Hamingjudagar í grunnskólanum
Frétt af heimasíðu Grunnskólans:
Dagana 6. 7. og 8. mars voru þemadagar á yngsta stigi. Yfirskriftin var hamingjan og var unnið með hugtakið á fjölbreyttan hátt. Öllum nemendum var skipt í þrjá stóra hópa sem fóru á þrjár stöðvar, þar sem þeim var aftur skipt í minni hópa. Hóparnir fóru á nýja stöð á hverjum degi þar sem þeir fengust við margvísleg verkefni.
Farið var í sáningarferð í gróðurhúsið sem við höfum aðgang að á Landbúnaðarháskólanum á Reykjum í Ölfusi. Þar var einnig farið í Bananahúsið og tilraunahúsið og m.a. skoðað erfðabreytt bygg. Á sömu stöð fóru nemendur í smiðjur og saumuðu og smíðuðu gripi sem þau skreyttu með orðum sem tengjast hamingjunni. Í myndmennt sköpuðu nemendur hamingjuhnött þar sem allir íbúar voru að sjálfsögðu mjög hamingjusamir.
Í Mjólkurbúinu þar sem 1. bekkur er til húsa var farið í yoga, kennt að nudda bakið á næsta manni og litaðar mandölur við rólega tónlist sem á að vera afar slakandi og gera fólk hamingjusamt. Farið var í Art þar sem útbúnar voru hamingjusamar persónur í fullri stærð. Í íþróttahúsinu var farið í Tarsanleik þar sem allir fengu góða útrás og urðu þar af leiðandi mun hamingjusamari.
Inni í „stóra“ skóla var farið í tónmennt þar sem sungin voru lög sem tengjast hamingjunni, dansað, breikað og trallað. Á þeirri stöð voru hengdar upp trjágreinar sem voru skreyttar með vaxi og hjörtum sem á voru skrifuð jákvæð orð. Síðast en ekki síst voru bakaðar hamingjumúffur sem bornar voru fram í foreldrakaffinu sem haldið var þann 9. mars.
Þessir dagar hafa tekist mjög vel og gert skólastarfið venju fremur skapandi og skemmtilegt. Nemendur hafa verið afar áhugasamir og tekið þátt af lífi og sál. Afraksturinn er hægt að skoða á ganginum fyrir framan stofurnar á neðri gangi í „stóra skólanum“.
Það var ákaflega ánægulegt að sjá hve margir foreldrar sáu sér fært að koma þann 9. mars og skoða afraksturinn og þiggja kaffi og hamingjumúffur. Takk fyrir komuna.
Erna Ingvarsdóttir
fleiri fréttir
-
17. maí 2013Sýningin "Blóm í bæ" verður haldin árið 2014
-
17. maí 2013Danskt kaffihús í Grunnskólanum
-
17. maí 2013Regnbogafáni dreginn að húni
-
14. maí 2013Vinnuskóli og sumarnámskeið fyrir börn og ungmenni
-
10. maí 2013Góð niðurstaða rekstrar
-
07. maí 2013Bein útsending frá bæjarstjórnarfundi
-
30. apr 2013Sara Riel í Listasafninu 1. maí
-
30. apr 2013Menningarstund í kvöld
-
26. apr 2013Sundlaugin opin eftir framkvæmdir
-
26. apr 2013Björn Pálsson hlýtur umhverfisviðurkenninguna 2013