2.5.2007 11:06:12
Varmahlíðarhús

Úthlutunarreglur Varmahlíðarhúss


Á vegum menningar- og bókasafnsnefndar Hveragerðis starfar úthlutunarnefnd sem úthlutar listamönnum dvalartíma í Varmahlíðarhúsi.

1. grein

Úthlutunarnefnd skipa fjórir fulltrúar. Einn frá Samband íslenskra myndlistarmanna, einn frá Rithöfundarsambandi Íslands, einn frá Félagi íslenskra hljómlistarmanna og formaður menningarmálanefndar Hveragerðis sem jafnframt er formaður nefndarinnar.

2. grein

Húsinu er úthlutað einn mánuð í senn listamönnum að kostnaðarlausu.
Rithöfundum er úthlutað þremur mánuðum, myndlistarmönnum þremur mánuðum, tónlistarmönnum þremur mánuðum og Hveragerðisbær ráðstafar þremur mánuðum.
Hveragerðisbær áskilur sér rétt til að ráðstafa húsinu á annan hátt ef þess er þörf.


3. grein

Þeir sem hafa fengið úthlutað s.l. tvö ár hafa ekki forgang.


4. grein

Þeir sem úthlutun hljóta heimsæki skólana eða bókasafnið í Hveragerði með stutta kynningu um listsköpun sína og stuðli með þeim hætti að því að efla menningaráhuga uppvaxandi kynslóðar í Hveragerði.

5. grein

Tillögur úthlutunarnefndar skulu kynntar í menningarmálanefnd Hveragerðis.



Reglur þessar taka gildi frá og með 1.maí 2007.

Tilkynningar
19.09.2011
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði

Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði verður haldin í Hveragerði 22.-24. sept. nk.

Skráningar eru ennþá í fullum gangi. Vona að þið hafið aðeins látið vita af ungmennaráðstefnunni í kringum ykkur!!!

Ungmennaráðstefnan er frábært tækifæri fyrir ungt fólk til að fræðast, taka þátt, hafa áhrif, mynda tengslanet og svo að hafa gaman saman.


Meðal þess sem efst er á dagskrá:
• Logi Bergmann, fjölmiðlamaður, með kynningu á möguleikum ungs fólks í fjölmiðlaumræðum, framkomu og þátttöku.
• Pia Viktoria, finnskur sjálfboðaliði, verður með kynningu á möguleikum ungs fólks í sjálfboðastarfi.
• Bára Sigurjónsdóttir, Umboðamaður barna, verður með umræður um réttindi ungs fólks.

Allir þessir aðilar bjóða upp á vinnustofur þar sem umræður fara fram.

• Stefán Bogi mun svo leiða hópinn í því að finna sameiginlega niðurstöðu og mynda ályktun ráðstefnunnar.
• Ungmennaráð UMFÍ sér um verkefni úr Kompás, kynnisferð og kvöldvöku og
• hópefli verður í höndum Jörgens.

Hveragerðisbær auglýsir eftir áhugasömu ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur áhuga á að fara á ráðstefnuna fyrir hönd Hveragerðisbæjar. Vinsamlega hafið samband við Jóhönnu Hjartardóttur í síma 483-4000 eða á netfangið jmh@hveragerdi.is

14.09.2011
Haustfagnaður knattspyrnudeildar Hamars

Laugardaginn 17. september á Grýluvelli

  • Kl. 12:00 knattþrautir
  • Kl. 12:45 sumarið gert upp, ný æfingatafla og vetrarstarfið kynnt
  • Kl. 13:15 grillveisla og ís
  • Kl. 14:00 Hamar – ÍH 2. deild

Mætum öll og tökum mömmu og pabba með!

13.09.2011
Meistaraflokkur kvenna Lengjubikarinn
Hamar - Stjarnan
Fimmtudaginn 15.september Kl.19:15
í íþróttahöllinni í Hveragerði
Nú er leiktíðin að byrja og komið að fyrsta bikarleik vetrarins hjá stelpunum okkar!!!
Mætum öll og styðjum Hamarsliðið til sigurs!“
Aðgangseyrir 1.000 Ath. stuðningsmannakortin gilda ekki á bikarleiki
ÁFRAM HAMAR!!!
02.09.2011
ALMYNSTUR
Verið velkomin á opnun í Listasafni Árnesinga – litrík og fjörug sýning.

Á morgun, laugardaginn 3. september kl. 15.00 verður ný sýning opnuð í Listasafni Árnesinga sem fengið hefur heitið ALMYNSTUR, en þar eru verk Arnars Herbertssonar, JBK Ransu og Davíðs Arnar Halldórssonar skoðuð í samhengi.
Sjá nánar á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is
31.08.2011
Félagakynning í Grunnskólanum

Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta- og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton, sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið, Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti nýjum iðkendum á öllum aldri.

Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.

Stjórn foreldrafélagsins



31.08.2011
Fyrsta prjónakaffi haustsins í Bókasafninu í Hveragerði
Mánudagskvöldið 5. september kl. 20-22.
Ræðum framhaldið í vetur, skoðum nýja sýningu og eigum notalega kvöldstund með handavinnuna okkar. Gaman væri að sjá eitthvað af afrakstri sumarsins.

ATH. Nýr inngangur í bókasafnið beint á móti aðaldyrum í Sunnumörk!

31.08.2011
Myndlistarsýning Helgu Haraldsdóttur í Bókasafninu opnar 2. september
Föstudaginn 2. september kl. 18 opnar Helga Haraldsdóttir myndlistarsýningu „við sprunguna” í Bókasafninu í Hveragerði. Boðið verður upp á hressingu og gott spjall og eru allir velkomnir. Þetta er fimmta einkasýning Helgu. Hún hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga á vegum Myndlistarfélags Árnessýslu en hún hefur starfað með félaginu frá því hún flutti til Hveragerðis árið 1991. Sýningin, sem er sölusýning, stendur til 30. september og er opin um leið og safnið, virka daga kl. 13-19 og laugardaga kl. 11-14.
31.08.2011
íþrótta- og tómstundakynning - afþreying í vetur
Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta- og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton, sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, Listasafnið, Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti nýjum iðkendum á öllum aldri.
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins

Viðburðir
Fundargerðir
Skjöl
Br110915.pdfBæjarráð Ósamþykkt15.9.2011
Fundargerð_116_110906.pdfSkipulags- og byggingarnefnd9.9.2011
bs20110908.pdfBæjarstjórn9.9.2011
míf110901.pdfMenningar- íþrótta- og frístundanefnd9.9.2011
míf110614.pdfMenningar- íþrótta- og frístundanefnd9.9.2011