Nánar má sjá dagskrá Skjálftaskjóls á www.skjalftaskjol.net
Sjáumst hress og í góðu skapi,
Palli, Guja og Heiða Margrét
Ágætu foreldrar og forráðamenn
Hér eru tvær tilkynningar sem viljum koma á framfæri:
Í vetur verður gangbrautarvarsla frá kl. 7:45-8:05 á Breiðumörkinni á móts við Blómaborg.
Í vetur verður framreiddur hafragrautur nemendum að kostnaðarlausu frá kl. 7:50-8:05.
Ef einhverjar spurningar vakna hafið þá samband við okkur.
Bestu kveðjur stjórnendur Grunnskólans.
Starf: Grunnskóli
Nánari lýsing: Vantar starfsfólk í 50%
ræstingarstarf við Grunnskólann í Hveragerði.Vinna eftir klukkan
15:30, tímabundið starf frá 20.08-30.09.10.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Sigurðsson skólastjóri í síma
483-4350 eða á netfangið gudjon@hveragerdi.is
Starfshlutfall: 50 %
Fjöldi stöðugilda: 2
_____________________________________________________________________
Íþróttamannvirki:
Laust er til umsóknar 100% starf við íþróttamannvirki
Hveragerðisbæjar.
Starfið felst aðallega í baðgæslu og umsjón í íþróttahúsi ásamt
ræstingu. Viðkomandi þarf að hafa mikla ábyrgðartilfinningu,
vera góður í mannlegum samskiptum og hafa ánægju af því að starfa
með börnum.
Umsóknafrestur er til 27. ágúst 2010.
Allar nánari upplýsingar gefur menningar- og frístundafulltrúi í
síma 483 4000
_____________________________________________________________________
Leikskólinn Óskaland:
óskar eftir að ráða starfskrafta í eftirtalin störf:
Deildarstjóra á deild fyrir 18 mán. – 3ja ára til 1.júní 2011
Leikskólakennara og leiðbeinendur á deildir.
Í Óskalandi er starfað samkvæmt aðalnámskrá og uppeldisstefnu Loris
Malaguzzi frá borginni Reggio Emilia á Ítalíu.
Góður starfsandi ríkir í Óskalandi og mikil áhersla lögð á jákvæð,
hlýleg og gefandi samskipti.
Til greina kemur að ráða starfskrafta með aðra menntun en
leikskólakennaramenntun og/eða reynslu af störfum með börnum.
Umsóknarfrestur er til 27.ágúst 2010.
Upplýsingar veitir Gunnvör Kolbeinsdóttir leikskólastjóri í síma
4834139.
Bæjarstjórinn í Hveragerði
Fyrsti starfsmannafundur skólaársins verður haldinn 16. ágúst n.k. kl 9:00.
Móttaka nýrra nemenda verður fimmtudaginn 19. ágúst kl.13:00 í sal skólans, foreldrar mæti með börnum sínum.
Nemendur skólans mæti á skólasetningu mánudaginn 23. ágúst sem hér segir:
Kl. 9:00 yngsta stig 1.-4. bekkur
Kl. 10:00 miðstig 5.-7. bekkur
Kl. 11:00 elsta stig 8.-10. bekkur
Skólasel verður opið frá og með kl.9:30 þann 23. ágúst.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 24. ágúst.

Hallfríður, sem er mikill bókaormur, veit allt um Maxímús því
hún er höfundur bókanna um hann ásamt Þórarni Má Baldurssyni sem
teiknar myndirnar. Bæði eru þau hljóðfæraleikarar í
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þau hlutu Barnabókaverðlaun menntaráðs
Reykjavíkurborgar fyrir bækurnar í fyrra en þær heita Maxímús
Músíkús heimsækir hljómsveitina og Maxímús Músíkús trítlar í
tónlistarskólann. Þær kynna börnunum sígilda tónlist og hin ýmsu
hljóðfæri og eru bráðskemmtilegar.
Hallfríður dvelur nú í listamannahúsinu Varmahlíð og vinnur að gerð
þriðju bókarinnar.
Hún verður í bókasafninu föstudaginn 13. ágúst kl.
15 og spjallar um Maxímús og leikur dálítið á flauturnar
sínar en hún er 1. flautuleikari í Sinfóníuhljómsveitinni og leikur
á allskonar flautur. Sumarlestrarbörn eru sérstaklega
velkomin.
Keppnin "Sterkasti maður Íslands" verður á planinu fyrir framan Eden kl. 16 á morgun, laugardag.
Nú er um að gera að mæta og fylgjast með tröllslegum tilburðum kraftajöfnanna.
Allir velkomnir !
Knattspyrnudeild Hamars hefur tekið ákvörðun um
að stofna 2. flokk karla fyrir næsta keppnistímabil! Þetta eru stór
tíðindi fyrir Hamar og bæjarfélagið því 2. flokkur hefur ekki áður
verið til staðar í Hveragerði.
Upp úr 3. flokki eru að ganga margir efnilegir knattspyrnumenn sem
nauðsynlegt er að halda vel utanum og við vonum að leikmenn sem
leitað hafa í önnur félög undanfarin ár, eða hafa hætt, snúi aftur
til baka. Allir leikmenn sem fæddir eru á árunum 1992, 1993 og 1994
eru gjaldgengir, en þar fyrir utan munu leikmenn U-23 liðsins fá að
æfa með flokknum, auk einhverra yngri leikmanna. Það er von okkar
að með þessu móti fáum við fleiri Hvergerðinga upp í meistaraflokk
til að leika með aðalliði félagsins í framtíðinni.
Flokkurinn, sem hefur æfingar í september, tekur þátt í Íslandsmót
KSÍ og verður rekinn í nánu samstarfi við 2. deildarlið Hamars og
fastlega má búast við að efnilegir leikmenn fái tækifæri á að
spreyta sig með meistaraflokki.
Bestu kveðjur,
Ólafur Jósefsson
Yfirþjálfari yngri flokka Hamars
VATNSLITIR - námskeið fyrir börn, 10.11. og 12. ágúst
Af óviðráðanlegum ástæðum er vatnslitanámskeið barna flutt fram um eina viku.
Það verður haldið þriðjud. 10. – fimmtud. 12. ágúst kl. 13 – 15
Örfá pláss laus.
Skráning á netfangið: listasafn@listasafnarnesinga.is
eða í síma 483 1727 á opnunartíma safnsins kl. 12-18
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 17 í Listasafni Árnesinga
Í verkum sínum fjallar Svala meðal annars um tengslin á milli minninganna, sagnanna, og svo hins uppfundna, eða tilbúna. Hún hefur einkum fengist við ljósmyndaverk og oftar enn ekki er myndum raðað saman, tveimur eða fleirum til þess að skapa orðræðu eða ef til vill torræðu á milli einstakra ramma. Ljósmyndaverk Svölu eru ljóðræn og huglæg.
Svala mun sýna og segja frá verkum sínum í erindi í Listasafninu síðdegis í dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Sunnudaginn 25. júlí kl. 15 verður
sýningin
ÁR: málverkið á tímum straumvatna
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson ▪ Þorvaldur
Skúlason
Nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins: www. listasafnarnesinga.is
Verið velkomin
Leiðsögn og sýningarspjall kl. 15
Nánari upplýsingar á www.listasafnarnesinga.is

Verkið skirfaði Ljóti hálfvitinn Snæbjörn Ragnarsson en auk Hans klaufa koma við sögu aðrar þekktar persónur úr ævintýraheiminum. Þar má til dæmis nefna Öskubusku og froskaprinsinn. Verkið segir frá því þegar Aron prins og aðstoðarmaður hans, Hans klaufi, koma heim úr löngu ferðalagi. Þegar heim kemur komast þeir að því að ekki er allt með feldu. Norn hefur komið þangað í fjarveru þeirra, lagt álög á kóngsríkið og svæft alla þegna þess og til að bæta gráu ofan á svart breytir hún Aroni prins í frosk. Nú eru góð ráð dýr og er það undir Hans klafua komið að aflétta álögunum og bjarga kóngsríkinu. Verst bara hvað hann er mikill klaufi.
Áhorfendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri, taka teppi til að sitja á og myndavél en börnin fá að hitta karakterana úr sýningunni og þá er gaman að festa það á filmu.
Miðaverð er 1.500 kr. og hefst sýningin klukkan 18:00.
AÐ TEIKNA OG REIKNA Í NÁTTÚRUNNI
Kennari: Guðrún Tryggvadóttir
Aldur: 8-12 ára
Staður: Listasafn Árnesinga og vettvangsferðir
Tími: 6. 7. og 8. júlí kl. 13 – 15
Verð: 2.500.-
Skráning á netfangið: listasafn@listasafnarnesinga.is
eða í síma 483 1727 á opnunartíma safnsins kl. 12-18
Prjónakaffi verður á hverasvæðinu mánudagskvöldið 5. júlí kl. 20-22. Hittumst í móttökuhúsinu kl. 20 og byrjum á því að skoða hverasvæðið með leiðsögn Sigurdísar, setjumst svo niður með handavinnuna, inni eða úti, og eigum notalega kvöldstund. Allir velkomnir!
Prjónahópurinn á bókasafninu
bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar verður haldinn á bæjarskrifstofunum,
Sunnumörk 2, mánudaginn 28. júní 2010 og hefst kl. 17:00.
DAGSKRÁ.
1. Fundargerðir.
1.1. Bæjarráðs frá 20. maí og 16. júní 2010.
1.2. Fræðslunefndar frá 7. júní 2010.
1.3. Menningar- íþrótta- og frístundanefndar frá 2. júní 2010.
1.4. Mannvirkja- og umhverfisnefnd frá 18. júní 2010.
2. Kosning í nefndir, ráð og stjórnir skv. 57. gr. samþykktar um stjórn Hveragerðisbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
3. Verklag við staðfestingu ákvarðana skipulagsnefnda.
4. Reglugerð um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti.
5. Ráðningarsamningur bæjarstjóra.
6. Sumarfrí bæjarstjórnar.
7. Fundagerðir til kynningar;
7.1. Bæjarstjórnar frá 12., og 18. maí og 13. júní 2010
Listamennirnir sem verk eiga á sýningunni eru Anna Líndal, Birta Guðjónsdóttir, Einar Garibaldi Eiríkssson, Huginn Þór Arason, Hugsteypan, en það er heiti listatvíeykisins Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur og Þórdís Jóhannesdóttur, Jeannette Castioni, Karlotta Blöndal, Olga Bergmann, Ólafur Sveinn Gíslason, Ósk Vilhjálmsdóttir, Pétur Örn Friðriksson, Sara Björnsdóttir, Sirra Sigrún og Unnar Örn. Sýningarstjórar eru Ingirafn Steinarsson og Ólöf Gerður Sigfúsdóttir og á sýningunni eru ýmist eldri verk sett í nýtt samhengi eða ný verk unnin sérstaklega í tilefni hennar. Saman mynda þau áhugavert innlegg í orðræðuna um þekkingu og samtímamyndlist. Sýningartíminn hefur verið framlengdur til 18. júlí.
Það er margt að sæækja heim í Hveragerði þessa helgi, því fyrir utan þá frjósemi og þekkingu sem finna má á sýningunni AÐ ÞEKKJAST ÞEKKINGUNA þá bjóða Hvergerðingar til blóma – og garðyrkjusýningarinnar Blóm í bæ daganna 25.-27. júlí.
Listasafn Árnesinga í Hveragerði er opið alla daga kl. 12-18. Þar er notaleg kaffistofa, barnahorn og leskró þar sem hægt er að líta í ýmis rit um myndlist.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Í kvöld og annað kvöld, miðvikudag og fimmtudag, er óskað eftir sjálfboðaliðum til að snyrta og fegra bæinn. Hittumst við innganginn í Lystigarðinn kl. 20 og fáum úthlutað verkefnum.
Hópur hittist í gærkvöldi, plantaði hundruðum sumarblóma og skemmti sér konunglega.
Nú er um að gera að fjölmenna og taka síðan vel til í
sínum eigin garði á eftir :-)
Myndavélartaska fannst á leikskólanum Undralandi.
Eigandinn getur vitjað hennar á bæjarskrifstofunni.

Á leiðum 1, 2, 3, 4, 5, 6, 11, 12, 13, 14, 15, 18, 19 og 28 mun hálftíma tíðnin halda áfram eftir kvöldmat og munu vagnar á þeim leiðum aka lengur en hefðbundið er samkvæmt áætlun. Síðustu ferðir frá Hlemmi og miðbænum verða farnar fljótlega eftir miðnætti.
Bæði Hverfisgata og Lækjargata verða lokaðar fyrir umferð á 17. júní og því breytist akstur strætó um miðbæinn töluvert. Biðstöðvar á svæðum þar sem akstur verður bannaður verða merktar óvirkar. Tímabundin biðstöð verður sett upp við Geirsgötu, gegnt Kalkofnsvegi. Farþegar eru hvattir til að sækja ítarlegar upplýsingar um miðbæjarakstur strætó á 17. júní á www.strætó.is.
Akstursleiðir að og frá Hlemmi og miðbæ:
Kl.07:00 til kl.18:00
Leiðir 1,3, 6, 11, 12 og 13 sem aka frá Hlemmi í vestur: Snorrabraut – Sæbraut – Geirsgata – Mýrargata – Ánanaust - Hringbraut.
Að Hlemmi aka sömu leiðir: Hringbraut - Ánanaust – Mýrargata - Ægisgata – Geirsgata – Sæbraut - Snorrabraut.
Leið 14 ekur að og frá Granda um eftirtaldar götur: Ánanaust, Hringbraut, Snorrabraut, Hlemmur.
Kl. 18:00 til kl. 00:30
Leiðir 1,3, 6, 11, 12, 13 og 14 aka frá Hlemmi suður Snorrabraut - Hringbraut - Sóleyjargötu - Fríkirkjuveg – Vonarstræti – Suðurgötu.
Að Hlemmi aka sömu leiðir Hringbraut - Suðurgötu – Skothúsveg - Sóleyjargötu - Hringbraut - Snorrabraut.
Allar nánari upplýsingar má fá á www.straeto.is og í þjónustusíma Strætó bs., 540 2700.
Nánari upplýsingar veitir: Bergdís I. Eggertsdóttir, yfirmaður þjónustuvers Strætó bs., í síma 540 2700.

Um er að ræða 60 % starf. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist á skrifstofu Hveragerðisbæjar fyrir 30. júní .
Upplýsingar um starfið veitir Gunnar Baldursson í síma 869-8111.
Siena nam myndlist við CUNY Brooklyn College, NY (B.S.1977) og Pensylvanina State University (M.F.A.1979). Áður hafði hún lokið námi í leikmyndahönnun í NY. Frá námslokum hefur Siena starfað samhliða við myndlist, sviðsmyndagerð og listkennslu.
Siena hefur einkum fengist við skúlptúr og innsetningar en einnig við teiknun og málun. Hún hefur hlotið ýmsar viðurkenningar, unnið einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum einkum á vestanverðum Bandaríkjunum. Frá árinu 1986 hefur hún fengist við leikmyndagerð í Broadway-leikhúsum, við Metropolitan Óperuna, kvikmyndir og sjónvarp. Síðast liðin tíu ár hefur hún kennt við Ramapo College í New Jersey og Saint Thomas Aquinas College í NY.
Siena hefur nokkrum sinnum komið til Íslands og sýndi m.a. verk sín í Gallerí Ófeigs árið 2001.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Vegna bilunar í frárennsli sundlaugarinnar verður fyrirlestri Magnúsar Tryggvasonar um "Fyrstu sundtökin okkur til ánægju" frestað til þriðjudagsins 15. júní kl. 17. Hluti af kynningunni mun fara fram í sundlauginni.
Áætlað er að vatn muni verða komið í sundlaugina eftir hádegi á laugardag. En unnið er að viðgerð við frárennsli.

Núverandi sýning AÐ ÞEKKJAST ÞEKKINGUNA er sýning 15 samtímalistamanna sem allir takast á við samtímaviðfangsefni og varpa ljósi á tengsl þekkingar og myndlistar.
Listamennirnir nálgast viðfangsefnið á margslungna vegu og verkin fjalla í senn um miðlun þekkingar og aðgengi að henni, aðferðafræði myndlistarmannsins við þekkingarsköpun sem og eðli og mismunandi tegundir þekkingar í samfélaginu. Sýningin vekur einnig upp spurningar um skilin milli persónulegrar þekkingar og sameiginlegrar þekkingar, vald og ábyrgð þeirra sem búa yfir þekkingu, sem og fagurfræði þekkingar.
Sýningin mun standa til 11. júlí og er styrkt af Menningarráði Suðurlands.
Listasafn Árnesinga í Hveragerði er opið alla daga kl. 12-18. Þar er notaleg kaffistofa, barnahorn og leskró þar sem hægt er að líta í ýmis rit um myndlist.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Inga Jónsdóttir, safnstjóri Listasafns Árnesinga
Austurmörk 21, 810 Hveragerði
sími: 483 1727 gsm: 895 1369
www.listasafnarnesinga.is
Drift þjónustumiðstöð fólks í atvinnuleit hefur verið lokað að
sinni.
Rekstur miðstöðvarinnar verður tekinn til endurskoðunar og verður
tilkynnt um þá ákvörðun í haust.
Vagnar á leiðum 1, 2, 3, 4, 6, 11, 12, 14 og 15 munu aka á 30 mínútna tíðni í sumar, í stað 15 mínútna. Sú breyting verður jafnframt á leið 18 að ekið verður upp og niður Grensásveg milli Bústaðavegar og Miklubrautar í stað þess að aka allan Bústaðaveginn. Þá mun leið 19 aka frá Nauthól (Háskólanum í Reykjavík) einni mínútu fyrr en áður. Brottfarartími leiðar 51 breytist í fyrstu tveimur ferðunum frá Selfossi, á virkum dögum. Undanfarið hefur einni ferð verið bætt við á sunnudögum á milli Akraness og Mosfellsbæjar, til reynslu. Ekið er kl. 16:45 frá Háholti og kl. 17:39 frá Akranesi. Þessi ferð hefur nú verið fest í sessi og kemur fram í nýrri leiðabók.
„Eftirspurn eftir þjónustu Strætó er árstíðabundin og á vorin þegar skólastarfi lýkur og sumarfrí eru í nánd dregur umtalsvert úr henni. Við því bregðumst við með fækkun ferða. Þeim verður svo að vanda aftur fjölgað í haust þegar skólarnir byrja og sumarfríum lýkur,“ segir Bergdís I. Eggertsdóttir, yfirmaður þjónustuvers Strætó bs.
Sú breyting verður á leiðarvísinum á Strætó.is frá og með sunnudeginum 30. maí að hægt verður að leita fram í tímann eftir dagsetningu, þ.e. ef athuga þarf með áætlun á tilteknum degi á næstu vikum eða mánuðum er hægt að velja þann dag á dagatali sem birtist á vefnum. Áður var aðeins hægt að velja milli virkra daga, laugardaga eða helgidaga en ekki eftir ákveðnum dagsetningum.
Nánari upplýsingar um sumaráætlunina er að finna á vefnum www.straeto.is og í síma 540 2700. Nýjar leiðabækur eru fáanlegar á öllum sölustöðum.
Nánari upplýsingar veitir: Bergdís I. Eggertsdóttir, yfirmaður þjónustuvers Strætó bs., í síma 540 2700
Bjartar sumarnætur verða nú haldnar í níunda sinn helgina 5. og
6. júní n.k. Að þessu sinni eru tónleikarnir í umsjón
Tónlistarfélags Hveragerðis og Ölfuss með fjárstyrkjum frá
Menningarráði Suðurlands, Tónlistarsjóði og F.Í.T. með stuðningi
Menntamálaráðuneytisins. Aðrir styrktaraðilar eru Hveragerðisbær,
Dvalarheimilið Ás og Kjörís.
Upplýsingar og miðapantanir í Bókasafninu í Hveragerði, Sunnumörk
2, s. 483-4531.
Leikskólinn Óskaland verður í sumarleyfi frá 14.júní og opnar aftur 19.júlí. Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofur á því tímabili.
Í tilefni af 125 ára afmæli félagsins, er stefnt að svolítið öðruvísi fyrirkomulagi. Gaman væri ef garðar væru opnir á sem flestum stöðum á landinu, t.d. 4-5 garðar í hverri sýslu, jafnvel fleiri. Þannig að það væri sama hvar á landinu maður væri staddur, það væri í boði að skoða nokkra garða, sem væru staðsettir t.d. innan næstu 50 kílómetra. En þetta er engan veginn framkvæmanlegt nema félagar og aðrir áhugamenn um garðyrkju opni garða sína og bjóði aðra velkomna að koma og skoða.
Garðyrkjufélag Þelamerkur, í Noregi - með einn íslenskan félaga – er væntanleg til Íslands dagana 5. til 9. ágúst.
Föstudaginn 6. ágúst langar þau að skoða garð / garða á Selfossi og í Hveragerði. (Á leið til Gullfoss og Geysis).
Þeir sem hafa áhuga á að sýna garða sína þessa daga,eru vinsamlega beðnir um að láta vita á skrifstofu Garðyrkjufélagsins, sem allra fyrst, til að hægt sé að skipuleggja þennan dag. Skemmtilegast er ef að allar útgáfur af görðum eru opnir, enda eru engir tveir garðar eins!
__________________________
Garðyrkjufélag Íslands,
Frakkastíg 9, 101 Reykjavík.
Sími 552-7721
www.gardurinn.is
Viðgerð á laugarkeri stendur yfir út mánuðinn en fyrirhugað er að opna sundlaugina í byrjun júní.
Opnun: uppstigningardag 13. maí kl. 16 og
Umræðudagskrá: sunnudaginn 16. maí kl. 15
Samhliða sýningunni hafa verið skipulagðar umræðudagskrár í safninu og hefst sú dagskrá n.k. sunnudag, 16. maí kl. 15 er heimspekingurinn Henry Alexander Henrysson og mannfræðingurinn Sveinn Eggertsson fjalla um þekkingu út frá hugmyndasögulegu, þekkingarfræðilegu og mannfræðilegu sjónarhorni. Auk þess munu Karlotta Blöndal og listamannateymið Hugsteypan ræða um viðfangsefni sýningarinnar út frá persónulegu sjónarhorni myndlistarmannsins með hliðsjón af eigin verkum á sýningunni.
Listamennirnir nálgast viðfangsefnið á margslungna vegu og opna mismunandi innönguleiðir að þekkingarvíddum myndlistar. Verkin fjalla í senn um miðlun þekkingar og aðgengi að henni, aðferðafræði myndlistarmannsins við þekkingarsköpun, sem og eðli og mismunandi tegundir þekkingar í samfélagi okkar. Sýningin vekur einnig upp spurningar um skilin milli persónulegrar þekkingar og sameiginlegrar þekkingar, vald og ábyrgð þeirra sem búa yfir þekkingu, sem og fagurfræði þekkingar. Sýningarstjórar eru Ingirafn Steinnarsson myndlistarmaður og Ólöf Gerður Sigfúsdóttir mannfræðingur og forstöðumaður rannsóknarþjónustu Listaháskóla Íslands.
Listamennirnir sem verk eiga á sýningunni eru Anna Líndal, Birta Guðjónsdóttir, Einar Garibaldi Eiríkssson, Huginn Þór Arason, Hugsteypan, en það er heiti listatvíeykisins Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur og Þórdís Jóhannesdóttur, Jeannette Castioni, Karlotta Blöndal, Olga Bergmann, Ólafur Sveinn Gíslason, Ósk Vilhjálmsdóttir, Pétur Örn Friðriksson, Sara Björnsdóttir, Sirra Sigrún og Unnar Örn. Á sýningunni eru ýmist eldri verk sett í nýtt samhengi eða ný verk unnin sérstaklega í tilefni hennar. Saman mynda þau áhugavert innlegg í orðræðuna um þekkingu og samtímamyndlist.
Sýningin mun standa til 11. júlí og er styrkt af Menningarráði Suðurlands.
Listasafn Árnesinga í Hveragerði er opið alla daga kl. 12-18. Þar er notaleg kaffistofa, barnahorn og leskró þar sem hægt er að líta í ýmis rit um myndlist.
Aðgangur er ókeypis.

