logo_prufa
  •  Forsíða 
  •  Veftré 
  •  Hafa samband 
  •  Póstlisti 
  •  Hveragerðisbær 
  •  Mannlíf
    •  Atvinnulíf 
    •  Félagasamtök 
    •  Menning og listir 
    •  Íþróttir og útivist 
    •  Ágrip af sögu Hveragerðisbæjar 
    •  Heilsugæsla og heilbrigðiseftirlit 
    •  Vinabæir 
    •  Kirkju- og safnaðarstarf 
     
  •  Ferðamenn 
  •  Þjónusta 
  •  English 

Fjölmargir "Gengu saman" á sunnudag

Marianne Nielsen og Erna Ingvarsdóttir leiddu gönguna og skiplögðu en Fríða Margrét dóttir Ernu er hér glaðbeitt í forystu.
skrifað 14. maí 2012

Þrátt fyrir strekkingsvind víða um land voru þeir fjölmörgu sem tóku þátt í göngu á vegum "Göngum saman" hópsins ánægðir með að Reykjafjallið skýldi fyrir verstu norðanáttinni þegar gengið var hér í Hveragerði á sunnudaginn síðasta. Göngumenn voru frá Hveragerði, Selfossi og Reykjavík og góð stemning myndaðist í hópnum. Bolir, buff og aðrir hlutir merktir Göngum saman runnu út og á eftir var öllum boðið ókeypis í sund í Laugaskarði. Eftirfarandi er að heimasíðu "Göngum saman" hópsins: Styrktarfélagið Göngum saman hefur það að markmiði að...

Söfnun og endurvinnsla jólatrjáa

skrifað 05. jan 2011

Mánudaginn 10. janúar munu fulltrúar frá körfuknattleiksdeild Hamars fara um bæinn og safna saman jólatrjám og flytja að gámastöðinni. Jólatrén verða kurluð og nýtast síðan í (moltu), göngustíga og beð. Þannig fær gamla jólatréð nýtt hlutverk við að næra og hlúa að nýju lífi á sumri komanda. Komið jólatrjánum út fyrir garð þannig að verði auðveldara að safna þeim saman.

Breyttur afgreiðslutími í Upplýsingamiðstöð

skrifað 04. jan 2011

Frá og með 10. janúar nk. verður Upplýsingamiðstöð ferðamála á Suðurlandi og Pósturinn opin alla virka daga á milli kl. 8:30 og 16:00.

Hugarflug og hugmyndir

Heimskaffi
skrifað 09. maí 2012

Fjöldi hugmynda fæddist á hugarflugsfundi bæjarbúa í gærkvöldi þar sem rætt var um hátíðir og uppákomur hér í Hveragerði. Sérstaklega var fjallað um Blómstrandi daga og Garðyrkju- og blómasýninguna Blóm í bæ en einnig var farið vítt og breitt yfir svið annarra hátíða. Um 30 manns mætti á fundinn og var hópnum skipt á fimm borð sem öll fjölluðu um sömu lykispurningarnar. Var greinilegt á hlátrasköllum og orðaskiptum að fólk skemmti sér hið besta. Sérstaklega ánægjulegt var að á fundinn mætti hópur ungmenna frá félagsmiðstöðinni sem tók...

Þrettándagleði á Fossflöt

skrifað 04. jan 2011

Kátt er á Fossflöt á þrettándanum Jólin verða kvödd á þrettándanum með blysför frá kirkjunni kl. 18:00 og gengið í fylkingu að Fossflöt. Félagasamtök í bænum verða virkir þátttakendur í gleðinni ásamt bæjarbúum. Álfar, tröll og jólasveinar syngja og bregða á leik. Allir eru hvattir til að koma í búningum til að skapa sanna þrettánda stemmningu. Flugeldasýning í umsjón HSSH.

Ný gjaldskrá í sundlauginni um áramót

skrifað 30. des 2010

Sundlaugin Laugaskarði Gjaldskrá frá og með 1. janúar 2011 Fullorðnir kr. 400 Börn kr. 160 10 miða afsláttarkort fullorðnir kr. 2.800 10 miða afsláttarkort börn kr. 800 30 miða afsláttarkort fullorðnir kr. 6.200 6 mán. kort kr. 13.000 Árskort kr. 25.000 Leiga: Sundföt kr. 350 Handklæði kr. 350 Menningar- og frístundafulltrúi

Arkitektar eða listamenn framtíðarinnar?

skrifað 19. okt 2010

Ljósmyndasýningu Guðmundar Erlingssonar í Bókasafninu í Hveragerði er nú lokið, en aðsókn að henni var einstaklega góð. Nú hafa verið settar upp myndir frá nemendum í 3. og 4. bekk Grunnskólans í Hveragerði. Þar má m.a. líta æfingar í þrívíddarteikningu og litablöndun ásamt litskrúðugum myndum með frjálsri aðferð. Það er líflegt að sjá þessar myndir á veggjunum, en þar sem sýningartíminn er stuttur er um að gera að drífa sig að koma og skoða. Myndirnar munu hanga uppi fram að safnahelgi sem hefst 5. nóvember. Safnið er opið virka daga kl....

Náttúran.is fær Kuðunginn

Kudungurinn
skrifað 30. apr 2012

Eigendur vefsins www.natturan.is, þau Guðrún Tryggvadóttir og Einar Bergmundur Arnbjörnsson, fengu á dögunum umhverfisverðlaunin Kuðunginn sem Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra afhenti við hátíðlega athöfn. Við Hvergerðingar höfum löngum eignað okkur íbúana handan Varmár og gerum það í þetta sinn einnig en þau Guðrún og Einar búa í Breiðahvammi. Eru þeim hér með færðar innilegar hamingjuóskir í tilefni af þessari viðurkenningu.

Á heimasíðu ráðuneytisins kemur eftirfarandi m.a. fram:

*Náttúran.is hlaut Kuðunginn fyrir samnefnda „framúrskarandi vefsíðu um umhverfismál, og jákvæð áhrif þess á almenning og fyrirtæki.“ Segir í rökstuðningi valnefndar að stofnendur og eigendur hennar séu brautryðjendur á þessum vettvangi „knúin áfram af áhuga og umhyggju fyrir náttúrunni og umhverfinu.“

„Vefsíðan hefur innleitt nýja hugsun í umhverfisvitund Íslendinga. Þar eru á einum stað aðgengilegar leiðbeiningar sem auðvelda fólki að taka upp sjálfbæran og umhverfisvænni lífsstíl.

Vefurinn gengir mikilvægu hlutverki í upplýsingamiðlun og menntun almennings og fyrirtækja. Þar er hægt að fá upplýsingar um umhverfismál heimilisins, um orkusparnað, vistvæn innkaup, betri nýtingu matvæla, sorpflokkun, um hvernig skuli flokka hluti og hvar sé hægt að skila hverjum hlut, þar er að finna skilgreiningar á hverjum flokki fyrir sig, sem oft vefst fyrir fólki. Einnig geymir vefurinn fróðleik um hvernig hægt sé að forðast hættuleg efni við innkaup á vörum, þar er yfirlit yfir aukaefni í matvörum og skilgreiningar á umhverfismerkingum.“

Þá opnaði ráðherra í dag nýtt Endurvinnslukort Náttúrunnar.is sem sérstaklega er hannað fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Tilgangur Endurvinnslukortsins er að gefa almenningi nákvæmt yfirlit yfir hvar á landinu sé tekið við hvaða úrgangsflokkum til endurvinnslu. Það er öllum aðgengilegt, bæði á íslensku og ensku án endurgjalds, og verður að finna á www.natturan.is á næstu dögum.*

Fréttin á heimasíðu ráðuneytisins

Myndin af þeim Guðrúnu og Einari ásamt Svandísi Svavarsdóttir er fengin að láni af heimasíðu ráðuneytisins.

  • 02. sep 2011
    ALMYNSTUR
  • 18. okt 2010
    Ritverk og úrklippusafn Bjargar Einarsdóttur í bókasafninu.
  • 31. ágú 2011
    Félagakynning í Grunnskólanum
  • 29. des 2010
    Fundur bæjarstjórnar 30. desember.
  • 13. okt 2010
    Menningarganga sunnudaginn 17. október
  • 31. ágú 2011
    Fyrsta prjónakaffi haustsins í Bókasafninu í Hveragerði
  • 06. okt 2010
    Körfuboltavika í Hveragerði!!!
  • 13. jan 2012
    Tilboð opnuð í undirstöður Hamarshallarinnar
  • 05. okt 2010
    Vilt þú starfa með öflugri hjálparsveit
  • 27. des 2010
    Dreifingarkassar Fréttablaðsins um áramót.
  • 31. ágú 2011
    Myndlistarsýning Helgu Haraldsdóttur í Bókasafninu opnar 2. september
  • 23. des 2010
    Íþróttamenn ársins 2010
  • 31. ágú 2011
    íþrótta- og tómstundakynning - afþreying í vetur
  • 01. okt 2010
    Bókasafnið lokað
  • 25. apr 2012
    Forsætisráðherra Kína í heimsókn
  • 23. ágú 2011
    Sundlaugin opnar kl 10 í dag
  • 30. sep 2010
    Prjónakaffi á mánudaginn 4. október
  • 27. sep 2010
    Reglur um útivistartíma barna.
  • 22. ágú 2011
    Umsóknir um dvöl í Varmahlíð
  • 16. des 2010
    Fundur bæjarstjórnar 16. desember
12345678910111213141516171819202122232425
 
Mannlíf / Fréttir
 

Facebook logo Hveragerðisbær | Sunnumörk 2 | 810 Hveragerði | Sími 483 4000 | Fax 483 4801 | hve@hveragerdi.is | kt. 650169 4849 | Fréttir