Hveragerðisbær býður nýja íbúa
hjartanlega velkomna.
Hér er að finna gagnlegar upplýsingar ef flutt er til Hveragerðisbæjar. Meðal annars um hvert á að skila inn flutningstilkynnningu, flutning síma, hitaveitu, rafveitu, ýmislegt varðandi húsnæðismál og um innritun barna í leik- og grunnskóla.
Flutningstilkynning:
Búferlaflutninga ber að tilkynna á bæjarskrifstofu
Hveragerðisbæjar innan við viku frá flutningi. Umsóknareyðublöð
liggja í afgreiðslu. Einnig er hægt að nálgast eyðublöð með
rafrænum hætti á heimasíðu Þjóðskrár og skila útfylltum á
bæjarskrifstofuna.
Flutningur síma:
Hægt er að flytja gamla símanúmerið með sér hvert á land sem er.
Þeir sem eru að sækja um símanúmer í fyrsta skipti skulu snúa sér
til þjónustumiðstöðvar Símans á Selfossi.
TRS-Penninn
Eyrarvegur 37
Sími: 480-3300
Veffang: www.siminn.is
Hitaveita:
Orkuveita Reykjavíkur sér um hitaveitu í Hveragerði.
Þjónustuver OR í Hveragerði er staðsett hjá Sparisjóðnum í
Verslunarmiðstöðinni við Sunnumörk.
Bilanavakt - 516-6200
Opið allan sólarhringinn
Þjónustuver - 516-6100
Lóðir til nýbygginga:
Tæknideild Hveragerðisbæjar veitir allar upplýsingar um lóðir og
framkvæmdir.
Kaup á nýju og notuðu húsnæði:
Fjöldi fasteignasala er starfandi á Suðurlandi sem sinna öllu
svæðinu en í Hveragerði eru eftirtaldar fasteignasölur með
starfsemi.
Byr fasteignasala
Austurmörk 4
Sími: 483-5800
Veffang: www.byrfasteign.is
Gimli fasteignasala
Breiðumörk 13
Sími: 483-5900
GSM: 892-9330
Veffang: www.gimli.is/sudurland
Leiguhúsnæði:
Eyðublöð fyrir gerð húsaleigusamninga er hægt að nálgast í
afgreiðslu Hveragerðisbæjar. Upplýsingar um rétt til húsaleigubóta
og afgreiðslu þeirra veitir Sandra Guðmundsdóttir, félagsráðgjafa.
Umsóknareyðublöð, lög og reglugerðir fást í afgreiðslu.
Nánari upplýsingar má nálgast hjá félagsmálaráðuneytinu.
Innritun í leikskóla
Í Hveragerði eru reknir tveir leikskólar, Undraland og Óskaland.
Foreldrar og forráðamenn með lögheimili í Hveragerði geta sótt um
pláss í leikskóla frá 1 árs aldri barns. Leikskólastjóri Óskalands
tekur við umsóknum í síma: 483-4139.
Innritun í grunnskóla
Grunnskólinn í Hveragerði er rekinn í samvinnu Hveragerðisbæjar og
Sveitarfélagsins Ölfuss. Innritun nýrra nemenda fer fram á
skrifstofu skólans eða í síma: 483-4350.
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 17 í Listasafni Árnesinga
Í verkum sínum fjallar Svala meðal annars um tengslin á milli minninganna, sagnanna, og svo hins uppfundna, eða tilbúna. Hún hefur einkum fengist við ljósmyndaverk og oftar enn ekki er myndum raðað saman, tveimur eða fleirum til þess að skapa orðræðu eða ef til vill torræðu á milli einstakra ramma. Ljósmyndaverk Svölu eru ljóðræn og huglæg.
Svala mun sýna og segja frá verkum sínum í erindi í Listasafninu síðdegis í dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Sunnudaginn 25. júlí kl. 15 verður
sýningin
ÁR: málverkið á tímum straumvatna
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson ▪ Þorvaldur
Skúlason
Nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins: www. listasafnarnesinga.is
Verið velkomin












