Sunnan3 - Rafrænt þjónustutorg
Skoðanakönnun
2.1.2009 09:02:32
Íþróttamenn Hveragerðis 2008

Íþrótta- og tómstundanefnd ákvað á fundi sínum þann 9. desember síðastliðinn hverjir myndu hljóta viðurkenningar og útnefningar sem íþróttamenn Hveragerðis 2008. 

Hátíðarathöfn fór fram í Listasafninu 30. desember síðastliðinn og var um 70 manns sem sóttu samkomuna. Birkir Sveinsson, form. íþrótta- og tómstundanefndar stýrði samkomunni.  Þeir íþróttamenn sem fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur á árinu voru:

Bjarndís Helga Blöndal, badminton
Ólafur Dór Steindórsson, badminton
Brynjar Kristjánsson, billiard
Hafsteinn Valdimarsson, blak
Kristján Valdimarsson, blak
Arna Hjartardóttir, fimleikar
Elvar Aron Hauksson, golf
Sölvi Örn Sölvason,  knattspyrna
Fanney Lind Guðmundsdóttir, körfuknattleikur
Hafrún Hálfdánardóttir , körfuknattleikur
Hjalti Valur Þorsteinsson, körfuknattleikur
Jóhanna Björk Sveinsdóttir,  körfuknattleikur
Oddur Ólafsson, körfuknattleikur
Laufey Rún Þorsteinsdóttir, sund


Íþróttamenn Hveragerðis 2008 voru þau:  Arna Hjartardóttir og Hjalti Valur Þorsteinsson


Formaður flutti kveðjur frá íþrótta- og tómstundanefnd til þeirra fjölmörgu sjálfboðaliða sem starfa að íþróttamálum og gera það að verkum að íþróttalífið í bænum er eins fjölbreytt og það er. Starf þeirra er sjaldnast metið af verðleikum.

Menningar- og frístundafulltrúi

Tilkynningar
27.7.2010 08:38:59
Svala Ólafsdóttir með erindi í Listasafni Árnesinga í dag
Svala Ólafsdóttir með erindi í máli og myndum
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 17 í Listasafni Árnesinga

Svala (1954) er gestalistamaður Varmahlíðarhússins um þessar mundir. Hún ólst upp á Selfossi en býr nú í Bandaríkjunum. Hún sótti menntun sína til Bandaríkjanna með áherslu á ljósmyndun og hefur frá námslokum sinnt listsköpun og kennslu ytra. Nánari upplýsingar um Svölu er að finna á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is og á heimasíðu hennar sjálfrar www.svalaolafsdottir.com

Í verkum sínum fjallar Svala meðal annars um tengslin á milli minninganna, sagnanna, og svo hins uppfundna, eða tilbúna. Hún hefur einkum fengist við ljósmyndaverk og oftar enn ekki er myndum raðað saman, tveimur eða fleirum til þess að skapa orðræðu eða ef til vill torræðu á milli einstakra ramma. Ljósmyndaverk Svölu eru ljóðræn og huglæg.

Svala mun sýna og segja frá verkum sínum í erindi í Listasafninu síðdegis í dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
23.7.2010 11:26:14
Sýningin ÁR: málverkið á tímum straumvatna

Sunnudaginn 25. júlí kl. 15 verður sýningin
ÁR: málverkið á tímum straumvatna
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson ▪ Þorvaldur Skúlason




opnuð í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns Árnesinga og Listasafns Háskóla Íslands, en í þess eigu er langstærsta safn landsins af verkum eftir Þorvald Skúlason, rúmlega 200 málverk og yfir þúsund teikningar og skissur frá öllum tímabilum ferils hans. Safnstjóri Listasafns Háskóla Íslands er Auður A. Ólafsdóttir listfræðingur og er hún jafnframt sýningarstjóri sýningarinnar. Hún hefur valið að láta verk hans eiga stefnumót við samtímalistina, við verk Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar og kallar það í sýningarskrá „hinn óvænta fund rökhyggju og rómantíkur í miðju straumvatni.”

Nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins: www. listasafnarnesinga.is

Tríó Páls Sveinssonar laðar fram ljúfa jass-tóna við opnunina

Verið velkomin
22.7.2010 09:16:22
Gæsluvöllur lokaður 29. júlí - 2. ágúst
21.7.2010 10:22:48
Markaður á blómstrandi dögum

Fundargerðir
Skjöl
Br100715.pdfBæjarráð Ósamþykkt16.7.2010
skn100701.pdfSkipulags- og byggingarnefnd Ósamþykkt2.7.2010
Br100701.pdfBæjarráð2.7.2010
bs20100628.pdfBæjarstjórn29.6.2010
Br100616.pdfBæjarráð29.6.2010