Ræktun erfðabreyttra lífvera
Bæjarráð undrast það að ekki skuli hafa verið leitað álits Hveragerðisbæjar við útgáfu starfsleyfis til handa Orf líftækni að Reykjum. Bæjarstjóra falið að óska eftir fundi með hlutaðeigandi aðilum.
Á fundi bæjarráðs í morgun var lögð fram greinargerð frá tíu stofnunum, samtökum og einstaklingumþar sem fjallað er um forsendur og álitamál vegna starfsleyfis fyrirhugaðrar ræktunar Orf líftækni hf að Reykjum. Ennfremur var á fundinum lögð fram skýrsla unnin af „Kynningarátaki um erfðabreyttar lífverur“ en að því standa Landvernd, Matvæla- og veitingafélag Íslands, Náttúrulækningafélag Íslands, Neytendasamtökin, Slow food Reykjavík og Vottunarstofan Tún.
Afgreiðsla bæjarráðs var eftirfarandi:
Bæjarráð undrast það að ekki skuli hafa verið leitað álits Hveragerðisbæjar við útgáfu starfsleyfis til handa Orf líftækni að Reykjum og telur að skilyrðislaust hefði átt að kynna þetta mál fyrir bæjarstjórn eða á opnum fundi með íbúum. Þrátt fyrir að Reykir tilheyri sveitarfélaginu Ölfusi, stjórnsýslulega séð, þá eru landfræðilegar aðstæður með þeim hætti að allt sem þar gerist hefur áhrif í Hveragerði enda eru ekki nema 150 metrar frá umræddu tilraunagróðurhúsi í næsta íbúðarhús bæjarins og um 350 metrar í miðbæinn. Þessi staðreynd ein og sér ætti að nægja til að Hvergerðingum yrði kynnt hvernig starfsemi Orf líftækni á að fara fram. Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fundi með hlutaðeigandi aðilum sem skýrt getur þau sjónarmið sem búa að baki umræddri leyfisveitingu
Fleiri fréttir
-
22. feb 2012Öskudagsfjör
-
16. feb 2012Standa eða bíða eftir næsta vagni
-
16. feb 2012Framkvæmdir við Hamarshöll komnar í gang
-
13. feb 2012Útsvarsliðið hefur lokið keppni
-
07. feb 2012Dagur leikskólans í Undralandi
-
06. feb 2012Leikskóladagurinn haldinn hátíðlegur
-
03. feb 2012Mikil ánægja með "Skólahreysti"
-
31. jan 2012Hvergerðingar Norðurlandameistarar
-
18. jan 2012Þjónustusamningur við HSSH endurnýjaður
-
17. jan 2012Söngatriði Skjálftaskjóls áfram í USSS