logo_prufa
  •  Forsíða 
  •  Veftré 
  •  Hafa samband 
  •  Póstlisti 
  •  Hveragerðisbær 
  •  Mannlíf
    •  Atvinnulíf 
    •  Félagasamtök 
    •  Menning og listir 
    •  Íþróttir og útivist 
    •  Ágrip af sögu Hveragerðisbæjar 
    •  Heilsugæsla og heilbrigðiseftirlit 
    •  Vinabæir 
    •  Kirkju- og safnaðarstarf 
     
  •  Ferðamenn 
  •  Þjónusta 
  •  English 

Um flokkun sorps!

thumb_litiltunna
skrifað 10. des 2012

Í Hveragerði er sorp flokkað í þrjár tunnur með það að markmiði að minnka það sorp sem fer í kostnaðarsama og óumhverfisvæna urðun í samræmi við lög og reglur þar um. Hefur flokkunin gengið afar vel og sem dæmi má nefna þá hefur rétt rúmlega 50% sorps Hvergerðinga farið í endurvinnslu farveg á undanförnum árum. Verður þetta að teljast afar góður árangur og ljóst er að bæjarbúum er umhugað um umhverfi sitt og náttúru. Enn er þó hægt að gera betur og því er brýnt að ítreka reglur um flokkun sem í gildi eru í bæjarfélaginu. Við hverja íbúð...

Samningur gerður við foreldra

Frá undirritun samnings við foreldrafélag Grunnskólans.
skrifað 10. des 2012

Samningur milli Hveragerðisbæjar og Foreldrafélags Grunnskólans var undirritaður nýverið. Í samningnum er kveðið á um framlag Hveragerðisbæjar til félagsins sem árlega nemur 350 þúsund krónum.

Piparkökubakstur á Óskalandi

Piparkökubakstur á Óskalandi
skrifað 07. des 2012

Miðvikudaginn 5.desember voru bakaðar piparkökur í Óskalandi. Mikil einbeiting ríkti og vönduðu allir sig við baksturinn.Allir komust í jólaskap við að finna bökunarilminn. Kökurnar voru svo borðaðar við bestu lyst í síðdegiskaffinu.

Föndur á Óskalandi

Jólaföndur í Óskalandi
skrifað 07. des 2012

Opið hús/föndurdagur var haldinn í Óskalandi 20.nóvember. Mjög góð mæting var og áttu allir notalega stund með börnum sínum við jólaföndrið.

Hveragerði vel undir "skuldaþakinu"

skrifað 06. des 2012

Fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2013 er unnin með það að markmiði að íbúum Hveragerðisbæjar verði tryggð besta mögulega þjónusta og að reynt verði eftir fremsta megni að halda álögum í sem bestu samræmi við það sem gerist í samanburðarsveitarfélögum.

Jólaföndur á Undralandi

Segulkubbarnir frá Foreldrafélaginu eru vinsælir.
skrifað 06. des 2012

Í dag er jólaföndur í leikskólanum Undralandi og að venju eru foreldrar duglegir að mæta með börnum sínum og eiga huggulega stund við að föndra. Hugmyndaflugið er greinilega vel virkt í þessum stundum og ýmsir munir búnir til sem nýtast til skreytinga heima fyrir. Á afmæli leikskólans í haust fékk skólinn veglega peningagjöf frá foreldrafélagi leikskólans. Nú eru segulkubbarnir sem keyptir voru fyrir peninginn komnir í hús og börnin farin að prófa sig áfram með kubbana. Jólakveðja Ingveldur

Jólagluggarnir opnast hver af öðrum

Fyrsti jólaglugginn opnaðist við skátaheimilið
skrifað 05. des 2012

Í dag var opnaður fimmti jólaglugginn í jóladagatali bæjarins. Leikskólabörn frá Undralandi komu við opnunina sem var í Hverabakaríi. Börnunum var boðið upp á góðgæti og brostu þau sínu blíðasta af spenningi þegar Fríða Ágústa afhjúpaði jólagluggann en þema gluggans var jólahjörtu.

Það er góð heilsubót fyrir fjölskyldur að ganga um bæinn og skoða jólagluggana sem eru hver öðrum fallegri. Við minnum á jólaleikinn en í nokkrum gluggum er falinn bókstafur. Skólabörn fá jólagluggakort með sér heim úr skólanum núna næstu daga. Einnig er hægt að nálgast jólagluggaleikinn hjá þjónustuaðilum í bænum.

Heppin fjölskylda fær gjafakörfu frá þjónustuaðilum í bænum fyrir rétta lausn í jólaorðaleiknum.

Jól í bæ - fréttir

Jólasveinar úr Reykjafjalli koma í heimsókn
skrifað 30. nóv 2012

Jólaljósin eru farin að ljóma um allan bæ og verður haldið í hefðir í Hveragerði um aðventuna. Viðburðadagatalið er komið í hús bæjarbúa og verður margt skemmtilegt á dagskránni eins og undanfarin ár. Kveikt verður á jólatré bæjarins í Smágörðunum við hátíðlega athöfn kl 17, fyrsta sunnudag í aðventu, næstkomandi sunnudag.

  • 29. nóv 2012
    Jólatréð kemur úr Borgarhrauninu
  • 29. nóv 2012
    Bein útsending frá fundi
  • 26. nóv 2012
    Afmælisblað Hamars
  • 23. nóv 2012
    Grýla mætt á Undraland
  • 19. nóv 2012
    Aukið öryggi í Reykjadal
  • 09. nóv 2012
    Vinadagur á Undralandi
  • 07. nóv 2012
    Risakór í Grunnskólanum
  • 05. nóv 2012
    Útsvarslið okkar er tilbúið til leiks
  • 03. nóv 2012
    Hamarshöllin stóðst veðurofsann
  • 02. nóv 2012
    Listamannahúsið Varmahlíð
  • 29. okt 2012
    Starfsmannastefna samþykkt
  • 25. okt 2012
    Nemendur undirrita samninga
  • 25. okt 2012
    Um fjármál og fyrirhugaða rekstrarúttekt
  • 14. okt 2012
    Ferðamálastjóri á ferð
  • 08. okt 2012
    Mikil ánægja með nýja gólfið
  • 02. okt 2012
    Nýr göngustígur að Hamarshöllinni.
  • 01. okt 2012
    Íþróttagólf lagt í Hamarshöllinni
  • 20. sep 2012
    Ályktun gegn hækkunum skatta á ferðaþjónustu
  • 13. sep 2012
    Bein útsending frá bæjarstjórnarfundi
  • 23. ágú 2012
    Leikskólabörn bjóða í afmæli
12345678910111213141516171819202122232425
 
Mannlíf / Fréttir
 

Facebook logo Hveragerðisbær | Sunnumörk 2 | 810 Hveragerði | Sími 483 4000 | Fax 483 4801 | hve@hveragerdi.is | kt. 650169 4849 | Fréttir