10.4.2007 11:39:19
Opnunartímar

Bókasafnið í Hveragerði er opið:
mánudaga kl. 13:00 – 19:00
þriðjudaga kl. 13:00 – 21:00
miðvikudaga kl. 13:00 – 19:00
fimmtudaga kl. 13:00 – 19:00
föstudaga kl. 13:00 – 19:00
laugardaga kl. 11:00 – 14:00

Bæjarskrifstofur
Afgreiðslutími frá september til maí:
Afgreiðsla er opin: mánud. - föstud. kl. 10:00 - 15:00
Sími er opinn: mánud. - föstud. kl. 9:00 - 16:00

Afgreiðslutími frá júní til ágúst:
Afgreiðsla er opin: mánud. - miðvikud. kl. 10:00 - 15:00
fimmtud. kl. 10:00 - 16:00
föstud. kl. 10:00 - 14:00
Sími er opinn: mánud. - fimmtud. kl. 9:00 - 16:00
föstud. kl. 9:00 - 14:00

Gámastöðin er opin alla daga vikunnar, nema sunnudaga.
Opnunartímar eru:
frá 1. september til 14. maí: kl. 14:00 - 18:00
frá 15. maí til 31. ágúst: kl. 14:00 - 20:00 á virkum dögum
kl 12:00 - 18:00 á laugardögum

Sundlaugin Laugaskarði
Opnunartími
1. september - 31. maí
mánudaga – fimmtudaga kl. 7:00-20:30
föstudaga kl. 7:00-17:30
laugardaga og sunnudaga kl. 10:00-17:30
1. júní - 31. ágúst
mánudaga – föstudaga kl. 6:30-21:15
laugardaga - sunnudaga kl. 10:00-18:30

Tilkynningar
10.3.2010 08:30:27
Kynningarfundur um rammaáætlun

Kynningarfundur um rammaáætlun verður haldinn á Hótel Selfossi laugardaginn, 13. mars n.k.

Verkefnisstjórn 2. áfanga Rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði hélt kynningarfund þriðjudaginn 9. mars s.l. Þar voru kynntar niðurstöður faghópa verkefnisstjórnar sem metið hafa svæði og virkjunarkosti, hver á síðu sérsviði.

Skýrslu verkefnisstjórnar um virkjunarkosti til mats og nðurstöður faghópa, auk ítarefnis, má nálgast á vefsíðu rammaáætlunar, www.rammaáætlun.is, frá og með mánudeginum 8. mars.

Umsagnarferli:
Niðurstöður faghópanna verða settar í opið kynningarferli sem stendur til 19. apríl. Öllum er heimilt að senda inn umsögn um niðurstöður faghópanna. Umsögnum er veitt viðtaka um tölvupóstfangið umsogn@rammaaetlun.isen einnig má senda skriflegar umsagnir á póstfangið: Rammaáætlun, c/o Orkugarður, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík.

Efnt verður til kynningarfunda víða um land á næstu vikum og verður fundur ætlaður Sunnlendingum haldinn á Hótel Selfoss 13. mars kl. 11:00.

Áhugasamir eru hvattir til að mæta.

8.3.2010 10:12:24
Leikfélag Hveragerðis frumsýnir Emil í Kattholti
Nú þegar líða tekur á seinni hluta vetrar og vorið tekur á móti okkur þá höfum við hjá Leikfélagi Hveragerðis staðið í ströngu við að skipuleggja frábæra fjölskylduskemmtun sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Um er að ræða meistaraverk Astridar Lindgren um strákskrattann og ólátabelginn Emil í Kattholti í þýðingu Vilborgar Dagbjartsdóttur. Leikstjórinn að þessu sinni er Sigurður Blöndal og þekkir hann vel til félagsins því hann leikstýrði meðal annars Kardimommubænum og Dýrunum í Hálsaskógi við góðan orðstír. Er þetta tilvalin skemmtun fyrir einstaklinga og hópa sem vilja gera sér dagamun og leggja upp í einstaka fjölskylduferð. Margt hefur gengið á hjá okkur síðustu misseri og má þar nefna endurbætur á húsnæði okkar(Austurmörk 23 beint á móti Shell og við hliðina á Eden.) og í framhaldi af því setjum við upp eina umfangsmestu sviðsmynd sem við höfum gert og það fyrir pollann hann Emil. Yfir 30 manns hafa lagt hönd á plóg til að láta þessa sýningu verða að veruleika og má einnig nefna að leikfélagið var í góðu samstarfi við grunnskólann hér í bæ við smíð á hinum ýmsu leikmunum og eru einnig nokkrir nemendur skólans sem láta ljós sitt skína í verkinu. Með helstu hlutverk fara: Dagbjartur Kristjánsson sem Emil, Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir sem Ída, Gunnar Þór Jónsson sem Anton (pabbi), Hafdís Ósk Guðmundsdóttir sem Alma (mamma), Guðmundur Kr. Erlingsson sem Alfreð og
Berglind María Ólafsdóttir sem Lína.
Hér að neðan má svo sjá skipulag fyrstu sýningahelga og er þessi listi ekki tæmandi því að við munum reyna að bæta inn á milli og aftan við, dagsetningum ef það hentar betur og ef aðsókn leyfir svo ekki hika við að spyrja um dagsetningar sem ekki eru á skipulaginu og við reynum að verða við þeim óskum.

Sýningaskipulag fyrir Emil í Kattholti

13.mars Laugardagur Kl:15.00 Frumsýning
14.mars Sunnudagur Kl:18.00
19.mars Föstudagur Kl:18.00
20.mars Laugardagur Kl:15.00
21.mars Sunnudagur Kl:14.00
26.mars Föstudagur Kl:18.00
27.mars Laugardagur Kl:15.00

Við hjá Leikfélagi Hveragerðis höfum ávallt reynt að hafa miðaverð í lágmarki þrátt fyrir umfang sýninga og er verðskráin fyrir Emil í Kattholti sem hér segir:
Almennt verð (5ára og eldri): 1700 kr.
Hópar 15+: 1500 kr.
Börn 4 ára og yngri: Engir peningar :D
Miðapantanir eru í Sjoppunni Sunnumörk í síma 587-1818
frá kl.12-18 alla daga

ATH. Húsið opnar 30 mínútum fyrir áætlaðan sýningartíma og eru miðarnir greiddir á staðnum.


Emil og Ida í Kattholti


Hér er Anton, pabbi Emils, að reyna að telja dagana fram að frumsýningu.


Ida og Lína vinnukona

3.3.2010 10:39:07
Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu
3.3.2010 10:28:34
Óperutónleikar í Hveragerðiskirkju.

Óperutónleikar í Hveragerðiskirkju 13. mars kl.17:00

Ópera Gala flytja aríur og dúetta úr nokkrum óperuperlum t.d. úr Ævintýrum Hoffmanns, Leðurblökunni, Lakmé og Hans og Grétu. Flytjendur: Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir sópran, Hólmfríður Jóhannesdóttir mezzósópran og Julian M. Hewlett Píanóleikari.


Smellið hér til að opna efnisskrá




Fundargerðir
Skjöl
Br100304.pdfBæjarráð Ósamþykkt4.3.2010
bs20100225.docBæjarstjórn26.2.2010
um100218.docMannvirkja- og umhverfisnefnd19.2.2010
Br100218.docBæjarráð18.2.2010
bs20100211.docBæjarstjórn12.2.2010