logo_prufa
  •  Forsíða 
  •  Veftré 
  •  Hafa samband 
  •  Póstlisti 
  •  Hveragerðisbær 
  •  Mannlíf
    •  Atvinnulíf 
    •  Félagasamtök 
    •  Menning og listir 
    •  Íþróttir og útivist 
    •  Ágrip af sögu Hveragerðisbæjar 
    •  Heilsugæsla og heilbrigðiseftirlit 
    •  Vinabæir 
    •  Kirkju- og safnaðarstarf 
     
  •  Ferðamenn 
  •  Þjónusta 
  •  English 

Skógræktarkvöld

skrifað 10. jún 2011

Þriðjudaginn 14. júní næstkomandi kl. 20 verður útplöntunarkvöld hjá Skógræktarfélagi Hveragerðis. Ætlunin er að planta út trjám og snyrta til í brekkunni fyrir ofan svæðið þar sem Ullarþvottastöðin stóð áður við Dynskóga. Allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til að koma á staðinn og leggja hönd á plóginn. Félagsmenn eru sérstaklega hvattir til að mæta en allir Hvergerðingar sem áhuga hafa eru velkomnir.Skógræktarsvæðið okkar mun verða í sviðsljósinu á sýningunni Blóm í bæ að þessu sinni þar sem 2011 er ár skógarins og...

Hallfríður Ólafsdóttir segir frá Maxímús Músíkús í Bókasafninu í Hveragerði

skrifað 10. ágú 2010

***|* Hallfríður, sem er mikill bókaormur, veit allt um Maxímús því hún er höfundur bókanna um hann ásamt Þórarni Má Baldurssyni sem teiknar myndirnar. Bæði eru þau hljóðfæraleikarar í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þau hlutu Barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar fyrir bækurnar í fyrra en þær heita Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina og Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann. Þær kynna börnunum sígilda tónlist og hin ýmsu hljóðfæri og eru bráðskemmtilegar. Hallfríður dvelur nú í listamannahúsinu Varmahlíð og vinnur að...

Framkvæmdir ganga vel við Hamarshöllina

Sæmundar hugar að járnum í sökklunum.
skrifað 29. mar 2012

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum ganga framkvæmdir við undirstöður Hamarshallarinnar vel og er verkið á áætlun. Há grunnvatnsstaða gerði verktakanum lífið leitt í upphafi verksins en nú hafa aðstæður allar breyst til hins betra og er grunnvatnshæð nú undir yfirborði fyllingar undir sökkulfæti í skurðunum. Miðar verkinu vel áfram. Það er Trésmiðja Sæmundar í Þorlákshöfn sem sér um framkvæmdina en á næstu þremur vikum er gert ráð fyrir að búið verði að steypa megnið af sökklum og að vinna við lagnir verði hafin.

Sýningin "Myndin af Þingvöllum"

skrifað 09. jún 2011

Einar Garibaldi ræðir við gesti um sýninguna MYNDIN AF ÞINGVÖLLUM laugardaginn 11. júní kl. 14:00 í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Enginn staður á Íslandi hefur verið jafn vinsæl fyrirmynd íslenskra listamanna og Þingvellir. Í Listasafni Árnesinga má nú líta tilraun til þess að veita yfirsýn á þær fjölbreyttu birtingarmyndir sem Þingvellir hafa í íslenskri myndlist sem og hönnun, kortagerð, ljósmyndun, ferðabókum og fjölmiðlun samtímans. Sýningarstjóri er myndlistarmaðurinn Einar Garibaldi Eiríksson, en hann hefur sett saman...

"Sterkasti maður Íslands" við Eden

skrifað 06. ágú 2010

Keppnin "Sterkasti maður Íslands" verður á planinu fyrir framan Eden kl. 16 á morgun, laugardag. Nú er um að gera að mæta og fylgjast með tröllslegum tilburðum kraftajöfnanna. Allir velkomnir !

