Blóm í bæ 2012 – dagskrá Bókasafnsins
Safnið er opið kl. 13-19 á föstudeginum, kl. 11-17 á laugardeginum og 13-17 á sunnudeginum.
Bókasafnið í Hveragerði býður upp á sögustund fyrir yngri börnin í Listigarðinum á Fossflöt laugardaginn 23. júní kl. 14:30. Foreldrar og systkini eru velkomin með. Við verðum í brekkunni handan við brennustæðið.
Einnig verður sögustund á bókasafninu sunnudaginn 24. júní kl. 13:30 fyrir alla sem vilja hlusta. Sumarlestrarbörn eru sérstaklega velkomin og verður föndrað með þeim eftir sögustundina.
Sigurbjörg Eyjólfsdóttir verður á safninu föstudag kl. 17-19, laugardag og sunnudag kl. 13-17 og spjallar við gesti um verkin sín og málar á kerti. Sjá upplýsingar um sýninguna hér fyrir neðan.
Garðyrkju og blómabækur liggja frammi alla helgina og verður eitthvað af þeim til sölu.
Á ganginum framan við safnið verður sýningin „Listamannabærinn Hveragerði – fyrstu árin“ opnuð á föstudaginn kl. 17 og eru allir velkomnir. Sýningin er á vegum Listvinafélags Hveragerðis og verður opin áfram.
„Það er hægt að mála á allt“ Sigurbjörg Eyjólfsdóttir sýnir myndir og handverk „Við sprunguna“
Ný sýning hefur verið opnuð „Við sprunguna“ á Bókasafninu í Hveragerði. Þar sýnir Sigurbjörg Eyjólfsdóttir myndir og handverk af ýmsum toga, m.a. leirstyttur og myndir málaðar á tré og járn.
Sigurbjörg er fædd árið 1944 og hefur tekið þátt í ótal handverkssýningum. Hún lærði blómaskreytingar hjá Ringelberg í Rósinni, Vesturveri og segir að sá lærdómur hafi mótað listsköpun hennar mikið eða eins og hún segir: „þar lærði ég að búa til allt úr engu og geri enn í dag“. Hún lærði módelteikningu í myndlistarskóla og á meðan börnin hennar voru lítil málaði hún vöggusett og skírnarkjóla með taulitum. Þá eru ófá fermingarkertin sem hún hefur málað með nöfnum fermingarbarna. Sigubjörg stundaði nám í Handmenntaskóla Íslands á árunum 1981-1984 og var ein af stofnendum Myndlistarfélags Árnesinga. Hún hefur sótt ótal námskeið hjá félaginu og tekið þátt í samsýningum þess. Sigurbjörg rak verslunina Föndur og gjafir (áður Föndurskúrinn) á Selfossi í níu ár og fór þá að vinna mikið með leir. Sigurbjörg býr núna í Selvoginum og sækir myndefni mikið i umhverfi sitt, Strandarkirkju og sögurnar sem tengjast staðnum. Hún endurnýtir það efni sem til fellur eða hún finnur, og gerbreytir því með fallegu myndefni. Sýningin stendur til 10. júlí og er opin um leið og safnið, virka daga kl. 13-19 og laugardaga kl. 11-14.
fleiri fréttir
-
17. maí 2013Sýningin "Blóm í bæ" verður haldin árið 2014
-
17. maí 2013Danskt kaffihús í Grunnskólanum
-
17. maí 2013Regnbogafáni dreginn að húni
-
14. maí 2013Vinnuskóli og sumarnámskeið fyrir börn og ungmenni
-
10. maí 2013Góð niðurstaða rekstrar
-
07. maí 2013Bein útsending frá bæjarstjórnarfundi
-
30. apr 2013Sara Riel í Listasafninu 1. maí
-
30. apr 2013Menningarstund í kvöld
-
26. apr 2013Sundlaugin opin eftir framkvæmdir
-
26. apr 2013Björn Pálsson hlýtur umhverfisviðurkenninguna 2013