Gámasvæðið

Almennar upplýsingar

Gámastöð Hveragerðis er staðsett að Bláskógum 14.

Flatarmál Gámastöðvarinnar er 1.700 m2.
Gámastöðin er afgirt og með malbikuðu og upphituðu (snjóbræðsla) yfirborði og einum upphækkuðum rampi fyrir tvo pressugáma og þrjá gáma fyrir brotajárn, garðaúrgang, timbur og grófan úrgang.
Símar: 483 4085 660 3901
Heimasíða: http://www.hveragerdi.is
Netfang: gfb@hveragerdi.is
Ábyrgðarmaður: Skipulags- og byggingarfulltrúi

Heimili:

Gámastöðin tekur við flokkuðum úrgangi frá heimilum í Hveragerði. Magn undir hálfum rúmmetra á dag er gjaldfrítt annars er greitt samkvæmt gjaldskrá.

Fyrirtæki:

Gámastöðin tekur við flokkuðum úrgangi frá fyrirtækjum í Hveragerði gegn greiðslu samkvæmt gjaldskrá.

Athugið:

  • Öll losun á gámastöðinni skal framkvæmd í samráði við starfsmann gámastöðvar.
  • Gámastöðin tekur einungis við sorpi frá íbúum Hveragerðisbæjar og fyrirtækjum staðsettum í Hveragerði.
  • Mæling á rúmfangi farms fer fram áður en losun hefst.
  • Gámastöðin leigir Hvergerðingum kerrur til flutnings á sorpi á gámastöðina.

Opnunartími

  • Virkir dagar frá kl. 16:00 til kl. 18:00.
  • Laugardagar frá kl. 14:00 til kl. 18:00.
  • Sunnudagar Lokað.