Íþróttamannvirki
Menningar- og frístundafulltrúi er yfirmaður íþróttamannvirkja.
Sundlaugin í Laugaskarði
Laugaskarði
810 Hveragerði
Sími: 483-4113
Opnunartími:
- Mánud.-fimmtud. 7:00-20:30
- Föstud. 7:00-17:30
- Laugard.-sunnud. 10:00-17:30
Börn og ungmenni yngri en 18 ára með lögheimili í Hveragerði eða stunda nám í Hveragerði fá frítt í sund.
Sagan
Sundlaugin í Laugaskarði er 50 metra löng og 12 metra breið og var um langa hríð langstærsta sundlaug landsins. Hún er svokölluð gegnumrennslislaug, hituð upp með jarðgufu, sem tryggir eðlilegt sýrustig og hreinleika vatnsins. Laugin er í skjólsælli hvilft sem veit gegn suðri, norðan Varmár.
Gæslumaður er ávallt á vakt við laugina og auk þess er myndavélakerfi til að auka öryggi sundlaugargesta. Þar er heit, grunn setlaug, heitur pottur með rafmagnsnuddi og náttúrulegt gufubað.
Laugin var byggð í tveimur áföngum, sá fyrri var 25x12 metrar og var tekinn í notkun árið 1938, en síðari hlutinn árið 1945. Í henni æfði íslenska landsliðið í sundi allt til 1966 þegar Laugardalslaugin í Reykjavík kom til sögunnar.
Það var Ungmennafélag Ölfushrepps sem beitti sér mest fyrir því að laugin var gerð og lögðu félagsmenn fram ómælda sjálfboðavinnu. Þeim bættist góður liðsauki þegar Lárus Rist sundkappi fluttist til Hveragerðis árið 1936 og má segja að hann hafi tekið forystu við uppbyggingu laugarinnar og réði meðal annars staðarvali.
Í dag er rekin líkamsræktaraðstaða í sundlauginni af íþróttafélaginu Hamri. Þar er vel búinn lyftingasalur ásamt sal sem nýtist fyrir s.s. spinning, yoga, karlaþrek osfv.
Hveragerðisbær annast allan rekstur og viðhald laugarinnar.
Stöðugildi sundlaugarinnar eru fjögur og hálft.
Upplýsingar varðandi æfingar og mót í sundlauginni má finna á heimasíðu Hamars www.hamarsport.is.
Íþróttahús Hveragerðis
við Skólamörk
810 Hveragerði
Sími: 483-4348
Stærð íþróttasalarins er 18x33 metrar, áhorfendastæði eru fyrir 240 manns og þar eru búnings- og baðklefar.
Húsið var byggt í tveimur áföngum og var fyrri áfangi tekinn í notkun 1976 en síðari áfangi 1984. Undir hálfu húsinu er kjallari með fjögurra metra lofthæð og þar er nú félagsmiðstöð með æfingaaðstöðu fyrir hljómsveitir. Lægri kjallari undir hinum helmingnum er nýttur sem geymsla.
Grunnskólinn í Hveragerði hefur afnot af húsinu á skólatíma til íþróttakennslu. Að skóla loknum hefur Íþróttafélagið Hamar afnot af húsinu og þar fer fram fjölbreytt íþróttastarf á vegum Hamars.
Hveragerðisbær annast allan rekstur og viðhald íþróttahússins.
Stöðugildi við íþróttahúsið eru þrjú og hálft.
Upplýsingar varðandi æfingar og mót í íþróttahúsinu má finna á heimasíðu Hamars www.hamarsport.is.
Íþróttavellir Hveragerðis
Grýluvöllur
norðan Hamars
810 Hveragerði
Grýluvöllur er aðalleikvangur meistaraflokks Hamars í knattspyrnu. Hann er 105m x 65m að stærð, grasstúka er fyrir áhorfendur
Æfingavöllur
sunnan Hamars
810 Hveragerði
Vallarhús Grýluvallar
norðan Hamars
810 Hveragerði
sími 482 7883
Æfingavöllurinn er 110m x 65m að stærð, þar fara fram flestar æfingar og mót fyrir yngri knattspyrnu iðkendur Hamars.
Golfklúbbur Hveragerðis annast slátt, sáningu, söndun og áburðargjafir.
Hveragerðisbær annast allan rekstur og viðhald íþróttavalla.
Upplýsingar varðandi æfingar og mót á völlunum má finna á heimasíðu Hamars www.hamarsport.is.