|
||||||||
Á lóð grunnskólans verður Hjálparsveit skáta með stóra sýningu á björgunartækjum og bílum. Öllum boðið að spreyta sig í kassaklifri og að klífa stóra klifurturninn. Tvö ný söguskilti bætast í söguhringinn um ullarvinnslu við Reykjafoss og um hverasvæðið.
Ljósmyndaklúbburinn Blik verður með ljósmyndasýningu frá garðyrkju- og blómasýningunni "Blóm í bæ" á Hótel Örk. Í Þorlákssetri, húsi eldri borgara, verður sýning á ýmiskonar handverki heimamanna. Einnig verða sýningar í Listasafni Árnesinga og á Bókasafninu.
Bleika hverfið fær grænan lit til viðbótar
Rauða hverfið fær gulan lit til viðbótar
Bláa hverfið fær appelsínugulan lit til viðbótar
Verðlaun verða veitt fyrir fallegustu, frumlegustu og mestu skreytingarnar bæði hjá fyrirtækjum og heimilum. Einnig fá litríkustu bæjarbúarnir viðurkenningu.
Fylgist vel með heimasíðu bæjarins www.hveragerdi.is því dagskráin verður uppfærð reglulega fram að bæjarhátíð.
Jóhanna M. Hjartardóttir
menningar- og frístundafulltrúi
Á fundi bæjarstjórnar þann 28. júní s.l. var lögð fram til kynningar reglugerð um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti sem sett var af Umhverfisráðherra 1. júní s.l.
Eftirfarandi bókun var samþykkt samhljóða:
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar fagnar nýrri reglugerð um
leyfilegan styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti sem Svandís
Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur nýlega sett.
Með setningu reglugerðarinnar eru ríkir hagsmunir almennings
viðurkenndir og einnig viðurkennt að óvissa ríki um heilsufarsáhrif
af langvarandi innöndun brennisteinsvetnis. Því er nauðsynlegt að
sett séu ákveðin mælanleg mörk þannig að almenningur fái notið
vafans. Með setningu reglugerðarinnar er tryggt að dregið verði
verulega úr losun brennisteinsvetnis frá jarðhitavirkjunum og þar
með mögulegum neikvæðum áhrifum á heilsu fólks.
Á fundi bæjarráðs í gær, fimmtudaginn 1. júlí var tekið til afgreiðslu erindi frá Gunnari Magnússyni f.h. Eden aldingarður.
Í bréfinuer rætt um áætlanir rekstraraðila Edens um að flytja inn þrjá apa frá Þýskalandi og jafnframter óskað eftir stuðningi Hveragerðisbæjar við innflutninginn.
Afgreiðsla bæjarráðs var eftirfarandi:
Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með metnaðarfull áform nýrra rekstraraðila í Eden. Greinilegt er að þar er nú horft aftur til þess tíma þegar sunnudagsbíltúrarnir voru og hétu. Gríðarlegur fjöldi ferðamanna sótti Hveragerði heim og aparnir í Michelsen og talandi krákan í Eden voru þjóðþekkt. Öll teikn eru uppi um að slíkir tímar séu nú að nýju gengnir í garð. Með hækkandi bensínverði eru styttri ferðalög aftur efst á vinsældalistanum og því fagnar bæjarráð öllum áformum sem styrkt geta ferðaþjónustu í Hveragerði. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara varðandi nánari útfærslur á hugmyndinni um innflutning þriggja apa til Hveragerðis.
Minningar um apana í Hveragerði hafa lifað með þjóðinni og þó að stundum hafi orðið ruglingur um staðsetningu þeirra þá er ljóst að Hveragerði var staðurinn!
Hér má hlusta á brot úr laginu Aparnir í Eden eftir Baggalút
Íbúar Hveragerðisbæjar eiga miklar þakkir skildar fyrir frábæra þátttöku í Garðyrkju- og blómasýningunni Blóm í bæ sem haldin var um síðast liðna helgi. Garðarnir í bænum skörtuðu sínu fegursta og fjöldi bæjarbúa notaði tækifærið og skreytti innkeyrslur og lóðir með frumlegum hætti í tilefni sýningarinnar.
Fjölmargir innan hins græna geira komu einnig að sýningunni bæði
með ómetanlegu vinnuframlagi og ómældu magni blóma, plantna og
grænmetis sem notað var við skreytingar í bæjarfélaginu.
Á fundi bæjarstjórnar þann 28. júní var eftirfarandi ályktun
samþykkt samhljóða:
Bæjarstjórn vill þakka öllum þeim fjölmörgu sem með einum eða
öðrum hætti komu að undirbúningi og framkvæmd sýningarinnar Blóm í
bæ sem haldin var hér í Hveragerði dagana 25. - 27. júní. Án
samstillts átaks og gríðarlegrar sjálfboðavinnu fjölda aðila hefði
sýningin aldrei orðið jafn vegleg og vel lukkuð og raun varð á.