Nánari upplýsingar:
Inga Jónsdóttir, safnstjóri, sími 895 1369, www.listasafnarnesinga.is
406. fundur
bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar verður haldinn á
bæjarskrifstofunum,
Sunnumörk 2, miðvikudaginn 12. maí 2010 og hefst kl. 17:00.
DAGSKRÁ.
1. Fundargerðir.
1.1. Bæjarráðs frá 23. apríl og 6. maí
2010.
1.2. Skipulags- og byggingarnefndar frá 13. apríl
2010.
1.3. Velferðarnefndar frá 28. apríl 2010.
1.4. Fræðslunefndar frá 26. apríl 2010.
1.5. Menningar- íþrótta- og frístundanefndar frá
26. apríl 2010.
1.6. Kjörstjórnar frá 26.apríl, 8. og 9. maí
2010.
2. Kynning á viðbyggingaráformum vegna GÍH,
fundargerðir starfshóps um stækkun frá 3. og 23. mars og 14. apríl
2010. (teikningar sendar á tölvupósti).
3. Þjónustusamningur við foreldrafélag
Grunnskólans í Hveragerði.
4. Samstarfssamningur hagsmunaaðila um
umhverfisúrbætur í Reykjadal.
5. Samkomulag við NLFÍ vegna lóðar.
6. Umsögn bæjarstjórnar um samgönguáætlun
ríkisstjórnar.
7. Fundagerðir til kynningar;
7.1. Bæjarstjórnar frá 15. og 27. apríl
2010.
Flutt verður blönduð dagskrá þar sem frábærar
sálmaútsetningar Gunnars Gunnarssonar, organista Laugarneskirkju
koma mikið við sögu og veraldleg tónlist af ýmsum toga fær einnig
að hljóma. Á meðal laga sem flutt verða eru m.a. Tvær stjörnur
eftir Megas, falleg bæn eftir KK, Bæn einstæðingisins eftir Ómar
Ragnarsson og nýlegt lag eftir Gunnar við texta eftir Jónu Hrönn
Bolladóttur. Af veraldlegum lögum má nefna stórskemmtilega
útsetningu Elísar Davíðssonar á laginu Fröken Reykjavík,
sjaldsungin perla eftir Egil Gunnarsson er einnig á dagskránni sem
og nokkur karla- og kvennkórslög. Eitthvað fyrir alla sem áhuga
hafa á kórtónlist.
Gunnar leikur á píanó með kórnum og Tómas R. Einarsson spilar á
kontrabassa. Á fiðlu leikur Kristín Sigurjónsdóttir og Sigríður
Hjördís Indriðadóttir leikur á þverflautu.
Einsöng með kórnum syngjur Sigursteinn Hákonarson og tvísöng syngja
Ingþór Bergmann Þórhallsson og Jón Gunnar Axelsson.
Stjórnandi er Sveinn Arnar Sæmundsson.
Aðgangseyrir er kr. 1.500

Sunnlenska útvarpsstöðin Suðurland FM 96,3 verður á faraldsfæti í maí og mun verða með framboðsfundi í beinni útsendingu síðustu tvær vikurnar fyrir kosningar. Alls verða fundirnir sex talsins og verður útvarpað beint frá hverju bæjarfélagi þann dag sem fundurinn er. Rætt verður við forystumenn flokkanna og farið yfir þau mál sem helst brenna á heimamönnum. Ferðalagið byrjar í Vestmannaeyjum þann 18. Maí og endar á Selfossi þann 27. Maí. Fundarstjóri verður Valdimar Bragason og mun hann njóta aðstoðar eins heimamanns á hverjum stað, og hefjast allir fundirnir kl. 20 og standa til kl. 22.
Fólk er hvatt til að mæta á fundinn í sínu bæjarfélagi. Þar gefst fólki tækifæri á að spyrja frambjóðendur spurninga, skemmtiatriði verður á milli fundarliða og léttar kaffiveitingar seldar á staðnum. En fyrir þá sem ekki komast verður allur fundurinn í beinni útsendingu á FM 96,3 og á netinu á www.963.is
Sem fyrr segir ætlar Suðurland FM að vera í beinni útsendingu frá hverju bæjarfélagi þann dag sem fundurinn er. Dagskrágerðarmenn stöðvarinnar verða með puttann á púlsinu um hvað er að gerast í bæjarfélaginu og spjalla við heimamenn um allt milli himins og jarðar.
Svona lagað hefur aldrei verið gert áður á Suðurlandi og gefst Sunnlendingum gott tækifæri til að fylgjast með umræðunni á Suðurlandi og að koma sínu á framfæri til frambjóðenda og annarra.
Fundaröðin er sem hér segir :
18. Maí Vestmannaeyjar Höllinn
19. Maí Rangárþing eystra Hvollinn
20. Maí Rangárþing ytra Safnaðarheimilið
25. Maí Ölfus Ráðhúskaffi
26. Maí Hveragerðisbær Þinghúsið (Hótel Hveragerði)
27. Maí Árborg Hvítahúsið
Kjörstjórn tekur á móti framboðslistum þann dag milli kl. 11:00-12:00 á skrifstofu Hveragerðisbæjar að Sunnumörk 2.
Hverjum framboðslista ber að fylgja listi yfir meðmælendur að lágmarki 40 og hámarki 80.
Kjörstjórn Hveragerðisbæjar
Miklar sprunguskemmdir urðu í laugarkerinu í jarðskjálftanum 2008 og á að gera við sprungur og mála laugarkerið. Lokað verður fyrir alla starfsemi en fyrirhugað er að opna í líkamsrækt og heita potta 15. maí.
Sundlaugarkerið verður lokað allan maí mánuð. Nánari
framvinda verður kynnt hér á heimasíðunni.
405. fundur
bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar verður haldinn á bæjarskrifstofunum,
Sunnumörk 2, þriðjudaginn 27. apríl 2010 og hefst kl. 17:00.
DAGSKRÁ.
2. Skipan í nefndir og ráð samkvæmt samþykktum bæjarins.
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri
Sumardagurinn fyrsti, 22. apríl: Inga Jónsdóttir með leiðsögn kl. 16 (breyttur tími)
Sunnudagur 25. apríl: Úlfhildur Dagsdóttir – erindi kl. 15
Síðasti sýningardagur 2. maí: Leiðsögn kl. 15
Hetjur, skrýmsl og skattborgarar: lesið í myndir
Í erindi sínu fjallar Úlfhildur um myndmál og myndlæsi og notast við dæmi úr Ikea-bæklingum, auglýsingum og myndasögum, auk annars sem til fellur og er erindið að sjálfsögðu á myndrænu formi.
Úlfhildur er bókmenntafræðingur að mennt en viðfangefni hennar og áhugi spannar víðara svið en bókmenntirnar einar. Það nær til sjónmennta, kvikmynda og þar með myndasagna, hryllings og kynjafræða svo eitthvað sé nefnt. Hún rýnir í orð og myndir og miðlar til gagns af græsku og gæsku.
Það má líka geta þess að Úlfhildur er barnabarn Kára Tryggvasonar rithöfunds, sem lengi var húsvörður í Barnaskólanum í Hveragerði.
Eftir að hafa hlýtt á erindi Úlfhildar er forvitnilegt fyrir gesti að rýna í sýninguna á safninu sem er Íslensk myndlist- hundrað ár í hnotskurn, og leita tákna, tengja og túlka. Sýningin er samstarfsverkefni með Listasafni Íslands og val verkanna á sýningunni er byggt á þeirri hugmynd að þau endurspegli ákveðinn tíðaranda og hugmyndafræði en ekki einstaka listamenn eða þróun þeirra.
Listasafn Árnesinga
Austurmörk 21, 810 Hveragerði
sími: 483 1727 gsm: 895 1369
www.listasafnarnesinga.is
PRJÓNAKAFFI
í Bókasafninu í Hveragerði
verður mánudagskvöldið 12. apríl kl. 20-22.
Allir velkomnir með handavinnuna sína á notalega kvöldstund.
laugardaginn 10. apríl kl. 11-17
handverk - fatnaður - grænmeti - heilsuvörur - skartgripir o.fl.
handavinnuleiðbeiningar - hundategundakynning - tilboð og uppákomur
Á föstudaginn langa, 2. apríl, verður enginn akstur.
Laugardaginn 3. apríl verður ekið samkvæmt hefðbundinni laugardagsáætlun.
Á páskadag, sunnudaginn 4. apríl, verður enginn akstur.
Á annan í páskum, mánudaginn 5. apríl verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.
Námskeiði í matjurtaræktun sem auglýst var í Hverafuglinum
verður frestað fram yfir páska.
Nánar auglýst síðar.
Verkin koma flest úr safneign Listasafns Íslands, en einnig eru þar verk í eigu Listasafns Árnesinga, einkum úr gjöf Bjarnveigar Bjarnadóttur og sona. Sýningarstjórar eru Dagný Heiðdal, deildarstjóri listaverkadeildar og Rakel Pétursdóttir, deildarstjóri fræðsludeildar Listasafns Íslands og Inga Jónsdóttir safnstjóri Listasafns Árnesinga.
Sýningin mun standa til 2. maí og safnið er opið fimmtudaga – sunnudaga kl. 12-18.
Um páskana er opið eins og venjulega, skírdag, föstudaginn langa, laugardag og páskadag en lokað á annan í páskum.
Aðgangur er ókeypis.
Skráning í síma: 895-1895.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Stjórn Sögufélags Árnesinga
Skriðsundsnámskeið fyrir fullorðna hefst
fimmtudaginn 18. mars nk.
Námskeiðið verður 12 skipti, mánudaga kl. 18:30 - 19:15 og
fimmtudaga kl. 17:30 - 18:15. Kennari er Magnús Tryggvason.
Skráning fer fram í sundlauginni Laugaskarði og námskeiðsgjald kr.
7.000,-
Kynningarfundur um rammaáætlun verður haldinn á Hótel Selfossi
laugardaginn, 13. mars n.k.
Verkefnisstjórn 2. áfanga Rammaáætlunar um vernd og nýtingu
náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði hélt
kynningarfund þriðjudaginn 9. mars s.l. Þar voru kynntar
niðurstöður faghópa verkefnisstjórnar sem metið hafa svæði og
virkjunarkosti, hver á síðu sérsviði.
Skýrslu verkefnisstjórnar um virkjunarkosti til mats og
nðurstöður faghópa, auk ítarefnis, má nálgast á vefsíðu
rammaáætlunar, www.rammaáætlun.is, frá og með
mánudeginum 8. mars.
Umsagnarferli:
Niðurstöður faghópanna verða settar í opið kynningarferli sem
stendur til 19. apríl. Öllum er heimilt að senda inn umsögn um
niðurstöður faghópanna. Umsögnum er veitt viðtaka um
tölvupóstfangið umsogn@rammaaetlun.isen einnig má senda skriflegar
umsagnir á póstfangið: Rammaáætlun, c/o Orkugarður, Grensásvegi 9,
108 Reykjavík.
Efnt verður til kynningarfunda víða um land á næstu vikum og verður
fundur ætlaður Sunnlendingum haldinn á Hótel Selfoss 13. mars kl.
11:00.
Áhugasamir eru hvattir til að mæta.
Hér að neðan má svo sjá skipulag fyrstu sýningahelga og er þessi listi ekki tæmandi því að við munum reyna að bæta inn á milli og aftan við, dagsetningum ef það hentar betur og ef aðsókn leyfir svo ekki hika við að spyrja um dagsetningar sem ekki eru á skipulaginu og við reynum að verða við þeim óskum.
Sýningaskipulag fyrir Emil í Kattholti
13.mars Laugardagur Kl:15.00 Frumsýning
14.mars Sunnudagur Kl:18.00
19.mars Föstudagur Kl:18.00
20.mars Laugardagur Kl:14.00
21.mars Sunnudagur Kl:14.00
26.mars Föstudagur Kl:18.00
27.mars Laugardagur Kl:15.00
Hópar 15+: 1500 kr.
Börn 4 ára og yngri: Engir peningar :D
frá kl.12-18 alla daga
ATH. Húsið opnar 30 mínútum fyrir áætlaðan sýningartíma og eru miðarnir greiddir á staðnum.

Emil og Ida í Kattholti

Hér er Anton, pabbi Emils, að reyna að telja dagana fram að
frumsýningu.

Ida og Lína vinnukona
Óperutónleikar í Hveragerðiskirkju 13. mars kl.17:00
Ópera Gala flytja aríur og dúetta úr nokkrum óperuperlum t.d. úr Ævintýrum Hoffmanns, Leðurblökunni, Lakmé og Hans og Grétu. Flytjendur: Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir sópran, Hólmfríður Jóhannesdóttir mezzósópran og Julian M. Hewlett Píanóleikari.


Afreks – og styrktarsjóður
Hveragerðisbæjar
Menningar-, íþrótta- og frístundanefnd Hveragerðisbæjar
auglýsir styrki úr afreks – og styrktarsjóði
Hveragerðisbæjar.
Markmið sjóðsins eru:
• að veita íþróttahópum í íþróttafélögum í Hveragerðisbæ sem náð hafa afburðaárangri, fjárhagslegan styrk og gera þeim kleift að búa sig enn betur undir áframhaldandi keppni.
• að veita árlega styrki og viðurkenningar fyrir unnin afrek í íþróttum.
Úthlutun styrkja fer fram í apríl nk.
Umsóknir um styrki úr sjóðnum þurfa að berast til menningar- og frístundafulltrúa fyrir 1. apríl næstkomandi, merkt:
AFREKS – OG STYRKTARSJÓÐUR Hveragerðisbæjar – UMSÓKN.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna M. Hjartardóttir menningar- og frístundafulltrúi í sima 483 4000 eða jmh@hveragerdi.is

Mannvirkja- og umhverfissvið Hveragerðisbæjar óskar eftir
tilboðum í slátt og hirðu á opnum svæðum bæjarins. Um er að ræða
manir með mismiklum halla og slétt svæði. Svæðin hafa fjögur
mismunandi þjónustustig.
Tilboð verða opnuð fimmtudaginn 18. mars á Mannvirkja- og
umhverfissviði Hveragerðisbæjar að Sunnumörk 2, kl. 11.00 að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Afhending útboðsgagna er í afgreiðslu Hveragerðisbæjar, Sunnumörk 2
frá og með miðvikudeginum 3. mars á skrifstofutíma ( kl. 10:00 –
15:00 ).
Nánari upplýsingar veitir Elfa D. Þórðardóttir, mannvirkja - og
umhverfisfulltrúi í síma 483-4000.

