Grunnskólinn hlaut umhverfisverðlaunin
Umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar voru afhent við hátíðlega athöfn á Sumardaginn fyrsta. Það var Grunnskólinn í Hveragerði sem hlaut verðlaunin þetta árið en starfsfólk og nemendur hafa undanfarin ár unnið markvisst að umhverfismálum og á fullveldisdaginn þann 1. desember s.l. afhenti fulltrúi Landverndar Grunnskólanum í Hveragerði Grænfánann sem tákn um framúrskarandi starf að umhverfismálum í skólanum.
Í máli Unnar Þormóðsdóttur, formanns bæjarráðs við afhendingu verðlaunanna kom fram að umhverfismál hafa ávallt skipt miklu máli en í nútíma samfélagi er lífsspursmál að gjörðir okkar spilli ekki umhverfi og möguleikum komandi kynslóða til að njóta þeirra gæða sem náttúran hefur gefið okkur öllum. Það er grundvallaratriði í umhverfismálum að börn og ungmenni séu alin upp við meðvitund um að jafnvel hin minnstu atriði skipta máli þegar kemur að umhverfismálum
Innan Grunnskólans hafa Garðar Árnason og Ari Eggertsson, kennarar, borið hitann og þungann af undirbúningi Grænfánans en svona viðurkenning er afrakstur umfangsmikillar undirbúningsvinnu og mikils vinnuframlags allra sem að verkefninu hafa komið. Það var forseti Íslands hr. Ólaf Ragnar Grímsson sem venju samkvæmt afhenti umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar árið 2012.
Myndina tók Guðríður Helgadóttir en á henni má sjá þá Ara, Garðar, Guðjón skólastjóra, hr. Ólaf Ragnar Grímsson og Unni formann bæjarráðs.
fleiri fréttir
-
17. maí 2013Sýningin "Blóm í bæ" verður haldin árið 2014
-
17. maí 2013Danskt kaffihús í Grunnskólanum
-
17. maí 2013Regnbogafáni dreginn að húni
-
14. maí 2013Vinnuskóli og sumarnámskeið fyrir börn og ungmenni
-
10. maí 2013Góð niðurstaða rekstrar
-
07. maí 2013Bein útsending frá bæjarstjórnarfundi
-
30. apr 2013Sara Riel í Listasafninu 1. maí
-
30. apr 2013Menningarstund í kvöld
-
26. apr 2013Sundlaugin opin eftir framkvæmdir
-
26. apr 2013Björn Pálsson hlýtur umhverfisviðurkenninguna 2013