Grunnskólinn í alþjóðlegt samstarf
Nýlega fékk Grunnskólinn í Hveragerði styrk til að vinna að spennandi Comeniusarverkefni ásamt 5 skólum í Evrópu. Samstarfsskólarnir eru frá Englandi, Frakklandi, Noregi og tveir skólar frá Írlandi og mun verkefnið standa yfir næstu tvö árin. Það snýst í örstuttu máli um að auka umhverfisvitund nemenda, sem hentar vel með þeirri vinnu sem nú þegar er farin af stað í tengslum við Grænfánann, sem skólinn flaggaði fyrir stuttu. Comenius er skólastarfshluti Menntaáætlunar Evrópusambandsins og miðar að því að koma á gæðastarfi í skólum og auka Evrópuvitund í menntun.
Tvö verkefni eru þegar hafin og fleiri bætast við á næsta ári. Nemendur í 5. bekk fengu bréf frá samstarfsskólanum í Noregi og hafa þegar skrifað þeim til baka. Einnig áttu nokkrir nemendur í 5. bekk bein samskipti við nemendur í enska skólanum í gegnum Skype. Það heppnaðist gríðarlega vel og stefnt er að því að fleiri nemendur muni gera slíkt hið sama í janúar.
Fljótlega á nýju ári verður kynning á verkefninu í skólanum fyrir alla nemendur skólans, foreldra og áhugasama bæjarbúa. Í janúar bætast svo fleiri verkefni við, t.d. verkefni tengt rusli og endurvinnslu, en tveir kennarar Grunnskólans í Hveragerði fóru nýlega til Englands og skoðuðu þar endurvinnslusvæði, ásamt nemendum enska skólans. Ensku nemendurnir unnu í kjölfarið verkefni tengt því sem þeir sáu þar, skv. kjörorðunum: Reduce, Reuse; Recycle og munu nemendur í Grunnskólanum í Hveragerði vinna svipað verkefni.
Bestu kveðjur, Ólafur Jósefsson og Viktoría Sif Kristinsdóttir
Myndirnar sýna nemendur í Grunnskólanum í Hveragerði og einnig nemendur í Englandi á kynningarfundi um verkefnið þar.
Fleiri fréttir
-
15. May 2012Styrkur frá KSÍ vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja
-
14. May 2012Fjölmargir "Gengu saman" á sunnudag
-
09. May 2012Hugarflug og hugmyndir
-
30. Apr 2012Náttúran.is fær Kuðunginn
-
25. Apr 2012Forsætisráðherra Kína í heimsókn
-
24. Apr 2012Grunnskólinn hlaut umhverfisverðlaunin
-
17. Apr 2012Fjölbreytt dagskrá á sumardaginn fyrsta
-
16. Apr 2012Tröllastóll í Bókasafninu á morgun
-
30. Mar 2012Sundlaugin Laugaskarði um páskana
-
29. Mar 2012Framkvæmdir ganga vel við Hamarshöllina