Mánudaginn 1. mars n.k. verður prjónakaffi í Bókasafninu í
Hveragerði, en við hittumst venjulega fyrsta mánudag í hverjum
mánuði kl. 20-22. Í þetta sinn verðum við svo heppnar að fá í
heimsókn til okkar Soffíu Valdimarsdóttur, sem margir Hvergerðingar
þekkja. Soffía er nú að ljúka námi í þjóðfræði og fjallar
lokaverkefni hennar um lopapeysur í þjóðfræðilegu samhengi. Hún
hefur grafið upp ýmislegt merkilegt varðandi peysurnar og ætlar að
leyfa okkur að heyra undan og ofan af niðurstöðum sínum. Það verður
eflaust bæði fróðlegt og skemmtilegt að hlusta á hana.
Allir eru velkomnir með handavinnuna sína eða jafnvel bara til að
hlusta og spjalla.
Aðalfundur RKÍ í Hveragerði verður haldinn, að Austurmörk 7 efri hæð, miðvikudaginn 17. febrúar kl. 20:00.
Allir velkomnir
Kaffiveitingar
Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki,
stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en
skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Heimilt er að
sækja um styrk til verkefna sem umsækjandi er þegar byrjaður að
vinna í.
Engar sérstakar áherslur verða settar á þessu
ári, en tekið verður mið af eftirfarandi við afgreiðslu umsókna
(sbr. 5. grein menningarsamnings fyrir árið 2010):
2. Efla nýsköpun í verkefnum tengdum menningu.
3. Atvinnutækifærum fjölgi á menningarsviðinu.
4. Styðja við menningartengda ferðaþjónustu.
Menningarráðið mun hvorki veita rekstrar-, stofnkostnaðar- né
endurbótastyrki. Ekki verður heldur styrkt skráning á
menningarminjum, starfsemi íþróttafélaga, bæjarhátíðir, almennar
samkomur, safnaðarstarf og hefðbundið menningarstarf innan
skóla.
Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2010.
Smellið hér: Umsóknareyðublað
Ætlunin er að tilkynna um úthlutun í apríl 2010. Umsóknum skal
skilað til Menningarráðs Suðurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem
hægt er að nálgast á heimasíðu Menningarráðs www.sunnanmenning.is . Allar nánari upplýsingar
veitir Dorothee Lubecki, menningarfulltrúi Suðurlands, í síma
480-8207, 896-7511 eða með tölvupósti menning@sudurland.is.
Menningarfulltrúi verður til viðtals í öllum sveitarfélögum .
Námskeið í umsóknargerð fer fram 25. febrúar í umsjón Fræðslunets
Suðurlands.
Umsóknir skal senda, í tölvupósti á menning@sudurland.is eða í
ábyrgðarpósti, til Menningarráðs Suðurlands, Austurvegi 56, 800
Selfoss.
HSSH langar til að bjóða öllum þeim sem hafa áhuga á hjálparsveitarstarfi til að mæta í hús okkar klukkan 13:00 og kynna sér starfið en að sjálfsögðu er þetta félagið opið fólki á öllum aldri, en þó verða félagamenn að hafa náð 18 ára aldri,
Verður boðið uppá kynningar allra flokka sveitarinnar þar sem kynnt verður fjallabjörgun, skyndihjálp, bílaflokk og fleira. Einnig
verða léttar veitingar í boði.
Sveitin er búin að starfa síðan 23.september 1975 og hefur haft mikið að gera síðan þá. Helst er þá að minnast á regluleg útköll á hina vályndu Hellisheiði á veturnar, árvissar flugeldasýningar, fjáraflanir, sjúkragæslur og almennar gæslur á hinum ýmsu stöðum á landinu. Einnig eru regluleg námskeið í hinum ýmsu þáttum starfsins allt frá móttöku þyrlu til fjallabjörgunar.
Mikilvægt er að eiga sterkan og góðan hóp í heimabyggð sem er reiðubúinn að sinna þessum störfum, skemmst er að minnast
Suðurlandsskjálftans og hin ýmsu ofsaveður sem gengið hafa yfir á undanförnum misserum. Viljum við því hvetja fólk að mæta og kynna sér málið.
Fyrir hönd HSSH
Lárus Kristinn Guðmundsson, formaður
Komið með, ef þið eigið, gamlar, nýjar, skrýtnar eða skemmtilegar húfur prjónaðar eða heklaðar) af öllum stærðum og gerðum, gjarna einhverjar sem eiga sér sögu.
Allir velkomnir
Kaffi, te og djús á boðstólum.
ÍSLENSK MYNDLIST – hundrað ár í hnotskurn
Samstarf Listasafns Árnesinga og Listasafns Íslands
Mikil áhersla er á fræðslugildi sýningarinnar og faglegt samstarf við Listasafn Íslands, sem er höfuðsafn á sviði myndlistar og sýnir hér vilja í verki að gera safneignina aðgengilegri þeim sem búa utan höfuðborgarinnar. Um langt skeið hefur Listasafn Íslands þróað faglegt samstarf við skóla og með þessari sýningu gefur það fleiri nemendum tækifæri til þess að njóta íslenskrar myndlistar og fræðast um þann sameiginlega menningararf sem Listasafn Íslands varðveitir.
Verkin á sýningunni eru flest úr safneign Listasafns Íslands, en einnig verða til sýnis verk í eigu Listasafns Árnesinga, einkum úr gjöf Bjarnveigar Bjarnadóttur og sona. Sýningarstjórar eru Dagný Heiðdal, deildarstjóri listaverkadeildar og Rakel Pétursdóttir, deildarstjóri fræðsludeildar Listasafns Íslands og Inga Jónsdóttir safnstjóri Listasafns Árnesinga.
Sýningin mun standa til 2. maí og safnið er opið fimmtudaga – sunnudaga kl. 12-18. Hægt er að panta heimsóknir fyrir skólahópa utan opnunartíma.
Aðgangur er ókeypis.
Nánari upplýsingar: Inga Jónsdóttir safnstjóri, sími 895 1369 eða listasafn@listasafnarnesinga.is
Nú eru styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar en það
er Félags- og tryggingamálaráðherra sem veitir þá ár hvert. Að
þessu sinni eru 30 milljónir til úthlutunar.
Vinnumálastofnun hefur umsjón með styrkveitingunum og er
umsóknarfrestur til og með 7. febrúar.
Hægt er að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlunar, til
vöruþróunar, markaðsmála, vegna efniskostnaðar og hönnunar svo
eitthvað sé nefnt.
Nýmæli í styrkveitingununum að þessu sinni er að hluta af
fjármagninu, sem til ráðstöfunar er, verður eyrnamerkt
atvinnulausum konum sem hafa með góðar viðskiptahugmyndir. Skilyrði
er að þær hafi sótt um styrk hjá Vinnumálastofnun til að þróa eigin
viðskiptahugmynd en það úrræði er eitt af vinnumarkaðsúrræðum
stofnunarinnar.
Kynningarfundir fyrir þennan hóp verða haldnir víðsvegar á
landinu í fjarfundabúnaði. Á þeim verða styrkmöguleikar atvinnumála
kvenna og þróun eigin viðskiptahugmyndar kynnt auk þess sem
stutt námskeið verður um útfyllingu styrkumsóknar. Fulltrúar frá
Impru og atvinnuþróunarfélögum munu síðan kynna sína
þjónustu.
Fundirnir verða sem hér segir:
21.janúar kl. 14.00-16.00
Farskólinn, miðstöð símenntunar, Faxatorgi 1, Sauðárkróki
Þekkingarsetur Þingeyinga, Hafnarstétt 3, Húsavík
Þekkingarnet Austurlands, Tjarnarbraut 39, Egilsstöðum
Fræðslunet Suðurlands, Tryggvagötu 26, Selfossi
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Krossmóa 4, Reykjanesbæ
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Skeifunni 8, Reykjavík
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi, Bjarnarbraut 8,
Borgarnesi
Ennfremur verða haldnir fjarfundir á Akureyri, Ísafirði, Höfn í
Hornafirði, Akranesi, Patreksfirði og Hólmavík en tímasetning
þeirra verður auglýst seinna.
Sótt er um styrki á vefsvæðinu www.atvinnumalkvenna.is á
rafrænum umsóknareyðublöðum sem þar er að finna.
Allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar má ennfremur finna á
heimasíðunni.
Nánari upplýsingar veitir starfsmaður verkefnisins, Ásdís
Guðmundsdóttir, í síma 582-4914 eða í netfanginu asdis.gudmundsdottir@vmst.is
Allir eru velkomnir.
Góð þátttaka var í jólaglugga-spurningaleiknum sem fór fram í tenglum við hátíðina Jól í bæ. Þrír heppnir þátttakendur voru dregnir út og fá þeir gjafabréf frá Kjörís. Vinningshafar fá vinninga senda til sín.
Vinningshafarnir
eru:
Daníel Njarðarson, heiðarbrún 62
Sóldís Anna og Sigurður Heiðar Guðjónsbörn, Arnarheiði 9a
Eyvindur Bjarnason, Kjarrheiði 10
Við þökkum bæjarbúum fyrir þátttökuna í leiknum og Kjörís fyrir gjafabréfin.
Verður haldinn á bæjarskrifstofunum,
Sunnumörk 2, fimmtudaginn 14. janúar 2010 og hefst kl. 17:00.
DAGSKRÁ.
1. Fundargerðir.
1.1. Bæjarráðs frá 17. desember 2009 og 7. janúar 2010.
1.2. Skipulags- og byggingarnefndar frá 5. janúar 2010.
1.3. Velferðarnefndar frá 15. desember 2009.
2. Tilfærsla á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga
(gögn lögð fram á síðasta fundi). Fyrirlestra frá málþingi er hægt
að nálgast á hér.
3. Innkaupareglur Hveragerðisbæjar.
4. Breyting á reglum um innritun og innheimtu gjalda í leikskólum
Hveragerðisbæjar
5. Fundagerðir til kynningar;
5.1. Bæjarstjórnar frá 17. desember 2009.
Vinsamlegast athugið að sorphirða í vikunni 3.-9. janúar verður
ekki í samræmi við ,,Sorphirðudagatal 2010”
Græna tunnan verður tæmd á morgun, fimmtudaginn 7. janúar, í
stað miðvikudagsins 6. janúar eins og sorphirðudagatalið segir
fyrir um.
Gráa tunnan verður hinsvegar tæmd í dag 6. janúar en samkvæmt
sorphirðudagatalinu á ekki að tæma hana fyrr en 20.
janúar.
Eftir þessa viku verður sorphirða í Hveragerði í samræmi við
sorphirðudagatalið. Þannig verður brúna tunnan tæmd miðvikudaginn
13. janúar nk. og gráa tunnan þann 20. janúar.
Íbúar eru hvattir til að kynna sér leiðbeiningar um flokkun sem finna má á tengli hér á síðunni.
Skipulags- og byggingafulltrúi
Áramótabrenna
Kveikt verður í áramótabrennu á gamlárskvöld
kl 20:30 við Þverbrekkur. Starfsmenn bæjarins munu sjá um alla
framkvæmd við brennuna.
Að gefnu tilefni er tekið fram að ekki er leyfilegt að vera með
flugelda við brennu vegna þeirrar hættu sem það getur skapað.
Flugeldasýning verður í umsjón Hjálparsveitar Skáta.
Styrktaraðilar sýningarinnar eru Hveragerðisbær, Kjörís og
Dvalarheimilið Ás.
Kátt er á Fossflöt á þrettándanum
Jólin verða kvödd á þrettándanum með blysför frá kirkjunni kl.
18:00 og gengið í fylkingu að Fossflöt.
Félagasamtök í bænum verða virkir þátttakendur í gleðinni ásamt
bæjarbúum. Allir eru hvattir til að koma í búningum til að skapa
sanna þrettánda stemmningu.
Bæjarstjórn Hveragerðis og bæjarstarfsmenn óskaHvergerðingum
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum gott samstarf og
ánægjulegar samverustundir á liðnum árum.
Nú gengur í garð hátíð ljóss og friðar og óskar Hjálparsveit Skáta Hveragerði bæjarbúum öllum gleðilegra og slysalausra jóla. Um leið þökkum við stuðningin á árinu og sérstaklega góðar móttökur við sölu neyðarkallsins nú í haust.
Á milli jóla og ný árs hefst svo okkar stærsta fjáröflun, flugeldasalan, og vonumst við til að sjá sem flesta.
Flugeldasalan verður opin sem hér segir:
28. desember 10:00 – 22:00
29. desember 10:00 – 22:00
30. desember 10:00 – 22:00
31. desember 10:00 – 16:00
Hlökkum til að sjá ykkur.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár,
Kveðja félagar Hjálparsveitar Skáta Hveragerði.
Nú þegar umbúðir og gjafapappír hellast yfir heimilin sem aldrei fyrr er mikilvægt að hafa grænu tunnuna og flokkunina í huga. Í hana má bylgjupappinn fara og öll dagblöð tímarit og annar prentpappír án þess að vera í plastpoka. Morgunkornskassa og mjólkurfernur er gott að stafla hverju ofan í annað og búa til stóra klumpa sem taka svo miklu minna pláss í tunnunni. Allar plastumbúðir eiga að fara í glæra plastpoka eins og smáhlutir úr málmi. Muna að frauðplast er ekki endurvinnanlegt og því fer það í gráu tunnuna.
Jólapappír er endurvinnanlegur og fer í plastpoka í grænu tunnuna, borðar og slaufur er því miður ekki endurvinnanlegt og fer því í gráu tunnuna, nema að maður endurvinni borðana og noti þá einfaldlega aftur !
Það er með ólíkindum hvað fellur til af lífrænu sorpi en í brúnu tunnana fara allir matarafgangar, plöntur og fleira lífrænt sem fellur til á heimilunum. Nauðsynlegt er að setja lífrænan úrgang í jarðgerðarpoka(maíspokann) áður en hann er settur í tunnuna. Munum að stór bein til dæmis af lambalæri jarðgerast mjög hægt og því eiga þau frekar heima í gráu tunnunni en þeirri brúnu.
Frekari upplýsingar um flokkunina má finna á www.flokkarinn.is
Opið er virka daga 21 des, 22 des Frá kl 18:00 - 21:30
Þorláksmessu 23 des. Frá kl 13:00 – 18:00
Jólatréssalan er að Austurmörk 9.
Kveðja félagar í Hjálparsveit skáta Hveragerði.

Sunnudaginn 13. desember verða haldnir styrktartónleikar fyrir
Aron Eðvarð Björnsson í Hveragerðiskirkju. Aron Eðvarð er langveikt
barn en hann er með short gut bowel syndrome eða stutta görn. Það
þýðir að hann getur ekki nýtt næringu úr mat.
Hann er með næringu í æð auk þess að fá mjólk í sondu. Vegna þessa
er einnig mikil hætta á sýkingum og lifrarskemmdum. Í framtíðinni
gæti Aron losnað af næringu í æð en aðeins tíminn getur leitt það í
ljós.
Á tónleikunum koma fram þrír söngvarar sem eru enn í söngnámi hjá
Alinu Dubik en þau eru Berglind Björk Guðnadóttir sópran, Árni
Georgsson baritón og Ástrún Friðbjörnsdóttir sópran. Einnig koma
fram barnakór grunnskólans í Hveragerði og er stjórnandi hans Heiða
Margrét Guðmundsdóttir og Söngsveit Hveragerðis en stjórnandi
hennar er Margrét Stefánsdóttir.
Meðleikarar eru Anna Jórunn Stefánsdóttir sellóleikari, Guðmundur
Pálsson fiðluleikari, Gróa Hreinsdóttir organisti og Jóhann
Stefánsson trompetleikari.
Styrktaraðilar tónleikanna eru Prentmet Suðurlands, Dvalarheimilið
Ás, Hveragerðiskirkja og Kjörís.
Tónleikarnir hefjast klukkan 17:00 og aðgangseyrir er 1.500
krónur.
Allur ágóði rennur til Arons Eðvarðs.
397. fundur
bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar verður haldinn á bæjarskrifstofunum,
Sunnumörk 2, fimmtudaginn 10. desember 2009 og hefst kl. 17:00.
DAGSKRÁ.
1. Fundargerðir.
1.1. Bæjarráðs frá 19. nóvember og 3. desember 2009.
1.2. Velferðarnefnd frá 18. nóvember 2009.
1.3. Mannvirkja- og umhverfisnefndar frá 19. nóvember 2009.
1.4. Fræðslunefndar frá 30. nóvember 2009.
2. Samþykkt um sorphirðu og meðhöndlun úrgangs í Hveragerði, fyrri umræða.
3. Gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpurðun í Hveragerði, fyrri umræða.
4. Reglur um innritun og innheimtu gjalda í leikskólum Hveragerðisbæjar.
5. Skipan í nefndir og ráð samkvæmt samþykktum bæjarins.
6. Fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar árið 2010, fyrri umræða.
7. Fundagerðir til kynningar;
7.1. Bæjarstjórnar frá 12. nóvember 2009.
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri
Aðalmenn! Vinsamlegast boðið varamenn ef um forföll er að ræða auk þess að tilkynna það á bæjarskrifstofuna.
2009
Frummatsskýrsluna er einnig að finna á heimasíðu verkfræðistofunnar Eflu www.efla.is. Nánari upplýsingar veitir Skipulagsstofnun.
Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 10. desember kl. 20, í sal Grunnskólans.
Frummælendur verða:
Peter Jessen og Ari Guðmundsson, verkfræðingar VST
Per Thore Nielsen, umboðsmaður Duol í Skandinavíu.
Inga Hersteinsdóttir, brunahönnuður VSI
Fulltrúar frá ÍA og Akranesbæ að ósk A-listans
Lúðvík S. Georgsson formaður mannvirkjanefndar KSÍ
Fyrirspurnir og umræður
Allir sem áhuga hafa á uppbyggingu íþróttamannvirkja í Hveragerði eru hvattir til að mæta og kynna sér málið frá fyrstu hendi.
Bæjarstjóri
Árlegt jólaföndur Foreldrafélags Grunnskólans í Hveragerði verður haldið í Grunnskólanum miðvikudaginn 9. desember næstkomandi, kl. 16-19.
Fjölbreytt föndur verður til sölu (engir posar). Foreldrafélagið mun selja keramik til að mála og biðjum við því alla sem hafa áhuga á því að taka með sér pensla og gostappa undir málningu. Nemendur yngri bekkja komi í fylgd með fullorðnum og má bjóða öðrum fjölskyldumeðlimum með sér. Munið að taka með ykkur skæri, lím, heftara, liti og síðast en ekki síst jólaskapið.
Jólaföndurkveðja
Stjórn Foreldrafélagsins
Það væri gaman ef einhverjir gætu komið með jólahandavinnu eða eitthvað annað skemmtilegt til að sýna hinum. Sett hefur verið upp ný sýning í safninu á vefnaði og útsaumi Guðrúnar Þórðardóttur og verður hún formlega opnuð í prjónakaffinu. Eitthvað hefur bæst við af prjónabókum og -blöðum, svo það verður nóg að skoða.
Eigum góða stund saman, prjónum, hlustum á upplestur og fáum kaffi og piparkökur.
Allir velkomnir.
Lesið fyrir börnin
Þriðjudagslestur og sýning á „servíettumyndum“ Braga í Eden.
Þorsteinn Antonsson hefur sett upp sýningu á „servíettumyndum“ eftir Braga Einarsson í Eden, en sýningin stendur eitthvað áfram.
Einnig er í safninu lítil sýning á gömlu jólaskrauti og jólakortum sem stendur fram að jólum.
Um leið og starfsfólk Íslenska Gámafélagsins óskar Hvergerðingum til hamingju með ákvörðun sína um endurvinnslu úrgangs frá heimilum¸ viljum við benda íbúum á að formleg flokkun átti að hefjast 1. desember næstkomandi en henni seinkar um 10-15 daga.
Einnig viljum við benda íbúum Hveragerðisbæjar á að allir fá afhenda litla körfu undir lífræna úrganginn ásamt heilli rúllu af maíspokum, þetta auðveldar íbúm enn frekar við flokkunina. Þess má geta að allir lífrænir pokar verða fáanlegir í Bónus í Hveragerði.
Við vonumst til að seinkunin komi ekki að sök og hlökkum til að verða ykkur til aðstoðar,
Kær kveðja,
Starfsfólk Íslenska Gámafélagsins
Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast í síma 577-5757 eða www.flokkarinn.is
Í tengslum við tíðarandann verður einnig boðið upp á notalega jólastemningu í kaffistofunni þar sem hægt verður að fá sér heitt súkkulaði með piparkökum og kl. 16:30 mun Hörður Friðþjófsson leika nokkur jólalög á gítar.
Í listasmiðju hafa gestir aðgang að teikniáhöldum og þar má einnig skoða nokkarar teikningar úr safneigninni.
Það er því margt sem hvetur gesti til að njóta góðra samverustunda í Listasafni Árnesinga þennan síðasta sýningardag þessa árs.
Safnið er opið fimmtud.-sunnud. kl. 12-18
Góðar kveðjur,
Inga
Inga Jónsdóttir
safnstjóri
Listasafn Árnesinga
Austurmörk 21
810 Hveragerði
sími: 483 1727
gsm: 895 1369
www.listasafnarnesinga.is
Í fréttabréfinu sem kom út um miðjan nóvember misrituðust nokkur atriði í viðburðadagtalinu og biðjumst við velvirðingar á því.
Þann 12. desember verður glugginn í jóladagatali bæjarins opnaður við Álnavörubúðina kl. 13 en ekki við Iðavelli/Eden.
Jólafótbolti yngri flokka Hamars verður laugardaginn 12. des. kl. 13 en ekki þann 11. des.
Einnig misrituðust vikudagar þann 27. og 28. desember. En 27. des er sunnudagur og verður þann dag jólaball fyrir þau allra yngstu á Hótel Örk. Mánudaginn 28. des. opnar flugeldasala hjá Hjálparsveit Skáta að Austurmörk 9.
Á heimasíðu bæjarins má finna leiðrétt viðburðadagatal til útprentunar.

Aðventutónleikar Kirkjukórs Hveragerðis- og Kotstrandarsókna
verða haldnir í Hveragerðiskirkju sunnudaginn 29. nóvember kl.
20:00
Fjölbreytt tónlistardagskrá undir stjórn Gróu Hreinsdóttur
organista.
Fermingarbörn flytja helgiþátt.
Ræðumaður: Sigurður Sigurðsson dýralæknir
Eigum saman notalega stund í upphafi jólaföstu
Aðgangur ókeypis
Starf sundlaugarstarfsmanns er vaktavinna sem felur m.a. í sér umsjón og eftirlit á sundlaugarmannvirkjum og búningsklefum, ræstingu og öðru því sem mannvirkinu tilheyrir.
Hæfniskröfur: Starfsmaður þarf að vera mjög vel syndur og/eða hafa hæfnispróf sundstaða og skyndihjálparnámskeið. Hreint sakavottorð og vera góður í mannlegum samskiptum.
Umsóknum skal skila til skrifstofu Hveragerðisbæjar á eyðublöðum sem þar fást fyrir 11. desember næstkomandi.
Nánari upplýsingar veitir menningar- og frístundafulltrúi
í síma 483-4000.
Samkvæmt upplýsingum frá RARIK verður rafmagnslaust, vegna vinnu
í spennistöð, á milli kl. 10 - 16 miðvikudaginn 25. nóvember í
eftirfarandi götum: Heiðmörk 1-5, Borgarhrauni 1-24, Kambahrauni
1-32 og öllum Dynskógum.
Einnig má búast við rafmagnstruflunum í Laufskógum, Frumskógum,
Varmahlíð, Hverahlíð, Bröttuhlíð og Klettahlíð á þessum tíma.
Sunnudaginn 22. nóvember kl. 14 er gestum boðið að teikna með Guðrúnu Tryggvadóttur en hún hefur kennt teiknun víða og mun leiðbeina þáttakendum. Efni á staðnum endurgjaldlaust til afnota og tilvalið fyrir fjölskyldur og vini að njóta samveru og leiðsagnar.
Stundu síðar kl. 15 mun Hildur Hákonardóttir ræða við gesti um sýninguna Þræddir þræðir, en Hildur er höfundur nokkra verkanna. Á sýningunni er þráðurinn skoðaður sem vettvangur átaka, hvort heldur um mörk myndlistar eða togstreitu milli kynja og pólitískra afla en ímyndir þráðarins birtast á ólíkan hátt hjá þeim fjórum kynslóðum myndlistarmanna sem verk eiga á sýningunni. Nú er tækifæri til þess að komast að ýmsum leyndarmálum þráðlistar með spjalli við Hildi.
Hildur Hákonardóttir er menntaður myndlistarmaður m.a. frá Listaháskólanum í Edinborg. Hún var skólastjóri Myndlista- og handíðaskólans 1975-78, forstöðumaður Byggða- og listasafns Árnesinga 1986-93 og safnstjóri Listasafns Árnesinga 1998-2000. Hún hefur gengt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum, sinnt listsköpun og hin síðari ár er hún einkum þekkt fyrir ræktun og ritstörf.
Guðrún Tryggvadóttir nam myndlist við listaskóla á Íslandi, í Frakklandi og Þýskalandi. Hún hefur starfað sem myndlistarmaður og myndlistarkennari en hin síðari ár hefur hún einkum sinnt hönnun og umhverfismálum. Hún er annar eigandi og framkvæmdastjóri vefsins, www.natturan.is
Nánari upplýsingar um sýningarnar í Listasafni Árnesinga og dagskrána í nóvember og desember er að finna á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is
Listasafn Árnesinga er opið fimmtudaga - sunnudaga kl. 12 – 18 og aðgangur er ókeypis. Í safninu er hægt að kaupa kaffiveitingar, skoða upplýsingarit um myndlist og í barnahorni er hægt að dunda sér.
Inga Jónsdóttir
safnstjóri
Listasafn Árnesinga
Austurmörk 21
810 Hveragerði
sími: 483 1727
gsm: 895 1369
www.listasafnarnesinga.is
Bæjarstjórn Hveragerðis samþykkti 12. nóvember sl. reglur
viðmiðunarreglur varðandi nám í grunnskóla utan heimabyggðar.
Nálgast má reglurnar með því að smella hér.
Lokasýning Leikfélags Hveragerðis á allra meina
bót er í kvöld, föstud. 13. nóvember.
Sýningin hefst kl. 22:15 húsið opnar kl. 21:45
Miðapantanir í Sjoppunni Sunnumörk 2 í síma 5871818

Leikhópurinn ásamt leikstjóranum Sigurgeir Hilmari, undirleikara og
ljósamönnum
Sími hjá honum er 822-2299.
Sunnudaginn 15. nóvember kl. 15 mun Sunneva
Hafsteinsdóttir framkvæmdastjóri HANDVERKS og HÖNNUNAR ræða við
gesti um sýninguna EINU SINNI ER, sem nú stendur í Listasafni
Árnesinga.
Sýningin kemur frá HANDVERKI OG HÖNNUN og
hugmyndin að henni var að hvetja til nýsköpunar og vöruþróunar með
því að stefna saman tveimur ólíkum listamönnum. Þema sýningarinnar
er „gamalt og nýtt“ og á sýningunni má sjá fjölda nýrra og
áhugaverðra nytjahluta sem unnir eru af þessum tólf pörum, en þau
eru Anna Guðmundsdóttir og Tinna Gunnarsdóttir, George Hollanders
og Guðrún Á. Steingrímsdóttir, Guðbjörg Káradóttir og Frosti Gnarr,
Guðný Hafsteinsdóttir og Karen Ósk Sigurðardóttir, Inga
Rúnarsdóttir Bachmann og Stefán Svan Aðalheiðarson, Lára
Gunnarsdóttir og Sigríður Erla Guðmundsdóttir, Lára Vilbergsdóttir
og Fjölnir Björn Hlynsson, Ólöf Einarsdóttir og Sigrún Ólöf
Einarsdóttir, Páll Garðarsson og Margrét Jónsdóttir,
Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir og Birna Júlíusdóttir, Sigríður Ásta
Árnadóttir og Kristín Sigfríður Garðarsdóttir, Þorbergur
Halldórsson og Ari Svavarsson.
Megin markmið HANDVERKS OG HÖNNUNAR er að auka skilning á
menningarlegu, listrænu og hagnýtu gildi handverks með fjölbreyttri
kynningarstarfsemi.
Samhliða EINU SINNI ER í Listasafni Árnesinga er einnig sýningin
ÞRÆDDIR ÞRÆÐIR sem inniheldur verk eftir veflistakonurnar Ásgerði
Búadóttur, Hildi Hákonardóttur, Guðrúnu Gunnarsdóttur og Hildi
Bjarnadóttur. Þar er þráðurinn skoðaður sem vettvangur átaka og er
birtingarmynd þráðarins ólík hjá þessum fjórum kynslóðum. Á þeirri
sýningu er handverkið einnig í öndvegi og því áhugavert að íhuga
mismunandi forsendur sköpunarinnar á þessum tveimur sýningum, sem
er annars vegar hönnun nytjalistar og hins vegar myndlist.
Safnið er opið fimmtudaga – sunnudaga kl. 12 – 18 og sýningarnar
munu standa til 6. desember 2009.
Nánari upplýsingar veita:
Inga Jónsdóttir , safnstjóri, sími: 895 1369, listasafn@listasafnarnesinga.is, eða
Sunneva Hafsteinsdóttir, framkv.stj. HANDVERKS OG HÖNNUNAR
sími: 899 7495, sunneva@handverkoghonnun.is
397. fundur
bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar verður haldinn á bæjarskrifstofunum,
Sunnumörk 2, fimmtudaginn 12. nóvember 2009 og hefst kl. 17:00.
1. Fundargerðir.
1.1. Bæjarráðs frá 14. október og 5. nóvember 2009.
1.2. Skipulags- og byggingarnefndar frá 3. nóvember 2009.
1.3. Menningar- íþrótta- og frístundanefndar frá 7. október 2009.
1.4. Úthlutunarnefndar Varmahlíðarhússins frá 9. september 2009.
1.5. Mannvirkja- og umhverfisnefndar frá 13. október 2009.
1.6. Fræðslunefndar frá 12. október 2009.
2. Reglur Hveragerðisbæjar varðandi nám í grunnskóla utan heimabyggðar.
3. Fundagerðir til kynningar;
3.1. Bæjarstjórnar frá 8. og 21. október 2009.
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri
Aðalmenn! Vinsamlegast boðið varamenn ef um forföll er að ræða auk þess að tilkynna það á bæjarskrifstofuna.
2009
Föstudaginn 6. nóvember opnar myndlistarsýning Örvars Árdal
Árnasonar og Péturs Reynissonar í Bókasafninu í Hveragerði. Margir
Hvergerðingar kannast við myndlist Örvars og það verður gaman að
sjá nýjar myndir eftir hann. Hann hefur sýnt víða, bæði einn og með
öðrum. Þetta er fyrsta sýning Péturs á myndum sínum, en hann er
lærður ljósmyndari.
Sýningin verður opnuð með pompi og prakt kl. 18 og við vonumst til
að sjá sem flesta. Örvar og Pétur verða á staðnum.


Kynningarfundur um nýtt fyrirkomulag sorphirðu í Hveragerði, 3. tunnu kerfið, verður haldinn í Grunnskólanum í Hveragerði, miðvikudagskvöldið 28. október kl. 20.
Fulltrúar Íslenska Gámafélagsins munu kynna hið nýja fyrirkomulag sem felur í sér að settar verða þrjár sorptunnur við hvert heimili í bæjarfélaginu í byrjun desember. Þaðan í frá þurfa allir að flokka lífrænan úrgang í sérstaka tunnu, endurvinnanlegur úrgangur fer í grænu tunnuna sem margir kannast viðen óendurnýtanlegt sorp fer í gráu tunnuna sem allir þekkja. Markmiðið með þessari breytingu er að minnka það sorp sem fer til urðunar með öllum tiltækum ráðum en eins og allir vita þá mun urðunarstaðurinn að Kirkjuferju loka þann 1. desember og þá verður að flytja allt sorp til urðunar í Álfsnesi með tilheyrandi kostnaði fyrir bæjarbúa.
Það er mikilvægt að íbúar kynni sér vel þær breytingar sem í vændum eru og fjölmenni á kynningarfundinn í kvöld.

kl. 20-22. Í þetta sinn fáum við heimsókn frá hannyrðaversluninni Nálinni í Reykjavík. Nálin selur alls konar hannyrðavörur, til útsaums, prjóns o.fl. og heldur námskeið. Á heimasíðunni www.nalin.is er einnig að finna netverslun og uppskriftir. Á mánudagskvöldið verða námskeiðin þeirra kynnt og við fáum að sjá sýnishorn af ýmiss konar prjónavörum garni og fleiru spennandi.
Allir velkomnir með handavinnuna og góða skapið.
396. fundur
bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar verður haldinn á bæjarskrifstofunum,
DAGSKRÁ.
1. Endurskoðuð fjárhagsáætlun ársins 2009.
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri
Aðalmenn! Vinsamlegast boðið varamenn ef um forföll er að ræða auk þess að tilkynna það á bæjarskrifstofuna.
2009

Menningarganga – HEITIR ÞRÆÐIR Í HVERAGERÐI Sunnudaginn 18. október kl. 13
Bókasafnið í Hveragerði og Listasafn Árnesinga efna til menningargöngu um Hveragerði undir yfirskriftinni HEITIR ÞRÆÐIR Í HVERAGERÐI Gangan hefst við Hverasvæðið, í gestamóttökunni, kl. 13 og lýkur í Listasafni Árnesinga með spjalli um yfirstandandi sýningar ÞRÆDDIR ÞRÆÐIR og EINU SINNI ER. Á fyrrnefndri sýningu eru verk eftir veflistakonurnar Ásgerði Búadóttur, Hildi Hákonardóttur, Guðrúnu Gunnarsdóttur og Hildi Bjarnadóttur. Þar er þráðurinn skoðaður sem vettvangur átaka og er birtingarmynd þráðarins ólík hjá þessum fjórum kynslóðum. Síðarnefnda sýningin kemur frá HANDVERKI OG HÖNNUN. Hugmyndin að henni var að hvetja til nýsköpunar og vöruþróunar með því að stefna saman tveimur ólíkum listamönnum. Þema sýningarinnar er „gamalt og nýtt“ og á sýningunni má sjá fjölda nýrra og áhugaverðra nytjahluta sem unnir eru af þessum tólf pörum Í göngunni um Hveragerði voru fjórir staðir valdir sem útgangspunktar og munu yngri kynslóðir rekja þráð sögunnar með ýmsum flækjum til dagsins í dag. Á Hverasvæðinu mun Soffía Valdimarsdóttir, þjóðfræðinemi, fjalla um ímynd svæðisins. Varmahlíðarhúsið er næsti viðkomustaður og þar mun Gísli Páll Pálsson, forstöðumaður Dvalarheimilisins Áss og formaður menningar-, íþrótta- og frístundanefndar Hveragerðis, segja frá. Við Reykjafoss í Varmá mun Njörður Sigurðsson, sagnfræðingur, m.a. rekja sögu ullarþvotta. Í Fagrahvammi mun Helga Sigurðardóttir, garðyrkjubóndi, segja frá þessari elstu gróðarstöð bæjarins. Hlíf Arndal og Inga Jónsdóttir leiða gönguna og sýningarspjallið. Verkefnið er styrkt af Menningarráði Suðurlands.
Nánari upplýsingar veita:
Hlíf Arndal, gsm: 691 8367, hlifarn@hveragerdi.is eða Inga
Jónsdóttir, gsm: 895 1369, listasafn@listasafnarnesinga.is
ÞRÆDDIR ÞRÆÐIR
Ásgerður Búadóttir Hildur Hákonardóttir Guðrún
Gunnarsdóttir Hildur Bjarnadóttir
og
EINU SINNI ER
Sýning frá HANDVERKI OG HÖNNUN
Á sýningunni Þræddir þræðir eru verk eftir Ásgerði Búadóttur, Hildi Hákonardóttur, Guðrúnu Gunnarsdóttur og Hildi Bjarnadóttur. Þar er þráðurinn skoðaður sem vettvangur átaka, hvort heldur um mörk myndlistar eða togstreitu milli kynja og pólitískra afla en ímyndir þráðarins birtast á ólíkan hátt hjá fjórum kynslóðum. Ásgerður er frumkvöðull nútíma veflistar hér á landi, en hún yfirfærði hefðbundið akademískt listnám í vefnaðinn og skapaði þannig nýja sýn á textílverk. Hildur Hákonardóttir beitti vefnaðinum sem pólitísku vopni. Hún hefur unnið með teikninguna og virkni hennar í kvennabaráttunni endurspeglast í verkunum. Guðrún hefur skapað sér ákveðna sérstöðu með efnisvali, sem er einkum vír og gúmmí. Hún hefur einnig farið út fyrir hefðbundinn mörk með því að nota efnið sem eins konar teikningu í rýminu og lætur það rjúfa mörkin milli kvenlegs handverks og karlmannlegrar hörku. Hildur Bjarnadóttir rannsakar tilveru listarinnar og mörk handverks og myndlistar á nýstárlegan hátt, en verk hennar fela einnig í sér pólitísk átök kynja og listforma.
Sýningarstjóri er Inga Jónsdóttir og í sýningarskrá ritar Úlfhildur Dagsdóttir, bókmenntafræðingur, en hún hefur einnig fengist við myndlestur.
Sýningin Einu sinn er kemur frá HANDVERKI OG HÖNNUN. Hugmyndin að henni var að hvetja til nýsköpunar og vöruþróunar með því að stefna saman tveimur ólíkum listamönnum. Tólf einstaklingar voru valdir og hver þeirra valdi sér samstarfsaðila. Þema sýningarinnar er „gamalt og nýtt“ og á sýningunni má sjá fjölda nýrra og áhugaverðra nytjahluta sem unnir eru af þessum tólf pörum, en þau eru Anna Guðmundsdóttir og Tinna Gunnarsdóttir, George Hollanders og Guðrún Á. Steingrímsdóttir, Guðbjörg Káradóttir og Frosti Gnarr, Guðný Hafsteinsdóttir og Karen Ósk Sigurðardóttir, Inga Rúnarsdóttir Bachmann og Stefán Svan Aðalheiðarson, Lára Gunnarsdóttir og Sigríður Erla Guðmundsdóttir, Lára Vilbergsdóttir og Fjölnir Björn Hlynsson, Ólöf Einarsdóttir og Sigrún Ólöf Einarsdóttir, Páll Garðarsson og Margrét Jónsdóttir, Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir og Birna Júlíusdóttir, Sigríður Ásta Árnadóttir og Kristín Sigfríður Garðarsdóttir, Þorbergur Halldórsson og Ari Svavarsson.
Sýningin var fyrst sett upp í Safnasafninu á Svalbarðseyri í apríl á þessu ári en hefur síðan verið sett upp á Ísafirði, Egilsstöðum, Sauðárkróki og nú í Listasafni Árnesinga, Hveragerði.
Safnið er opið fimmtudaga – sunnudaga kl. 12 – 18 og sýningarnar munu standa til 6. desember 2009.
bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar verður haldinn á bæjarskrifstofunum, Sunnumörk 2,
fimmtudaginn 8. október 2009 og hefst kl. 16:30.
DAGSKRÁ.
1. Kynning og undirritun viljayfirlýsingar við 2012-Nýtt
upphaf.
2. Kynning og samþykkt samnings um breytt fyrirkomulag á sorphirðu
í Hveragerði.
3. Fundargerðir.
3.1. Bæjarráðs frá 17. og 30. september 2009.
3.2. Velferðarnefndar frá 30. september 2009.
4. Kaupsamningur og afsal á Sólaborgarsvæðinu ásamt tillögu að
fjármögnun.
5. Fundagerðir til kynningar;
5.1. Bæjarstjórnar frá 10. og 30. september 2009.
Hveragerði 6. október 2009
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri
Aðalmenn! Vinsamlegast boðið varamenn ef um forföll er að ræða auk
þess að tilkynna það á bæjarskrifstofuna.
Hveragerðisbær óskar eftir að ráða starfsmann
við Sundlaugina Laugaskarði, 100 % starf.
Starf sundlaugarstarfsmanns er vaktavinna sem felur m.a. í sér
umsjón og eftirlit með búnings - og baðklefum karla,
sundlaugarmannvirkjum og öðru því sem mannvirkinu tilheyrir. Auk
umsjónar með aðstöðuhúsi Grýluvallar.
Hæfniskröfur: Starfsmaður þarf að hafa hæfnispróf sundstaða og
skyndihjálparnámskeið. Hreint sakavottorð og vera góður í mannlegum
samskiptum.
Umsóknum skal skila til skrifstofu Hveragerðisbæjar á eyðublöðum
sem þar fást fyrir 15. október næstkomandi.
Nánari upplýsingar veitir menningar- og frístundafulltrúi í síma
483-4000.

Kvennalið Hamars keppir við KR í úrslitaleik Powerade-bikarsins í laugardalshöll sunnudaginn 4. október kl. 13:00.
Þetta er í fyrsta skipti sem Hamar á kvennalið í Powerade-bikarsúrslitum í Höllinni og eru Hvergerðingar og aðrir stuðningsmenn Hamars hvattir til að mæta og styðja stelpurnar okkar.
BÆJARSTJÓRN HVERAGERÐISBÆJAR
394. fundur
bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar verður haldinn á
bæjarskrifstofunum,
Sunnumörk 2, miðvikudaginn 30. september 2009 og hefst kl. 8.
DAGSKRÁ.
1.Fundargerðir.
1.1.Skipulags- og byggingarnefndar frá 15. september 2009.
Hveragerði 25. september 2009
Aldís Hafsteinsdóttir,
bæjarstjóri
Aðalmenn! Vinsamlegast boðið varamenn ef um forföll er að ræða auk
þess að tilkynna það á bæjarskrifstofuna.
2009
ANDANS KONUR
Gerður Helgadóttir ∙ Nína Tryggvadóttir
París – Skálholt
Fjölmargir hafa notið sýningarinnar og hún hefur hlotið mikið lof
gesta enda er þar að sjá verk tveggja sterkra kvenna í íslenskri
myndlist sett saman og snertifletir verka þeirra athugaðir.
Útgangspunktur sýningarinnar eru verk þeirra Gerðar og Nínu í
Skálholtskirkju og í undirbúningi að sýningunni uppgötvaði Ásdís
Ólafsdóttir, sýningarstjóri að til eru fjöldi formynda að
altaristöflu Nínu sem sýna áhugaverða hugmyndaþróun og eru þau verk
nú til sýnis í fyrsta sinn.
Annar snertiflötur Gerðar og Nínu er París á sjötta áratugnum og
sjá má hvernig verk þeirra frá þeim tíma kallast á, en einnig eru
verk sem tengjast andlegri leit og þroska sett saman í rými. Í
safninu er líka til sýnis verkið Leikur ljóss og lita, sem er
myndasýning Salbjargar Ritu Jónsdóttur. Það fangar hið magnaða
andrúmsloft sem ljós og litir glugganna og mósaíkverksins skapa í
Skálholtskirkju.
Nína Tryggvadóttir (1913-1968) og Gerður Helgadóttir (1928-1975)
voru meðal frumkvöðla í íslenskri abstraktlist á 20. öld, Nína á
sviði málaralistar og Gerður í höggmyndalist. Þær bjuggu báðar í
París á sjötta áratugnum og tóku virkan þátt í hræringum
nútímalistar á meginlandinu. Þessar sterku og metnaðarfullu
listakonur mættust í Skálholtskirkju, en þær hlutu fyrstu og önnur
verðlaun í samkeppni um glerglugga byggingarinnar. Gluggar Gerðar,
sem settir voru í kirkjuna 1959, eru að mestu óhlutbundnir og
byggjast á djúpt hugsuðu kerfi kirkjutákna og talna. Mósaíkmynd
Nínu frá 1965 sýnir loftkenndan Krist birtast í íslensku
landslagi.
Safnið opið alla daga kl. 12-18 og er aðgangur ókeypis, en hægt er
að kaupa kaffi í notalegri kaffistofu þar sem einnig má líta í ýmis
rit um myndlist.
Þann 5. október n.k. verður, á milli kl. 20 og 22, mánaðarlegt
prjónakaffi í Bókasafninu í Hveragerði. Þá fáum við Ingu Hrönn frá
Garnbúðinni á Akranesi í heimsókn og hún verður með kynningu á
fallegu og skemmtilegu garni, prjónasettum og fleiru sem Garnbúðin
hefur til sölu. Garnbúðin er netverslun, en hefur einnig opið þrjá
eftirmiðdaga í viku.
Allir velkomnir með handavinnuna og góða skapið.
Menningar-, íþrótta- og frístundanefnd Hveragerðisbæjar auglýsir
styrki úr Afreks – og styrktarsjóði Hveragerðisbæjar.
Markmið sjóðsins eru:
• að veita afreksíþróttafólki með lögheimili í Hveragerðisbæ
fjárhagslegan styrk vegna æfinga og/eða keppni, og þannig búa þeim
sem besta aðstöðu til að stunda íþrótt sína.
• að veita íþróttahópum í íþróttafélögum í Hveragerðisbæ sem náð
hafa afburðaárangri, fjárhagslegan styrk og gera þeim kleift að búa
sig enn betur undir áframhaldandi keppni.
• að veita árlega styrki og viðurkenningar fyrir unnin afrek í
íþróttum.
Úthlutun styrkja fer fram í október nk.
Hægt er að nálgast umsóknareyðublað á heimasíðu
bæjarins eða á bæjarskrifstofu.
Umsóknir um styrki úr sjóðnum þurfa að berast til menningar- og
frístundafulltrúa fyrir 1. október næstkomandi, merkt:
AFREKS – OG STYRKTARSJÓÐUR Hveragerðisbæjar – UMSÓKN.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna M. Hjartardóttir menningar- og frístundafulltrúi í sima 483 4000 eða jmh@hveragerdi.is
Menningar-, íþrótta- og frístundanefnd
Kjörið fyrir þá sem vilja auka skriðsunds kunnáttuna og fá má meiri fjölbreytni í sundiðkunina.
Atriði sem lögð verður áhersla á er líkamslega, öndun, fótatök, handatök, og skriðsundið í heild sinni.
Fyrsta námskeið hefst þriðjudag 15. september.
Skráning í afgreiðslu sundlaugar og hjá Magnúsi 898-3067
Kennari Magnús Tryggvason.
Æfingar verða á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18:15-19:00.
Fyrsta æfing verður fimmtudaginn 10. september.
Þjálfari er Magnús Tryggvason íþróttafræðingur og sundþjálfari
Ágætu foreldrar og forráðamenn
Nú erum við að skipuleggja starfið á skólaselinu og langar til að
bjóða börnunum uppá að velja leiklist í hópastarfi. En til þess
vantar okkur búninga, kjóla, pils, blússur ofl. Einnig vantar okkur
ýmsa fylgihluti, s.s. veski, hanska, slæður, hatta, skart og
fl.
Okkur langar að biðja ykkur að athuga hvort ekki leynist eitthvað í
gömlu dóti hjá ykkur sem þið gætuð gefið okkur í þetta starf.
Ef þið eigið dúkkur sem vantar leikfélaga þá vantar okkur dúkkur í
mömmuleikinn (eitthvað líkt Baby Born).
Ef einhver á alltof mikið af garni þá höfum við einnig not fyrir
það í ýmsa handavinnu.
Að lokum langar mig að benda ykkur á nýja frétt á
heimsíðu skólans um gönguferð 1., 5. og 10. bekkjar.
Með fyrirfram þökk og bestu kveðjum
Starfsfólk skólasels
Kvartettinn skipa: Heiða Árnadóttir, söngur, Andrés Þór Gunnlaugsson, gítar, Þorgrímur Jónsson, kontrabassi og Scott McLemore, trommur.
Á efnisskránni eru meðal annars eftirtalin lög: "What are you doing the rest of your life" úr kvikmyndinni "The Happy ending", "How do you keep the music playing" úr myndinni "Best friends"(1982), "Windmills of your mind" úr myndinni "The Thomas Crown affair"(1968), "The summer knows" úr myndinni "Summer of '42"(1971) og "I will wait for you" úr söngleiknum "The Umbrellas of Cherbourg" (1965)
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00. Aðgangseyrir er kr. 1000.
Tónleikarnir eru á vegum THÖ í samstarfi við FÍT og FÍH, með styrk frá Menntamálaráðuneytinu.
Leikskólinn Óskaland Finnmörk 1, Hveragerði
auglýsir eftir leikskólakennurum/starfsfólki til starfa nú þegar.
Til greina kemur að ráða fólk með aðra menntun/reynslu.
Lögð er áhersla á jákvæð og hlýleg samskipti og jákvæðan
starfsanda.
Starfað er samkvæmt Malaguzzi frá Reggio Emilia á Ítalíu. Sérstök
áhersla er lögð á eflingu á félagslegri færni í anda Kari
Lamer.
Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofu Hveragerðisbæjar, Sunnumörk
2, 810 Hveragerði.
Upplýsingar veitir leikskólastjóri
Gunnvör Kolbeinsdóttir í síma 4834139.
Netfang: oskaland@hveragerdi.is
Umsóknarfrestur er til 12. september 2009

Sýning Hörpu J. Amin á nokkrum fantasíum í olíu og ljósmyndum verður einnig fram í september.
Sumarlestrinum er nú lokið með ágætri þátttöku og miklum lestri. Dregið var í sumarlestrarhappdrættinu á Blómstrandi dögum og hlutu Aþena Íris Þórsdóttir og Anna Sigríður Jónsdóttir leikhúsmiða fyrir tvo í boði Þjóðleikhússins og Helga Sólveig Ómarsdóttir, Lára Dröfn Sigurðardóttir og Hermundur Hannesson fengu bókavinninga frá safninu.
Mánudagskvöldið 7. september verður svo fyrsta prjónakvöld vetrarins. Allir eru velkomnir með prjóna eða aðra handavinnu og gaman væri að sjá afrakstur sumarsins. Við fáum gesti og kaffi verður á könnunni.
Haust- og vetrardagskrá safnsins er nú í smíðum og verður kunngerð á næstunni.
Umsækjendur þurfa að hafa vinnuvélaréttindi.
Umsóknir berist til Elfu D. Þórðardóttur Mannvirkja- og umhverfisfulltrúa á bæjarskrifstofu, Sunnumörk 2. Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu.
Frestur til að skila inn umsóknum er til 7. september 2009.
Elfa Dögg Þórðardóttir
Mannvirkja- og umhverfisfulltrúi Hveragerðisbæjar.
Hinn íslenzki Þursaflokkur verður með tónleika í Hveragerðiskirkju föstudagskvöldið 28. ágúst næstkomandi á bæjarhátíðinni Blómstrandi dagar. Forsala er hafin á Bókasafninu, Sunnumörk 2. Ekki er tekið við greiðslukortum.
Miðaverð er kr. 2000 í forsölu en 2500 kr. við innganginn.