Samningur endurnýjaður við Golfara

Helga, staðgengill bæjarstjóra  og Erlingur formaður GHG undirrita samninginn.
skrifað 03. jan 2012

Endurnýjaður hefur verið þjónustusamningur á milli Hveragerðisbæjar og Golfklúbbs Hveragerðis. Samningurinn gildir til ársloka 2014 og er heildarverðmæti samningsins tæpar 19 milljónir.

Hveragerðisbær auglýsir laust starf félagsráðgjafa.

skrifað 02. des 2010

Í Hveragerði búa rúmlega 2300 íbúar og hefur sveitarfélagið verið í örum vexti undanfarin ár. Hveragerði býður upp á kyrrð og náttúrufegurð en möguleikar til fjölbreyttrar útivistar eru óvíða meiri. Í Hveragerði er blómlegt íþrótta- og tómstundastarf fyrir alla aldurshópa auk þess sem bærinn státar af öflugu skólastarfi. Öll þjónusta er eins og best verður á kosið og stutt að sækja höfuðborgarsvæðið heim. Bæjaryfirvöld hafa sett sér metnaðarfulla stefnu um uppbyggingu fjölskylduvæns ferðamanna- og heilsubæjar. Hveragerðisbær auglýsir laust...

Fréttatilkynning frá knattspyrnudeild Hamars

skrifað 06. ágú 2010

Knattspyrnudeild Hamars hefur tekið ákvörðun um að stofna 2. flokk karla fyrir næsta keppnistímabil! Þetta eru stór tíðindi fyrir Hamar og bæjarfélagið því 2. flokkur hefur ekki áður verið til staðar í Hveragerði. Upp úr 3. flokki eru að ganga margir efnilegir knattspyrnumenn sem nauðsynlegt er að halda vel utanum og við vonum að leikmenn sem leitað hafa í önnur félög undanfarin ár, eða hafa hætt, snúi aftur til baka. Allir leikmenn sem fæddir eru á árunum 1992, 1993 og 1994 eru gjaldgengir, en þar fyrir utan munu leikmenn U-23 liðsins fá að...

  • 03. jún 2011
    Kerrupúl í sumar
  • 29. mar 2012
    Nýir starfsmenn
  • 03. jan 2012
    Mikill áhugi á útboði
  • 07. feb 2012
    Dagur leikskólans í leikskólanum Undralandi
  • 04. ágú 2010
    ATH. breyttar dagsetningar VATNSLITIR - námskeið fyrir börn
  • 01. jún 2011
    Sundnámskeið í sumar
  • 27. júl 2010
    Svala Ólafsdóttir með erindi í Listasafni Árnesinga í dag
  • 01. jún 2011
    Starfsfólk óskast á heimili fatlaðra í Birkimörk
  • 01. des 2010
    Powerade bikar kvenna Hamar - Valur
  • 01. jún 2011
    Vatnslaust í Kambahrauni og Borgarhrauni
  • 23. júl 2010
    Sýningin ÁR: málverkið á tímum straumvatna
  • 31. maí 2011
    Vinnuskólinn byrjar mánudaginn 6. júní
  • 22. júl 2010
    Gæsluvöllur lokaður 29. júlí - 2. ágúst
  • 02. jan 2012
    Uppskeruhátíð íþróttamanna
  • 21. júl 2010
    Markaður á blómstrandi dögum
  • 27. maí 2011
    Laust starf á Undralandi
  • 19. mar 2012
    Þjónustusamningur endurnýjaður við Skátafélagið Strók
  • 30. nóv 2010
    Orðlist og tónlist í Listasafninu
  • 14. mar 2012
    Viltu veiða í Varmá ?
  • 30. des 2011
    Strætó á Suðurlandi - Akstur um áramót
12345678910111213141516171819202122232425
 
Mannlíf / Fréttir
 

Facebook logo Hveragerðisbær | Sunnumörk 2 | 810 Hveragerði | Sími 483 4000 | Fax 483 4801 | hve@hveragerdi.is | kt. 650169 4849 | Fréttir