logo_prufa
  •  Forsíða 
  •  Veftré 
  •  Hafa samband 
  •  Póstlisti 
  •  Hveragerðisbær 
  •  Mannlíf
    •  Atvinnulíf 
    •  Félagasamtök 
    •  Menning og listir 
    •  Íþróttir og útivist 
    •  Ágrip af sögu Hveragerðisbæjar 
    •  Heilsugæsla og heilbrigðiseftirlit 
    •  Vinabæir 
    •  Kirkju- og safnaðarstarf 
     
  •  Ferðamenn 
  •  Þjónusta 
  •  English 

Afhending á íþróttagöllum Hamars

skrifað 07. jún 2010

Í dag, mánudaginn 7. júní, verða íþróttagallar Hamars afhentir í íþróttahúsinu á milli kl. 17 og 19.

Fréttir frá Bókasafninu

skrifað 01. mar 2012

Prjónakaffi verður 12. mars kl. 20-22, en ekki 5. mars eins og hefðin segir. Við fáum nefnilega heimsókn frá Garnbúðinni Gauju í Mjódd og þær eru alltaf með prjónakaffi hjá sér fyrsta mánudagskvöld í mánuði eins og við.

Jólatréð komið á miðbæjartorgið

Jólatréð í ár kemur úr garðinum við Axelshús á Reykjum.
skrifað 24. nóv 2011

Nú er verið að vinna við uppsetningu jólatrésins á miðbæjartorginu en ljósin verða tendruð við hátíðlega athöfn á fyrsta sunnudegi í aðventu 27. nóvember næstkomandi. Jólasveinarnir taka forskot á sæluna og mæta úr Reykjafjalli en heyrst hefur að þeir hafi fengið sérstakt bæjarleyfi hjá Grýlu. Skátarnir bjóða uppá kakó og tendra eld við skátaheimilið sem stendur við torgið. Það er von okkar að sem flestir mæti og taki þátt í gleðinni.

Drift lokað

skrifað 01. jún 2010

Drift þjónustumiðstöð fólks í atvinnuleit hefur verið lokað að sinni. Rekstur miðstöðvarinnar verður tekinn til endurskoðunar og verður tilkynnt um þá ákvörðun í haust.

Sýningarlok í Listasafni Árnesinga

skrifað 24. feb 2011

Birgir Andrésson í máli og myndum síðasta sýningardag Þjóðlegrar fagurfræði sunnudaginn 27. febrúar kl. 15 Þröstur Helgason og Guðmundur Oddur Magnússon eða Goddur öðru nafni, munu fjalla um Birgi Andrésson(1955-2007), list hans og feril á sýningunni Þjóðleg fagurfræði næst komandi sunnudag, 21. febrúar kl. 15. Það er jafnframt síðasti sýningardagur sýningarinnar í Listasafni Árnesinga. Þröstur er höfundur bókarinnar Birgir Andrésson - Í íslenskum litum og Goddur er prófessor við Listaháskóla Ísland. Eins og þeim og viðfangsefninu er...

Auglýsing um kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu.

skrifað 29. mar 2011

Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu, sem fram á að fara laugardaginn 9. apríl 2011, liggur frammi á skrifstofu Hveragerðisbæjar, Sunnumörk 2. Skrifstofan er opin milli kl. 10:00-15:00 alla virka daga. 29. mars 2011 F.h. bæjarstjórnar Hveragerðis, Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri

Sumaráætlun Strætó

skrifað 28. maí 2010

Reykjavík, 28. maí 2010 Líkt og undanfarin ár breytist tíðni strætóferða á níu strætóleiðum í samræmi við minni eftirspurn á sumrin, auk þess sem nokkrar smávægilegar breytingar verða gerðar þegar sumaráætlun Strætó tekur gildi sunnudaginn 30. maí næstkomandi. Vagnar á leiðum 1, 2, 3, 4, 6, 11, 12, 14 og 15 munu aka á 30 mínútna tíðni í sumar, í stað 15 mínútna. Sú breyting verður jafnframt á leið 18 að ekið verður upp og niður Grensásveg milli Bústaðavegar og Miklubrautar í stað þess að aka allan Bústaðaveginn. Þá mun leið 19 aka...

Heimaleikur 3. nóvember Hamar - Njarðvík

skrifað 02. nóv 2010

  • 28. mar 2011
    IE-deildin Hamar - Njarðvík
  • 27. maí 2010
    Bjartar sumarnætur 2010
  • 24. feb 2011
    Bæjarstjórnarfundur 24. febrúar 2011
  • 25. mar 2011
    Sumarstörf laus til umsóknar
  • 17. nóv 2011
    Jólaviðburðadagatal 2011
  • 26. maí 2010
    Kjörfundur 2010
  • 29. okt 2010
    Skriðsundsnámskeið fyrir fullorðna.
  • 24. mar 2011
    Blessað barnalán - næstu sýningar
  • 18. feb 2011
    Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki
  • 23. mar 2011
    Hamar – Njarðvík á fimmtudaginn
  • 25. maí 2010
    Vegna umsókna um leikskólavistun barna á leikskóla Hveragerðisbæjar.
  • 17. mar 2011
    Körfubolti, Iceland Express deild kvenna
  • 18. maí 2010
    Garðaskoðun Garðyrkjufélags Íslands
  • 29. okt 2010
    Sundnámskeið fyrir börn fædd 2006 og eldri.
  • 12. maí 2010
    Auglýsing um kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga
  • 11. mar 2011
    Sýningin IS(not) og Úr kössum og koffortum í Listasafni Árnesinga
  • 16. feb 2011
    Blessað barnalán í Hveragerði.
  • 22. feb 2012
    Öskudagsfjör
  • 29. okt 2010
    Prjónakaffi í bókasafninu 1. nóvember
  • 08. mar 2011
    Körfubolti Iceland Express deild karla
12345678910111213141516171819202122232425
 
Mannlíf / Fréttir
 

Facebook logo Hveragerðisbær | Sunnumörk 2 | 810 Hveragerði | Sími 483 4000 | Fax 483 4801 | hve@hveragerdi.is | kt. 650169 4849 | Fréttir