Þátttakendur í Sumarlestri Bókasafnsins í Hveragerði og Grunnskólans í Hveragerði eru vinsamlegast beðnir um að skila lestrarmiðum í bókasafnið miðvikudaginn 26. ágúst. Allir þátttakendur fá eða hafa fengið happdrættismiða, en dregið verður í Sumarlestrarhappdrættinu laugardaginn 29. ágúst á útitónleikum í miðbænum kl. 14-16. Aðrar viðurkenningar verða veittar í bekkjaheimsóknum í haust.

Bókamarkaðurinn í bókasafninu er orðinn fastur liður á
Blómstrandi dögum. Eins og undanfarin ár verða gamlar bækur og
nýlegar bækur (jafnvel einhverjar enn í plastinu), fræðibækur,
skáldsögur, barnabækur, tímarit og fleira á markaðnum. Allt er
þetta auðvitað á gjafverði og jafnvel hægt að prútta um afslátt ef
mikið er keypt.
Safninu hefur borist fjöldi bóka að gjöf og kunnum við gefendum
bestu þakkir fyrir. Við nýtum það sem við getum af gjafabókunum en
það sem ekki nýtist fer á bókamarkaðinn ásamt bókum sem við höfum
grisjað úr hillum. Dálitið er einnig af tímaritum og
barnabókum.
Bókamarkaðurinn hefst föstudaginn 29. ágúst og verður síðan opinn
eitthvað fram í september.
Heilsustofnun NLFÍ
Heilsutengd dagskrá alla helgina
Sýning á Minningarherbergi Jónasar Kristjánssonar
læknis
Opnunartími: föstudag kl. 15 - 16, laugardag kl. 13 - 15 og
sunnudag kl. 13 - 15
Kompudagar - nytjamarkaður frá kl. 11 - 15 laugardag og sunnudag, allskonar vörur á spaugilegu verði, öll sala fer í gott málefni
Kapellan laugardag kl. 15 - Grasakonuslökun - jóga + slökun fyrir almenning á meðan húsrúm leyfir. Slökunarstjóri er Gréta Berg.
Frítt fyrir alla í Baðhúsið Kjarnalund sunnudaginn 30. ágúst kl. 10 - 17
Hádegisverðatilboð sunnudaginn 30. ágúst frá
kl. 11:45 - 12:45
Fylltar paprikur, salatbar, meðlæti, ananasfromage og te
kr. 1000 fyrir fullorðna og kr. 500 fyrir börn (6 - 12 ára), 0 kr.
(0 - 5 ára)
Söngva- og kvæðadagskráin, Tökum undir, Fornir söngvar fyrir ferðafólk sem átti að vera á Blómstrandi dögum föstudaginn 28. ágúst á Iðavöllum/Eden, fellur niður vegna veikinda. Í staðinn munu einherjar/víkingar ganga um svæðið í fullum skrúða föstudag kl. 18 - 20, laugardag og sunnudag frá kl. 13 - 18.
Hinn íslenzki Þursaflokkur verður með tónleika í Hveragerðiskirkju föstudagskvöldið 28. ágúst næstkomandi á bæjarhátíðinni Blómstrandi dagar. Forsala er hafin á Bókasafninu, Sunnumörk 2. Ekki er tekið við greiðslukortum.
Miðaverð er kr. 2000 í forsölu en 2500 kr. við innganginn.
Fimmtudaginn 27. ágúst hefst nýtt 8 vikna byrjendanámskeið
fyrir 3 - 8 mánaða gömul börn. Kennslan fer fram í glæsilegri aðstöðu á Heilsustofnun í Hveragerði.
Kennarar verða Sandra Sigurðardóttir
og Hildigunnur Hjörleifsdóttir.
Upplýsingar og skráning: sandrasigurdar@gmail.com
eða í síma 865-4448.
Tilkynning um upphaf skólastarfs:
Fyrsti starfsmannafundur skólaársins verður haldinn 17. ágúst n.k. og hefst hann klukkan 9:00.
Nemendur skólans mæti á skólasetningu mánudaginn 24. ágúst sem hér segir:
Yngsta stig klukkan 9:00
Miðstig klukkan 10:00
Elsta stig klukkan 11:00.
Skólasel verður opið frá og með klukkan 9:30 þann24. ágúst.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst.
Skólastjóri
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hveragerðis 2005-2017
,,Tvöföldun Suðurlandsvegar og aðlögun á landnotkun” ásamt
greinargerð og Umhverfisskýrslu var samþykkt í bæjarráði þann 7.
ágúst sl. en bæjarráð fer nú með umboð bæjarstjórnar í sumarleyfi
hennar.
Í breytingartillögunni felst breytt lega Suðurlandsvegar til suðurs
í tengslum við tvöföldun vegarins og breytingar, sem tengjast
henni, bæði beint og óbeint.
Einnig felst í breytingartillögunni aðlögun að nýlega samþykktum
deiliskipulögum og stígum sem nýlega hafa verið lagðir.
Breytingartillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 21. gr. skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997 og lá frammi til kynningar á
bæjarskrifstofum Hveragerðisbæjar og hjá Skipulagsstofnun frá 25.
maí sl. Tillöguna var einnig að finna á heimasíðum Hveragerðisbæjar
og Skipulagsstofnunar. Frestur til að skila inn athugasemdum rann
út 6. júlí sl.
Eftirfarandi eru athugasemdir sem gerðar voru við
breytingartillöguna og svör skipulags- og byggingarnefndar við
þeim, sem samþykkt voru á 100. fundi nefndarinnar þann 4. ágúst
sl:
a)Athugasemd frá Orkustofnun.
Orkustofnun gerir ekki athugasemdir við
breytingartillöguna en bendir á að meðal viðmiða sem lögð eru til
grundvallar við mat á áhrifum á vatnsvernd sé rétt að nefna lög nr.
57/1998 m.s.br. um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu.
Svar:
Bréfritara er þökkuð athugasemdin.
Orðið verður við athugasemdinni og viðkomandi texta bætt í
Umhverfisskýrslu.
b)Athugasemd frá Nirði Sigurðssyni og Kolbrúnu
Vilhjálmsdóttur, Heiðarbrún 62, 810 Hveragerði.
Njörður og Kolbrún gera athugasemdir við að gert sé ráð
fyrir að Suðurlandsvegur verði á nánast sama stað og hann er nú og
telja heillavænlegra fyrir íbúa Hveragerðis að færa veginn niður
fyrir skipulagða byggð þannig að hann kljúfi ekki bæinn í tvennt í
framtíðinni. Einnig gera þau athugasemdir við auglýsingu
tillögunnar og fara fram á að hún verði auglýst á nýjan leik og hún
kynnt betur.
Svar:
Bréfritara er þökkuð athugasemdin.
Varðandi legu Suðurlandsvegar er vísað til svars við athugasemd
c).
Varðandi auglýsingu og kynningu á tillögunni er því til að svara
að tillagan var kynnt á sérstökum íbúafundi þann 25. mars og var
boðað til fundarins með dreifibréfi í hvert hús í Hveragerði og að
auglýsingu tillögunnar var staðið samkvæmt því sem lög og reglur
segja til um. Auk þessa má benda á að Vegagerðin kynnti með
opinberum hætti ,,Drög að tillögu að matsáætlun” í apríl 2008 og
frummatsskýrslu að breyttum Suðurlandsvegi, ,,Tvöföldun frá Hólmsá
ofan Reykjavíkur að Hveragerði” í mars 2009 þar sem m.a. var gerð
grein fyrir fyrirhugaðri legu vegarins við Hveragerði.
c)Undirskriftarlisti frá 295 aðilum.
Undirritaðir mótmæla fyrirhugaðri legu Suðurlandsvegar og
telja það mun vænlegri kost að færa veginn lengra til suðurs eins
og gert var ráð fyrir á aðalskipulagi árin 1994-2006. Gerð er krafa
um að tillögunni verði hafnað og til vara að afgreiðslu hennar
verði frestað og hún kynnt betur s.s. með almennum borgarafundum nú
í haust.
Svar:
Bréfritara og undirskriftaraðilum er þökkuð athugasemdin.
Rétt er að í aðalskipulagi 1993-2013 var sýndur möguleiki á breyttri framtíðarlegu Suðurlandsvegar. Það skipulag gerði einnig ráð fyrir að skipulögð byggð teygði sig mun skemur til suðurs en núgildandi aðalskipulag segir fyrir um. Við endurskoðun Aðalskipulags Hveragerðisbæjar 2005-2017, sem lauk vorið 2006, var tekin afstaða til þess hvort Suðurlandsvegur skyldi liggja því sem næst í núverandi vegarstæði eða hvort færa ætti veginn suður fyrir skipulagða byggð. Báðir valkostir voru metnir og ræddir á kynningarfundum með íbúum og víðar, sem og með fulltrúum Vegagerðarinnar. Niðurstaðan varð sú að hagsmunum almennings, landeigenda og þjónustuaðila í Hveragerði væri betur borgið með núverandi legu vegarins. Bent er á að breytingartillagan er ekki frávik frá þeirri stefnu, sem mörkuð var í aðalskipulagi Hveragerðis 2005-2017 heldur er verið að koma til móts við kröfur Vegagerðarinnar um nægjanlegt landrými fyrir mislæg gatnamót á móts við Breiðumörk/Þorlákshafnarveg. Þannig gerir tillagan ráð fyrir að vegurinn færist frá núverandi vegarstæði allt að 115 metra til suðurs (þar sem færslan er mest) á kaflanum frá neðstu beygju í Kömbum og austur fyrir Heiðarbrúnarhverfi.
Í kafla 4.15 um samgöngur í gildandi greinargerð aðalskipulags er gerð grein fyrir afstöðu bæjaryfirvalda til færslu Suðurlandsvegar. Þar segir m.a. um mat á umhverfisáhrifum samgangna:
,,Í aðalskipulaginu er ekki gert ráð fyrir færslu Suðurlandsvegar til suðurs, líkt og gert var í aðalskipulagi Hveragerðis 1993 – 2013. Þess í stað er gert ráð fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar og er hún eflaust stærsta vegframkvæmdin innan sveitarfélagsins í framtíðinni. Frá því Suðurlandsvegur var færður í kringum 1975 hefur núverandi byggð þróast tiltölulega hratt að útjaðri vegarins með tilheyrandi kostnaði. Ekki er talin ástæða til að endurtaka þann samfélagslega kostnað sem slík færsla á veginum gæti kostað enda liði skammur tími þar til byggðin væri aftur komin að jaðri vegarins. Litið er á Suðurlandsveg sem hluta af Hveragerði enda hefur þessi þjóðleið legið um bæinn frá upphafi og falið í sér ýmis tækifæri. Tvöföldun Suðurlandsvegar á núverandi stað gerir það jafnframt að verkum að stór byggingarsvæði haldast óskert sunnan þjóðvegarins. Umhverfisleg áhrif þess að falla frá færslu vegarins og taka þess í stað upp tvöföldun vegarins hefur því jákvæð áhrif á byggð og byggðaþróun í Hveragerði. Mislægar tengingar fyrir akandi, hjólandi, gangandi og ríðandi umferð milli núverandi byggðar norðan þjóðvegar og framtíðarbyggðar sunnan vegar, tryggja skilvirkar og öruggar samgöngur og að Hveragerði geti vaxið sem ein heild til suðurs. Mikilvægt er að gefa tvöfölduninni þá rýmd sem hún krefst og er það gert í aðalskipulaginu eins og það liggur fyrir nú. Ef til greina kæmi að þjóðvegurinn yrði færður í fjarlægri framtíð er rétt að geta þess að skilið er eftir um 100 m breitt belti á suðurmörkum sveitarfélagsins, merkt sem opið óbyggt svæði.”
Þessu til viðbótar er rétt að geta þess að í landnotkun tillögunnar er gert ráð fyrir að neðsta beygja í Kömbum geti í framtíðinni víkkað úr um 300m radíus í um 500m þó að sú framkvæmd nái ekki inní fyrirhugaða tvöföldun vegarins nú.
Varðandi kynningu og auglýsingu tillögunnar er vísað til svara
við athugasemd b) hér að framan.
d)Athugasemd frá Róberti Péturssyni, Álfahvammi, 810
Hveragerði.
1.Róbert telur engan vafa á því að vegarstæði Suðurlandsvegar sé
betur komið fyrir sunnan skipulagða byggð og leggur til að engin
tillaga verði staðfest sem útiloki flutning á veginum þangað.
2.Róbert telur að leggja eigi háspennulínuna (Búrfellslínu 2) í
jörð eða flytja hana suður fyrir framtíðarbyggðina því núverandi
lega hennar hindri eðlilega þróun byggðar.
3.Róbert bendir á að hann hafi gert á sínum tíma athugasemd við
stækkun skólalóðar inní skrúðgarðinn við Reykjafoss og leita hefði
átt annarra leiða til lausnar vanda skólans.
Svar:
Bréfritara er þökkuð athugasemdin og svar við henni er hér að neðan
í samræmi við númeringu bréfritara.
1.Varðandi legu Suðurlandsvegar er vísað til svars við athugasemd
c) hér að framan.
2.Rétt er að vegurinn mun liggja samsíða Búrfellslínu 2 en Sogslína
verður tekin niður og við það skapast aukið rými fyrir
vegalagningu. Það að láta háspennulínuna fylgja tvöföldun vegarins
kemur ekki í veg fyrir þróun byggðar þar sem áhrifasvæði þessara
tveggja mannvirkja er nánast hið sama. Rétt er að skipulagsmál eru
í höndum sveitarfélaga og þau viðfangsefni sem athugasemdin snýr að
eru unnin í nánu samráði við Vegagerð og Landsnet sem að fullu
virða gildandi aðalskipulag Hveragerðisbæjar.
3.Athugasemd vegna skrúðgarðs tilheyrir ekki þessu máli en
bréfritara er þökkuð ábendingin.
e)Athugasemd frá Fornleifavernd ríkisins.
Fornleifavernd ríkisins gerir athugasemd við orðalag í 3. kafla
Umhverfisskýrslu þar sem segir ,,Í fornleifaskrá er ekki getið um
neinar fornleifar í Hveragerði”. Hið rétta er að í fornleifaskrá er
ekki er getið um neinar friðlýstar fornleifar. F.r. vekur athygli á
umsögn sinni um tvöföldun Suðurlandsvegar frá Hólmsá ofan
Reykjavíkur að Hveragerði þar sem fjallað er um ,,Kamba” og
,,Hestaskjól”. Bent er á sækja þarf um leyfi Fornleifaverndar
ríkisins til að raska gamla sýsluveginum (gamla
Þorlákshafnarveginum), sbr. 10. gr. Þjóðminjalaga og að
fornleifaskráning þurfi að fara fram á svæðinu sunnan núverandi
Suðurlandsvegar en þar sé einungis búið að skrá næsta nágrenni
gamla bæjarstæðisins á Vorsabæ.
Svar:
Bréfritara er þökkuð athugasemdin og orðið verður við henni á
viðkomandi stað í greinargerð.
Guðmundur F. Baldursson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
Bæjarhátíðin Blómstrandi dagar í Hveragerði 27. - 30. ágúst
Markaðstorg í Grunnskólanum
Handverk - hannyrðir - nýtt íslenskt grænmeti - heimilisiðnaður og margt, margt fleira
Þeir sem óska eftir að fá söluborð fyrir sínar afurðir eru hjartanlega velkomnir á markaðstorgið
Skráning og nánari upplýsingar hjá verkefnastjóra jmh@hveragerdi.is
Tilkynning til ferðaþjónustuaðila á Suðurlandi
Ferðaþjónustuaðilar á Suðurlandi eru vinsamlega beðnir að athuga að skilafrestur vegna þátttöku í sameiginlegum landshlutabæklingi um Suðurland á vegum Markaðsstofu Suðurlands er 10. ágúst nk.
Nánari upplýsingar fást hjá forstöðumanni stofunnar í s.
864-7011 eða sudur@visir.is
Mun lokunin standa yfir þar til um miðjan ágúst eða 1.september og kemur tilkynning um það síðar.