Fyrir það vill bæjarstjórn þakka af heilum hug.
Við getum öll verið afar ánægð með vel heppnaða sýningu. Mikill mannfjöldi lagði leið sína í bæjarfélagið og gaman var að heyra hversu ánægðir gestir okkar voru. Á ellefu stöðum voru garðar íbúa opnaðir gestum og boðið uppá gómsæta garðasúpa. Almenn ánægja var með það nýjung og ljóst að grænmetissúpan er komin til að vera.
Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri
Flott myndasíða af Blómum í bæ
Tilkynning Bændablaðsins um Blóm í bæ
Frétt um Blóm í bæ á http://www.natturan.is/frettir/5699/
Verðlaun fyrir fegurstu garða Hveragerðisbæjar árið 2010 voru afhent af formanni mannvirkja og umhverfisnefndar, Guðmundi Þóri Guðjónssyni, á Blóm í bæ um helgina.
Eftirtaldir garðaeigendur hluti verðlaun og munu garðar þeirra
verða til sýnis næstkomandi laugardag milli kl. 13 og 16. Allir
áhugamenn um gróður og garða eru hvattir til að nota þetta tækifæri
og skoða garðana sem hlutu viðurkenningu þetta árið.
Hraunbær 22. Eigendur Sólborg Ósk Valgeirsdóttir og
Sigurður Gísli Gíslason.
Innkeyrslan er hellulögð með upphækkuðum beðum beggja
vegna. Í garðinum er fjölbreytt úrval plantna. Þar er gróðurhús og
leiktæki fyrir börn. Athygli vakti fallegt náttúrugrjót sem er
raðað eftir norður hlið húsins. Garðurinn ber þess glöggt merki að
eigendur hafa mikinn áhuga á garðrækt og er okkur hinum góð
fyrirmynd.
Lyngheiði 26. Eigendur Guðríður Karen Bergkvistsdóttir og
Jón B Guðmundsson.
Hér er um gróskumikinn eldri garð að ræða. Mikill gróður
og fjölbreyttur sem klipptur hefur verið til og snyrtur. Ný
hellulögn liggur inn í bakgarðinn. Garðurinn ber þess vitni að þar
hefur verið nostrað við hvert smáatriði.
Þórsmörk 5. Eigendur Ragnheiður Sigurðardóttir og Finnur
Jóhannsson.
Aðkoman að húsinu er fallega hellulögð. Garðurinn er frekar lítill
en snyrtimennskan er í fyrirrúmi. Einfaldur og stílhreinn í senn,
gott dæmi um fallegan garð við nýlegt hús.
Meðfylgjandi mynd af verðalaunahöfum tók Kjartan Már
Hjálmarsson.

F.v. Guðmundur Þór Guðjónsson, formaður mannvirkja og
umhverfisnefndar Sigurður Gísli Gíslason og Sólborg Ósk
Valgeirsdóttir. Guðríður Karen Bergkvistsdóttir og Jón B
Guðmundsson, Finnur Jóhannesson, Ragnheiður Sigurðardóttir og Aldís
Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri.
Nú undir hádegi á öðrum sýningardegi Blóma í bæ hefur sólin brotist fram og nú skín sólin á bæjarbúa og gesti og allt útlit fyrir frábæran góðviðrisdag í bænum. Hiti rúm 15 stig og logn.
Hvað er betra en að heimsækja Hveragerði, skoða stórkostlegar skreytingar í bænum og njóta afurða garðyrkjubænda frá öllu landinu, kíkja í Lystigarðinn og sjá nýja útisvæðið. Njóta góðra veitinga og kíkja síðan í Hveragarðinn í leirfótabað eða í sundlaugina í Laugaskarði.
Eigið yndislegan dag í blómabænum Hveragerði.....
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 17 í Listasafni Árnesinga
Í verkum sínum fjallar Svala meðal annars um tengslin á milli minninganna, sagnanna, og svo hins uppfundna, eða tilbúna. Hún hefur einkum fengist við ljósmyndaverk og oftar enn ekki er myndum raðað saman, tveimur eða fleirum til þess að skapa orðræðu eða ef til vill torræðu á milli einstakra ramma. Ljósmyndaverk Svölu eru ljóðræn og huglæg.
Svala mun sýna og segja frá verkum sínum í erindi í Listasafninu síðdegis í dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Sunnudaginn 25. júlí kl. 15 verður
sýningin
ÁR: málverkið á tímum straumvatna
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson ▪ Þorvaldur
Skúlason
Nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins: www. listasafnarnesinga.is
Verið velkomin














