september á Grýluvelli
- Kl. 12:00 knattþrautir
- Kl. 12:45 sumarið gert upp, ný æfingatafla og
vetrarstarfið kynnt
- Kl. 13:15 grillveisla og ís
- Kl. 14:00 Hamar – ÍH 2. deild
Mætum öll og tökum mömmu og pabba með!
Fimmtudaginn 15.september Kl.19:15
í íþróttahöllinni í Hveragerði
Mætum öll og styðjum Hamarsliðið til sigurs!“
Aðgangseyrir 1.000 Ath. stuðningsmannakortin gilda ekki á bikarleiki
ÁFRAM HAMAR!!!
Á morgun, laugardaginn 3. september kl. 15.00 verður ný sýning opnuð í Listasafni Árnesinga sem fengið hefur heitið ALMYNSTUR, en þar eru verk Arnars Herbertssonar, JBK Ransu og Davíðs Arnar Halldórssonar skoðuð í samhengi.
Sjá nánar á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is
Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta-
og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum
íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka
á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton,
sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið,
Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja
nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna
vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti
nýjum iðkendum á öllum aldri.
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins
Ræðum framhaldið í vetur, skoðum nýja sýningu og eigum notalega kvöldstund með handavinnuna okkar. Gaman væri að sjá eitthvað af afrakstri sumarsins.
ATH. Nýr inngangur í bókasafnið beint á móti aðaldyrum í Sunnumörk!
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins







