Menningar- og frístundasvið
Forstöðumaður: Jóhanna M. Hjartardóttir menningar- og frístundafulltrúi.
Sími: 483 4000
Netfang: jmh@hveragerdi.is
Staðsetning: Bæjarskrifstofan, Sunnumörk 2
Hlutverk: Þjónusta menningar- og frístundasviðs er að fara með málefni menningar-,íþrótta, tómstunda- og forvarnarmála í sveitarfélaginu og vera ráðgefandi til bæjarstjórnar um þau mál. Menningar- og frístundafulltrúi er framkvæmdastjóri menningar- íþrótta- og frístundanefndar Hveragerðisbæjar. Menningar- og frístundafulltrúi ber ábyrgð á rekstri menningar- og frístundasviðs bæjarins og þeirra stofnana sem undir það heyra, í samráði við bæjarstjóra. Menningar- og frístundafulltrúi hefur umsjón með framgangi menningar-, íþrótta- og frístundastarfsemi og hefur um það samstarf við félög, stofnanir og hópa sem starfa á því sviði þ.m.t. Menningarráð Suðurlands.
Eftirfarandi málaflokkar heyra undir menningar- og frístundafulltrúa:
Yfirumsjón með starfsemi:
- Bókasafns Hveragerðis
- Félagsmiðstöðvarinnar Skjálftaskjóls
- Íþróttahúss Hveragerðisbæjar
- Íþróttavalla, Grýluvallar, Hamarsvallar og gervigrasvallar v/íþróttahús
- Sundlaugarinnar í Laugaskarði
- Upplýsingamiðstöðvar Suðurlands
- hverasvæði
- Vinnuskóla Hveragerðisbæjar
- gæsluvallar
- skólagarða
- sumarvinnu unglinga
- Sumarskóla barna og unglinga, frístunda-, menningar- og íþróttatengd afþreying
Yfirumsjón með viðburðum:
- Sumardagurinn fyrsti
- 17. júní
- Blómstrandi dagar
- er tengjast jólum og áramótum
Menningar- og frístundafulltrúi hefur umsjón með upplýsinga- og kynningamálum sveitarfélagsins og þróun heimasíðu Hveragerðisbæjar. Menningar- og frístundafulltrúi gerir tillögur að fjárhagsáætlun til bæjarstjórnar, um þá liði hennar sem falla undir menningar- og frístundasvið, í samvinnu við forstöðumenn stofnana.
Menningar-, íþrótta- og frístundanefnd fara með málefni menningar- og frístundasviðs í umboði bæjarstjórnar.