Upphaf byggðar
Þorpsmyndun hófst í Hveragerði árið 1929, Hveragerðishreppur var
stofnaður 1946 og varð bæjarfélag 1987. Þann 1. des. 2005 voru
íbúar Hveragerðis um 2089.
Hveragerði byggðist í landi Vorsabæjar í
Ölfusi en nafnið var upphaflega á hverasvæði því sem er í bænum
miðjum, sunnan og vestan kirkjunnar. Hveragerði er fyrst skráð í
Fitjaannál laust fyrir 1700 þar sem sagt er frá tilfærslu goshvers
í landskjálftum 1597. Af lýsingu Ölfushrepps árið 1703 eftir
Hálfdan Jónsson lögréttumann á Reykjum má ætla að hverir hafi þá
verið nýttir til baða, suðu og þvotta. Enn kemur Hveragerði við
sögu árið 1844 þegar ákveðið var að flytja lögréttir Ölfusinga frá
Hvammi í Borgarheiði við Hveragerði. Fyrsta tilraun til
þurrabúðarlífs í Hveragerði tengist byggingu ullarverksmiðju við
Reykjafoss í Varmá árið 1902. Vatnshjól og reimdrif knúðu vélar
hennar og árið 1906 var sett upp lítil vatnsknúin rafstöð til ljósa
og gatan að þjóðvegi við Ölfusréttir upplýst ári síðar, fyrsta
götulýsing í dreifbýli á Íslandi. Reykjafossverksmiðjan var rekin
til 1912 og árið 1915 var hún rifin nema grunnurinn sem enn
sést.
Samvinnufélag um Mjólkurbú Ölfusinga var stofnað 1928, 45 ha lands
keyptir og var hverasvæðið þar í. Mjólkurstöðvarhús var byggt
sumarið 1929 (Breiðumörk 26) og sama sumar risu tvö fyrstu
íbúðarhúsin, Varmahlíð og sumarhús í Fagrahvammi þar sem ylrækt
hófst í Hveragerði.
Fjölbreytilegar tilraunir til nýtingar jarðvarma í atvinnurekstri einkenna sögu Hveragerðis. Jarðhitasvæði í miðjum bænum og næsta nágrenni skapa Hveragerði sérstöðu meðal þéttbýla á Íslandi og þó víðar væri leitað.
Fjölgun íbúa
Íbúum í Hveragerði fjölgaði hægt fyrsta áratuginn og í
árslok 1941 voru þeir um 140 (uppgefnar tölur á heilum eða hálfum
tug). Næstu árin fjölgaði þeim hratt og voru um 400 í árslok 1946,
stofnári Hveragerðishrepps. Næstu áratugina fjölgaði íbúum mun
hægar, voru um 530 í árslok 1950, 685 í árslok 1960 og 740 í árslok
1970. Á síðustu árum hefur fjölgunin verið örari og þá einkum
áratuginn 1971-1980. Íbúar voru um 1245 í árslok 1980, 1600 í
árslok 1992, 1813 í árslok 2000 og eru um 2189 í árslok
2006.
Nýting hverahitans til suðu, baksturs, þvotta og húshitunar mun hafa laðað marga til búsetu í Hveragerði í upphafi. Matur var soðinn og brauð bökuð í gufukössum við hveri eða húshlið. Þvottur var þveginn við hverina eða í hitaþróm við húsvegg. Sveitafólk í Ölfusi hafði lengi nýtt hverina til þvotta og bakað rúgbrauð í heitum jarðvegi við hverina eins og örnefnið Brauðholur vitnar um. Sumarbústaðir voru margir einkum á stríðasárunum. Samkvæmt fasteignaskrá frá 1941 voru 37 íbúðarhús í Hveragerði og 19 sumarbústaðir. Sumarbústaðirnir voru vestan hverasvæðisins flestir við göturnar Laufskóga og Hverahlíð. Á stofnári Hveragerðishrepps 1946 var 91 íbúð skráð þar en í árslok 1992 voru þær 615.
Atvinnusagan
Mjólkurbú Ölfusinga (Breiðumörk 26) starfaði árin 1930-38
og nýtti jarðhita frá Bakkahver til framleiðslu sinnar auk rafmagns
frá virkjun sem reist var árið 1929 við Varmá. Í Varmárgilinu við
Hverahvamm var byggð Þangmjölsverksmiðja sem framleiddi þangmjöl
1938-1940. Sú verksmiðja var síðan stækkuð og þar var þvegið af
hernum, starfrækt sauma- og prjónastofa og ull þvegin til 1950.
Garðyrkjustöðin í Fagrahvammi markar upphaf ylræktar í Hveragerði og þar hlutu margir sína fyrstu skólun. Garðyrkjuskóli ríkisins á Reykjum útskrifaði fyrstu garðyrkjufræðingana vorið 1941. Margir þeirra og verkamenn úr Fagrahvammi reistu garðyrkjustöðvar í Hveragerði. Í Hveragerði voru 7 garðyrkjustöðvar komnar 1940 en 20 árið 1950. Þar efldist mjög blómarækt á fimmta áratugnum og blómabærinn Hveragerði varð til.
Íbúar Reykjavíkursvæðis byrjuðu snemma að heimsækja Hveragerði til að kaupa garðyrkjuafurðir. Þetta er ennþá eitt sérkenna bæjarins einkum snemma sumars þegar kaupendur sumarblóma fylla þar götur. Úr þeim jarðvegi spratt m.a. Blómaskáli Paul Michelsens þar sem nú er verslunin Blómaborg og garðyrkjustöðin Eden, stofnuð 1958, sem nú mun einn fjölsóttasti ferðamannastaður landsins.
Ölfushreppur byggði þinghús í Hveragerði árið 1930 (Breiðumörk 25). Þar var farskóli til 1937 þegar húsið „Egilsstaðir“ (Skólamörk 6) var keypt til kennslu og heimavistar og skólahald í Ölfushreppi sameinað á einn stað. Veitingasala var í þinghúsi Ölfushrepps frá 1931 og þar hefur verið hótel frá 1947 en Hótel Örk er nú stærst í þeim rekstri. Árný Filippusdóttir byggði Hverabakka og rak þar kvennaskóla 1936-56. Sundlaugin í Laugaskarði var tekin í notkun 1938, og var lengi eina 50 m sundlaug landsins.
Árið 1950 byrjaði Landspítalinn rekstur leirbaða í Hveragerði og Náttúrulækningafélag Íslands hóf starfsemi heilsuhælis árið 1955. Árið 1952 keypti Sýslunefnd Árnessýslu tvö hús fyrir aldraða og samdi við Gísla Sigurbjörnsson á Grund um rekstur þeirra. Það varð vísirinn að Dvalarheimilinu Ási/Ásbyrgi. Fyrirtækið Kjörís hf. var stofnað 1968 og er nú langstærsta iðnfyrirtækið í bænum. Sigurður Elíasson stofnaði trésmíðaverkstæði í Hveragerði um 1946. Það varð vísirinn að Trésmiðju Hveragerðis (Breiðumörk 2) sem starfrækt var fram undir 1990 og þar lærðu fjölmargir trésmíðaiðn.
Verslun hófst í Hveragerði árið 1938 en frá
1942 og allt fram til þessa dags hefur verið rekin verslun í
húsnæði því sem nú hýsir Kjöt og Kúnst við Breiðumörk.
Kaupfélag Árnesinga hóf verslunarrekstur í Hveragerði 1944 og rak
lengi útibú við Breiðumörk í Hveragerði í húsnæði því sem nú hýsir
verk- og myndmenntakennslu Grunnskólans í Hveragerði.
Sparisjóður Hveragerðis og nágrennis hóf starfsemi árið 1962 en
fimm árum síðar yfirtók Búnaðarbanki Íslands sparisjóðinn og hefur
rekið útibú í Hveragerði síðan. Georg Michelsen hóf brauðgerð í
Hveragerði 1946 og það fyrirtæki, Hverabakarí, að Heiðmörk 35 er
enn starfrækt með öðrum eigendum. Þar er gufa enn þann daga í dag
nýtt til baksturs.
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 17 í Listasafni Árnesinga
Í verkum sínum fjallar Svala meðal annars um tengslin á milli minninganna, sagnanna, og svo hins uppfundna, eða tilbúna. Hún hefur einkum fengist við ljósmyndaverk og oftar enn ekki er myndum raðað saman, tveimur eða fleirum til þess að skapa orðræðu eða ef til vill torræðu á milli einstakra ramma. Ljósmyndaverk Svölu eru ljóðræn og huglæg.
Svala mun sýna og segja frá verkum sínum í erindi í Listasafninu síðdegis í dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Sunnudaginn 25. júlí kl. 15 verður
sýningin
ÁR: málverkið á tímum straumvatna
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson ▪ Þorvaldur
Skúlason
Nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins: www. listasafnarnesinga.is
Verið velkomin











