Framkvæmdir við Hamarshöll komnar í gang
Framkvæmdir við byggingu Hamarshallarinnar eru nú komnar í fullan gang. Samið hefur verið við Trésmíðar Sæmundar ehf. um uppsteypu á undirstöðum og gólfum ásamt öðrum frágangi við höllina. Gólfefnin í höllina, gervigras og boltagólf hafa nú þegar verið boðin út og er lægstbjóðandi fyrirtækið Sport-Tæki ehf, sem staðsett er í Hveragerði. Áætlað er að allri uppsteypu og lagningu gervigrass ljúki í maí nk.
Yfirbyggingin sem er tvöfaldur loftborinn dúkur, verður svo væntanlega blásin upp í júlí nk. Gert er ráð fyrir að höllin verði fullfrágengin með boltagólfi, aðstöðuhúsi og öðrum frágangi í september nk. Samhliða byggingu hallarinnar verður lagður malbikaður göngustígur frá Laufskógum að íþróttasvæðinu norðan Hamars.
Meðfylgjandi eru myndir ,sem teknar voru á byggingarstað og á skýringafundi með lægstbjóðanda í gólfefnin.
Fleiri fréttir
-
15. May 2012Styrkur frá KSÍ vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja
-
14. May 2012Fjölmargir "Gengu saman" á sunnudag
-
09. May 2012Hugarflug og hugmyndir
-
30. Apr 2012Náttúran.is fær Kuðunginn
-
25. Apr 2012Forsætisráðherra Kína í heimsókn
-
24. Apr 2012Grunnskólinn hlaut umhverfisverðlaunin
-
17. Apr 2012Fjölbreytt dagskrá á sumardaginn fyrsta
-
16. Apr 2012Tröllastóll í Bókasafninu á morgun
-
30. Mar 2012Sundlaugin Laugaskarði um páskana
-
29. Mar 2012Framkvæmdir ganga vel við Hamarshöllina