Hveragerðis kirkja sími: 483 4698
Sóknarprestur: Jón Ragnarsson, símar: 483 4255 og 862 4253
Viðtalstími í kirkjunni frá kl. 11 - 12 þriðjud. og fimmtud. og
eftir samkomulagi jon.ragnarsson@kirkjan.is
Organisti: Gróa Hreinsdóttir, sími:699 1886 groahreins@gmail.com
Kirkjuvörður í Hveragerði:
Helga Baldursdóttir, símar: 483 4256 og 849 3830
Kirkjuvörður á Kotströnd:
Eyrún Rannveig Þorláksdóttir, sími: 483 4267
Umsjónarmaður kirkjugarðs á Kotströnd:
Þorsteinn Hannibalsson, símar: 483 4144 og 894 0444
Smellið hér til að komast á heimasíðu Hveragerðiskirkju
Hveragerðisprestakall nær yfir tvær sóknir, Hveragerðissókn og
Kotstrandarsókn.
Almennar guðsþjónustur í Hveragerðiskirkju eru fyrsta og þriðja sunnudag hvers mánaðar kl. 11:00. Barnastarfið fer fram á sama tíma - kl. 11:00 - alla sunnudag frá því í september fram að páskum og er því tvisvar í mánuði samtímis almennu guðsþjónustunni. Börnin eru með í upphafi guðsþjónustunnar, en fara fram í safnaðasal fyrir prédikun og fá þar sinn sunnudagaskóla. Foreldrar geta valið um að fylgja börnum sínum í sunnudagaskólann eða taka þátt í guðsþjónustunni til loka.
Orgelstundir í Hveragerðiskirkju eru annan sunnudag hvers mánaðar kl. 17:00 yfir vetrarmánuðina, en kl. 20:00 frá júní til september. Orgelstundir eru helgistundir þar sem orgeltónlist er umgjörð um ritningarlestur, bæn og hugleiðingu.
Í Kotstrandarkirkju er messað kl. 14:00, þriðja sunnudag hvers mánaðar. Guðsþjónusta er á Hjúkrunarheimilinu Ási kl. 15:00, þann sama dag.
Guðsþjónusta á Heilsustofnun NLFÍ er annan sunnudag mánaðarins
kl. 11:00
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði verður haldin í
Hveragerði 22.-24. sept. nk.
Skráningar eru ennþá í fullum gangi. Vona að þið hafið aðeins látið
vita af ungmennaráðstefnunni í kringum ykkur!!!
Ungmennaráðstefnan er frábært tækifæri fyrir ungt fólk til að
fræðast, taka þátt, hafa áhrif, mynda tengslanet og svo að hafa
gaman saman.
• Logi Bergmann, fjölmiðlamaður, með kynningu á möguleikum ungs fólks í fjölmiðlaumræðum, framkomu og þátttöku.
• Pia Viktoria, finnskur sjálfboðaliði, verður með kynningu á möguleikum ungs fólks í sjálfboðastarfi.
• Bára Sigurjónsdóttir, Umboðamaður barna, verður með umræður um réttindi ungs fólks.
• Stefán Bogi mun svo leiða hópinn í því að
finna sameiginlega niðurstöðu og mynda ályktun ráðstefnunnar.
• Ungmennaráð UMFÍ sér um verkefni úr Kompás,
kynnisferð og kvöldvöku og
• hópefli verður í höndum Jörgens.
Hveragerðisbær auglýsir eftir áhugasömu
ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur áhuga á að fara á
ráðstefnuna fyrir hönd Hveragerðisbæjar. Vinsamlega hafið samband
við Jóhönnu Hjartardóttur í síma 483-4000 eða á netfangið jmh@hveragerdi.is
Laugardaginn 17. september á Grýluvelli
- Kl. 12:00 knattþrautir
- Kl. 12:45 sumarið gert upp, ný æfingatafla og
vetrarstarfið kynnt
- Kl. 13:15 grillveisla og ís
- Kl. 14:00 Hamar – ÍH 2. deild
Mætum öll og tökum mömmu og pabba með!
Fimmtudaginn 15.september Kl.19:15
í íþróttahöllinni í Hveragerði
Mætum öll og styðjum Hamarsliðið til sigurs!“
Aðgangseyrir 1.000 Ath. stuðningsmannakortin gilda ekki á bikarleiki
ÁFRAM HAMAR!!!
Á morgun, laugardaginn 3. september kl. 15.00 verður ný sýning opnuð í Listasafni Árnesinga sem fengið hefur heitið ALMYNSTUR, en þar eru verk Arnars Herbertssonar, JBK Ransu og Davíðs Arnar Halldórssonar skoðuð í samhengi.
Sjá nánar á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is
Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta-
og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum
íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka
á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton,
sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið,
Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja
nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna
vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti
nýjum iðkendum á öllum aldri.
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins
Ræðum framhaldið í vetur, skoðum nýja sýningu og eigum notalega kvöldstund með handavinnuna okkar. Gaman væri að sjá eitthvað af afrakstri sumarsins.
ATH. Nýr inngangur í bókasafnið beint á móti aðaldyrum í Sunnumörk!
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins







