Hugarflug og hugmyndir
Fjöldi hugmynda fæddist á hugarflugsfundi bæjarbúa í gærkvöldi þar sem rætt var um hátíðir og uppákomur hér í Hveragerði. Sérstaklega var fjallað um Blómstrandi daga og Garðyrkju- og blómasýninguna Blóm í bæ en einnig var farið vítt og breitt yfir svið annarra hátíða.
Um 30 manns mætti á fundinn og var hópnum skipt á fimm borð sem öll fjölluðu um sömu lykispurningarnar. Var greinilegt á hlátrasköllum og orðaskiptum að fólk skemmti sér hið besta. Sérstaklega ánægjulegt var að á fundinn mætti hópur ungmenna frá félagsmiðstöðinni sem tók virkan þátt í fundinum og kom með fjölmargar gagnlegar ábendingar.
Nú er það verkefni næstu vikna og missera að vinna úr þeim gagnabanka sem þarna varð til.
Ef bæjarbúar luma á fleiri hugmyndum eða tillögum endilega sendið þær annað hvort til bæjarstjóra aldis@hveragerdi.is eða til menningar og frístundafulltrúa jmh@hveragerdi.is.
Á meðfylgjandi mynd má sjá hópinn sem tók þátt í fundinum en þeim er hér með þakkað kærlega fyrir þátttökuna og þeirra framlag til betra bæjarfélags.
fleiri fréttir
-
17. maí 2013Sýningin "Blóm í bæ" verður haldin árið 2014
-
17. maí 2013Danskt kaffihús í Grunnskólanum
-
17. maí 2013Regnbogafáni dreginn að húni
-
14. maí 2013Vinnuskóli og sumarnámskeið fyrir börn og ungmenni
-
10. maí 2013Góð niðurstaða rekstrar
-
07. maí 2013Bein útsending frá bæjarstjórnarfundi
-
30. apr 2013Sara Riel í Listasafninu 1. maí
-
30. apr 2013Menningarstund í kvöld
-
26. apr 2013Sundlaugin opin eftir framkvæmdir
-
26. apr 2013Björn Pálsson hlýtur umhverfisviðurkenninguna 2013