Brunavarnir
Slökkvilið Hveragerðis annast brunavarnir í Hveragerði og í efri hluta Sveitarfélagsins Ölfus skv. sérstökum samningi þar um. Slökkviliðið sér einnig um björgunarstörf á Suðurlandsvegi á svæði innan sveitarfélaganna Hveragerðis og Ölfus.
Slökkvistöð er staðsett i u.þ.b. 250 fermetra húsnæði við Austurmörk 20, Hveragerði.
Slökkviliðsmenn eru um 25 talsins
Slökkviliðsstjóri er Kristján Einarsson.
Varaslökkviliðsstjóri er Pétur Pétursson.