Undanfarin ár hefur Hveragerðisbær í samvinnu við Lýðheilsustöð unnið að heilsueflingu bæjarbúa undir yfirskriftinni, Allt hefur áhrif einkum við sjálf.
Markmið verkefnisins er að stuðla að
heilbrigðum lífsháttum barna, ungs fólks og fjölskyldna þeirra með
áherslu á aukna hreyfingu og bætt mataræði. Skólastofnanir,
íþrótta- og tómstundahreyfingar, heilsugæsla og foreldrasamtök eiga
fulltrúa í starfshópi sem skipuleggur ferla til að virkja
þátttakendur til heilbrigðari lífsstíls. Verkefnastjóri
Lýðheilsustofnunar, Jórlaug Heimisdóttir, er ráðgjafi
starfshópsins. Þegar verkefnið hófst árið 2005 var gert átak í að
bæta næringu barna og unglinga í skólastofnunum bæjarins. Einnig
var gerð rannsókn á lífsháttum barna og ungmenna bæjarins.
Á næstu árum horfum við til þess að efla verkefnið til muna og auka
kynningu á hreyfingu og útiveru almennings. Í Hveragerði eru miklir
möguleikar á að stunda fjölbreytta hreyfingu úti í okkar fallegu
náttúru. Margar merktar gönguleiðir er að finna á heimasíðu
bæjarins og einnig er fjölnota íþróttahringur staðsettur við enda
Hamarsvallar.
Forvarnaráætlun Hveragerðisbæjar -
endurskoðun
Tilgangurinn er að stuðla að víðtækri og skiplagðri lýðheilsuáætlun
fyrir bæjarbúa með því að til sé heildræn velferðarstefna í
bæjarfélaginu og að tryggja samvinnu þeirra sem koma að málefnum
m.a. barna og ungmenna í bæjarfélaginu t.d. skóla, frístunda- og
íþróttafélaga, félagsmiðstöðvar og kirkju.
Hlutverk
- er að samhæfa og styrkja enn frekar það lýðheilsustarf sem unnið
er í bæjarfélaginu.
- er að vinna að jákvæðum árangri í velferð barna og
ungmenna.
- er að tryggja samvinnu og samheldni í velferðarstarfinu.
- er að ákveðinn samhljómur sé ríkjandi varðandi velferð barna og
ungmenna.
- er að tryggja börnum jákvætt og uppbyggilegt umhverfi hvort sem
er í skóla eða frítíma.
Hreyfing - heilsa - hamingja
Hveragerði er heilsubær og hefur orðið mikil vakning hjá bæjarbúum á heilsusamlegum lifnaðarháttum undanfarin ár. Fólk á öllum aldri stundar útivist og hreyfingu og er fjölbreytni þeirrar þjálfunar sem er í boði, í skipulagðri líkamsrækt fyrir almenning, mikil. Sundlaugin í Laugaskarði er miðdepill þessarar starfsemi.
Fyrirhugað er að halda heilsudaga, Heilsuþristinn, í júní ár
hvert sem hvatningu fyrir almenning að hreyfa sig til að bæta
heilsu og vellíðan. Nánari upplýsingar koma síðar.
Íþróttamannvirki bæjarins
Yfirmaður íþróttamannvirkja er menningar- og
frístundafulltrúi jmh@hveragerdi.is
Sundlaugin Laugaskarði
Laugaskarði810 Hveragerði
Sími: 483 4113
Opnunartími:
Mánud.- fimmtud. kl. 7:00 - 20:30
Föstudaga kl. 7:00 - 17:30
Laugard.- sunnud. kl. 10:00-17:30.
Gjaldskrá frá og með 1. janúar 2011
Fullorðnir kr. 400
Börn kr. 160
10 miða afsláttarkort fullorðnir kr. 2.800
10 miða afsláttarkort börn kr. 800
30 miða afsláttarkort fullorðnir kr. 6.200
6 mánaða kort kr. 13.000
Árskort kr. 25.000
Baðföt, leiga kr. 350
Frítt er í sund fyrir alla íbúa yngri en 18
áraog öll börn úr dreifbýli Ölfuss sem eru í Grunnskólanum í
Hveragerði.
Sundlaugin í Laugaskarði er 50 metra löng og 12 metra breið og var um langa hríð langstærsta sundlaug landsins. Hún er svokölluð gegnumrennslislaug, hituð upp með jarðgufu, sem tryggir eðlilegt sýrustig og hreinleika vatnsins. Laugin er í skjólsælli hvilft sem veit gegn suðri, norðan Varmár við veginn að Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi.
Gæslumaður er ávallt á vakt við laugina og auk
þess er sjónvarpskerfi til að fylgjast með og tryggja öryggi
sundlaugargesta. Þar er heit, grunn setlaug, heitur pottur með
rafmagnsnuddi og náttúrulegt gufubað.
Laugin var byggð í tveimur áföngum, sá fyrri
var 25x12 metrar og var tekinn í notkun árið 1938, en síðari
hlutinn árið 1945. Í henni æfði íslenska landsliðið í sundi allt
til 1966 þegar Laugardalslaugin í Reykjavík kom til sögunnar.
Það var Ungmennafélag Ölfushrepps sem beitti sér mest fyrir því að laugin var gerð og lögðu félagsmenn fram ómælda sjálfboðavinnu. Þeim bættist góður liðsauki þegar Lárus Rist sundkappi fluttist til Hveragerðis árið 1936 og má segja að hann hafi tekið forystu við uppbyggingu laugarinnar og réði meðal annars staðarvali.
Hveragerðisbær annast allan rekstur og viðhald laugarinnar.
Íþróttahús Hveragerðis
við Skólamörk810 Hveragerði
Sími: 483 4348
Stærð íþróttasalarins er 18x33 metrar, áhorfendastæði eru fyrir 240 manns og þar eru búnings- og baðklefar.
Húsið var byggt í tveimur áföngum og var fyrri áfangi tekinn í notkun 1976 en síðari áfangi 1984. Undir hálfu húsinu er kjallari með fjögurra metra lofthæð og þar er nú félagsmiðstöð fyrir grunnskólanema. Lægri kjallari undir hinum helmingnum er nýttur sem geymsla.
Grunnskólinn í Hveragerði hefur afnot af húsinu á skólatíma til leikfimi og íþróttakennslu. Að skóla loknum hefur Íþróttafélagið Hamar afnot af húsinu og þar fer fram fjölbreytt íþróttastarf á vegum Hamars. Hveragerðisbær styrkir félagið með ókeypis afnotum af húsinu.
Íþróttafélagið Hamar
stendur fyrir íþróttaæfingum í badmintoni, blaki, fimleikum,knattspyrnu, körfuknattleik og sundi. Markmið íþróttafélagsins er að stuðla að eflingu íþrótta- og æskulýðsstarfs, í Hveragerði og nágrenni, sem og heilbrigðs lífernis. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins sem er á forsíðu.
Önnur félög
Fleiri félög eru starfandi eins og Golfklúbbur Hveragerðis, www.golf.is, Hestamannafélagið Ljúfur, www.ljufur.is , Skátafélagið Strókur og Hjálparsveit Skáta, www.123.is/hssh
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði verður haldin í
Hveragerði 22.-24. sept. nk.
Skráningar eru ennþá í fullum gangi. Vona að þið hafið aðeins látið
vita af ungmennaráðstefnunni í kringum ykkur!!!
Ungmennaráðstefnan er frábært tækifæri fyrir ungt fólk til að
fræðast, taka þátt, hafa áhrif, mynda tengslanet og svo að hafa
gaman saman.
• Logi Bergmann, fjölmiðlamaður, með kynningu á möguleikum ungs fólks í fjölmiðlaumræðum, framkomu og þátttöku.
• Pia Viktoria, finnskur sjálfboðaliði, verður með kynningu á möguleikum ungs fólks í sjálfboðastarfi.
• Bára Sigurjónsdóttir, Umboðamaður barna, verður með umræður um réttindi ungs fólks.
• Stefán Bogi mun svo leiða hópinn í því að
finna sameiginlega niðurstöðu og mynda ályktun ráðstefnunnar.
• Ungmennaráð UMFÍ sér um verkefni úr Kompás,
kynnisferð og kvöldvöku og
• hópefli verður í höndum Jörgens.
Hveragerðisbær auglýsir eftir áhugasömu
ungu fólki á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur áhuga á að fara á
ráðstefnuna fyrir hönd Hveragerðisbæjar. Vinsamlega hafið samband
við Jóhönnu Hjartardóttur í síma 483-4000 eða á netfangið jmh@hveragerdi.is
Laugardaginn 17. september á Grýluvelli
- Kl. 12:00 knattþrautir
- Kl. 12:45 sumarið gert upp, ný æfingatafla og
vetrarstarfið kynnt
- Kl. 13:15 grillveisla og ís
- Kl. 14:00 Hamar – ÍH 2. deild
Mætum öll og tökum mömmu og pabba með!
Fimmtudaginn 15.september Kl.19:15
í íþróttahöllinni í Hveragerði
Mætum öll og styðjum Hamarsliðið til sigurs!“
Aðgangseyrir 1.000 Ath. stuðningsmannakortin gilda ekki á bikarleiki
ÁFRAM HAMAR!!!
Á morgun, laugardaginn 3. september kl. 15.00 verður ný sýning opnuð í Listasafni Árnesinga sem fengið hefur heitið ALMYNSTUR, en þar eru verk Arnars Herbertssonar, JBK Ransu og Davíðs Arnar Halldórssonar skoðuð í samhengi.
Sjá nánar á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is
Fimmtudaginn 1. september kl. 16:30-19:00 verður haldin íþrótta-
og tómstundakynning í Grunnskólanum. Þar munu fulltrúar frá flestum
íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði kynna starf sitt og taka
á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton,
sund, körfubolta, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið,
Taewondo frá Selfossi og fleiri. Viljum við sérstaklega hvetja
nemendur á elsta stigi til að mæta þar sem Hjálparsveitin mun kynna
vetrarstarf sitt ásamt öðrum íþróttagreinum sem taka alltaf á móti
nýjum iðkendum á öllum aldri.
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins
Ræðum framhaldið í vetur, skoðum nýja sýningu og eigum notalega kvöldstund með handavinnuna okkar. Gaman væri að sjá eitthvað af afrakstri sumarsins.
ATH. Nýr inngangur í bókasafnið beint á móti aðaldyrum í Sunnumörk!
Vonumst til að sjá sem flesta, nemendur og foreldra.
Stjórn foreldrafélagsins







