Mikill áhugi á útboði
Fasteignafélag Hveragerðisbæjar hefur óskað eftir tilboðum í undirstöður og jarðvegsvinnu vegna Hamarshallarinnar í Hveragerði. Tilboð munu verða opnuð þann 12. janúar 2012, kl. 14.00. 26 fyrirtæki hafa þegar sótt útboðsgögn þannig að ljóst má vera að mikill áhugi er meðal verktaka fyrir þessari framkvæmd.
Fasteignafélag Hveragerðisbæjar hefur óskað eftir tilboðum í undirstöður og jarðvegsvinnu vegna Hamarshallarinnar í Hveragerði.
Útboðið er opið og munu tilboð verða opnuð þann 12. janúar 2012, kl. 14.00.
Um er að ræða loftborna fjölnota íþróttahöll á íþróttasvæði norðan Hamars í Hveragerði. Heildarstærð hússins er u.þ.b. 5.000m². Steyptir sökklar eru umhverfis bygginguna, þar sem tvöfaldur dúkur mun verða festur á þegar húsið verður reist. Þá er byggt aðstöðuhús innandyra með aðstöðu og salernum. Utanhúss verður byggt stakt inntakshús.
Útboðið snýr að jarðvinnu, uppsteypu sökkla og botnplötu, innanhússfrágangi, lögnum, raflögnum og frágangi lóðar. Aðrir verktakar en þetta útboð snýr að munu einnig koma að framkvæmdinni, t.d. framleiðendur hallarinnar, Duol, sem munu reisa yfirbygginguna. Jafnframt verktakar sem munu leggja gervigras inní höllina áður en hún verður reist og verktakar sem munu setja íþróttagólf í þann þriðjung þar sem fjölnotavöllur verður. Jarðvegsskipti hafa nú þegar átt sér stað á byggingareitnum, en þó er innifalið í verkinu að grafa fyrir sökklum, lögnum, o.fl.
Þegar þetta er ritað hafa 26 fyrirtæki sótt útboðsgögn á útboðsvef Verkís þannig að ljóst má vera að mikill áhugi er meðal verktaka á þessu verki.
Myndin er tekin þegar fyrsta skóflustungan var tekin að fyrirhuguðu íþróttahúsi við Grýluvöll.
Fleiri fréttir
-
15. May 2012Styrkur frá KSÍ vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja
-
14. May 2012Fjölmargir "Gengu saman" á sunnudag
-
09. May 2012Hugarflug og hugmyndir
-
30. Apr 2012Náttúran.is fær Kuðunginn
-
25. Apr 2012Forsætisráðherra Kína í heimsókn
-
24. Apr 2012Grunnskólinn hlaut umhverfisverðlaunin
-
17. Apr 2012Fjölbreytt dagskrá á sumardaginn fyrsta
-
16. Apr 2012Tröllastóll í Bókasafninu á morgun
-
30. Mar 2012Sundlaugin Laugaskarði um páskana
-
29. Mar 2012Framkvæmdir ganga vel við Hamarshöllina