Varmahlíðarhúsið
Úthlutunarreglur Varmahlíðarhúss
Á vegum menningar- og bókasafnsnefndar Hveragerðis starfar úthlutunarnefnd sem úthlutar listamönnum dvalartíma í Varmahlíðarhúsi.
1. grein
Úthlutunarnefnd skipa fjórir fulltrúar. Einn frá Samband íslenskra myndlistarmanna, einn frá Rithöfundarsambandi Íslands, einn frá Félagi íslenskra hljómlistarmanna og formaður menningarmálanefndar Hveragerðis sem jafnframt er formaður nefndarinnar.
2. grein
Húsinu er úthlutað einn mánuð í senn listamönnum að kostnaðarlausu.
Rithöfundum er úthlutað þremur mánuðum, myndlistarmönnum þremur mánuðum, tónlistarmönnum þremur mánuðum og Hveragerðisbær ráðstafar þremur mánuðum.
Hveragerðisbær áskilur sér rétt til að ráðstafa húsinu á annan hátt ef þess er þörf.
3. grein
Þeir sem hafa fengið úthlutað s.l. tvö ár hafa ekki forgang.
4. grein
Þeir sem úthlutun hljóta heimsæki skólana eða bókasafnið í Hveragerði með stutta kynningu um listsköpun sína og stuðli með þeim hætti að því að efla menningaráhuga uppvaxandi kynslóðar í Hveragerði.
5. grein
Tillögur úthlutunarnefndar skulu kynntar í menningarmálanefnd Hveragerðis.
Reglur þessar taka gildi frá og með 1.maí 2007.