Styrktarsýning á Línu langsokk

skrifað 24. apr 2012
byrjar 27. apr 2012
 

Föstudaginn 27. apríl klukkan 18.00 verður sérstök styrktarsýning á leikritinu um Línu Langsokk í Hveragerði.

Þannig er, að einn af ungu leikurunum okkar, Thelma Dís, sem leikur einn af skólakrökkunum í leikritinu var að greinast með illkynja krabbamein í fæti. Allur ágóði af þessari sýningu rennur óskiptur til Thelmu og hennar fjölskyldu. Hjá henni tekur nú við erfið lyfjameðferð og með þessu framlagi vill Leikfélagið leggja sitt af mörkum til að létta undir með fjölskyldunni og senda henni styrk og hvatningu.

Þeir sem ekki komast á sýninguna geta lagt inn á reikning Leikfélagsins upphæð að eigin vali sem leggst að sjálfsögðu við innkomu föstudagsins. Reiknisnúmerið er: 0314-26-043671 kt: 451078-2599

Stjórn Leikfélags Hveragerðis