hefur verið haldin árlega í Hveragerðiskirkju um mánaðamótin maí - júní. Hátíðin hefur verið samstarfsverkefni Hveragerðisbæjar og Tónlistarfélags Hveragerðis og Ölfuss.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu hátíðarinnar.
Blómstrandi dagar
Bæjarhátíðin Blómstrandi dagar verður haldin árið 2010 daganna 19.
- 22. ágúst. Hveragerðisbær hefur þar með skipað sér í hóp
bæjarfélaga þar sem ákveðin helgi er undirlögð viðburðum af ýmsu
tagi. Blómstrandi dagar hefjast á fimmtudagskvöldi og lýkur
hátíðinni formlega á sunnudeginum. Þessa daga er dagskráin bæði
fjölbreytt og skemmtileg en bæði fyrirtæki sem og bæjarbúar allir
leggja sitt af mörkum til að hátíðin heppnist vel og verði þeim
eftirminnileg sem hana sækja. Hápunktur Blómstrandi daga er án efa
brekkusöngurinn og flugeldasýningin á laugardagskvöldinu en það er
dagskrárliður sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.
Dagskrá hátíðarinnar 2009 má sjá hér.

Garðyrkju- og blómasýningin, Blóm í bæ
var haldin í fyrsta sinn sumarið 2009. Hátíðin verður
haldin 24. - 27. júní 2010.

Þriðjudaginn 27. júlí kl. 17 í Listasafni Árnesinga
Í verkum sínum fjallar Svala meðal annars um tengslin á milli minninganna, sagnanna, og svo hins uppfundna, eða tilbúna. Hún hefur einkum fengist við ljósmyndaverk og oftar enn ekki er myndum raðað saman, tveimur eða fleirum til þess að skapa orðræðu eða ef til vill torræðu á milli einstakra ramma. Ljósmyndaverk Svölu eru ljóðræn og huglæg.
Svala mun sýna og segja frá verkum sínum í erindi í Listasafninu síðdegis í dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Sunnudaginn 25. júlí kl. 15 verður
sýningin
ÁR: málverkið á tímum straumvatna
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson ▪ Þorvaldur
Skúlason
Nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins: www. listasafnarnesinga.is
Verið velkomin