Sunnudaginn 5. júlí kl. 15 verður sýningin ANDANS KONUR Gerður Helgadóttir, Nína Tryggvadóttir, París – Skálholt opnuð í Listasafni Árnesinga. Útgangspunktur sýningarinnar er fundur þessara öflugu listakvenna í Skálholti, á sviði gler- og mósaíklistar. Ennfremur er tímabilinu þegar þær voru báðar búsettar í París gerð skil, til skýringar á ferli þeirra og viðfangsefnum á þessum mótandi tíma fyrir Skálholtsverkefnið. Að lokum er efnið víkkað út og spurningin um viðhorf þeirra til andlegra efna tekin fyrir, með verkum sem tengjast andlegri leit og þroska. Sýningarstjóri er Ásdís Ólafsdóttir listfræðingur sem er búsett í París.
Nína Tryggvadóttir (1913-1968) og Gerður Helgadóttir (1928-1975) voru meðal frumkvöðla í íslenskri abstraktlist á 20. öld, Nína á sviði málaralistar og Gerður í höggmyndalist. Þær bjuggu báðar í París á sjötta áratugnum og tóku virkan þátt í hræringum nútímalistar á meginlandinu. Þessar sterku og metnaðarfullu listakonur mættust í Skálholtskirkju, en þær hlutu fyrstu og önnur verðlaun í samkeppni um glerglugga byggingarinnar. Gluggar Gerðar, sem settir voru í kirkjuna 1959, eru að mestu óhlutbundnir og byggjast á djúpt hugsuðu kerfi kirkjutákna og talna. Mósaíkmynd Nínu frá 1965 sýnir loftkenndan Krist birtast í íslensku landslagi.
Á sýningunni er mikill fjöldi vinnuteikninga, auk málverka, höggmynda, klippimynda, vatnslitamynda og glerverka er hafa mörg ekki verið sýnd áður og spanna feril listakvennanna frá sjötta áratugnum til æviloka þeirra. Þær létust báðar um aldur fram, Gerður 47 ára og Nína 55 ára, en skildu eftir sig mikið og merkt ævistarf. Í síðustu verkum þeirra birtist sú ró og yfirvegun er bera vott um sátt fullþroska listamanns sem er í tengslum við andleg efni.
Að auki gefur að sjá myndasýningu eftir Salbjörgu Ritu Jónsdóttur myndverkakonu. Ljósmyndir hennar úr Skálholtskirkju gefa tilfinningu fyrir andrúmslofti staðarins og því magnaða samspili ljóss og lita sem gluggar og mósaík skapa. Þær eru ennfremur sýn ungrar listakonu á verk Gerðar og Nínu.
Sýningin mun standa til 27. september og verður
safnið opið alla daga kl. 12-18.
Aðgangur er ókeypis.
Þar má telja fleecepeysu, hettupeysu, fleecehúfu og minniskort í stafræna myndavél.
Einnig eru hér 3 sólblóm sem voru ómerkt í sólblómasamkeppninni.
Þessa hluti geta eigendur sótt á bæjarskrifstofuna í Sunnumörk 2 (verslunarmiðstöðin).
Smáfólkið hefur nóg fyrir stafni á blómasýningunni en
Barnaheimur Byko er staðsett á leiksvæði skólans og býður upp á
hoppukastala o.fl.
Leikhópurinn Blómabörn sýnir leikrit sem var sérstaklega sett upp
fyrir Garðyrkju- og blómasýninguna. Leiksýningarnar eru fyrir alla
fjölskylduna í skrúðgarðinum á laugardag kl. 13, 15 og 17.
Laukaball með Hara-systrum verður á Laukasviðinu við íþróttahúsið
kl. 15 á laugardag.
Á tjaldsvæði bæjarins eru skátaleiktæki fyrir börnin og
rúnaristur.
Eins og allir ættu að vita stendur nú fyrir dyrum garðyrkju- og blómasýningin "Blóm í bæ" sem hefst hér í Hveragerði á föstudaginn.
Unnið hefur verið að undirbúningi sýningarinnar sleitulaust undanfarna daga en betur má ef duga skal.
Því vil ég nú biðla til allra Hvergerðinga um að taka virkan þátt í sýningunni og undirbúningi hennar.
Það er hægt að gera með ýmsum hætti:
1) Skila inn sólblóminu sem allir hafa annast af kostgæfni undanfarna mánuði. Verðlaun verða veitt fyrir hina ýmsu flokka stærsta, minnsta, furðulegasta ofl.
Skil eru annað kvöld, fimmtudag í íþróttahúsinu.
Muna að merkja blómið og ekki er verra að skreyta pottana til auka sigurlíkurnar.
2) Skreyta með frumlegum hætti innkeyrslur og hús, setja má blóm í stígvél, hjólbörurnar, mjólkurbrúsa, ekkert setur manni skorður nema hugmyndaflugið og nú gildir að hugsa út fyrir rammann :-)
Muna að veitt verða verðlaun fyrir hugmyndaauðgi þó heiðurinn einn og sér ætti að vera nægilegur flestum.
3) Þeir sem áhuga hafa á öflugri sjálfboðavinnu í tæpa tvo tíma eru beðnir um að mæta við Álnavörubúðina kl. 17 í dag, fimmtudag.
Það væri mjög gaman að geta með samhentu átaki ráðist á illgresi og reiti sem stungið hafa í augu en vinnuskólinn mun ekki ná að sinna á þessum stutta tíma sem nú er fram að sýningu.
Mæta með þau áhöld sem við viljum nota, hrífur, klippur, rafmagnsorf ofl.
4) Formleg setning sýningarinnar er á morgun, föstudag kl. 16 á sviði við íþróttahúsið. Á undan er ráðstefna um garðrækt á Garðyrkjuskólanum sem gaman er að byrja helgina á að sækja.
5) Njóta helgarinnar og alls þess sem boðið verður uppá í Hveragerði í blíðunni sem almættið hefur lofað okkur ;-)
Dagskrá hennar er þannig:
13:00 – 13:10 Setning
13:10 – 13:35 Saga garðlistar á Íslandi - Samson B. Harðarson
13:35 – 14:00 Garðurinn hennar ömmu, mömmu, minn.. – Ásta Camilla Gylfadóttir
14:00 – 14:20 Plöntuval í görðum – Guðríður Helgadóttir
14:20 – 14:40 Efnisval í görðum – Þorkell Gunnarsson, skrúðgarðyrkjumeistari
14:40 – 15:00 Kaffihlé
15:00 – 15:30 Fjölbreyttir garðar á Íslandi – á mörkum hins ótrúlega. Kristinn H. Þorsteinsson
15:30 – 16:00 Framtíð garðræktar á Íslandi (á léttu nótunum) – Vilhjálmur Lúðvíksson, formaður GÍ
Nýr opnunartími þjónustumiðstöðvar Driftar hefur tekið gildi frá
byrjun júní. Er nú opið á mánudögum og fimmtudögum frá 10:00-14:00
og er ávalt heitt kaffi í boði sem og léttar veitingar í hádeginu.
Styrktaraðilar Driftar eru Icelandic glacial, Kjörís og Almars
bakarí.
Í húsnæði Driftar hefur Rauði krossinn í Hveragerði opnað littla
Rauða kross fataverslun þar sem hægt er að gera góð kaup á notuðum
fötum fyrir alla aldurshópa. Er verslunin opin á opnunartíma
þjónustumiðstöðvarinnar og taka sjálfboðaliðar vel á móti öllum
viðskiptavinum.
Vinnuskóli Hveragerðisbæjar hefur starfsemi sína 8. júní næstkomandi kl. 13 í sal Grunnskólans. Þar munu starfsmenn kynna vinnu sumarsins og starfsreglur. Vinnuskólinn er fyrir unglinga fædda 1993 - 1995.
þriðjudaginn 26. maí 2009, klukkan 20.
Bæjarstjórn boðar til málþings þar sem kynnt verða þau tækifæri sem í boði eru fyrir fólk sem lúrir á góðum hugmyndum varðandi atvinnusköpun en þekkir ekki þá farvegi og möguleika sem fyrir hendi eru við nýsköpun. Höfðuáhersla verður lögð á að virkja skapandi hugsun og hugmyndir þátttakenda til hagsbóta fyrir bæjarfélagið og íbúa þess.
Dagskrá:
20:00-20:15 Nýsköpunarmiðstöð Íslands
20:15-20:30 Atvinnuþróunarfélag Suðurlands
20:30-20:50 Stjórnendur fyrirtækja í Hveragerði
-Ólafur Sigurðsson, HNLFÍ
-Valdimar Hafsteinsson, Kjörís ehf
-Ólafur Reynisson, Kjöt og kúnst ehf
-Guðbjörg Gunnarsdóttir, Dvalarheimilinu Ási.
20:50-21:20 Pétur Guðjónsson, stjórnunarráðgjafi, fjallar um möguleika í erfiðri stöðu og stýrir hópumræðum í kjölfarið.
Fundarstjóri: Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri
Að kynningum loknum verða umræður í smærri hópum um það hvernig hægt er að virkja orkuna sem býr í íbúum og bæta samfélagið.
Allir Hvergerðingar sem áhuga hafa á bættu bæjarfélagi
eru hvattir til að mæta á fjörugt og skemmtilegt málþing.
Aðgangur ókeypis.
Strætó mælist til að stærri hópar taki sér ekki far með Strætó á annatímum á virkum dögum. Annatími er milli kl. 7:00 og 9:00 á morgnana og 15:30 og 18:00 seinnipartinn.
Á tímabilinu 9:00 – 15:30 á virkum dögum eru mun færri farþegar í vögnunum og því meiri líkur á nægu plássi. Hópar eru beðnir að nýta sér þennan tíma frekar og þannig koma í veg fyrir möguleg vandræði á báða bóga.
Mælst er til að hópar séu ekki fjölmennari en 20 einstaklingar í sömu ferðinni. Ef ætlunin er að ferðast með stærri hópa er mælst til að hópnum sé tví- eða þrískipt.
Einnig er mikilvægt að láta vita af öllum stærri hópum. Er það best gert með því að hafa samband við Strætó bs í síma: 540-2700.
Hveragerðisbær og Strætó bs kappkosta að þjónusta viðskiptavini Strætós með sem bestum hætti. Brugðist hefur verið við ábendingum og óskum viðskiptavina þegar það er hægt og mun slíkt verða gert áfram.
Laugardaginn 23. maí verður sundlaugin í Laugaskarði opnuð aftur
eftir endurbætur.
Frá 1. júní er sundlaugin er opin:
mánudaga – föstudaga
kl. 6:30-21:15
laugardaga - sunnudaga kl.
10:00-18:30
Haraldur Jónsson ræðir við gesti sýningarinnar Leiftur á
stund hættunnar
Sunnudaginn 24. maí kl. 15:00 mun Haraldur Jónsson ræða við gesti
sýningarinnar Leiftur á stund hættunnar sem nú stendur í Listasafni
Árnesinga. Á sýningunni eru verk eftir átta íslenska myndlistarmenn
sem allir vinna með ljósmyndina í list sinni og hafa á undanförnum
árum hlotið mikla athygli bæði hér heima og erlendis fyrir verk
sín. List þeirra er á margan hátt alþjóðleg og fjallar um
veruleikann á persónulegan en um leið margslunginn hátt. Haraldur
mun fyrst og fremst fjalla um sín verk og nálgunina á
viðfangsefninu en mun einnig svara spurningum gesta eftir bestu
getu.
Sýningin sækir heiti sitt í frægan texta eftir þýska
menningarfræðinginn Walter Benjamin sem vísar til þess að
nauðsynlegt sé að brjóta upp viðtekin viðhorf um sannleikann og
veruleikann í kringum okkur með því að varpa á hann óvæntu og oft á
tíðum ófyrirsjáanlegu ljósi, líkt og ljósmyndin sjálf kann að gera.
Sýningin byggir á þessari hugsun og eru verk eftir ólíka listamenn
jafnframt tengd við hugmyndir heimspekinga og rithöfunda um
meðvitaðar og ómeðvitaðar minningar og sannleikann sem kristallast
í einu einstöku broti veruleikans.
Haraldur er einn þeirra átta sem eiga verk á sýningunni. Hann
lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1987 og
Listaakademíunni í Düsseldorf í Þýskalandi 1990. Þá nam hann við
Institut des Hautes Etudes en Arts Plastiques í París í Frakklandi
í eitt ár. Haraldur er í hópi framsæknustu myndlistarmanna sinnar
kynslóðar og notar ýmsa miðla við sköpunina. Á sýningunni í
Listasafni Árnesinga er til sýnis hluti úr myndröðinni TSOYL, The
Story of Your Life, sem hann hófst handa við árið 1988 og er enn að
vinna að. Frá árinu 1989 hefur Haraldur tekið þátt í fjölmörgum
samsýningum og haldið einkasýningar hérlendis sem erlendis og verk
hans er að finna í helstu opinberum söfnum hérlendis, í Noregi og í
ýmsum einkasöfnum víða um heim. Haraldur var tilnefndur til
Menningar-verðlauna DV 2009 fyrir sýningu sína Myrkurlampi sem og
fyrir bók sína Fylgjur árið 1998.
Aðrir listamenn sem eiga verk á sýningunni eru Pétur Thomsen,
Kristleifur Björnsson, Katrín Elvarsdóttir, Ingvar Högni
Ragnarsson, Einar Falur Ingólfsson, Gréta S. Guðjónsdóttir og
Charlotta Hauksdóttir. Sýningarstjóri er Sigrún Sigurðardóttir
menningarfræðingur. Sýningin mun standa til 28. Júní.
Listasafn Árnesinga í Hveragerði er opið alla daga kl. 12-18.
Þar er notaleg kaffistofa, barnahorn og leskró þar sem hægt er að
líta í ýmis rit um myndlist. Aðgangur er ókeypis.

Myndin hér að ofan,TSOYL-822, er eftir Harald Jónsson og er úr
myndaseríunni TSOYL, 1988-
Inga Jónsdóttir
safnstjóri
Listasafn Árnesinga
Austurmörk 21
810 Hveragerði
sími: 483 1727
gsm: 895 1369
www.listasafnarnesinga.is
Óskar Pétursson, Örn
Árnason og Jónas Þórir
Flytja söng- og gamanmál í
Hveragerðiskirku næstkomandi fimmtudag (uppstigningardag) kl. 17
Þá munu hinir landsþekktu skemmtikraftar Óskar Pétursson (oftast kenndur við Álftagerði) og Örn Árnason (oftast kenndur við Spaugstofuna), ásamt Jónasi Þóri (oftast kenndur við píanó) stíga á stokk og ausa úr gleðiskálum sínum yfir Hvergerðinga og aðra gesti. Samstarf þessara manna er ekki nýtt af nálinni en þeir hafa komið fram áður þó ekki undir nafninu YFIRLIÐSBRÆÐUR.
Söng og grínskemmtun þessi er hluti langri tónleikaröð þeirra félaga á landsvísu en þar fylgja þeir eftir geisladiski þar sem þeir syngja lög eftir Everly Brothers. Hafa þeir félagar samið íslenska texta við þessi lög og eru textarnir einir og sér alveg frábærir.
Nafnið YFIRLIÐSBRÆÐUR er klár og bein tilvísun í Everly Brothers og einnig má það koma fram að þeir félagar leggja þá meiningu í orðið að margar miðaldra konur falli hreinlega í yfirlið þegar þeir stíga á svið. En það er þó ekki vitað en eitt er víst að þessi skemmtun á eftir að kitla hláturtaugarnar og síðast en ekki síst á söngur þeirra eftir að ylja okkur um hjartarætur. Það er því algjör skyldumæting á þessa söng og grínskemmtun.
Körfuknattleiksdeild Hamars í Hveragerði
Hin árlega umhverfisvika verður dagana 18.-22.maí og munu starfsmenn Hveragerðisbæjar þá fara um bæinn og hirða upp svarta plastpoka með garðaúrgangi. Setja verður pokana utan við lóðarmörk, án þess þó að hindra gangandi umferð. Garðeigendur eru sérstaklega hvattir til að nýta sér þessa þjónustu.
Fyrirtæki eru sérstaklega hvött til þess að taka til hendinni á lóðum sínum, enda verður mikið um ferðamenn í bænum í sumar m.a. vegna garðyrkjusýningarinnar 26.-28. júní. Vanti aðstoð eða ráðleggingar skal hafa samband við Árna í síma 660-3901 eða Elfu í síma 660-3908.
Pétur Thomsen ræðir við gesti
sýningarinnar Leiftur á stund hættunnar.
Sunnudaginn 17. maí kl. 15:00 mun Pétur Thomsen ræða við gesti
sýningarinnar Leiftur á stund hættunnar sem nú stendur í Listasafni
Árnesinga. Á sýningunni eru verk eftir átta íslenska myndlistarmenn
sem allir vinna með ljósmyndina í list sinni og hafa á undanförnum
árum hlotið mikla athygli bæði hér heima og erlendis fyrir verk
sín. List þeirra er á margan hátt alþjóðleg og fjallar um
veruleikann á persónulegan en um leið margslunginn hátt. Pétur mun
fyrst og fremst fjalla um sín verk og nálgunina á viðfangsefninu en
mun einnig reyna að svara spurningum gesta.
Sýningin sækir heiti sitt í frægan texta eftir þýska
menningarfræðinginn Walter Benjamin sem vísar til þess að
nauðsynlegt sé að brjóta upp viðtekin viðhorf um sannleikann og
veruleikann í kringum okkur með því að varpa á hann óvæntu og oft á
tíðum ófyrirsjáanlegu ljósi, líkt og ljósmyndin sjálf kann að gera.
Sýningin byggir á þessari hugsun og eru verk eftir ólíka listamenn
jafnframt tengd við hugmyndir heimspekinga og rithöfunda um
meðvitaðar og ómeðvitaðar minningar og sannleikann sem kristallast
í einu einstöku broti veruleikans.
Pétur er einn þeirra átta sem eiga verk á sýningunni. Hann
nam ljósmyndun í Ecole Supérieure des Métiers Artistiques í
Montpellier og og lauk mastergráðu frá École Nationale Supérieur de
la Photographie (ENSP) í Arles, Frakklandi árið 2004. Pétur hefur
verið virkur í sýningarhaldi hérlendis og erlendis og verk eftir
hann í eigu opinberra safna innanlands og utan. Hann hefur verið
tilnefndur til mikilsvirtra verðlauna og hlotið m.a. alþjóðlegu
unglistaverðlaun LVMH – Louis Vuitton Moët Hennessy. Árið
2005 var Pétur valinn til þátttöku í sýningunni ReGeneration, 50
ljósmyndarar framtíðarinnar, sem fyrst var opnuð í Elysée safninu í
Sviss en síðan sett upp víða, m.a. í Bandaríkjunum og
Rússlandi. Einkasýningar fyrir utan Íslands hafa verið settar
upp í Frakklandi, Rússlandi, Sviss og Sýrlandi.
Aðrir listamenn sem eiga verk á sýningunni eru Kristleifur
Björnsson, Katrín Elvarsdóttir, Ingvar Högni Ragnarsson, Haraldur
Jónsson, Einar Falur Ingólfsson, Gréta S. Guðjónsdóttir og
Charlotta Hauksdóttir. Sýningarstjóri er Sigrún Sigurðardóttir
menningarfræðingur. Sýningin mun standa til 28. Júní.
Listasafn Árnesinga í Hveragerði er opið alla daga kl. 12-18.
Þar er notaleg kaffistofa, barnahorn og leskró þar sem hægt er að
líta í ýmis rit um myndlist. Aðgangur er ókeypis.

Myndin er eftir Pétur Thomsen og ber heitið Il y a (Það er), 026 012, Kronstadt, Rússland, 2005
Miðvikudaginn 13. maí kl. 20 (ath. breytta dagsetningu)
• Fjallað um nokkra norska rithöfunda sem njóta
vinsælda um þessar mundir.
• Tiril Myklebost segir frá Knut Hamsun og les
smásögu eftir hann á norsku.
• Lesin verða brot úr sögum eftir Hamsun á
íslensku.
• Skoðuð verður ljósmyndasýning Ellenar Fodstad
sem tengist sögunni Pan.
• Ragna Hjartardóttir syngur nokkur lög á norsku
við undirleik Harðar Friðþjófssonar.
• Sett hefur verið upp lítil sýning á verkum
Hamsuns, bæði á íslensku sem stendur til 17. maí.
Allir velkomnir. Kaffi á könnunni.
Golfklúbbur Hveragerðis hefur ráðið Þuríði Gísladóttur viðskiptafræðing í starf framkvæmdastjóra. Þuríður, sem hefur setið í stjórn klúbbsins sem gjaldkeri frá árinu 2007, hefur víðtæka reynslu af rekstri ýmiskonar. Með ráðningunni vill stjórnin efla starfsemi klúbbsins enn frekar. Við klúbbinn starfa auk Þuríðar, Hafsteinn E Hafsteinsson vallarstjóri, Gunnar Marel Einarsson vallarstarfsmaður, Freydís Þrastardóttir og Íris Alma Össurardóttir í skála. Völlurinn kemur vel undan vetri og var hann opnaður sunnudaginn 10.maí sl. Gufudalsvöllur er fyrsti völlurinn í ABC mótaröðinni www.golf18.is sem fer fram í fyrsta skiptið nú í ár, af því tilefni er 20% afsláttur af vallargjöldum í maí og renna 100 kr. af hverjum spiluðum 18 holum til ABC barnahjálpar.
Þuríður Gísladóttir framkvæmdastjóri GHG
Sundlaugin í Laugaskarði verður lokuð frá 18. maí, í nokkra
daga, vegna árlegs viðhalds.
Tilkynnt verður á heimasíðu bæjarins www.hveragerdi.is um hvenær
verður opnað aftur eftir viðgerðir.
Hundahreinsun fer fram í Áhaldahúsi bæjarins,
Bláskógum 10-12 laugardaginn 16. maí n.k. kl 10:00-12:00.
Framvísa skal kvittun fyrir greiðslu hundaleyfisgjalds fyrir árið
2009 auk tryggingavottorðs frá tryggingafélagi um
skylduábyrgðartryggingu hafi leyfishafi kosið þann hátt á.
Hundaleyfisgjald er með skyldutryggingu kr. 13.900,- (Gjald fyrir
skyldutryggingu hunds er kr. 1.900.-)
Eigendur hunda sem ekki hafa verið bólusettir eru varaðir við að
láta þá ganga saman við aðra hunda og bent á að gæta þess
sérstaklega þegar þeir mæta til hreinsunar.
Hundaeigendur sem vilja láta bólusetja hundana sína verða að greiða
fyrir það sérstaklega.
Að gefnu tilefni skal bent á að samkvæmt 9. grein
samþykktar um hundahald í Hveragerði mega hundar aldrei ganga
lausir á almannafæri, heldur vera í fylgd með manni, sem hefur
fullt vald yfir honum.
Lausagöngu hunda skal tilkynna til Sigmars Eiríkssonar,
dýraeftirlitsmanns, í síma 897 0214.
Bæjarstjórinn í Hveragerði
Á námskeiðinu verður farið yfir ræktun ýmissa matjurta, áburðargjöf og fleira.
Einnig stendur til boða ráðgjöf varðandi fellingu trjáa og annað sem við kemur garðyrkjumálum í Hveragerðisbæ.Leiðbeinandi er Elfa Dögg Þórðardóttir, Mannvirkja- og umhverfisfulltrúi Hveragerðisbæjar og er aðgangur ókeypis.
Skráning í síma 483-4000 og á netfangið elfa@hveragerdi.is
Hin árlega umhverfisvika verður dagana 18.-22.maí og munu starfsmenn Hveragerðisbæjar þá fara um bæinn og hirða upp svarta plastpoka með garðaúrgangi. Setja verður pokana utan við lóðarmörk, án þess þó að hindra gangandi umferð. Garðeigendur eru sérstaklega hvattir til að nýta sér þessa þjónustu.
Fyrirtæki eru sérstaklega hvött til þess að taka til hendinni á lóðum sínum, enda verður mikið um ferðamenn í bænum í sumar m.a. vegna garðyrkjusýningarinnar 26.-28. júní. Vanti aðstoð eða ráðleggingar skal hafa samband við Árna eða Elfu í síma 483-4000.

