Hveragerði býður upp á margvíslega menningarstarfsemi fyrir alla aldurshópa, enda í bæjarfélaginu starfandi fjöldinn allur af félagasamtökum og stofnununum sem tengjast menningu á einn eða annan hátt. Staðsetning bæjarins innan um ósnortna náttúru steinsnar frá höfuðborginni er vel til þess fallin að sækja staðinn heim og njóta þess sem boðið er uppá eða bara taka því rólega í fallegu og afslöppuðu umhverfi.
Listasafn Árnesinga
Menningu og listum hefur verið gert hátt undir höfði í
bæjarfélaginu. Listasafn Árnesinga er
við Austurmörk. Þar eru reglulega settar upp metnaðarfullar
sýningar eftir fremstu listamenn þjóðarinnar auk þess sem í húsinu
er notalegt kaffihús.
Tónlistarhátíðin Bjartar
Sumarnætur
hefur verið haldin árlega í Hveragerðiskirkju um mánaðamótin maí -
júní. Nánari upplýsingar birtast síðar.
Menningar- og fjölskylduhátíðin Blómstrandi
dagar
er árlegur viðburður og á fastan sess í bæjarlífinu. Fjölbreytt
dagskrá við allra hæfi einkennir hátíðina sem hefur orðið viðameiri
með hverju árinu. Næsta bæjarhátíð verður
dagana 19. - 22. ágúst 2010.
Garðyrkju- og blómasýningin - Blóm í bæ
verður haldin 24. - 27. júní 2010.
Bókasafnið
Í bókasafni bæjarins og á veitingastöðum bæjarins eru reglulega
settar upp hinar fjölbreyttustu sýningar.
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 17 í Listasafni Árnesinga
Í verkum sínum fjallar Svala meðal annars um tengslin á milli minninganna, sagnanna, og svo hins uppfundna, eða tilbúna. Hún hefur einkum fengist við ljósmyndaverk og oftar enn ekki er myndum raðað saman, tveimur eða fleirum til þess að skapa orðræðu eða ef til vill torræðu á milli einstakra ramma. Ljósmyndaverk Svölu eru ljóðræn og huglæg.
Svala mun sýna og segja frá verkum sínum í erindi í Listasafninu síðdegis í dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Sunnudaginn 25. júlí kl. 15 verður
sýningin
ÁR: málverkið á tímum straumvatna
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson ▪ Þorvaldur
Skúlason
Nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins: www. listasafnarnesinga.is
Verið velkomin











