Meirihluti íbúa vill sameiningu
skrifað 03. jún 2014
Skoðanakönnun um sameiningarmál í Hveragerði
Samhliða sveitarstjórnarkosningunum síðastliðinn laugardag fór fram ráðgefandi skoðanakönnun um sameiningarmál.
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar var sú að 704 eða 63% vildu að Hveragerði myndi sameinast öðru sveitarfélagi en 383 eða 34% sögðu nei. 30 seðlar voru auðir.
Þátt tóku 1117 einstaklingar en á kjörskrá voru 1787. Kosningaþátttaka var 62,5 %
Í skoðanakönnuninni gátu þátttakendur valið á milli fimm sameiningarkosta og eru niðurstöður eftirfarandi:
- 69,74% þeirra sem tóku þátt völdu sameiningu Hveragerðis og Ölfuss sem vænlegasta kost.
- 10,94 % völdu sameiningu vesturhluta Árnessýslu (Hveragerði, Flói, Árborg, Ölfus)
- 9,8% völdu Árnessýslu alla
- 3,69% völdu Suðurland í heild sinni
- 2.98% völdu Árnessýslu utan Árborgar
- 14 kusu án þess að tilgreina valkost og 6 einstaklingar völdu fleiri en einn valkost.
Afgerandi niðurstaða liggur því fyrir í skoðanakönnuninni og mun bæjarstjórn taka skoðanakönnunina til afgreiðslu á fyrsta fundi sínum.
Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri
fleiri fréttir
-
23. apr 2018Góð heimsókn á bæjarskrifstofu
-
20. apr 2018Umhverfisverðlaunin til nemenda 7. bekkjar
-
17. apr 2018Auka græn tunna ókeypis út árið ef þarf
-
17. apr 2018Sumri fagnað í blómabænum
-
27. mar 2018Suðurlandsmeistarar í skák
-
26. mar 2018Páskar í Hveragerði
-
20. mar 2018Handverk og hugvit með tryggt húsnæði
-
14. mar 2018Smásögur Kiefer og Freydísar verðlaunaðar
-
07. mar 2018Nýjar og endurbættar stefnur samþykktar
-
20. feb 2018Bungubrekka skal húsið heita