Charlotta Hauksdóttir · Einar Falur Ingólfsson ·
Gréta S. Guðjónsdóttir · Haraldur Jónsson · Ingvar Högni Ragnarsson ·
Katrín Elvarsdóttir · Kristleifur Björnsson
Sýningarstjóri er Sigrún Sigurðardóttir
Sýningin stendur frá 2.maí - 28. júní 2009
Á sýningunni verða sýnd verk eftir átta íslenska myndlistarmenn sem allir vinna með ljósmyndina í list sinni og hafa á undanförnum árum hlotið mikla athygli bæði hér heima og erlendis fyrir verk sín. List þeirra er á margan hátt alþjóðleg og fjallar um veruleikann á persónulegan en um leið margslunginn hátt.
Sýningin sækir heiti sitt í frægan texta eftir þýska menningarfræðinginn Walter Benjamin sem vísar til þess að nauðsynlegt sé að brjóta upp viðtekin viðhorf um sannleikann og veruleikann í kringum okkur með því að varpa á hann óvæntu og oft á tíðum ófyrirsjáanlegu ljósi, líkt og ljósmyndin sjálf kann að gera. Sýningin byggir á þessari hugsun og eru verk eftir ólíka listamenn jafnframt tengd við hugmyndir heimspekinga og rithöfunda um meðvitaðar og ómeðvitaðar minningar, og sannleikann sem kristallast í einu einstöku broti veruleikans.
Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi:
Kjósandi skal hafa persónuskilríki meðferðis og allur áróður á og við kjörstað er óheimill.
Kjörstjórnin í Hveragerðisbæ.
Ekki liggur fyrir hversu lengi laugin verður lokuð en reynt verður að opna fyrir aðgang í potta og líkamsrækt eins fljótt og mögulegt verður.
Allar nánari upplýsingar veita starfsmenn sundlaugar í síma 483-4113 eða á staðnum.
Sumardaginn fyrsta verður sundlaugin í Laugaskarði opin kl.
10:00 - 17:30 og verður frír aðgangur í sund.
Milli kl. 14 og 15 verður fjölskylduskemmtun og Hara-systur sjá um
fjörið með söng og leikjum.
Á námskeiðinu verður farið í eftirfarandi þætti:
- Fjárhagsgreiningu
- Neyslugreiningu
- Innri endurskoðun á einstökum þáttum í heimilisrekstri
- Heimilisbókhald
Skráning á námskeiðið er á bæjarskrifstofunni í síma 483-4000 eða með tölvupósti á: hulda@hveragerdi.is
Danska skartgripaskrínið
Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir
Hveragerði – nýr miðbær
Frá 17. apríl til 1. júní verður ekki innheimt gjald fyrir móttöku á garðaúrgangi á Gámastöð Hveragerðis.
Íbúar er hvattir til að hreinsa vel upp af gangstéttum eftir trjá- og runnaklippingar.
Elfa Dögg Þórðardóttir
Mannvirkja- og umhverfisfulltrúi Hveragerðisbæjar.
F.h. bæjarstjórnar Hveragerðis,
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri
Á námskeiðinu verður farið í eftirfarandi þætti:
- Fjárhagsgreiningu
- Neyslugreiningu
- Innri endurskoðun á einstökum þáttum í heimilisrekstri
- Heimilisbókhald
Skráning á námskeiðið er á bæjarskrifstofunni í síma 483-4000 eða með tölvupósti á: hulda@hveragerdi.is
Stefnt er að því að halda námskeiðið í vikunni 20-24 apríl.
Bæjarstjórinn í Hveragerði
Sigríður Kristjánsdóttir segir frá ferð til Galapagos í máli og
myndum. Einnig segir hún frá heimsókn í SOS barnaþorp í
Ekvador.
Allir velkomnir. Kaffi á könnunni.

Elísabet lauk mastersprófi í hönnunarsögu (Design History) frá Kingston University, London 2006. Ritgerðin fjallaði um þjóðarímynd í íslenskri hönnun með áherslu á húsgögn og innréttingar. Elísabet hefur BA próf sem innanhússarkitekt og starfaði við það í fjölmörg ár auk þess að afla sér réttinda til kennslu sem hefur verið hennar aðalstarf undanfarin ár. Elísabet var annar stjórnanda Hönnunarbrautar Iðnskólans í Reykjavík (nú Tækniskólinn) í um átta ár og starfar þar enn sem kennari auk stundakennslu við LHÍ og sinnir einnig ýmsum sértækum skrifum og verkefnum tengdum hönnun. Elísabet er hönnunargagnrýnandi Morgunblaðsins og pistilhöfundur um hönnun.
Ókeypis aðgangur er að fyrirlestrinum og allir velkomnir. Þetta er einstakt tækifæri til að skoða danska skartgripahönnun s.l. hálfa öld, íslenska framúrskarandi skartgripahönnun eftir Guðbjörgu Kristínu Ingvarsdóttur og hlýða á forvitnilegan fyrirlestur Elísabetar. Sjá nánar á www.listasafnarnesinga.is
Inga Jónsdóttir safnstjóri Listasafns Árnesinga
listasafn@listasafnarnesinga.is
gsm: 895 1369
Þrátt fyir að páskafrí gangi í garð núna um helgina verður Skjálftaskjól með beinar útsendingar frá Meistaradeild Evrópu í næstu viku, þriðjudaginn 7. og miðvikudaginn 8. apríl. Tilboð á pizzu frá Hofland, foreldrum frjálst að koma. Gríðarleg stemning í 8 liða úrslitum!!! Nánar á www.skjalftaskjol.net
Indverski myndlistarmaðurinn Bonoprosonno er
aftur í heimsókn í Hveragerði og mun Listasafn Árnesinga bjóða upp
á listasmiðjur Baniprosonno fyrir börn nú í byrjun apríl, en
fjölmörg börn kannast við fjörið frá árinu 2007. Síðar í mánuðinum
verður einnig í boði námskeið fyrir fullorðna og ætti það
sérstaklega að höfða til leik- og grunnskólakennara. Baniprosonno
er myndlistarmaður og einnig þekktur fyrir listasmiðjur sínar sem
hann hefur þróað og heldur fyrir börn víðs vegar um heiminn á
ferðalögum sínum.
Hann býður upp á fjórar listasmiðjur fyrir börn, þar af eru þrjár
nýjar. Tvær listasmiðjur eru ætlaðar börnum á aldrinum 8–12 ára.
Annars vegar Froskar á Íslandi sem er skemmtilegt pappírsklipp og
hins vegar Umbreyting hluta þar sem úreldir hlutir ganga í
endurnýjun lífdaga. Fyrir börn á aldrinum 10-12 ára er í boði
námskeið sem heitir Skordýraljós og þar er unnið er með
pappírsklipp. Yngstu börnin fá síðan að vinna renning með
Baniprosonno þar sem hann teiknar en þau mála með vatnslitum.
Putul, eiginkona Baniprosonno aðstoðar manninn sinn klædd sínu
hefðbunda indverska sari og fjörug indversk tónlist mun
hljóma.
Þátttökugjald hvers barns fyrir hverja listasmiðju er kr.
1.000.- og er allt efni innifalið, en börnin mega gjarnan
koma með gamla aflagða hluti s.s. skó, búsáhöld, lítil húsgögn eða
annað smálegt á námskeiðið Umbreyting hluta. Skráning á námskeiðin
er á opnunartíma Listasafns Árnesinga fimmtudaga til sunnudaga kl.
12–18 í síma 483 1727 eða á netfang safnsins
listasafn@listasafnarnesinga.is.
Námskeiðið fyrir fullorðna verður 20. apríl kl. 19 – 21 og kostar
3.900 allt efni einnig innifalið. Skráning á það er hjá Fræðsluneti
Suðurlands í síma 4808155. Á námskeiðinu mun Baniprosonno kenna
hvernig búa má til ýmis konar dýr úr einni pappírsörk, einungis með
klippi, broti og smá lími. Ekkert er klippt burt og engu bætt
við.
Í Hux, lista- og tungumálamiðstöðinni á Eyrarbakka verða einnig
listasmiðjur fyrir börn síðar í mánuðinum í tengslum við Indverska
viku þar.

Frönsku listakonurnar Heléne Dupont og Pascale Cécile Darricau
sýna verk sín í borðstofu Hússins á Eyrarbakka yfir páskana. Heléne
vinnur myndverk með blandaðri tækni, vatnslitum, bleki, álímingu
o.fl. en Pascale notar pappamassa, leir og notaða hluti í sín
verk.
Titill sýningarinnar Orð og vængir vísar í verkin sjálf. Ritlist og
form leika um rímið annað hvort svífandin í orðsins fylltu merkingu
eða sem orð og setningar sem vilja hefja sig til flugs af
myndfletinum.
Heléne er menntaður heimspekingur og skrautskrifari frá
Bordeaux sem vann lengi við bókagerð í París áður en hún
fluttist til Íslands. Pascale er með háskólakennarapróf í
klassískum bókmenntum frá Frakklandi og stundar nú myndlistarnám.
Báðar hafa þær verið búsettar á Suðurlandi, í fjöldamörg ár.
Sýningin er opin 14-18 alla daga frá 4. apríl fram til 13. apríl
(2. dag páska). Frítt verður í safnið þessa daga. Listamennirnir
verða með viðveru 4., 6., 8. og 9. apríl. Sýningin er sölusýning og
styrkt af Lista- og menninganefnd Árborgar.
Listakonurnar Heléne og Pascal halda sýningu borðstofu Hússins um
páskana.
Viðvera starfsmanns Atvinnuþróunarfélags Suðurlands
frestast um óákveðinn tíma vegna veikinda.
Starfsmaður Atvinnuþróunarfélags Suðurlands verður með viðveru í
Hveragerði, þriðjudaginn 31. mars n.k. á skrifstofu
sveitarfélagsins, Sunnumörk 2, milli klukkan 13:30 og 15:30.
Nýtið tækifærið að hitta ráðgjafa í heimabyggð til að ræða
hugmyndir og leiðir til atvinnuþróunar.
Allir velkomnir!
Sækja verður um leigu á görðum á skrifstofu bæjarfélagsins að Sunnumörk 2, eða á heimasíðu sveitarfélagsins.
Hægt er að velja um 3 stærðir á görðum og eru þær 10m2, 20m2 og 40m2. Séu uppi óskir um aðrar stærðir garðlanda verður að taka slíkt fram í umsókn.
Umsóknarfrestur rennur út 10. maí.
Allar nánari upplýsingar gefur umhverfisfulltrúi Hveragerðisbæjar í síma 483-4000 og í gegnum netfangið elfa@hveragerdi.is
Elfa Dögg Þórðardóttir
Mannvirkja- og umhverfisfulltrúi Hveragerðisbæjar.
Námsstefna verður haldin 3. apríl næstkomandi þar sem fjallað verður um tækifæri og úrræði fyrir einstaklinga sem hafa misst atvinnuna. Fjallað verður um breytingar á löggjöfinni og hvaða möguleikar felast í þeim. Christer Gustafsson, stofnandi og stjórnarmeðlimur Hallander-verkefnisins sem gaf góða raun í Svíþjóð í byrjun níunda áratugarins, mun flytja fyrirlestur um verkefnið. Verkefnið fólst í því að kenna atvinnulausum iðnaðarmönnum handbragð við að varðveita gömul hús. Úr verkefninu skapaðist fjöldi nýrra starfa og yfir átta hundruð atvinnulausir einstaklingar nýttu sér tækifærið til að læra nýja iðn. Verkefnið hlaut alþjóðalega athygli og hefur það verið útfært í Eystrasaltsríkjunum undir nafninu Balcon. Verkefnið var tilnefnt af Sameinuðu þjóðunum sem eitt af hundrað fyrirmyndaverkefnum árið 2002. Fjöldi innlendra úrræða sem hafa það markmið að stuðla að aukinni virkni og bættri stöðu atvinnulausra á vinnumarkaðinum verða enn fremur kynnt.
9.05–9.15 Ávarp Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur,
félags- og tryggingamálaráðherra.
9.15–9.35 Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar.
9.35–10.05 Christer Gustafsson,
Hallander-verkefnið.
10.05–10.25 Kaffi.
10.20–11.20 Örkynningar
- Virkjun.
- Impra: Frumkvöðlasetrið og Starfsorka.
- Nýttu kraftinn.
- Bættu um betur.
- Efling.
- Hitt húsið: Vítamín og Klár í kreppuna.
- Átaksverkefni á vegum Vinnumálastofnunar.
11.25–11.50 Pallborðsumræður.
11.50–12.00 Ráðstefnuslit. Hanna Birna
Kristjánsdóttir borgarstjóri.
Námsstefnan er opin öllum og aðgangur frír.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfangið bjork.vermundsdottir@fel.stjr.is
Námsstefnan er haldin á vegum nefndar félags- og tryggingamálaráðuneytis er vinnur að vinnumarkaðsúrræðum.
Sunnudaginn 22. mars kl. 15 ræðir Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir
skartgripahönnuður við gesti um verk sín en einnig um dönsku verkin
á sýningunni
Danska skartgripaskrínið
Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir
Hveragerði – nýr miðbær
Á sýningunni er sjóninni beint að fjölbreytileika hönnunar. Til
sýnis eru sannkölluð meistaraverk úr Skartgripaskríni Dana, sem
fengin eru að láni frá Listiðnaðarsafninu í Kaupmannahöfn,
ásamt skartgripum eftir hina margverðlaunuðu Guðbjörgu Kristínu
Ingvarsdóttur. Að auki eru tillögur í arkitektasamkeppni um
nýtt miðbæjarskipulag í Hveragerði til sýnis. Sýningarstjórar eru
Inga Jónsdóttir og Charlotte Malte.
Þetta er áhugaverð og óvenjuleg sýning því sjaldan gefst tækifæri
til að sjá jafn mikið úrval ólíkra skargripa og kynnast þeirri
merku sögu sem einkennt hefur danska skartgripahönnun í hálfa öld
og sjá þá fersku strauma sem hönnun Guðbjargar ber með sér.
Guðbjörg fæddist árið 1969 á Ísafirði. Hún lærði gullsmíði hjá Önnu
Maríu Sveinsbjörnsdóttur og lauk sveinsprófi frá Tækniskóla
Kaupmannahafnar árið 1993. Hún tók meistarapróf í gullsmíði frá
Iðnskólanum í Reykjavík árið 1994 og fór að því loknu aftur til
Kaupmannahafnar í nám í skartgripahönnun við Institut for
Ædelmetal. Guðbjörg rak skartgripaverkstæðið Au-Art í Kaupmannahöfn
í samvinnu við aðra frá 1996 til 1999. Þá flutti hún til Íslands og
stofnaði vinnustofuna og verslunina Aurum í Reykjavík. Hún hefur
tekið þátt í fjölmörgum alþjóðlegum hönnunarsýningm. Guðrún hlaut
fyrstu verðlaun „Spirit of the North” í Pétursborg árið 2000,
Menningarverðlaun DV í Reykjavík árið 2002 og íslensku
sjónlistaverðlaunin fyrir hönnun árið 2008.
Listasafn Árnesinga, safnið ykkar, er opið fimmtudaga til sunnudaga
kl. 12 – 18.
Þar er notaleg kaffistofa, bókakrókur og barnahorn. Allir velkomnir
og aðgangur ókeypis.
1. Setning fundarins.
Eyþór H. Ólafsson, formaður bæjarráðs og formaður skipulags- og byggingarnefndar.
2. Áform Vegagerðarinnar um tvöföldun Suðurlandsvegar.
Árni Bragason, verkfræðistofunni Eflu ehf og Svanur Bjarnason, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á Suðurlandi.
3. Aðalskipulag Hveragerðis – breytingartillaga.
Oddur Hermannsson, Landform ehf.
4. Fyrirspurnir.
Fulltrúar Hveragerðisbæjar og Vegagerðarinnar svara fyrirspurnum (Eyþór H. Ólafsson, Oddur Hermannsson, Svanur Bjarnason, Árni Bragason, Guðmundur F. Baldursson).
Fundarstjóri Guðmundur F. Baldursson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
Smellið hér til að opna aðalskipulagsuppdrátt, sem sýnir núverandi aðalskipulag í Hveragerði vestan Varmár og breytingartillögu við það skipulag.
Menningar-, íþrótta- og frístundanefnd Hveragerðisbæjar auglýsir
styrki úr Afreks – og styrktarsjóði Hveragerðisbæjar.
Markmið sjóðsins eru:
• að veita afreksíþróttafólki með lögheimili í Hveragerðisbæ
fjárhagslegan styrk vegna æfinga og/eða keppni, og þannig búa þeim
sem besta aðstöðu til að stunda íþrótt sína.
• að veita íþróttahópum í íþróttafélögum í Hveragerðisbæ sem
náð hafa afburðaárangri, fjárhagslegan styrk og gera þeim kleift að
búa sig enn betur undir áframhaldandi keppni.
• að veita árlega styrki og viðurkenningar fyrir unnin afrek í
íþróttum.
Úthlutun styrkja fer fram í apríl nk.
Hægt er að nálgast umsóknareyðublað á heimasíðu bæjarins eða á bæjarskrifstofu.
Umsóknir um styrki úr sjóðnum þurfa að berast til menningar-
og frístundafulltrúa fyrir 1. apríl næstkomandi, merkt:
AFREKS – OG STYRKTARSJÓÐUR Hveragerðisbæjar – UMSÓKN.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna M. Hjartardóttir menningar- og frístundafulltrúi í sima 483 4000 eða jmh@hveragerdi.is
Menningar-, íþrótta- og frístundanefnd
Þriðjudaginn 17. mars kl. 17:15 og 18:15: Kynning á snara.is sem
er safn leitarhæfra vefbóka. Hver kynning tekur ca. 15
mín.
Fimmtudaginn 19. mars kl. 20: Framandi þjóðir - Guðrún Olga Clausen segir frá ferð til Jemen og Jórdaníu í máli og myndum.
Allir velkomnir.
Sektalausir dagar til 20. mars 2009
Bókasafnið í Hveragerði
Í fyrra tókum við upp á því að bjóða upp á beinar útsendingar frá Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í sal skólans. Þetta mæltist vel fyrir og höfum við gert það sama í vetur. Foreldrum er velkomið að koma með börnum sínum og sjá leikina, það er miklu heilbrigðara en að sitja á ölknæpum bæjarins. Þetta skilar líka auknum samverustundum foreldra og barna sem eru gríðarlega mikilvægar. Þó leikirnir fari fram á tímum unglingastigs er nemendum af yngri stigum heimilt að fylgjast með leikjunum í fylgd fullorðinna.
Sjá heimasíðu Skjálftaskjóls
Páll Sveinsson forstöðumaður
Hveragerðisbær auglýsir eftirfarandi sumarstörf laus til
umsóknar:
Menningar-, íþrótta- og frístundamál
Yfirstjórnun á sumarnámskeiði barna.
Hæfniskröfur: Íþróttafræðingur
Starfsmenn vantar:
- á gæsluvöll og í skólagarða
- á sumarnámskeið barna
- í vinnuskóla
Afleysingar við sundlaugina í Laugaskarði.
Hæfniskröfur:
Æskilegur aldur 20 ára og eldri.
Kröfur um kunnáttu í skyndihjálp og mikla
ábyrgðartilfinningu.
Nánari upplýsingar gefur menningar- og frístundafulltrúi í síma
483-4000.
Bæjarskrifstofa
Afleysing á bæjarskrifstofu.
Hæfniskröfur:
Æskilegur aldur 20 ára og eldri.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi góða þjónustulund ásamt góðri
almennri tölvukunnáttu (Word, Excel).
Nánari upplýsingar gefur skrifstofustjóri í síma 483-4000.
Mannvirkja- og umhverfismál
Verkstjóri garðyrkju og umhirðu. Verkstjóri er
yfirflokkstjóri vinnuskóla og vinnur náið með mannvirkja- og
umhverfisfulltrúa að umhirðumálum í bæjarfélaginu.
Hæfniskröfur:
Æskilegur aldur 20 ára og eldri.
Kröfur um sjálfstæð vinnubrögð og garðyrkjumenntun eða reynslu sem
nýtist í starfi.
Afleysingar í áhaldahúsi.
Hæfniskröfur: Sjálfstæðra vinnubragða er krafist.
Vélapróf nýtist vel í starfi.
Nánari upplýsingar gefur mannvirkja- og umhverfisfulltrúi í síma
483-4000.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á bæjarskrifstofu, Sunnumörk
2. Umsóknum skal skila eigi síðar en miðvikudaginn 25. mars
n.k.

Hveragerðisbær í samstarfi við Rauða Krossinn - Hveragerðisdeild opnar miðstöð fólks í atvinnuleit í Rauða Krosshúsinu að Austurmörk 7.
Miðstöðin verður opin mánudaga og fimmtudaga frá kl 9-12. Þarna gefst fólki kostur á að koma saman og vinna að hugðarefnum sínum hvort heldur það er í félagsstarfi, listum eða leik. Það eru fyrst og fremst þeir sem nýta aðstöðuna sem munu móta starfið sem þar fer fram.
Íþróttafélagið Hamar býður fólki í atvinnuleit að nýta sér líkamsræktarstöðina Laugasport frá kl 9 - 12 alla virka daga og einnig er frír aðgangur virka daga að sundlauginni í Laugarskarði frá kl 06.45 - 13.00. Þeir sem hafa áhuga á nýta sér þessa þjónustu sækja hvatakort í miðstöðina. Í miðstöðinni verður einnig boðið upp á ráðgjöf, námskeið, kynningar og tómstundaverkefni.
Föstudaginn 6. mars kl 16.00 verður formleg opnun miðstöðvarinnar og kynning á starfsemi hennar.
Allir velkomnir
Föstudaginn 6. mars nk. verður Dorothee Lubecki menningarfulltrúi Suðurlands með viðtalstíma á bæjarskrifstofunni Sunnumörk 2, á milli kl. 10:00 og 11:30 Viðtalstíminn er fyrir þá sem vilja sækja um styrki í sjóð Menningarráðs Suðurlands.
Aðilar sem hafa áhuga á að sækja um styrki í sjóðinn eru hvattir
til að nýta sér tækifærið.
Berglind Hafsteinsdóttir, sjóntækjafræðingur og prjónakona segir frá og sýnir hvað hún er að gera. Erla Eggertsdóttir kynnir bók sína Lærið að prjóna.
nokkur eintök af bókinni verða til sölu á góðu verði.
Allir velkomnir með handavinnuna sína á notalega kvöldstund.
Herrakvöld Hamars verður haldið þann 28. mars n.k. í gamla Hótel Hveragerði. Húsið opnar kl. 19:30 en í boði er glæsilegt hlaðborð, fjöldi skemmtiatriða og hið sígilda happdrætti. Einungis 130 miðar eru í boði svo nú gildir hið fornkveðna: Fyrstir koma, fyrstir fá.
Forsala hefst miðvikudaginn 25. febrúar og eru miðar seldir í Tíunni við Breiðumörk.
Í fyrra var uppselt svo nú er um að gera að bregðast hratt við !
Hvergerðingar og nærsveitamenn athugið!
Golfklúbbur Hveragerðis opnar glæsilega æfingaaðstöðu í kjallara
íþróttahússins laugardaginn 21. febrúar. Opið hús milli kl. 13:00
og 16:00. Heitt á könnunni og Kjörís fyrir börnin. Gengið inn um
suðurinngang.
Stjórn GHG
Sigrún María Kristinsdóttir, blaðamaður og meistaranemi í
umhverfis- og auðlindafræði við H.Í. kynnir bók sem hún er að
skrifa um ættleiðingar á Íslandi, en hún vann m.a. að bókinni á
meðan hún dvaldi í Varmahlíðarhúsinu í Hveragerði í desember
s.l. Fróðlegt verður að heyra hvað hún hefur fram að færa.
Sigrún María útskrifaðist með gráðu í ritlist og enskum bókmenntum
frá Viktoríuháskólanum í Bresku Kólumbíu árið 2004. Hún hefur
starfað sem blaðamaður bæði á Íslandi og í Kanada. Eftir
kynninguna, sem hefst kl. 20, svarar Sigrún spurningum gesta.
Allir eru velkomnir. Kaffi í boði safnsins.

Hjálparsveit skáta Hveragerði verður með opið hús í kvöld,
miðvikudaginn 11. febrúar, að Austurmörk 9 í Hveragerði.
Húsið opnar kl 20:00 allir eru velkomnir.
Boðið verður upp á kynningar á björgunarjeppum, vélsleðum,
fjallbjörgun, fyrstuhjálp, rústabjörgun, fjallamennsku og öðru sem
við kemur Hjálparsveitarstarfi.
Myndasýning og kaffiveitingar verða á boðstólum.
Allir sem hafa einhvern áhuga á Hjálparsveit er hvattir til að láta
sjá sig og kynna sér starfssemina okkar.
Með kveðju, félagar í Hjálparsveit skáta í Hveragerði

Á laugardögum kl. 11:00 eru göngur frá sundlauginni í
Laugaskarði. Gengið er í ca. 1 klst. Ekkert gjald og allir
velkomnir.
Gengið er undir merkjum Göngum saman en það er
styrktarfélag sem hefur það að markmiði að styrkja grunnrannsóknir
á brjóstakrabbameini.
Göngum saman leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar bæði
til heilsueflingar og til að afla fjár í styrktarsjóð félagsins sem
styrkir grunnrannsóknir á krabbameini í brjóstum. Vikulegar göngur
félagsins eru opnar öllum áhugasömum, fylgist með tilkynningum um
stað og stund á heimasíðunni, www.gongumsaman.is.
Kolbrún Þórðardóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði og jógakennari er að fara af stað með rannsókn á áhrifum reglubundinnar jógaiðkunar á streitu í kjölfar náttúruhamfara og efnahagskreppu.
Kolbrún leitar eftir þátttakendum frá Selfossi og Hveragerði í rannsóknina, sem hefst um miðjan febrúar. Hún óskar eftir fólki á aldrinum 20 - 65 ára sem finnur fyrir einkennum streitu. Ekki er þörf á að vera í góðu formi líkamlega.
Jógaþjálfunin er þátttakendum að kostnaðarlausu og fer fram
tvisvar í viku í 6 vikur í 60 mín. í senn. Þeir sem vilja taka þátt
í rannsókninni geta sett sig í samband við Kobrúnu í síma 861
6317.
Strætó Hveragerði - Reykjavík
Kynningarfundur um þjónustu og fyrirkomulag almenningssamgangna
milli Hveragerðis og Reykjavíkur verður haldinn í sal Grunnskólans
miðvikudaginn 4. febrúar n.k. og hefst kl. 20.00.
Á fundinum munu fulltrúar frá Strætó bs. kynna þjónustuna, veita
íbúum ráðgjöf í þessum málum og taka á móti ábendingum frá notendum
þjónustunnar um það sem betur má fara.
Íbúar eru hvattir til að mæta og kynna sér þessa
tímamótaþjónustu í almenningssamgöngum.
Hveragerðisbær
Smellið hér til að opna boðskort á sýninguna.
Starfsmaður óskast til afleysingastarfa vegna fæðingarorlofs í
Upplýsingamiðstöð Suðurlands.
Kröfur um sjálfstæð vinnubrögð, tungumálaþekkingu, leiðsögn hópa,
góða kunnáttu á landinu okkar fagra og þá sérstaklega á
Suðurlandi.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í febrúar.
Vinsamlega sendið umsókn um menntun og fyrri störf fyrir 6. febrúar
á tourinfo@hveragerdi.is
eða
Upplýsingamiðstöð Suðurlands
Sunnumörk 2
810 Hveragerði
Hverasvæðið Hveragerði
Starfsmaður óskast í sumar í 100% starf á Hverasvæðinu
Hveragerði.
Kröfur um sjálfstæð vinnubrögð, tungumálaþekkingu og leiðsögn
hópa.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. júní.
Vinsamlegast sendið umsókn um menntun og fyrri störf fyrir
6.febrúar á tourinfo@hveragerdi.is
Hveragerðisbær auglýsir eftir starfsmanni í hlutastarf við
Félagsmiðstöðina Skjálftaskjól. Vinnutíminn er síðdegis, fram á
kvöld tvisvar sinnum í viku.
• Viðkomandi þarf að vera jákvæður og félagslyndur,
reynsla af vinnu með börnum og ungmennum æskileg.
• Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og geta hafið störf
sem fyrst.
Umsóknafrestur er til 23. janúar. Umsóknareyðublað hér
Nánari upplýsingar gefur Páll Sveinsson, forstöðumaður í síma 822 9987 eða á póstfanginu palli@hveragerdi.is
Menningar- og frístundafulltrúi
Námskeið í félagsmálafræðslu á Selfossi 21. janúar
Námskeið í félagsmálafræðslu verður haldið í Tíbrá á Selfossi 21.janúar. Námskeiðið hefst klukkan 18:00 og stendur til 22:00. Kennari á námskeiðinu er Sigurður Guðmundsson.
Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Hlutverk námskeiðsins er að sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í ræðumennsku og fundarsköpum.
Áhugasömum er einnig bent á að afla sér frekari upplýsingar um verkefnið hjá Guðrúnu Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í síma 848-5917 og á gudrun@umfi.is og Sigurði í síma 861-3379 og á sigurdur@umfi.is
Bylgjan hefur
hafið söfnun á
ullarfatnaði fyrir eldri borgara í Bretlandi.
Móttaka er í Shell skálanum í Hveragerði.
munu standa yfir föstudaginn 16. janúar. Sundlaugin verður opin þennan dag en laugargestir geta orðið fyrir smávægilegum óþægindum.
Menningar- og frístundafulltrúi
Hveragerðisbær auglýsir eftir starfsmanni í hlutastarf við
Félagsmiðstöðina Skjálftaskjól. Vinnutíminn er síðdegis, fram á
kvöld tvisvar sinnum í viku.
• Viðkomandi þarf að vera jákvæður og félagslyndur,
reynsla af vinnu með börnum og ungmennum æskileg.
• Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og geta hafið störf
sem fyrst.
Umsóknafrestur er til 23. janúar. Umsóknareyðublað hér
Nánari upplýsingar gefur Páll Sveinsson, forstöðumaður í síma 822 9987 eða á póstfanginu palli@hveragerdi.is
Menningar- og frístundafulltrúi
OPIÐ HÚS í Gónhól laugardaginn 10. janúar kl. 14-16
Námskeiðin hefjast 12.janúar og verða á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 14.30-16.30 og einnig á þriðjudögum og fimmtudögum ef næg þátttaka fæst. 10 skipti kosta 12.900 krónur. Námskeiðin eru fyrir 5-12 ára börn. Önnur námskeið eru einnig í boði og verða auglýst síðar, sjá www.hux.is
Lögð verður áhersla á spænsku og ensku til að byrja með en síðan bætum við dönsku fljótlega við og síðan frönsku og þýsku þegar tóm gefst til. Mikil áhersla er á landfræði, mannfræði, jarðfræði og umhverfisvernd, listsköpun og leik.
Hver dagur hefst á samverustund þar sem við spjöllum saman um verkefni dagsins en síðan er innlögn og börnin búa til orðaforða sem tengist verkefnum miðvikudaganna sem eru verklegir. Ef við ætlum til að mynda út á strönd í sjóræningjaleik á miðvikudag, söfnum við orðum á spænsku eða ensku á mánudag og notum síðan á ströndinni. Ef við ætlum að elda paellu á miðvikudag, söfnum við orðum fyrir þá eldamennsku á mánudeginum. Hverjum degi ljúkum við svo með slökun í 10 mínútur áður en við förum heim.
Fyrsta mánudag í hverjum mánuði er sparifatadagur. Þá mæta börnin í sparifötunum og við förum í heimsókn, stundum á elliheimili, leikskóla, sjúkrahús eða safn. Þar sýna börnin heimatilbúin leikþátt, lesa eða syngja.
Síðasta miðvikudag í mánuði bökum við svo landafræðilummur. Við minnum á að þetta er þróunarstarf og allt getur breyst ef okkur langar til…
Föstudagseftirmiðdaginn 9. janúar n.k., mun körfuknattleiksdeild Hamars fara um bæinn og hirða upp jólatré frá bæjarbúum. Setja þarf trén út fyrir lóðamörk og passa að þau séu ekki í göngu-, eða ökuleið.
Gleðilegt nýtt ár.
Leikfélag Hveragerðis, Söngsveitin, Hjálparsveit Skáta o.fl. koma að dagskránni ásamt bæjarbúum.
Kveikt verður í áramótabrennu á gamlárskvöld
kl 20:30 við Þverbrekkur. Starfsmenn bæjarins munu sjá um alla
framkvæmd við brennuna.
Að gefnu tilefni er tekið fram að ekki er leyfilegt að vera með flugelda við brennu vegna þeirrar hættu sem það getur skapað.
Flugeldasýning verður í umsjón Hjálparsveitar Skáta. Hveragerðisbær, Dvalarheimili Ás, Kjörís og Hvoll ehf styrkja sýninguna í ár.
Íþrótta- og tómstundanefnd veitir viðurkenningar til
íþróttamanna og valdir verða íþróttamenn Hveragerðis 2008.
Viðurkenningarhátíðin fer fram í Listasafni Árnesinga þriðjudaginn
30. desember 2008 kl. 17:30.
Dagskrá hátíðarinnar er sem hér segir:
1. Tónlistaratriði.
2. Hátíðarsetning.
3. Viðurkenningar fyrir góðan árangur 2008.
4. Lýst kjöri ,,Íþróttamanna Hveragerðis” 2008.
5. Veitingar.
Opnunartími yfir jólin
Þorláksmessa 23. des. frá kl. 6:45 - 13:00
Aðfangadagur 24. des. frá kl. 10:00 - 12:00
Jóladagur 25. des. lokað
2. jóladag 26. des. lokað
Gamlársdagur 31. des. frá kl. 10:00 - 12:00
Nýársdagur 1. janúar lokað
Herrastund í Sundlauginni í Laugaskarði
verður föstudaginn 5. desember
fyrir alla herra frá kl. 17 - 19.
Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson segir gamansögur.
Heitt súkkulaði og piparkökur í boði
Jólatónlist og afslöppun !
Gjald kr. 300 (kort gilda ekki).
Forstöðumaður sundlaugarinnar og
menningar- og frístundafulltrúi
• Heiti félagsskapar • Stutt lýsing á starfssemi • Starfssvæði • Fundarstaður og tími • Heimasíða og/eða veffang umsjónaraðila • Símanúmer tengiliðar
Tekið skal fram að skráning í gagnagrunninn er félögum að kostnaðarlausu!
Nú er tækifæri til að vekja athygli á því sem er í boði, hvort sem það eru; kórar - leikfélög - ungmennafélög - íþróttafélög - skákfélög - gönguklúbbar - kvenfélög - kirkjustarf - skotveiðifélög - listaklúbbar - sögufélög - styrktarfélög - bókmenntafélög - búnaðarfélög - danshópar - tónlistarfélög - hjónaklúbbar - málfundafélög - fornbílafélag – ferðafélög ... eða eitthvað annað sem er í boði.
Gert er ráð fyrir að gagnagrunnurinn verði þýddur á ensku og á þriðja mál. Listinn verður vistaður rafrænt á vegum opinbers aðila á Suðurlandi og þar með aðgengilegur fyrir almenning.
Gagnagrunnurinn mun ná til félagsstarfs í Árnessýslu, Rangárvallasýslu, Vestur-Skaftafellssýslu og í Vestmannaeyjum.
Verkefnið er styrkt af Menningarráði Suðurlands.
Jólaljósin verða tendruð á stofnunum bæjarins fimmtudaginn 20.
nóvember. Af því tilefni verður gestum Sundlaugarinnar í
Laugaskarði boðið í sund frá kl. 18 þann dag.
Allir velkomnir að njóta jólastemningar saman í sundi.
Jólatónlist, jólaljós, kakó og piparkökur.
MÁLIÐ MYNDLISTIN OG MÚSKÍIN
Um er að ræða samstarfsverkefni Listasafnsins og Bókasafnsins í
Hveragerði, en næstu þrjá mánudaga verður dagskrá í boði þar sem
þessum greinum er tvinnað saman gestum til ánægju. Verkefnið hlaut
nýverið styrk frá Menningarráði Suðurlands og auk skipuleggjenda
koma Grunnskólinn í Hveragerði, Tónlistarskóli Árnesinga og
Hljómlistarfélag Hveragerðis að verkefninu.
Mánudagskvöldið 24. nóvember er helgað Steini Steinarri. Hjalti
Rögnvaldsson leikari og nemendur úr 9. bekk Grunnskólans lesa texta
eftir Stein, Pjetur Hafstein Lárusson mun flytja erindi um hann og
félagar úr Hljómlistarfélag Hveragerðis flytur tónlist eftir
BergÞóru Árnadóttur við texta Steins.
Mánudagssíðdegið 1. desember á fullveldisdegi landsins er tileinkað
börnum. Krisín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur mun flytja dagskrá
um hina uppátektarsömu Fíusól og nemendur úr 7. bekk Grunnskólans
lesa upp úr nýjum íslenskum barnabókum. Nemendur Tónlistarskóa
Árnesinga leika tónlist.
Mánudagskvöldið 8. desember er gestum boðið að hlýða á upplestur úr
nýútkomnum bókum og tónlistarflutning á vegum Tónlistarskóla
Árnesinga. Auður Jónsdóttir les úr bók sinni Vetrarsól, Guðrún Eva
Mínervudóttir les úr Skaparanum, Gyrðir Elíasson les úr bók um
föður sinn, myndlistarmanninn Elías B. Halldórsson, Hallgrímur
Helgason les úr bókinni 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja
að vaska upp og Þorsteinn Antonsson les úr ættarsögunni Álfar og
menn.
Myndlistin sem í boði er, er PICASSO Á ÍSLANDI, núverandi sýning í
Listasafni Árnesinga þar sem skoða má bein og óbein áhrif spænska
myndlistarmannsins Picasso í íslenskri myndlist samkvæmt tillögum
sýningarstjórans Helga Þorgils Friðjónssonar myndlistarmanns. Til
sýnis eru verk frá fyrri hluta síðustu aldar til samtímans eftir
Picasso og 26 íslenska myndlistarmenn.
Mmm-dagskrá mánudaganna hefst kl. 20 nema 1. des þá hefst hún kl.
17. Boðið verður upp á kaffi, safa og piparkökur. Allir eru
velkomnir og aðgangur ókeypis.
Á degi íslenskrar tungu, sunnudaginn 16. nóvember kl. 14:00
efnir Listasafn Árnesinga til málþings um Sigurjón Ólafsson í
tilefni þess að 100 ár eru liðin frá fæðingu hans.
Dagskrá:
Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur, ræðir um verk eftir Sigurjón
í opinberu rými og mun hann sérstaklega fjalla um þau verk sem
staðsett eru í Árnessýslu.
Æsa Sigurjónsdóttir, listfræðingur, mun ræða um list Sigurjóns í
alþjóðlegu samhengi.
Kynnir og stjórnandi er Inga Jónsdóttir safnstjóri og að loknum
erindum sitja þau Aðalsteinn, Æsa og Inga fyrir svörum.
Sigurjón Ólafsson fæddist á Eyrabakka 21. október 1908 og ólst þar
upp, en lést í Reykjvík í desember 1982. Hann nam höggmyndalist í
Danmörku og skóp sér langan og farsælan feril sem listamaður.
Efniviðurinn var einkum steinn eða tré en einnig hin hefðbundnu
myndmótunarefni leir og gifs sem og önnur efni. Eftir sautján ára
dvöl í Danmörku við nám og störf, snéri hann heim árið 1945. Verk
hans hafa verið á sýningum víða um heim og unnið til mikilsverðra
verðlauna.
Á yfirstandiandi sýningu í Listasafni Árnesina PICASSO Á
ÍSLANDI má skoða bein og óbein áhrif spænska
myndlistarmannsins Picasso í íslenskri myndlist samkvæmt tillögum
sýningarstjórans Helga Þorgils Friðjónssonar myndlistarmanns. Til
sýnis eru verk frá fyrri hluta síðustu aldar til samtímans, eftir
Picasso og 26 íslenska myndlistarmenn, þar á meðal nokkur eftir
Sigurjón.
Picasso er „sá meistari nútímans sem sameinar meira af allri
heimslistini samanlagðri en nokkur annar snillingur sem uppi hefur
verið, án þess að vera þó annað en Picasso”. Svo ritaði Halldór
Kiljan Laxness árið 1943.

Verið velkomin í Listasafn Árnesinga í Hveragerði, fimmtudaga til
sunnudaga kl. 12-18. Þar er kaffistofa, barnahorn og leskró þar sem
finna má ýmis rit um myndlist.
Aðgangur er ókeypis.
Á námskeiðinu er kennt að:
- koma í veg fyrir hegðunarerfiðleika
- hjálpa börnum að tileinka sér öryggi, sjálfstæði og jákvæðni.
- efla eigin styrkleika og færni í foreldrahlutverkinu
- nota aga á jákvæðan og árangursríkan hátt
- kenna börnum æskilega hegðun
- takast á við venjuleg vandamál í uppeldi
Námskeiðin eru samtals átta klukkustundir og mæta foreldrar
fjórum sinnum í tvo tíma í hvert skipti.
Námskeiðið er ókeypis en greiða þarf fyrir námskeiðsgögn sem eru
1500 kr. á hverja fjölskyldu sem tekur þátt.
Námskeiðið verður haldið í Grunnskóla Hveragerðis stofu 12 dagana 11, 18, 25 nóv. og 2. des og er frá 20-22 Námskeiðsfyrirlesarar eru Anna Guðríður Gunnarsdóttir og Ragnheiður Kr. Björnsdóttir hjúkrunarfræðingar.
Skráning og greiðsla námskeiðsgjalds er hjá Huldu Sigurðardóttur á skrifstofu Hveragerðisbæjar í síma 483-4000 eða hulda@hveragerdi.is
• Myndband sem framleitt hefur verið í tilefni dagsins hefur verið sótt á heimasíðu Forvarnardagsins og inniheldur m.a. ávarp forseta Íslands og frásagnir góðra fyrirmynda eins og Páls Óskars, Ragnhildar Steinunnar og Sigfúsar Sigurðarsonar handboltakappa og syni hans svo að dæmi séu nefnd.
• Þór Ólafur Hammer Ólafsson fulltrúi frá Skátafélaginu Stróki flytur erindi um skátastarfið í Hveragerði.
• Dreift verður sérstökum upplýsingum um Net-ratleik og nemendur hvattir til að taka þátt í leiknum og heimsækja til þess heimasíður samtakanna. Vegleg verðlaun eru í boði.
• Þá eru myndaðir umræðuhópar með nemendunum þar sem fjallað er um þau þrjú heillaráð sem virka sem forvörn og nemendur svara spurningum um þau. Kennarar stýra umræðum og tryggja að sem flest svör nemenda séu skráð og þeim síðan skilað á heimasíðu Forvarnardagsins.
Söfn um allt Suðurland og í Vestmannaeyjum bjóða upp á
fjölbreytta menningardagskrá helgina 7. – 9. nóvember 2008.
Yfirskrift dagskrárinnar verður Safnahelgi á Suðurlandi með
undirtitilinum Matur og menning úr héraði því auk hins sögulega og
menningarlega hluta dagskrárinnar verður minnt á gamlar og nýjar
hefðir í matargerðarlist í héraðinu.
Það eru Safnaklasi Suðurlands og Matarkista Suðurlands sem standa
að dagskránni en hátt í eitt hundrað aðilar (söfn og
veitingastaðir) eru þátttakendur í þessum tveimur klösum sem
stofnaðir eru með stuðningi Vaxtarsamnings Suðurlands og
Vestmannaeyja. Verkefnið nýtur einnig stuðnings Menningarráðs
Suðurlands, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, SASS og
Iðnaðarráðuneytisins.
Hugmyndin að baki Safnahelgi á Suðurlandi er að þjappa hinum mörgu
og fjölbreyttu söfnum landshlutans saman um einn sameiginlegan
viðburð og bjóða íbúum héraðsins og gestum að njóta þess sem söfnin
hafa upp á að bjóða. Matarklasinn kemur að dagskránni með því að
fjöldi veitingahúsa býður upp á það besta í sunnlenskri matarhefð.
Boðið er upp á dagskrá frá föstudegi til sunnudags, en staðirnir
eru þó með mismunandi opnunartíma.
Meðal fjölmargra dagskráratriða má nefna sýningar, tónleika,
fyrirlestra, upplestra og leiðsagnir. Svo verður víða hægt að
smakka á gömlum og nýjum réttum eins og ástarpungum, heitu
súkkulaði, lunda, fýl, sviðum, humarsúpu, pönnukökum, sunnlensku
grænmeti og kartöfluréttum. Söfn og veitingastaðir verða opin upp á
gátt og starfsfólk þeirra tekur fagnandi á móti gestum og
gangandi.
Sunnlensk menningararfleið býður gesti velkomna á Safnahelgi á
Suðurlandi 7. – 9. nóvember. Dagskráin er birt í heild á vefnum www.sofnasudurlandi.is
Smellið hér til að opna dagskrána fyrir
Hveragerði
Skólanefnd Hveragerðisbæjar stendur fyrir skólamálaþingi
laugardaginn 8. nóvember næstkomandi í grunnskólanum fyrir
foreldra/forráðamenn og starfsmenn leik- og grunnskóla.











































